Vísir - 28.06.1965, Blaðsíða 11

Vísir - 28.06.1965, Blaðsíða 11
RITSTJÓRI: JON BIRGIR PETURSSON bmraraifiítffiKvM&ssaaíSi! IHKrtlWi iriærsKiii VISIR . Mánudagur 28. iúní 1965. Lið Reykjavikur. SBU vann Akureyri 2:0 Úrvalslið Sjálendinga kom til Akureyrar um helgina og lék þar við heimaliðið. Var leikurinn jafn og léku liðin nokkuð svipað, léttan i og góðan leik án margra tækifæra. I Upphaf og endir leiks voru f hönd- um gestanna og réði það úrslitum, því í lokin skoruðu þeir bæði mörk sín og var Jörgen Jörgensen að verki í bæði skiptin nieð falleg mörk á 25. og 35. mín. ANNAE YJAR ÞRÓTTUR 06 EFST í RIÐLUNUM í 2 DEILD Önnur deild var ráðandi á knattspyrnusviðinu um helgina. Má segja að ekkert óvænt hafi gerzt utan það að á föstudagskvöldið vann Breiðablik á heima- vellinum við Vallargerði leik sinn við ísfirðinga. Þarna glötuðu hinir ágætu knattspyrnumenn þeirra vestanmanna tveim dýrmætum stigum. Þess vegna héldu þeir heim í morgun sem liðið í öðru sæti í b- riðlinum, en ekki sem forystuliðið, sern þeir hefðu orðið með sigri. ísfirðingar áttu í þessum leik mun fleiri tækifæri til að skora, en það er ekki nóg. Það voru heimamenn Breiðabliks sem komu boltanum oftar í netið og var Grét m* ar Kristjánsson í bæði skiptin að verki með laglegum skotum. Gunn ar Sigurjónsson skoraði mark fs- firðinga. ísfirðingar skoruðu annað mark í seinni hálfleik, en línu- vörður taldi að um rangstöðu hefði verið að ræða. Leikurinn var ann- ars nokkuð grófgerður og takt- ískur leikur fyrirfannst vart. Suður í Sandgerði unnu Þróttar ar stóran sigur gegn heimaliðinu, Reyni, skoruðu 7 mörk gegn engu. Voru Þróttarar mun betri, eins og sjá má af markatölunni, ekki sízt í seinni hálfleik, þegar þeir skoruðu 5 markanna. Axel Axels- son var langbezti maðurinn og réð vörn Reynis ekkert við hann og fjórum sinnum skoraði hann sjálfur. Dómaranefnd stóð sig held ur illa gagnvart þessum leik. Dóm arinn, sem mætti var Þróttari, og enda þótt hann dæmdi vel, ættu svona mistök ekki að koma fyrir aftur. fsfirðingar voru aftur i eldinum í gærdag. Þeir unnu FH á Hval- eyrarholti með 4:2 og stóðu leik ar þó þannig í hálfleik að líkur voru fyrir þvi, að Hafnfriðingar færu með sigur af hólmi. Höfðu þeir skorað 2:0 á móti vindinum. En ísfirðingarnir hertu sig og áð- ur en varði hafði Kristmann Krist mannsson skorað og Halldór Guð bjarnarson jafnaði. Á eftir fylgdu mörk Tryggva Sigtryggssonar og Halldórs. Óvæntur sigur eins og staðan var í hálfleik, en sanngjarn. Vestmannaeyingar tóku fyrsta sætið í b-riðiinum á laugardag með sigri yfir Víking 3:1. Aðalsteinn Sigurjónsson skoraði tvö mark- anna, en Ingvi Geir Skarphéðins- son eitt fyrir Vestmannaeyjar. Vík ingarnir ná alltof litlu út úr liði sínu, sem er skipað vel leikandi einstaklingum, ungum piltum, sem virðast ekki hafa nægilegt sjálfs- traust til að berjast til sigurs. Á Siglufirði var ekki búizt við Skarphéðinsmönnum. Þeir hafa nú ákveðið að vera ekki með og er það leitt. Hefur þeim eflaust þótt nóg um, þegar þeir fengu 12 mörk gegn Þrótti í fyrsta leik. Hafa þeir síðan ekki mætt. Þetta vekur upp þá spurningu hvort KSÍ beri ekki að stofna 3. deild í knattspyrnu. Það eru mörg knattspyrnulið úti á landi, sem mundu vilja taka þátt í þeirri deild, því 2. deild er of sterk fyrir þau lið. — jbp— DANIR FENGU SKELL Rússar unnu 6:0 ú lenin Studion í gær I riðlinum þessi: Rússar með 6 stig, Grikkir 4, Danir og Wales með ^hvqrferGri^laníj og-Wales hafa > leikið- ér.leiki én DatiiR ógrRússar 3 hvort land. Danska, landsliðið í. knattispyrnu j sem kemur til ReyJtjavíkur eftir tvær vikur fékk heldur betur skell eftir Svíasigurinn um síðustu helgi, þegar liðið lék við Rússa í gærdag i Moskvu, en leikurinn var liður í HM í knattspyrnu. Unnu Rússar með 6:0. í fyrri hálfleik var vörn Dan- anna í ágætu lagi og s'taðan í hálf- leik var aðeins 1:0. Yfir 100.000 áhorfendur komu til að horfa á leikinn á L^nin Stadion og fengu að sjá- hina frá- bæru ‘framherja léiká sér ací dönsku vörninni í seinni hálfleik. Það var engu lfkara en að Danirn- ir hefðu gefið allt sitt bezta í leikn um við Svía og í framlínunni var ekki nokkur kraftur. Mörk Rússa skoruðu Barkai 2, Khasainov, Metreveli, Voronin og Meshki eitt hver. Eftir þennan leik er staðan í Reykjavík vann 2:0 ÞÓR VANN Dani þakkar Reykvíkingi fyrir leikinn. Reykjavíkurúrval unglinga vann danska liðið Herlev f gærkvöld með tveim mörkum gegn engu. Fór leikurinn am á Melavellinum f Reykjavík og voru áhorfendur allmargir. í hálfleik var staðan 1:0 en j Reykjavíkurliðið bætti öðru marki j við um miðjan seinni hálfleik. —; Hermann Gunnarsson skoraði j bæði mörkin. Þriðji flokkur frá Þór í Vest- mannaeyjum er um þessar mundir í Danmörku, og lék fyrsta leik sinn 19. júní í Her- fölge. Fararstjórinn, Alexander Guðmundsson, sendi Vísi eftir- farandi um leikinn: „Við unnum leikinn með 5:1 á illa slegnum og lélegum velii. Frammistaða strákanna okkar kom mér sannarlega á óvart og þeir léku mjög vel. Við fórum á Idrætsparken og sáum lands- ieik Svía og Dana. Okkur fannst ieikurinn heldur lélegur og Ole Madsen vildi gera ein- um of mikið sjálfur f að sigra 3víana“. 2. deild k Sandgerði—Þróttur 0:7 (0:2) ★ FH—ísafjörður 2:4 (2:0) k Siglufjörður—Skarphéðinn Skarphéðinn mætti ekki og mun hafa dregið sig til baka í keppninni. k Vestmannaeyjar—Víkingur . 3:1 (2:0). A-riðill: Þróttur 4 3 1 2 19:6 7 Siglufj. 3 1 1 1 8:7 3 Haukar 3 1 1 1 5:6 3 Sandgerði 4 0 1 3 2:15 1 B-riðill: V.eyjar 4 3 0 1 13:8 6 Isafjörður 5 3 0 2 17:13 6 FH 5 2 1 2 13:7 5 Breiðablik 3 2 0 1 5:10 4 Víkingur 5 0 1 4 5:15 1 Markhæstu menn í 2. deild: Axel Axelsson, Þrótti, 6 Eiríkur Helgason, FH, 6 Kristmann Kristmannss., Isaf. 5 Grétar Kristjánss., Breiðabl. 4 Erlingur Sigurlaugss., ísaf,. 4 Haukur Þorvaldsson, Þrótti, 4, Sá markhæsti varð 4.—6. í rööinni. Vegna þess að Skarphéðinn hættir þátttöku í 2. deild verð- ur að draga 6 mörk af Hauki Þorvaldssyni, sem hafði skorað, og hefur skorað, 10 mörk í deildinni. Sömuleiðis er marka- tala Þrýttar 1,9:6 yn ekki )31:6, sem. liún væri að öðrpm kosti. UNGVERJAR UNNU ÍTALI Ungverjar unnu í gær Italíu í leik í Búdapest. Úrslitin voru 2:1, en f hálfleik höfðu Ungverjar yfir 1:0. Mörkin skoruðu Florian Al- bert f fyrri hálfleik fyrir Ungverja, Saridor Mazzola jafnaði fyrir Ítalíu og sigurmarkið kom frá hægri innherjanum Ferenc Bene 9 mínútum fyrir leikslok. Góður úrangur Ólufs Guðm. í 200 og 400 m. Ólafur Guðmundsson úr KR náði ágætum árangri f 200 og 400 metra filaupi um helgina, en þess- ar greinar voru aukagreinar á sveinameistaramótinu í frjálsum íþróttum. I 200 metra hlaupinu fékk hann 22.2 sek. og í 400 metrunum 49.8 sek., en hvort tveggja eru hans beztu timar. Er hann í mjög mikilli framför og verður gaman að fylgjast með honum á hlaupabrautinni í sumar.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.