Vísir - 28.06.1965, Blaðsíða 1

Vísir - 28.06.1965, Blaðsíða 1
220 skip hætta síldveiðum. Mótmælt ákvörðun yfirnefndar um síldarverðið. Krafizt 250 kr. á mál í stað 220 króna. Stöðvunin ekki að frumkvæði L.Í.Ú. eða Sjómannasambandsins. Allur síldveiðiflotinn stöBvast ^llur sfldveiðiflotinn hefur nú stöðvast fyrir Aust- urlandi og eru nú engin skip að veiðum á miðun- um. Nær stöðvunin til um 220 síldarskipa. Með stöðvuninni vilja skipstjórar og forsvarsmenn skip- anna mótmæla ákvörðuninni um verð á bræðslu- síld sem yfirnefnd Verðlagsráðs sjávarútvegsins tilkynnti á föstudaginn. Með þeirri ákvörðun var verðið á bræðslusíld hækkað um 38 krónur frá því í fyrra, eða úr 182 krónum í 220 krónur málið. Stöðvun síldarflotans hafa skipstjórarnir framkvæmt án nokk- urs samrúðs við Landssamband íslenzkra útvegsmanna og er stöðv- unin á engan hátt gerð fyrir frumkvæði eða tiistuðlan samtaka útvegsmanna. Sjómennirnir á sildarskipunum áttu heldur ekki frumkvæði að stöðvuninni, samkvæmt upplýsingum forsvars- manna Sjómannasambandsins i morgun. Hér er þvi fyrst og fremst um einhliða ákvörðun skipstjóra á sfldarbátunum að ræða. Komu þeir skipstjórar sem staddir voru á Raufarhöfn á laugardaginn þar saman á fund og ákváðu að mótmæla s.íldar- verðinu og einnig bráðabirgða- lögunum um verðjöfnun og síld- arflutninga til Norðurlandsins. Sömdu þeir skeyti og sendu þess efnis til sjávarútvegsmála ráðherra. Landssambands ísl. útvegsmanna, Farmannasam- bandsins og Sjómannasambands Islands, þar sem þeir tilkynntu um þessa afstöðu' sína. Var þetta skeyti síðan lesið upp fyr- ir skipstjórum annarra skipa við Austurlandið í gegnum talstöðv arnar. Var þá bundizt samtök- um um að halda til hafnar og hætta veiðum, enda var bræla á miðunum og litla sem enga síld að fá. Er fjöldi skipa kominn til hafna á Norður og Austur- landi og allmörg skip væntanleg hingað til Reykjavíkur eftir há degið í dag. Það er ljóst að þessi afstaða skipstjóranna á síldarflotanum brýtur í bága við ákvæði laga um ákvörðun síldarverðsins. Sú ákvörðun var áður tekin ein- hliða af Síldarverksmiðjunum. Með lögum um Verðlagsráð sjáv arútvegsins frá 1961 var ákvörð unin fengin fulltrúum sjómanna og útvegsmanna annars vegar og síldarverksmiðjanna hins veg ar. Ef samkomulag næst ekki er verðákvörðuninni skotið til yfir nefndar mað hlutlausum odda- manni. Gerðist það í þetta skipti og tilkynnti meiri hluti yfir- nefndarinnar síldarverðið á föstudag. Þeirri ákvörðun er nú mótmælt á þennan hátt, án þess að nokkur frestur sé veitt- ur, en verkföll þarf að boða með viku fyrirvara. Gunnar Hermannsson skip- stjóri á Eldborg var einn þeirra skipstjóra sem að ákvörðun- inni stóðu um að hætta veiðum. Vísir átti tal við hann í morg un er skip hans var á leið til Reykjavíkur. Kvað hann það lág markskröfu skipstjóra að greidd ar yrðu 250 krónur fyrir síldar- málið eftir 14. júní og 220 kr. fyrir 14. júni Þá kvað hann einnig skipstjóra mótmæla bráðabirgðalögunum og ekki fara á veiðar aftur fyrr en þetta verð hefði fengizt samþykkt. Ekki frumkvæði útgerðarmanna. Sigurður Egilsson, fram- kvæmdastjóri Landssambands islenzkra útvegsmanna, sagði blaðinu i morgun, að veiflestir stjórnarmenn bátadeildar L. I. O. mundu mæta á sérstökum stjórnarfundi, sem boðaður var kl. 10 f morgun út af stöðvun- inni. Ub afstöðu L.I.Ú. visaði hann til mótmælasamþykktar- innar, sem bátadeildin gerði á föstudagskvöldið. Sigurður sagði, að útvegsmenn hefðu ekki átt neinn þátt í stýðvcun- inni og ekki vitað um hana, fyrr en skeytið barst frá skip- stjórunum. Ekki frumkvæði sjómanna. Er blaðið hafði í morgun tal af Jóni Sigurðssyni, formanni Sjómannasambands Islands, sagði hann, að sambandið mundi taka afstöðu til stöðv- unarinnar á fundi kl. 18 í kvöld. Þessi stöðvun væri gerð að frumkvæði skipstjóranna og skeytið undirskrifað af þeim, en hann gerði samt ráð fyrir, að áhafnirnar á bátum þessara skipstjóra stæðu á bak við þá. Jón sagðist telja, að því nær allur síldarflotinn hefði stöðv- azt. Raufarhöfn. Á Raufarhöfn eru milli 500 og 600 aðkomumanna og bíður flest af þessu fólki aðgerða- laust. Hins vegar er brætt að fullum krafti hjá Síidarbræðsl- unni, og talið er að hún hafi nóga sild til þess að bræða í viku. „Hér voru inni milli 20—30 skip, þegar stöðvunin skall á og fóru flest þeirra þá austur eða norður til Akureyrar", sagði Ásgeir Ágústsson, hafn- arstjóri, þegar við ræddum við hann í morgun. Ásgeir sagði að í höfninni væru nú fimm eða sex skip, þar af þrjú frá Akureyri. Sennilega ætla á- hafnir þessara skipa að bíða átekta og sjá hvað skeður á næstunni, en áhöfnin á Ólafi Óskarssyni fór suður í gær. Neskaupstaður. „Sennilega liggja hér í höfn- inni milli 20 og 25 skip, þá eru öll skipin héðan talin með,“ sagði Ragnar Sigurðsson, hafn- arvörður, þegar Vísir hafði samband við Neskaupstað f morgun. Ragnar sagði að á- hafnir margra aðkomuskip- anna hefðu flogið heim strax í gær og margir sjómenn myndu fara heim í dag. Skipunum hef- ur fækkað eitthvað hér í höfn- inni, og eru það aðkomuskip, sem hafa siglt til heimahafnar, sagði Ragnar. Mjög gott veður var á Neskaupstað í morgun, sól og logn. Síldarbræðslan hefur einnig stöðvazt, en síð- asta síldin var brædd þar á laugardag. Akureyri. Frá fréttaritara Vísis á Akur eyri í morgun. Höfnin hér hefur fyllzt af sk'ipum vegna stöðvunar síld- veiðiflotans. Um 20 skip eru hér núna, mest Akureyrarbát- ar, en einnig nokkrir aðrir, sem ætlað að nota hléið til viðgerða. Þá er hér heilmikið af sjómönn um af skipum, sem voru skilin eftir í höfnum eystra. Þeir hafa komið hingað með öðrum skip- um og með flugvélum, og hef- ur Tryggvi Helgason haft nóg að gera með allar sínar vélar við þessa mannflutninga. Hér virðast sjómenn vera óánægð- astir með að sérstakt, lægra Framh. á bls. 6. Stórslys ó Miklubmutimii ó luugurdagsnótt Alvarlegt umferðarslys varð á Miklubraut gegnt samkomuhúsinu Lldo rétt um miðnæturleytið að- faranótt laugardagsins. Rétt áður en slysið varð var station bifreið ekið austur Miklu- brautina, en hafði orðið að nema staðar vegna bilunar móts við Lido. Var ökumaðurinn að reyna að koma bílnum í gang á nýjan leik þegar 16 ára piltur Jón Sig- urðsson, Ásgarði 73, kom aðvíf- andi austur götuna á skellinöðru og ók ámikilli ferð aftan á bílinn. Engin hemlaför sáust eftir skelli nöðruna og er helzt gizkað á að piltinum hafi sýnzt bifreiðin vera á ferð og ekki veitt því athygli að hún stóð kyrr. Við áreksturinn flaug Jón af hjólinu og lenti með andlitið, að talið er á efri brún afturgluggakarms bif- reiðarinnar, enda var höggið svo mikið að þar sá dæld í bflinn á eftir. Jón slasaðist illa í andliti, kjálka brotnaði og hlaut aðra mikla á- verka. Sjúkrabifreið flutti hann fyrst í slysavarðstofuna, en þaðan svo skömmu síðar í Landspítalann. Annað umferðarslys varð á laugardagskvöldið. Þar lenti 16 ára piltur á skellinöðru í árekstri við bifreið og slasaðist. Pilturinn heit- ir Hlöðver Hlöðversson til heim- ilis að Meistaravöllum 19. Blaðið veit ekki um meiðsli hans, en hann kvartaði undan innvortisþrautum og var um kvöldið fluttur í slysa- varðstofuna. Einhver umferðaróhöpp urðu utan við borgina um helgina. M. a. næsta slæm bflvelta fyrir ofan Grafarholt aðfaranótt laugardags- ins. Bifreiðin stórskemmdist, en þeir sem í henni voru sluppu ó- meiddir. 1 gær valt bíll á Þingvallavegi austan Stardals. Þar sluppu menn líka ómeiddir. I nótt ók dauðadrukkinn maður á staur á Laugavegi móts við nr. 34. Staurinn lagðist út af, bif- reiðin stórskemmdist, en ökumað- urinn fékk gistingu hjá lögregl- unni. , Síðastliðna nótt voru spellvirki unnin á garði við barnaheimilið Haga- : borg. Að öllum líkindum hafa þar verið unglingar á ferð, og hafa þelr traðkað niður blómabeð og gjöreyðilagt öll sumarblóm og gert til : raun til að rífa upp trjárunna. Ómögulegt er að ímynda sér hverjar hvatir Iiggja að baki þessum skemmdarverkum, en foreldrar vinsaml. beðnir að hvetja börn sín til góðrar umgengni. Litla stúlkan á mynd- j inni sýnir hvernig hríslumar voru rifnar upp.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.