Vísir


Vísir - 31.08.1965, Qupperneq 1

Vísir - 31.08.1965, Qupperneq 1
8 SKIPVERJUM SLEPPT Átta skipverjum af m.s. Lang jökli hefur nú verið sleppt 'úr gæzluvarðhaldi að því er Jó- hann Níelsson rannsöknardóm- ari í málinu tjáði Vísi. Tíu eru enn í varðhaldj og máii þeirra ekki lókið, en það eru þeir menn sem virðast eiga stærsta hlutann af smyglinu. Ekki kvaðst Jóhann geta sagt hve- nær rannsókn lyki, en hún hef- ur verið mjög umfangsmikil til þessa. Greinargerð Jóhanns um mál ið hljóðar svo: Eins og fram er komið fund- ust við Ieit í m.s. LangjökK vSð komu skipsins til Reykjavíkar, 6. þ.m. 3940 flöskur af áfengi og 130.400 vindlingar. Framh * bls 6 Alhvítt á túmim og engjum norðanlands Bændur sækju afrétturfé. Vegir teppast vegna snjóa Fyrir helgina gerði kulda hret á norðanverðu land inu og snjóaði þá víða í fjöll og sums staðar jafnvel alveg niður í byggð. Fjallvegir teppt- ust sums staðar. Maður, sem Vísir átti tal við 1 morgun og kom norðan úr Skagafirði í gær, sagði, að fjöll þar nyrðra hefðu verið alhvít niður í miðjar hlíðar, en héraðið sjálft verið autt. Aftur á móti hefði snjór legið alveg niður á tún á bæjum í Gönguskörðum. í Húnavatnssýslu hefði snjóar ekki náð jafn langt niður, en fjöll þó verið igrá. Vatnsskarð var autt og sama gegnir um alla vegi í Eyjafjarðarsýslu. Vísir átti tal við Konráð Egg- ertsson bóndá á Haukagili 1 Vatnsdal í morgun. Hann sagði, að þar hafi verið versta veður alla s.l. viku og varla verið unnt að snerta á heyskap sökum úr- fellis og kulda. Verst var veðr- ið þó á fimmtudag og laugar- dag og var þá kraparigning í byggð, en snjóaði til fjalla, sums staðar jafnvel allt niður undir tún á bæjum. Eru fjöll enn hvít og grá niðurundir miðj ar hlíðar, en veður hefur batn- að og er nú að taka upp snjó- inn. Inni á Grímstunguheiði er kominn mikill snjór og á sunnu- daginn fór 15 manna hópur úr byggð til að sækja afréttarfé, sem þyrpzt hafði niður að af- réttargirðingunni og stóð þar hungrað og í hálfgerðu svelti. Víða voru þá komn'ir skaflar á heiðinni. Féð var rekið niður Framh á bls 6 Hópferðafólk á Kaldadal um helgina. Alsnjóa var orðið á Langahrygg og varð að moka bflinn úr sköflunum á veginum. RAÐHERRASKIPTI I RIKISSTJORNINNI Guðmundur í. Guðmundsson hættir, Emil Jónsson tekur sæti huns og Eggert G. Þorsteinsson kemur í ríkisstjórn Á rikisráðsfundi kl. 5 síðdeg is i dag verður formlega gengið frá breytingum á ríkisstjórn ís- lands. Guðmundi í. Guðmunds- syni utanríkisráðherra, sem baðst lausnar í gær, verður veitt lausn frá embætti. Emil Jónsson, sem var félags- og sjáv arútvegsmálaráðherra verður utanrfldsráðherra í hans stað, og nýr ráðherra, Eggert G. Þor steinsson tekur að sér félags- og sjávarútvegsmálin. Allir eru þessir menn þingmenn Alþýðu- flokksins. Ríkisráðsfundinn sitja ráð- herrarnir og handhafar forseta- valds, en forsetinn er um þess ar mundir erlendis. Ákvörðun- in um mannaskiptin var tek'in á miðstjórnarfundi Alþýðu- flokks'ins sl. sunnudag, en verð ur staðfest í ríkisráði í dag. Guðmundur I. Guðmundsson hefur verið utanríkisráðherra í níu sl. ár og hefur gegnt þvf em- Miklu meira magn af smyglUðu áfengi hefur fundizt á þessu ári við leit í farartækjum, sem frá útlöndum hafa kom- ið, heldur en nokkru bætti í þremur ráðuneytum. Hann hefur einn'ig sagt af sér sem varaformaður Alþýðuflokks ins og tekur Gylfi Þ. Gíslason menntamálaráðherra sæti hans þar. Gylfi var áður ritari flokks ins og tekur Benedikt Gröndal ritstjóri sæti ritara. Emil Jónsson hefur verið þingmaður síðan 1934 og ver’ið sinni áður á tilsvarandi tíma. Frá þessu skýrði Unnsteinn Beck tollgæzlustjóri í dag, er Vlsir átti tal við hann um smyglvarning, sem fundizt hefði við leit það sem af er þessu ári. ráðherra í mörgum ríkisstjórn- um og forsætisráðherra árið 1958. Eggert G. Þorsteinsson er yngsti þingmaður Alþýðuflokks ins, nýlega fertugur. Hann er fæddur í Keflavík. Fyrst var hann kosinn á þing árið 1953. Hann er múrari að mennt og hefur gegnt ýmsum trúnaðar- störfum innan verkalýðshreyf- ingarinnar og Alþýðuflokksins. Hann hefur ver'ið formaður Hús næðismálastjórnar. Kona hans er frú Jóna Jónsdóttir og eiga þau 4 böm. Tollgæzlustjóri sagði, að frá síðustu áramótum hefðu alls fundizt 5416 flöskur af áfengi og þar af meiri hlutinn verið á lítraflöskum. Á sama tíma lagði tollgæzlan hald á 223 000 vindlinga, sem smygla átti inn i landið. Af öðrum smyglvamingi, sem Geimskotinu frestað Geimskoti frönsku vísindamann- anna frá Skógasandi sem átti að framkvæma síðastliðna nótt, hefur verið frestað þar til í kvöld. Verður reynt að skjóta eldflaug- inni á timabilinu frá klukkan 11 til klukkan 2 eftir miðnætti. fundizt hefur, var ýmisS konar fatnaður að upphæð 97 900 kr., og er verðið þá miðað við heild- söluverð erlendis. Ennfremur fann tollgæzlan sjö útvarps- og sjónvarpstæki, 2 kæliskápa og ýmsan smávarning. Loks fundust ýmiss konar matvæli að fjárhæð 5 900 krón- ur og sælgæti, sem nemur 31 500 krónum. I sambandi við bæði matvælin og sælgætið sagði Unnsteinn Beck, að sumt af því hefði fundizt í verzlun- um borgarinnar, en annað f far- artækjum. Framh. á 6. sfðu. MEIRA ÁFENGISSM YGL EN N0KKRU SINNI FYRR Reynt að smygla fatnaði fyrir nær 100 þús. krónur

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.