Vísir - 05.07.1965, Side 16

Vísir - 05.07.1965, Side 16
Síldveiði geng- Nokkur umferðarslys og önn ur umferðaróhöpp urðu á ýms- um þjóðvegum utan Reykjavík ur um helgina og hefur Vísir Aðfaranótt sunnudagsins var ekið á tvær manneskjur á Laug arvatni, pilt og stúlku, en sitt í hvort skip'ið. Pilturinn mun lítið hafa meiðzt, en stúlkan fanst liggjandi í götunni skor- in í andl'iti og skrámuð. Gerð var bráðabirgðaaðgerð þar eystra á meiðslum hennar, en síðan flutt tii Reykjavíkur, þar sem hún á heima. Bfllinn sem Framh. á 6. síðu. ur treglegu Þrátt fyrir gott veður á sildar- miðunum eystra um helgina, hefur skipunum gengið frekar illa að ná í síldina, sem er stygg og dreifð. í gær og nótt fengu 7 skip 3600 mál og tunnur. Gott veður var þá á suðurmiðunum en þoka seinni hluta nætur. Þessi skip hafa fengið afla frá því á aðfarnótt laugardagsins þangað til í morgun, og er það all- ur sfldaraflínn, sem komið hefur á land, síðan stöðvuninni lauk: Vonin 150 tunnur, Sigurður Bjarnason 300, Helgi Flóventsson, 300, Víðir II. 200, Ingiber Ólafs- son 150, Höfrungur III. 350 Barði 300, Rifsnes 100, Ólafur bekkur 300, Einar Hálfdáns 170, Skarð.s- vik 200, Sif 100, Sæþór 100, Bjarmi II. 250, Jörundur III. 160, Akurey 140, Þórður Jónasson 100, Gullfaxi 800, Hvanney 500 mál, Lómur 1000 mál og Ámi Magnús- son 900 mál. leikmennimir koma á Reykjavíkurflugvöll í gær. Þétt þoka var yfir vellinum, þegar þeir lentu og voru miklir erfiðleikar á að lenda. Vonandi vefst það jafn mikið fyrir liðinu að sigra f kvöld. haft spurair af nokkrum einkum á þjóðvegum í Ámes- sýslu, en þar var meiri bifreiða umferð heldur en dæmi eru til áður á þessu sumri. Samkværpt upplýsingum sem Vísir fékk, bæði hjá lögregl- unni á Selfossi og líka á Laug- arvatni urðu nokkur umferðar- slys og óhöpp á vegum til arvatns og eins á Laugavatni sjálfu. Meðal annars ultu tveir bílar á Laugarvatni á föstudaginn. Annar þeirra var jeppabifreið sem valt á blaðinu, en einn var Opelbifreið frá Akureyri og urðu talsverðar skemmd’ir á báðum, en ekki meiðsli á fólki. Á laugardaginn varð bílvelta á Mosfellsheiðarvegi móts við Seljabrekku og önnur b'ifreið valt á Hellisheiði er krani var að draga bíl. Ökumaður bílsins missti stjórn á bílnum með þeim afleiðingum að bifreiðin fór út af veg'inum og valt. í hvorugu þessara tilfella urðu slys á fólki. Mörg verkföll í vikunni Mikið verður um verkföll f vikunni, sem nú er að hefjast, en ekki verður um samfelldar aðgerðir að ræða hjá verkalýðs- félögunum. Engir sáttafundir hafa verið boðaðir. — Seinasti sáttafundur var haldinn síðast- liðinn föstudag, en hann bar eng an árangur. í dag og á morgun verður verkfall Dagsbrúnar hjá olíufé- lögunum og stöðvast vinna á öllu því svæði, sem Dagsbrún hefur samninga fyrir við olíu- félögin. Það verður því engin afgreiðsla á benzinafgreiðslu- stöðum olíufélaganna i dag og á morgun, en á öðrum benzín- afgreiðslustöðvum sem ekki eru rekin af olíufélögunum, verður hægt að fá benzín. Þessir stað- ir eru Nesti við Elliðaár og í Fossvogi, Bæjarleiðir og Hreyf- ill. Á fimmtudag gera félögin í Málm- og skipasmíðasamband- inu verkfall. Hefst það kl. 24 á miðvikudag og stendur til kl. 24 á fimmtudag. Á föstudag og laugardag gera verkamannafélögin og verka- kvennafélögin í Reykjavik og Hafnarfirði verkfall. Þetta eru verkamannafélögin Dagsbrún og Hlíf og verkakvennafélögin Framsókn og Framtíðin. Verk- fallið nær til alls verkafólks á starfsvæði þessara félaga, nema starfsfólks Mjólkursamsölunn- ar, Áburðarverksmiðjunnar og olíufélaganna. Föstudag og laugardag hefur Mjólkurfræðingafélag íslands boðað til verkfalls. JT jr „Afram Islana!" Níundi landsleiEcurinn við Duni fer fram í kvöld á Laugardalsvellinum í Rvik í kvöld reynum við aftur. Níunda tilraunin verð- ur að heppnast. Frá 1946 höfum við alltaf öðru hverju reynt að vinna Dani í landsleik í knatt- spymu, en ekki tekizt. Síðasta tilraunin var bezt. Þá gerðum við jafntefli við þá í Kaupmannahöfn í undankeppni Olympíuleikanna, 1:1, og það voru Danir, sem hrósuðu happi, skoruðu jöfnunarmark- ið rétt fyrir leikslok. Hvers vegna skyldum við þá ekki geta sigrað þá á heimavelli í Laugardal? Sólarhrings síldarafli við Eyjar mestur 23 þús. tn. Nokkur síldveiði var við Eyjar í gærkvöldi og nótt. Talsvert var um kræðu, sem ánetjaðist. Mest- an afla hafði Eldey 1500 tunnur, Keflvíkingur Helga og Bergur 5- 700 mál hver bátur og nokkrir slatta. Súld var á miðunum f nótt. Undangengni tvo sólarhringa hef ur verið fremur' treg sfldveiði við lEyjar eða síðan 3/7, en þá nam aflinn 23.000 tunnum og var það jbezti sólarhringurinn. Bátum á síldveiðum mun heldur I hafa fjölgað en hitt. Formaður KSl, Björgvin Schram, sagði í gær, að miðasalan hefði aldrei gengið jafn vel og nú. Það má búast við miklu fjölmenni, ekki sízt ef veðurguðimir verða lands- leiknum hliðhollir. Á blaðamannafundi fyrir helg ina sagði Björgvin Schram við blaðamenn ,að það væri álit sitt að áhorfendur geti gert meira til að hvetja sitt lið en gert er almennt á leikjum lands liðsins. Þetta sama hafa margir landsliðsmannanna síðan stað- fest. Þetta mál hefur oftlega ver ið rætt hér á síðunni, bæði nú í sumar og undanfarin sumur. „ÁFRAM ÍSLAND" ætti þvf að hljóma á Laugardalsvelli þær 90 mlnútur, sem leikurinn stend ur, með öllum þeim raddstyrk, sem þær þúsundir, sem þar verða samankomnar, hafa yfir að ráða. Það liggur í hlutarins eðli, að sú stemning, sem verð- ur á áhorfendapöllunum smitar ósjálfrátt leikmennina. Þess vegna er „taktíkin", sem not- uð verður á áhorfendapöllum, ekki minna virði nú en sú, sem Framh. á 6. síðu. Nýtt flug- vollogjald Undanfarið hafa farið fram við- ræður milli samgöngumálaruneytis og flugfélaganna um innheimtu flugvallagjalds, svokallaðs, sem Flugráð hefur heimilað að inn- heimt verði af farþegum, er fara héðan til útlanda. Slíkt gjald hefur verið til um- ræðu síðan 1960, og með nýju loftferðalögunum frá 1964 er til ótvíræð heimild um innheimtu slíks gjalds. Flugráð lagðist hins vegar gegn innheimtu slíks gjalds Framh. á bls. 6. Borgin tæmdist að mestu Samkvæmt upplýsingum, sem Vísir fékk hjá Vegamálastjórn- inni í morgun fóru 20.470 bílar yfir Elliðaárbrúna um helgina, eða frá því kl. 5 e. h. á föstudag til jafnlengdar á sunnudaginn. Hér er að vísu átt bæði við þá bíla, sem fóru úr borginni og komu til hennar, en þó talið, að um 80—90% þeirra hafi þó stefnt burt úr henni. Straumurinn til borgar- innar var aðallega eftir fram- angreindum tíma í gærkvöldi. Þessi umferð gefur nokkuð til kynna, að Reykjavík hefur verið að meira eða minna leyti tóm borg um helgina, enda hafði lögreglan áþekka sögu að segja — óvenjulega lítið að gera og róleg helgi. Umferðin yfir Elliðaárbrúna um síðustu helgi er þó ekkert einsdæmi þrátt fyrir aukinn bíla kost landsmanna. Samkvæmt þeim upplýsingum, sem Vega- gerðin gaf Vísi, varð umferðin t. d. meiri um verzlunarmanna- helgina í fyrra, enda er það mesta umferðarhelgi ársins. Um Reykjanesbraut var um- ferðin um síðustu helgi með minna móti miðað við það, sem venja er til. Yfir Fossvogsbrúna fóru t. d. 14.500 bílar á sama tíma og nær 20.500 fóru yfir Elliðaárnar. En þar hefur um- ferðin komizt upp í 19000 bíla um eina helgi. Annars hefur sem næst 10% umferðaraukning orðið víðast hvar á þjóðvegum landsins, mið að við s.l. ár.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.