Vísir - 22.07.1965, Qupperneq 2
V í S IR . Fimmtudagur 22. júli 1965.
Verður heimsmet CLA RKES
í 10 km ekki viBurkennt?
Það eru margir sem hafa van
trú á tölunni 13. Einn þeirra
manna, sem hefur ástæðu til að
vera í þeim hópi, er hlauparinn
Ron Ciarke. Hann setti sitt 13.
heimsmet nýlega á Bislet-leik-
vanginum í Osló í 10000 metra
hlaupi og bendir allt til að það
met verði mjög umrætt hjá Al-
þjóðasambandinu, þar sem ekki
var fyllilega farið löglega að,
þegar metið var sett og vill
norska frjálsíþróttasambandið
ekki skrifa undir umsókn um
staðfestingu.
1 reglugerð stendur í 55. gr.
7. lið: „Inni á veilinum mega að
eins sérlega útnefndir starfs-
MAY — óþekktur maður ógn-
ar heimsmeti.
menn móta gefa upp millitíma
ttl þátttakenda“. Það var þetta
sem ekki var gert og því er
metið í hættu, og þá jafnframt
metið í 6 mílunum.
Á þriðju braut á Bislet var
enskumælandi tímavörður með-
an hlaupið fór fram og gaf
hann upp jafnóðum millitímann
og gef til kynna hve langt
Clarke væri í það og það skipt
ið undir samsvarandi tímum
sem náðust þegar gamla metið
var sett. Tímamir bárust síðan
beint til þularins og í spenningi
sínum átti hann þátt í að ýta
undir Clarke.
Þetta, að tímavörðurinn skuli
hafa verið inni á brautinni er
talið ástæðan til þess að norska
sambandið vill ekki skrifa und
ir. Skrifi sambandið hinsvegar
undir verður vandamálið komið
í hendur alþjóðasambandsins,
sem verður að ráða fram úr
því.
Annars er enginn ágreiningur
um afrekið hjá Clarke á af-
mælisdegi hans. Hann á nú
heimsmet á 6 vegalengdum (ef
staðfesting fæst):
3 enskar mílur (4828 metrar)
12:52.4 í London 10. júlí.
5000 metrar á 13:25.8 í Los
Angeles 4. júní.
4 enskar mílur (6437 metrar) í
New South Wales 4. apríl.
6 enskar mílur (9656 metrar) í
Osló 14. júlí
10000 metrar á 27:39.4 í Osló
14. júlí.
10 enskar mflur (16093 metrar)
i Melbourne 3. marz.
Bandarískar spretthlaupakon-
ur gerast nú mjög góðar. Er
greinilegt að nafn Wilmu Rud-
olph fer senn að gleymast og
fellur í skuggann m. a. fyrir
Myomia Tyus sem jafnaði á dög
unum metið í 100 jarda hlaupi
á 10,3 sek i Kingston á'Jamaica
en skólastúlkan Debbie Thomp
son hefur náð betri tíma 10,2
sem ekki fékkst þó staðfest.
í skugga hinna miklu afreka
Clarke og Jazy, sem getið var
um hér fyrir nokkru er Austur
Þýzkur hlaupari, sem ógnar nú
heimsmetinu i 1500 m. hlaupi.
Hann heitir Jiirgen May og var
nýlega á keppnisferðalagi um
Evrópu og á því setti hann
Evrópumet á 3:36.6 mín. Á OL
í undanúrslit, en var sleginn út
í fyrrahaust komst hann aðeins
þar.
Heimslistinn í 1500 metrum
lítur þannig út:
1. Elliot, Ástraliu 3:35.6
2. May, A-Þýzkaland 3:36.4
3. Snell, Nýja Sjáland 3:37.6
4. Jazy, Frakkland 3:37.8
5. Jungwirth, Tékkósl. 3:38.1
6. O’ Hara, USA 3:38.1
7. Dan Wám, Svíþjóð 3:38.6
8. Valentin, A-Þýzkal. 3:38.7
Bernard, Frakkl. 3:38.7
10. Halberg, Nýja Sjál. 3:38.8
Rozsavolgyi, Ungv.l 3:38.8
Burleson, USA 3:38.8
RON CLARKE — verða metin ekki viðurkennd?
Ófyrírsjáanlegar ástæöur
— segja Breiðabliksmenn
um leikinn við ísafjörð
Vegna skrifa á íþróttasíðunni
í gær um leik ísafjarðar og
Breiðabliks og það atriði að
Breiðablik mætti of seint ti'
leiks hefur stjórn knattspyrnu
deildar Breiðabliks beðið um
að fá birta eftirfarandi atbuga-
semd.
„Það er rétt, sem fram kem-
ur að Breiðabliksliðið mætti
of seint til leiks'ins, en hér
var um óviðráðanleg atvik að
ræða eins og nú skal greint.
Nokkrir leikmanna okkar
gátu af ýmsum ástæðum, vegna
vtnnu sinnar og skyldustarfa
ekki verið yfir nótt á ísafirði
eins og upphaflega hafði ver-
ið ráð fyrir gert. Hefðu leik-
menn þó sannarlega viljað not
færa sér hið ágæta boð Isfirð-
inga um að vera yfir helgina,
enda er gestrisni þeirra vest-
anmanna viðbrugðið.
Áætlunarflugvél Flugfélags
Islands lagði af stað kl. 12 á
hádegi þennan laugardag og frá
Isafirði kl. 13. Engin önnur ferð
var þennan dag til Reykjavíkur.
Því var ekki hægt að notfæra
sér ferðir F.Í.. Tókum við þá
til þess ráðs að taka á leigu
flugvél frá Flugsýn, og átti hún
að bíða meðan leikur færi fram
og flytja okkur síðan aftur suð-
ur.
Kl. 14.15 voru liðsmenn og
dómari mættir úti á flugvelli
hjá Flugsýn. En við vorum ekki
heppnir. Þarna máttum við dúsa
til kl. 15.30 og lögðum því af
stað klukkutíma síðar en áætlað
var. Var þetta vegna þess að
vélin var teppt á Hellu. Þetta
gátum við auðvitað ekki ráðið
við.
Eftir klukkutíma flug var lent
á ísafirði. Frá flugvellinum
inn í bæinn er dágóður akstur,
en á flugvellinum var engan
bil að fá, enda þótt flugmaður-
inn hafi fyrir lendingu beðið um
bíla á flugvöllinn gegnum tal-
stöð sína. Þarna urðum við enn
að bíða nær 40 mínútur. Þá
fengum við loks ferð í bæinn.
Það var því ekki af ráðnum
hug að Breiðablik mætti nær
tveim tímum of seint til leiks
og sannarlega hefðum við viljað
losna við hina þreytandi bið,
fyrst á flugvellinum f Reykja-
vík og siðan á ísafirði. Að lok-
um viljum við geta þess að um
hádegi þennan dag náðum v'ið
sambandi við Guðmund Guð-
mundsson Grænagarði og létum
hann vita um ferðir okkar og
átti ísfirðingum þá að vera ljóst
að um töf gat orðið að ræða,
enda orðið að samkomulagi að
leikur hæfist strax og við kæm
um úr flugvélinni.
Daði Jónsson
form. knattsp.d. Breiðabl
Nýjar
golf-
reglur
Út eru komnar nýjar reglur fyr-
ir Golfleik og eiga þær að gilda
til 1. janúar 1968.
Var hafizt handa um undirbún-
ing nýrrar þýðingar í ársbyrjun
1964 en formleg útgáfunefnd var
ekki skipuð fyrr en um mitt ár í
fyrra. Var brezka útgáfan af regl
unum notuð við þýðinguna en sú
bandaríska og sænska til saman
burðar.
Óttar Yngvason gerði uppkastið
að þýðingunni á golfsiðareglunum
en Guðlaugur Guðjónsson og Óttar
Yngvason uppkast að þýðingu á
leikreglum og viðbæti, en nefndin
öll í sameiningu þýðingar á skil-
greiningum.
Bókin er í litlu og mjög hand-
hægu formi.
»V»V* Vt* Y«V* VAVV» *«*»V«*»V» V»%%V*V»V»VfV*%%V»V
BLOMABUOIN
DÖGG
Álfheimum 6, Reykjavík Sími 33978.
mumtrn&msR&m
■ ■!■■■■■ »■■■■«■■-i nnwmi