Vísir - 13.08.1965, Page 16
VISIK
■VS'.,
I ÍT? -::Tm I >•» tSWÞt-s I -1 m H.ífrT
/V^AAAAAAAAAAAAA/VAA^
| DÝR I
| BLÓM! j
í sumar hafa nokkrir piltar og
einstaka unglingstelpa hlotið fjár-
sektir fyrir að slíta upp blóm í
almenningsgörðum Reykjavíkur.
Samkvæmt upplýsingum sem
Vísir fékk hjá lögreglunni í morg-
un er hér ekki um neitt nýtt fyrir
bæri að ræða, heldur hefur þetta
þekkzt að meira eða minna leyti
á hverju undangenginna ára. Hafa
lögreglumönnum verið gefin
fyrirmæli um að taka þá menn
fasta sem staðnir eru að þessum
skemmdarverkum, og hafa þeir
verið sektaðir, oft í 1 þúsund krón
ur, eða þaðan af hærri sektir.
Margir þeirra aðila sem hér koma
við sögu hafa e. t. v. ekki slitið
upp nema 1 eða 2 blóm og má
segja að þau séu orðin dýr ef þau
kosta um 1000 krónur stykkið. í
mörgum tilfellum eru það drukkn
ir menn sem staðnir hafa verið að
verki við að slíta upp blómin.
Loks kom veiðiskip
fjarðar með síid til
til Siglu-
söltuaar
Mikill fjöldi Siglfirðinga lagði
leið sína niður á Söltunarstöð-
ina Hafliða h.f. á miðvikudags-
kvöldið tii þess að horfa á at-
burð, sem einu sinni var ekki
ýkja sjaldgæfur á þeim stað.
Það var verið að salta upp úr
sildarbát, eina bátnum, sem
komið hefur sjálfur með síld til
söltunar til Siglufjarðar síðan
24. júní.
Þetta var Hrafn Sveinbjarnar
son III. GK-11 frá Grindavík,
sem kom til Siglufjarðar kl. 8
á miðvikudagskvöldið með 600
tunnur af ágætri síld, sem veidd
ist 120 mílur austnorðaustur
frá Raufarhöfn. Þaðan er jafn-
löng sigling til Siglufjarðar og
Seyðisfjarðar. Koma Hrafns
Sveinbjarnarsonar tii Siglufjarð
ar gefur þeim vonum Siglfirð-
inga byr undir báða vængi, að
nú fari að lífgast söltunin á
staðnum, en Siglfirðingar hafa
undanfarin ár farið varhluta af
síldinni eins og öilum er kunn-
ugt.
Á myndinni eru skipverjar að
losa úr skipinu yfir í vagninn.
(Ljósm. Jónas Ragnarsson).
JAÐARSMOTIÐ
UM HELGINA
Hið árlega mót íslenzkra ung-
tempara verður haldið að Jarðri
um næstu helgi Þar verða ýmis
atriði. Tjaldbúðir verða að Jaðri
yfir helgina.
Mótið hefst á laugardag og um
kvöldið verður skemmtikvöld inni
að Jaðri. Þar mun leika fyrir dansi
TEMPÓ, hljómsveit unga fólksins.
Á sunnudag verður guðsþjónusta,
séra Árelíus Níelsson, formaður
ÍUT prédikar. Skemmtun verður
síðar um daginn. Þar mun koma
fram Ómar Ragnarsson, glímu-
flokkur úr Ármanni sýnir,
Savannah-tríóið syngur. Þá verður
handknattleikskeppni og frjáls-
íþróttakeppni. Jaðarsmótinu lýkur
á sunnudagskvöld með kvöldvöku
og dansi.
Jaðarsmótið er öllum frjáls að
sækja, sem vilja skemmta sér án
áfengis. Ferðir að Jaðri verða frá
Góðtemplarahúsinu báða dagana.
Ársþing
islenzkra ungtemplara.
Ársþing íslenzkra uagtemplara
verður haldið að Jaðri 13. og 14.
þ. m og hefst það föstudagskvöld-
ið kl 8.30. Þá mun formaður fUT,
séra Árelíus Níelsson, flytja
ávarp, Árni Gunnlaugsson, hæsta-
réttalögmaður, Hafnarfirði flytja
erindi. Síðar verður flutt skýrsla
stjórnar fUT. Þingstörf munu
halda áfram á laugardagsmorgun.
Þá verða umræður, stjórnarkjör og
fl. Mun þinginu ljúka síðar um I
daginn.
Ók á
og hljáp á brott
Ökumaður á þríhjóla smábíl
gerðist uppivöðslusamur rétt fyr-
ir kl. 10 í gærkveldi á svæðinu um-
hverfis lögreglustöðina, sem er í
byggingu innst við Hverfisgötuna.
Ók hann austur Hverfisgötuna
að gatnamótum Snorrabrautar,
þar sem tveir bílar biðu eftir
grænu ljósi. Ók hann miili þeirra
og utan í þá báða. Gaf hann síð-
an í og þeysti yfir gatnamótin á
rauðu ljósi, beygði inn á Rauðar-
árstfg og síðan inn á Skúlagötu og
upp á eyjuna á Skúlatorgi. Bllam-
ir, sem ekið var á, veittu honum
eftirför. Þegar smábíllinn hafði
stöðvazt á eyjunni, stukku úr hon-
Utauríkisráðherra Finn-
lands kemur í keimsókn
Ahti Karjalainen, utanrikis-
ráðherra Finnlands, mun koma i
opinbera heimsókn til íslands
26. ágúst n.k. ásamt konu sinni
og dveljast hér til 30. ágúst. 1
för með utanríkisráðherranum
verða Rantanen, deildarstjóri í
finnska utanríkisráðuneytinu,
Kurt Juuranto, aðalræðismaður
íslands í Helsinki, og Kai Juur
anto, ræðismaður fsiands þar í
borg, ásamt konum þeirra.
Tekið verður á móti Karjala-
inen á Reykjavikurflugveiri kl.
3 á fimmtudaginn 26. ágúst og
ræðir hann síðan við Bjarna
Benediktsson forsæt’isráðherra.
Um kvöldið snæðir utanríkisráð
herra í Ráðherrabústaðnum i
boði Guðmundar í. Guðmunds-
sonar utanríkisráðherra. Á
föstudaginn flýgur Karjalainen
til Akureyrar og áfram landveg
inn til Mývatns, og gistir á Ak
ureyri um nóttina. Laugardags
morguninn flýgur utanríkisráð-
herra til Reykjavíkur og snæðir
á hádegi á Sögu í boði borgar
stjórnar Reykjavíkur. Hann
heldur blaðamannafund síðdeg-
is þann dag og býður síðan gest
um til kvöldverðar. Sunnudeg-
inum ver Karjalainen til lax-
veiða en kona hans fer þá í
ferð um Suðurlandsundirlendið.
Á mánudagsmorgun heldur utan
ríkisráðherrann og föruneyti
hans heimleiðis.
um tveir menn og skutust inn í
port við lögreglustöðvarbygging-
una. Þar var þeirra leitað en
þeir fundust ekki. Lögreglan var
kvödd til aðstoðar, en mennirnir
fundust ekki. Heimsótti hún skráð-
an eiganda smábílsins, en hann var
þá erlendis og hafði selt öðcom
manni bílinn. Þegar farið var tíl
hans, kom í ljós, að hann hafði
ennfremur selt bílinn öðrnm
manni. Báðir höfðu trassað a5 tíl-
kynna eigendaskiptin. I morgun
hafði eigandi eða ökumaður ekki
fundizt, en rannsóknarlögreglan
átti þá að fara að taka málið til
meðferðar.
Útsvör i Kápuvogi
Álagningu útsvara í Kópavogi er
lokið og var útsvarsskrá lögð fram
í gær, 12. ágúst. Útsvarsskráin
Iiggur framrni hjá umboðsmanni
skattstjóra að Skjólbraut 1 og er
skrifstofa hans opin kl. 10—12 og
13—19 dagana 12. ágúst og 13.
ágúst, en síðan alla virka daga
nema laugard. til og með mið-
vikudegi 25. ágúst n.k. frá kl.
16—19.
Einnig liggur útsvarsskráin
frammi í bæjarskrifstofunni á 3.
hæð Félagsheimilis Kópavogs við
Neðstutröð á venjulegum skrif-
stofutíma frá 12. ágúst til 25. ág-
úst n.k. að báðum dögum með-
töldum.
Lagt var á 2103 einstaklinga og
námu tekju- og eignaútsvör þeirra
samtals kr. 34.627.306.00 og að-
stöðugjöld á 257 samt. kr. 911.-
000.00. Utsvör á 63 félög námu
samt kr. 1.924.000.00 og aðstöðu-
gjöld þeirra samt. kr. 1.805.000.00.
Hæstu útsvarsgjaldendur eru:
Einstaklingar: Friðþjófur Þorsteins
son kr. 168.800.00. Guðm. Bene-
diktsson læknir 115.000.00. Birgir
Erlendsson 105.000.00. Páll M.
Jónsson 94.200.00. Jón Pálsson
92.300.00. Þorsteinn L. Pétursson
80.000.00. Daníel Þorsteinsson
79.000.00. Halld. Laxdal 77.400,00.
Andrés Ásmundsson 77.000.00.
Baldur Einarsson 72.000.00. —
Félög: Málning h/f 680.000.00.
Byggingarverzl. Kópavogs 501.-
000.00. Sigurður Elíasson h/f 172.-
900.00. Rörsteypan h/f 181.000.00.
ORA kjöt og rengi 38.500.00.
Ók d tvo bíla,
yfir steina
og út í skurð
Klukkan tvö í nótt ók bifreið
á tvær aðrar við Gnoðarvog. Þegar
lögreglan fór að leita að söku-
dólginum, fannst bifreið hans
fljótlega úti í skurði i Ártúns-
brekku, og hafði ökumaður kom-
izt yfir stokka og steina, áður en
hann lenti í skurðinum. ökumaður
var viðstaddur, áberandi ölvaður,
og var fluttur í gæzlu.