Vísir - 05.07.1965, Síða 6
6
V1SIR . Mánudagur 5. júlí 1965.
Iþróttir —
Framh. af bls 2.
tirslit í sundi á sunnudag.
100 m. baksund karla:
Davíð Valgarðsson, UMFK, 1:12.0
Gfsli Þór Þorvarðars., HSH, 1:08,4
Þór Magnússon UMFK, 1:27.0
800 m. frjáls aðferð karla:
Davfð Valgarðsson, UMFK, 10:19.5
Birgir Guðjónsson, UMSS, 11:45.5
Ing’im. Ingimundars., HSS, 12:13.8
50 m. baksund kvenna:
Ingunn Guðmundsdóttir, HSK, 38.6
Auður Guðjónsdóttir, UMFK, 38.8
Ingi'björg Harðardóttir, UMSS, 42.5
400 m. frjáls aðferð kvenna:
Ingunn Guðmundsd., HSK, 6:10,9
Auður Guðjónsdóttir, UMFK, 6:23.5
Andrea Jónsdóttir, HSK, 7:01.7
Fjölbreytt héraðssamkoma
á sunnudag.
Keppni í gær hófst kl. 9.15 og
var þá fyrst keppt í hástökki
karla, þrfstökki og kringlukast'i
kvenna.
Fyrir hádegið kepptu einnig S.-
Þingeyingar og Keflvfkingar í
handknattleik. Kl. 13.15 messaði
séra Eiríkur J. Eiríksson, kór
Skálholtskirkju söng undir stjórn
Róberts A. Ottóssonar. Stefán Jas-
onarson, form. Landsmótsnefndar
flutti ávarp. Að ávarpi hans loknu
tók til máls forseti Islands, herra
Ásgeir Ásgeirsson. En á eftir ræðu
forsetans söng Söngfélag Hreppa-
manna undir stjóm Sigurðar Á-
gústssonar. Þá fór fram vikivaka-
sýning undir stjóm Hafsteins Þor-
valdssonar. Bjami Bjamason, fyrr
verand'i skólastjóri, sem jafnframt
• var heiðursgestur Landsmótsins
flutti ræðu. Á eftir ræðu Bjarna
fór fram sögusýning: Álftamýrar-
. samþykktin, eftir séra Sigurð Ein
arsson í Holti. Sýningin var flutt
i af Ungmennafélagi Hrunamanna,
en hún var byggð á hinum sögu-
fræga fundi, sem bændur f Árnes-
sýslu héldu á Álftamýri 1596 til
þess að mótmæla m.a. vanefndum
á Gamla sáttmála og yfirgangi
Bessastaðavaldsins. Á eftir flutti
Sigurður Gre’ipsson, form. Skarp-
" héðins stutt ávarp. Lúðrasveit Sel
foss undir stjórn Ásgeirs Sigurðs-
sonar lék milli atriða á hátíðarsam
komunni, sem fór fram við sýn-
ingarpallinn. Á eftir var dagskrá-
in færð yfir á hinn nýja leikvang
1 íþróttakennaraskólans. Þar fóru
» fram m.a. tvær glæsilegar hóp-
1 sýningar undir stjórn Þóris Þor-
! geirssonar og Mínervu Jónsdóttur.
> Kl. 16.45 hófst glímusýning og
sýndu þar m.a. margir af þekkt-
ustu glfmumönnum landsins.
■ Vel heppnað mót.
I Keppni var lokið fyrir kvöld-
1 mat, en um kvöldið var stiginn
[ dans. Sigurvegari í knattspyrnu á
v Landsmótinu var Ungmennafélag
v Keflavíkur, er hlaut 14 stig. Sigur-
» vegari í handknattleik varð Ung-
mennasamband Kjalarnessþings
v einnig með 14 stig. í körfuknattl.
sigraði Héraðssambandið Skarp-1
héðinn. Það fór einníg svo að
Skarphéðinn sigraði á þessu móti,
hlaut 271 stig og var langt fyrir
ofan næsta félag, sem var Héraðs-
samband Suður-Þingeyinga, er
hlaut 188 stig. Ungmennafélag
Keflavíkur varð þriðja í röðinni
með 93 stig. Númer fjögur Ung-
mennasamband Kjalarnessþings og
í fimmta sæti Héraðssamband Snæ-
fellsness- og Hnappadalssýslu með
80.5 st’ig. Ekki er hægt að segja,
að margir mjög góðir árapgrar
hafi náðst á þessu móti, en keppni
í mörgum greinum var ákaflega
jöfn og þeir sem fylgdust með 12.
landsmóti Ungmennafélags ís-
lands efast ekk’i um að þarna tók
margt ungt fólk þátt í keppni, sem
án efa á eftir að ná langt ef það
heldur áfram. Yfirleitt gekk keppn
in vel og góð skipulagning
var á mót’inu. Hefur Landsmóts-
nefnd og framkvæmdastjóri henn-
ar, Hafsteinn Þorvaldsson, unnið
mjög gott starf og var þessi glæsi
lega íþróttahátíð Ungmennafé-
lags íslands til mikils sóma.
Báða mótsdagana var sólskin
frá morgn’i til kvölds og í gær
mældist hitinn 25 stig 1 forsælu.
Laugarvatn —
'>nald at bls l.
mændar. Starf okkar var mest
fólgið í umferðarstjórn, en bæði
á laugardag og sunnudag mátti
heita að það hafi verið samfelld
röð bíla hér á vegunum. Þá er al
veg sérstök ástæða til þess að geta
Hjálparsveitar skáta, sem vann
mjög m’ikið starf hér.
Þegar líða tók á sunnudag fór
fólk að halda frá Laugarvatni og
var allmargt manna far’ið á sunnu
dagskvöldið. Flest allir keppendur
og starfsmenn mótsins voru hins
vegar á stgðnum í nótt.
Landsleikurinn —
Framh. af bls 16
„11 beztu“ nota í sjálfum leikn-
um.
Ekki var vitað um neinar
breytingar á landsliðinu í morg-
un, nema að líkur voru á að
Ellert Schram, fyrirl’iði ís-
lenzka landsliðsins, mundi ekki
verða með. Hafði Ellert fengið
uppköst og ógleð’i á laugar-
daginn og var ekki orðinn vel
góður í morgun. Sagðist hann
ekki mundu taka neina ákvörð
unum, hvorthann yrði með fyrr
en eftir hádegi. Fari svo, að
Ellert verði ekki með, mun Rík
harður Jónsson koma inn og
mundi þetta verða hans 33.
landsléikur.
Dönsk blöð hafa að undan-
förnu skrifað mikið um lands-
leikinn. Ole Madsen, fyrirliði
landsliðsins segist vera kvíða-
fullurumleikinn. Danir séu nú í
hlutverki Rússanna, en ísland
geti orðið erfitt, enda muni
hann vel tvo síðustu leiki, sem
báðir voru í Olympíukeppninni
þeim síðari lauk með 1:1, en
hinum með 4:2 hér í Reykjavík.
Ellert Schram, fyrirliði ís-
lenzka landsliðsins sagði í gær:
Faðir minn
JOHN LINDSAY
lézt á ferðalagi í Frakklandi 30. júní. Jarðarförin aug-
lýst síðar.
F. h. fjarstaddrar móður minnar og systur
John Ólafur Lindsay.
Eiginmaður minn,
KARL SIGURÐSSON, leikari,
andaðist að morgni 3. júlí.
Fyrir hönd föður hans og barna,
Anna Sigurðardóttir.
„Ég er bjartsýnn á þetta. Það
er líka rétt, sem komið hefur
fram um áhorfendur. Þeir geta
aðstoðað mikið. Við viljum
heyra hvatningarhróp, en ekki
skammir í okkar garð, eins og
svo oft kemur fyrir.“
Flugskaftur —
Framh. af bls. 16
á flugleiðum innanlands og er áætl
að gjaldið fyrir farþega £ utanlands
flugi verði um 100 krónur.
Fé þv£ sem þannig safnast verð-
ur að öllum likindum varið til að
bæta þjónustu við farþega á flug-
völlum landsins, ekki einungis £
Reykjavik og Keflavfk, þar sem
það er innheimt, heldur og úti á
landi. Vantar vfða fullnægjandi
flugskýli o. fl. sem að aðbúð far-
þega lýtur. •
Gjald þetta mun ná til allra
þeirra farþega, er útlendingaeftirlit
ið hefur afskipti af, en að öllum lfk
indum þó ekki þeirra sem hér hafa
millilendingu, t. d. með vélum Loft
leiða.
Nokkurn tíma tekur að koma
slfku gjalðkerfi á, og ósennilegt að
það verði nú f sumar.
Húsmæðrakennarar
Framhald at bls 1.
um fornan íslenzkan vefnað.
Einnig fóru þáttíakendur í heim
sókn í þjóðminjasafnið, sem
Kristján Eldjám þjóðminjavörð
ur sýndi þeim. Hádegisverður
var snæddur í Húsmæðraskóla
Reykjavfkur. Síðdegis flytur
Halldóra Eggertsdóttir náms-
stjóri erindi um húsmæðra-
fræðslu á íslandi og eftir það
verður farin kynnisför um ná-
grenni Reykjavíkur.
Á morgun flytja fyrirlestur
Steingrímur Þorsteinsson ,pró-
fessor um íslenzkar bókmennt
ir, Björn Th. Björnsson um fs-
lenzka list og Sigurður Þórarins-
son erindi um jarðfræði íslands.
Hádegisverður verður snæddur
í ráherrabústaðnum og eftir há
degi verður farin kynnisför um
Reykjavík og nágrenni, skoðuð
Hitaveita Reykjavfkur. Sfðasta
mótsdaginn verður farin
skemmtiferð til Hveragerðis,
Gullfoss, Geysis og Skálholts
og snætt á Þingvöllum.
Þátttakendur munu dveljast
hérna fram í miðjan mánuðinn
og fara í ferðalög um landið,
einnig munu nokkrir þeirra fara
•í stutta ferð til Grænlands.
Bílveltur —
Framh. af bls 16.
ók á stúlkuna hélt brott af á-
reksturstað, án þess að öku-
maður sinnt’i hinum slasaða né
tilkynnti slysið. Var Iýst eftir
bílnum og hafin mik’il leit að
honum unz hann fannst í rjóri
á Laugarvatni og tveir umráða
menn hans, sem grunaðir voru
um að hafa verið und’ir áhrif-
um áféngis.
Á laugardagskvöldið um kl.
9 varð harkalegur árekstur
milli tveggja bíla í Grímsnesi.
Báðir bflarnir skemmdust mik-
ið og var annar með öllu óöku
hæfur á eftir. Kona og barn,
sem voru í annarri bifreiðinni
slös. just, þó ekki alvarlega að
talið var.
Aðfaranótt sunnudagsins fór
bifreið út af veginum og valt
í Grímsnesinu. Hún fór mjög
illa, en slys varð ekki á fólki.
Síðdegis á laugardaginn varð
bílvelta á Skeiðavegi. Auk bíl-
stjórans var einn farþegi í bif-
reiðinni, og slasaðist hann all-
mikið, hlaut höfuðhögg og
skrámur eða áverka á höfuðið.
Hann var fluttur til lækn’isað-
gerða í sjúkrahúsið á Selfossi,
en þaðan síðan í sjúkrahús í
Reykjavík.
í gærkvöldi kviknaði í bif-
re’ið á þjóðveginum f Ölfusi.
Rafkerfið í bilnum skemmdist
það mikið af eldinum að draga
varð bifreiðina burt.
Þá varð umferðarslys á
Reykjanesbraut hjá Hvassa-
hrauni um helgina. Kona var
þar á ferð í bifreið ásamt 3ja
ára syni sínum. Af e’inhverjum
ástæðum missti hún stjóm á
bílnum þannig að hann kastað-
ist út af veginum valt og stór-
skemmdist. Var hann með öllu
óökuhæfur á eft’ir. Konan slas-
aðist allmikið og var flutt til
Reykjavíkur í læknisaðgerð, en
drengurinn slasaðist t’iltölulega
lítið.
NYTT!
KANTERS brjóstahöld,
nýjar tegundir.
Magabelti í miklu úrvali
nýkomið.
með fafriaðinn á fjölskylduna
Laugaveg 99, Snorrabrautar megin - Sími 24975
Skrifstofumaður
Reglusamur maður óskast til skrifstofu- og
verzlunarstarfa nú þegar. — Vélritunar- og
enskukunnátta æskileg. Uppl. í símum 15977
og 15460.
BILL OSKAST
árg. ’60—’63, helzt Opel eða Taunus Station.
Þó koma aðrar tegundir til greina. Uppl. í
síma 16525 frá kl. 2—6 og 51069 eftir kl. 7 e.h.
Loftpressa til leigu
Tökum að okkur hvers konar múrbrot úti
og inni. Vanir menn.
Steindór Sighvatsson, sími 30435.
Kveðjudansleikur
fyrir dönsku knattspyrnumennina er í kvöld
kl. 10 í Sigtúni. Dansað til kl. 2. Ókeypis að-
gangur.
Knattspyrnusamband íslands.