Vísir - 05.07.1965, Blaðsíða 5
VlSIR . Mánudagur 5. júlí 1965.
útlöiíd í raorftun
útlönd'I morgtm
utlönd '1 morgun
utlönd ' í.' möpgun
Hlé á sprengjuárásum stöíugt til
athugunar hjá Bandaríkjastjórn
Bandaríkjastjórn hefir lýst
sig reiðubúna til þess að gera
hlé á. loftárásum á Norður-Viet
nam, ef það mætti verða til
þess að greiða fyrir samkomu-
'eiGsumleitunum um frið.
'5ean Rusk skýrði frá þessu í
ivarpsræðu f gær. Hann
k að svo að orði, að Bandaríkja
stjórn hefði stöðugt til athugun
ar að gera hlé á loftárásum á
Norður-Vietnam, en þess sæjust
enn engin merki, að það mundi
breyta nokkru um þá afstöðu
kommúnista, að neita að setja
að samningaborði til þess að
reyna að koma á friði íVietnam
Seinustu fréttir herma, að
ekkert lát sé á sprengjuárásum.
Sprengjuflugvélar frá flugvéla-
skipum gerðu árásir í gær á
skotfærabirgðastöð, en lfkur
eru fyrir að búið hafi verið að
flytja skotfærabirgðirnar á ör-
uggari stað, þegar árásin var
gerð.
Þá fréttist í morgun að B-52
sprengjuflugvélar frá Guam
hafi komið til nýrrar árásar á
Norður Vietnam. Varpað var
sprengjum á stað, þar sem mik-
ill liðssamdráttur átti sér stað.
Þá var sagt f fréttum í morg-
un, að líkur bentu til að verið
væri að afferma sovézk fhitn-
ingaskip í Norður Vietnam.
Sir Patrick Dean, sem var
aðalfulltrúi hjá Sameinuðu þjóð
unum og nú er sendiherra lands
síns (Bretlands) i Washington,
sagði í ræðu í gær, að of
snemmt væri að leggja Vietnam
málið fyrir Sameinuðu þjóðirn-
ar. Hann kvaðst enn vona, að
tekið yrði á móti Friðarnefnd
samveldisráðstefnunnar, og að
það mætti verða til þess að
greiða fyrir samkomulagi.
heims-
horna
milli
^ Frétt frá Santo Domingo
hermir, að 30—40 vopnaðir
menn hafi vegið tvo lögreglu-
þjóna og sært 3 aðra. Gerðist
þetta við lögreglustöð í Ramon
Santana. Árásarmenn hrópuðu
„lengi lifi Caamano", ér þeir
hófu árásina.
¦jc U Tfaant framkvstj. Same'in-
uðu þjóðanna er kominn til
Genf og situr fund Efnahags-
og félagsmálaráðs þeirra.
>> Útkoma blaðsins SAIGON
TTMES (kemur út á ensku) hef
ir verið bönnuð í 5 daga vegna
frétta um árásina á Da Nang
flugstöðina. Blaðið er mest lesið
af bandarískum hermönnum. —
Útkoma 26 suðurvietnamskra
blaða hefir verið bönnuð í einn
mánuð.
¦jc Tito forseti Júgóslavíu
héimsðtti fyrir seinustu helgi
flóðasvæðin við Dóná og Drövu
þar sem 35.000 manns hafa flú-
ið heimili sín. 7000 hús eyði-
lagzt og akrar að flatarmáli
100.000 hektarar, en þarna var
éitthvert bezt ræktaða land í
allri álfunni. Enn gera flóðin
usla. 1000 menn voru fluttir
á laugardag frá Backa Palanka,
40 km. frá Novi Sad, sem er
miðstöð landbúnaðarhéraðanna,
sem flætt hefur yfir.
>• Fjórar Bandaríkjaflugvélar
voru skotnar niður í sprengju-
árásinni á olíustöðina í Nam
Dinh — að því er hermt er í
tilkynningu frá Hanoi. Árásinni
er lýst sem „nýju og hættulegu
skrefi til Utbreiðslu styrjaldar-
innar". — Vietcong-lið gerði
árás með sprengjuvörpum á
bandarísku flugstöðina í Can
Tho og skutu yfir 20 sprengjum
en allar misstu marks.
it; Frétt frá Melbourne á Flor
idaskaga hermir, að fundizt
hafi þar ^pönsk gale'iða á sjáv-
arbotni. Búið er að ná upp
einni lest af silfri (í stöngum).
í fyrra var bjargað málmum
og gripum að verðmæfi um 60
milljónir kr. úr annarri
spánskri galeiðu á sjávarbotni.
Skip þess'i voru í spönskum
flota, sem sökk við Florida-
skaga í hvirfilvindi 1715.
Moumedienne.
%¦ Fjórir þingmenn úr flokki
republikana í Bandaríkjunum
hafa hvatt Johnson forseta til
þess að fara til Parísar og ræða
þar við de Gaulle forseta til
þess að greiða fyrir að jðfnuð
verði ágreiningmál .Bandaríkja-.
manna og Frakka.
? Gata í París hefir fengið
nýtt heiti — ber nafn Churc-
hills.
Þríggja ára sjálfstæBisaf-
mæli Alsír l dag
Boumedienne flytur uvurp
og ntyndur ríkisstjórn
1 dag eru 3 ár liðin frá því
Alsír varð sjálfstætt. Bóumedienne
flytur útvarpsræðu og skýrir nú £
fyrsta sinn frá niií'num allra þeirra,
sem sæti eiga í Byltingarráðinu, en
ráðið hefir nú falið Boumedienne
stjórnarmyndun.
Ben Bella hafði fyrirskipað und-
irbúning mikilla hátfðahalda, en
stöðvun varð á öllu slíkH þegar
Ben Bella var steypt og yfirleitt
búast menn við, að deyfð verði
yfir öllu, — menn óttast meira
ókyrrð. — Skoðun margra, sem
gerst fylgjast með málum, er því
sií, að þW Sem^gerislí f 'dág1 kunni
að reynásti mlkilÝeÉg1'' vísbending
um hugarfar fólksins i garð Ben
Bella og Byltingarráðsins. Nú er
hálfur mánuður liðinn frá þvi bylt
ingin var háð og margt í óvissu
jafnvel um það hverjir skipa Bylt
ingarráðið, þar til í dag að Bomedi-
enne skýrir frá því.
Ef til vill gerir Boumedienne ýt-
arlega grein fyrir stefnu og áform
um hinnar nýju stórnar og ef til
vill skýrir hann frá skipun hennar,
en hann sagði í gær f viðtali við
fréttaritara Kairoblaðsins Akhbars,
að hann ætlaði ekki að stofna
hernaðarlegt einræði í landinu,
heldur miða að sérstökum „alsírsk
um socialisma", sem reynslan
hefði sýnt að hiyndi henta þar í
landi. •
Haile Selassie Eþíópíukeisari
sagði fréttamönnum í gær, að
Boumedienne og Bouteflika hefðu
fullvissað sig um, að Ben Bella
væri á lífi.
-'ASTMAfi-
Yarðveitið
augnablikið
með KODAK filmu!
Þér getið treyst KODAK filmum
— mest seldu filmum í heimi
HANS PETERSEN!
Sii 20313 BANKASTRIETI4