Vísir - 28.06.1965, Síða 11
RITSTJÓRI: JON BIRGIR PETURSSON
bmraraifiítffiKvM&ssaaíSi!
IHKrtlWi
iriærsKiii
VISIR . Mánudagur 28. iúní 1965.
Lið Reykjavikur.
SBU vann Akureyri 2:0
Úrvalslið Sjálendinga kom til
Akureyrar um helgina og lék þar
við heimaliðið. Var leikurinn jafn
og léku liðin nokkuð svipað, léttan
i og góðan leik án margra tækifæra.
I Upphaf og endir leiks voru f hönd-
um gestanna og réði það úrslitum,
því í lokin skoruðu þeir bæði
mörk sín og var Jörgen Jörgensen
að verki í bæði skiptin nieð falleg
mörk á 25. og 35. mín.
ANNAE YJAR
ÞRÓTTUR 06
EFST í RIÐLUNUM í 2 DEILD
Önnur deild var ráðandi á knattspyrnusviðinu um
helgina. Má segja að ekkert óvænt hafi gerzt utan
það að á föstudagskvöldið vann Breiðablik á heima-
vellinum við Vallargerði leik sinn við ísfirðinga.
Þarna glötuðu hinir ágætu knattspyrnumenn þeirra
vestanmanna tveim dýrmætum stigum. Þess vegna
héldu þeir heim í morgun sem liðið í öðru sæti í b-
riðlinum, en ekki sem forystuliðið, sern þeir hefðu
orðið með sigri.
ísfirðingar áttu í þessum leik
mun fleiri tækifæri til að skora,
en það er ekki nóg. Það voru
heimamenn Breiðabliks sem komu
boltanum oftar í netið og var Grét
m*
ar Kristjánsson í bæði skiptin að
verki með laglegum skotum. Gunn
ar Sigurjónsson skoraði mark fs-
firðinga. ísfirðingar skoruðu annað
mark í seinni hálfleik, en línu-
vörður taldi að um rangstöðu hefði
verið að ræða. Leikurinn var ann-
ars nokkuð grófgerður og takt-
ískur leikur fyrirfannst vart.
Suður í Sandgerði unnu Þróttar
ar stóran sigur gegn heimaliðinu,
Reyni, skoruðu 7 mörk gegn engu.
Voru Þróttarar mun betri, eins
og sjá má af markatölunni, ekki
sízt í seinni hálfleik, þegar þeir
skoruðu 5 markanna. Axel Axels-
son var langbezti maðurinn og
réð vörn Reynis ekkert við hann
og fjórum sinnum skoraði hann
sjálfur. Dómaranefnd stóð sig held
ur illa gagnvart þessum leik. Dóm
arinn, sem mætti var Þróttari, og
enda þótt hann dæmdi vel, ættu
svona mistök ekki að koma fyrir
aftur.
fsfirðingar voru aftur i eldinum
í gærdag. Þeir unnu FH á Hval-
eyrarholti með 4:2 og stóðu leik
ar þó þannig í hálfleik að líkur
voru fyrir þvi, að Hafnfriðingar
færu með sigur af hólmi. Höfðu
þeir skorað 2:0 á móti vindinum.
En ísfirðingarnir hertu sig og áð-
ur en varði hafði Kristmann Krist
mannsson skorað og Halldór Guð
bjarnarson jafnaði. Á eftir fylgdu
mörk Tryggva Sigtryggssonar og
Halldórs. Óvæntur sigur eins og
staðan var í hálfleik, en sanngjarn.
Vestmannaeyingar tóku fyrsta
sætið í b-riðiinum á laugardag með
sigri yfir Víking 3:1. Aðalsteinn
Sigurjónsson skoraði tvö mark-
anna, en Ingvi Geir Skarphéðins-
son eitt fyrir Vestmannaeyjar. Vík
ingarnir ná alltof litlu út úr liði
sínu, sem er skipað vel leikandi
einstaklingum, ungum piltum, sem
virðast ekki hafa nægilegt sjálfs-
traust til að berjast til sigurs.
Á Siglufirði var ekki búizt við
Skarphéðinsmönnum. Þeir hafa nú
ákveðið að vera ekki með og er
það leitt. Hefur þeim eflaust þótt
nóg um, þegar þeir fengu 12 mörk
gegn Þrótti í fyrsta leik. Hafa þeir
síðan ekki mætt. Þetta vekur upp
þá spurningu hvort KSÍ beri ekki
að stofna 3. deild í knattspyrnu.
Það eru mörg knattspyrnulið úti á
landi, sem mundu vilja taka þátt
í þeirri deild, því 2. deild er of
sterk fyrir þau lið. — jbp—
DANIR FENGU SKELL
Rússar unnu 6:0 ú lenin Studion í gær I riðlinum þessi: Rússar með 6 stig,
Grikkir 4, Danir og Wales með
^hvqrferGri^laníj og-Wales hafa
> leikið- ér.leiki én DatiiR ógrRússar
3 hvort land.
Danska, landsliðið í. knattispyrnu
j sem kemur til ReyJtjavíkur eftir
tvær vikur fékk heldur betur
skell eftir Svíasigurinn um síðustu
helgi, þegar liðið lék við Rússa í
gærdag i Moskvu, en leikurinn var
liður í HM í knattspyrnu. Unnu
Rússar með 6:0.
í fyrri hálfleik var vörn Dan-
anna í ágætu lagi og s'taðan í hálf-
leik var aðeins 1:0.
Yfir 100.000 áhorfendur komu
til að horfa á leikinn á L^nin
Stadion og fengu að sjá- hina frá-
bæru ‘framherja léiká sér ací
dönsku vörninni í seinni hálfleik.
Það var engu lfkara en að Danirn-
ir hefðu gefið allt sitt bezta í leikn
um við Svía og í framlínunni var
ekki nokkur kraftur. Mörk Rússa
skoruðu Barkai 2, Khasainov,
Metreveli, Voronin og Meshki eitt
hver.
Eftir þennan leik er staðan í
Reykjavík vann 2:0
ÞÓR
VANN
Dani þakkar Reykvíkingi fyrir
leikinn.
Reykjavíkurúrval unglinga vann
danska liðið Herlev f gærkvöld
með tveim mörkum gegn engu.
Fór leikurinn am á Melavellinum
f Reykjavík og voru áhorfendur
allmargir.
í hálfleik var staðan 1:0 en j
Reykjavíkurliðið bætti öðru marki j
við um miðjan seinni hálfleik. —;
Hermann Gunnarsson skoraði j
bæði mörkin.
Þriðji flokkur frá Þór í Vest-
mannaeyjum er um þessar
mundir í Danmörku, og lék
fyrsta leik sinn 19. júní í Her-
fölge. Fararstjórinn, Alexander
Guðmundsson, sendi Vísi eftir-
farandi um leikinn:
„Við unnum leikinn með 5:1
á illa slegnum og lélegum velii.
Frammistaða strákanna okkar
kom mér sannarlega á óvart og
þeir léku mjög vel. Við fórum
á Idrætsparken og sáum lands-
ieik Svía og Dana. Okkur
fannst ieikurinn heldur lélegur
og Ole Madsen vildi gera ein-
um of mikið sjálfur f að sigra
3víana“.
2. deild
k Sandgerði—Þróttur 0:7 (0:2)
★ FH—ísafjörður 2:4 (2:0)
k Siglufjörður—Skarphéðinn
Skarphéðinn mætti ekki og
mun hafa dregið sig til baka
í keppninni.
k Vestmannaeyjar—Víkingur
. 3:1 (2:0).
A-riðill:
Þróttur 4 3 1 2 19:6 7
Siglufj. 3 1 1 1 8:7 3
Haukar 3 1 1 1 5:6 3
Sandgerði 4 0 1 3 2:15 1
B-riðill:
V.eyjar 4 3 0 1 13:8 6
Isafjörður 5 3 0 2 17:13 6
FH 5 2 1 2 13:7 5
Breiðablik 3 2 0 1 5:10 4
Víkingur 5 0 1 4 5:15 1
Markhæstu menn í 2. deild:
Axel Axelsson, Þrótti, 6
Eiríkur Helgason, FH, 6
Kristmann Kristmannss., Isaf. 5
Grétar Kristjánss., Breiðabl. 4
Erlingur Sigurlaugss., ísaf,. 4
Haukur Þorvaldsson, Þrótti, 4,
Sá markhæsti varð
4.—6. í rööinni.
Vegna þess að Skarphéðinn
hættir þátttöku í 2. deild verð-
ur að draga 6 mörk af Hauki
Þorvaldssyni, sem hafði skorað,
og hefur skorað, 10 mörk í
deildinni. Sömuleiðis er marka-
tala Þrýttar 1,9:6 yn ekki )31:6,
sem. liún væri að öðrpm kosti.
UNGVERJAR
UNNU ÍTALI
Ungverjar unnu í gær Italíu í
leik í Búdapest. Úrslitin voru 2:1,
en f hálfleik höfðu Ungverjar yfir
1:0. Mörkin skoruðu Florian Al-
bert f fyrri hálfleik fyrir Ungverja,
Saridor Mazzola jafnaði fyrir
Ítalíu og sigurmarkið kom frá
hægri innherjanum Ferenc Bene 9
mínútum fyrir leikslok.
Góður úrangur
Ólufs Guðm. í
200 og 400 m.
Ólafur Guðmundsson úr KR náði
ágætum árangri f 200 og 400
metra filaupi um helgina, en þess-
ar greinar voru aukagreinar á
sveinameistaramótinu í frjálsum
íþróttum.
I 200 metra hlaupinu fékk hann
22.2 sek. og í 400 metrunum 49.8
sek., en hvort tveggja eru hans
beztu timar.
Er hann í mjög mikilli framför
og verður gaman að fylgjast með
honum á hlaupabrautinni í sumar.