Vísir - 31.08.1965, Page 7

Vísir - 31.08.1965, Page 7
V1 S IR . Þriðjudagur 31. ágúst 1965. Ætlar að koma einu sinni enn til Isl ands og þá í síðnsto sinn — Widfsai við Uwe Grúttl frú Berlin — Mig langar alltaf aftur og aftur t’il íslands, — fæ mig ekki fullsaddan á þessu unaðs- leggja landi og ennþá síður á þjóðinni sem byggir það, sagði ungur Þjóðverji, Uwe GrUttl frá Berlín í viðtali við blaðamann frá Vísi um síðustu helgi. — Hafið þér komið oft til Is- lands? — Þrisvar, ég er heidur ekki nema 22 ára gamall. — Hvenær komuð þér hing- að fyrst? — Sumarið 1955. Þá var ég 12 ára. — Og hvert var tilefnið? Komuð þér með foreldrum yð- ar? — Nei, ég kom ekki með for- eldrum mínum. Tilefnið var allt annað, og það tilefni kom í rauninni mjög flatt upp á mig. Loftleiðir buðu þetta sumar 14 bömum frá Berlín t'il Islands- ferðar og ég var einn í þeim hópi. — Voru það allt drengir? — Nei, bæði drengir og stúlk ur. Mig minnir á aldrinum 12- 14 ára. Við vorum I hálfan mán uð á Islandi, en mér fanpst það satt að segja alltof stutt. — Hvemig stóð á þvi að þér voruð valinn til þessarar ís- iandsferðar? — Mér er það sjálfum ráð- gáta. Ég var þá á barnaheimili í Berlín og einn góðan veður- dag var mér og tveimur jafn- öldrum mínum í bamaheimil- inu sagt að ég mætti fara til íslands ef mig langaði til. Það getur verið að eitthvað hafi ráð ið úrslitum að ég kunni ofur- lít'ið í ensku. — Og þér tókuð strax ákvörð un um að fara til íslands? — Hvort ég tók. Ég komst allur í uppnám og hlakkaði af- skaplega til. En ég vissi bara fyrst i stað ekkert til hvers ég átti að hlakka, nema til ein- hvers ferðalags langt út í buskann. Ég vissi ekkert hvað ísland var né hvar það lá. Vissi heldur ekki hvers konar fólk byggi hér. Allt var mér á huldu eins og mest mátt'i verða — Fenguð þér einhverjar upp- lýsingar um ísland áður en þér komuð hingað? — Já, ég tók að spyrjast fyr ir um ísland, en seinna kom svo maður frá Loftleiðum til að segja okkur frá íslandi og ís- lendingum, sýna okkur skugga mypdir íhéðapjbg,Ié.t;Okkur loks( í té upplýsingabæklinga. ■ Það var heil fróðleiksnáma. — Hvað gerði Loftleiðir fyrir ykkur eftir að til íslands kom? — Fyrst í stað var okkur öllum komið fyrir á einkaheim- ilum í Reykjavík, þar sem tek ið var konunglega á móti okkur. Ég varð fyrir því láni að lenda hjá Magnúsi Teitssyni fram- kvæmdastjóra (sem áður hét Max Keil). Þau hjón hafa frá öndverðu reynzt mér með af- brigðum vel og ég hef alltaf staðið í tengslum við þau síðan Loftleiðir buðu okkur 1 ýms ferðalög þessar tvær vikur sem við vorum í boði þeirra hér, m. a. norður til Akureyrar og Mý- vatns og eins um Suðurlands- undirlendið og til Gullfoss, Geysis og Þingvalla og víðar. Það var allt afskaplega skemmti Iegt og mér fannst dvölin allt of stutt. — Hvað fannst yður at- hyglisverðast við fýrstu kynn'in af Island? — Ég held, að það sem hreif mig mest var fólkið, hvað það var þægilegt og elskulegt í við- móti og maður hændist að því frá fyrsta augnabliki. Þetta sama hefur mér fundizt í seinni ferðum mínum hingað. íslend- ingar eru afskaplega alúðleg — En hvað um landið? — Ég varð dálítið undrandi fyrst í stað að sjá ekki neins- staðar skóg. En Magnús Teits son skýrði fyrir mér hvers vegna ísland væri skóglaust og síðan kæri ég mig ekkert um skóg á íslandi. Vil taka landið eins og það er — ekkert öðru vísi. f — Þér hafið komið hingað tvisvar síðan? Uwe Griittl — Ját Magnús Teitsson bauð mér heim sumarið 1959 og kostaði ferðir mínar. Það var fallega gert. Ég var hérna þá í 6 vikur í júlí og ágúst, ferðað- ist mikið um landið og naut dá- semda íslenzkrar náttúrufegurð ar. — Finnst yður veðrið ekk’i dálítið hryssingslegt? — Ég kem ekki til íslands i Ieit að sólskini, heldur til að skoða fagurt land og kynnast góðri þjóð. Og rigningargusa svo öðru hvoru er bara hress- andi. — Og nú eruð þér enn á ferð'inni? — Já, ég gat ekki annað. Hugur minn er alltaf á íslandi og ég mátti til með að sjá það ennþá einu sinni og hitta vini mína hér. Annars skal það játað að ísland er ekki hag- stætt ferðamannaland hvað verðlag snertir. Það er dýrt að ferðast hér. — Eruð þér búnir að vera lengi á íslandi að þessu s'inni? — Allan ágústmánuð. Kom 28. júlí, en fer 1. september. Ég er í vélfræðiskóla í Berlín óg þarf að flýta mér heim. En ég hef notað tímann vel að þessu sinni eins og í hin fyrri skipt- in og ferðazt mikið um. Núna síðustu dagana skrepp ég venju lega einhvern tíma dags upp að Hrísbrú í Mosfellssveit og fæ mér lánaðan hest í útreiðar túr. Það þyk'ir mér afar gaman. — Hafið þér hugsað yður að koma aftur til Islands? — Já, einu sinni enriþá. Fyrst þarf ég að læra eitthvað og kunna eitthvað og þá ætla ég að koma til íslands — í síð- asta sinn því þá ætla ég ekki héðan aftur. ☆ DREGIÐ í GETRA UNINNI Frú Guðrún Skúladóitir dró nöfn 8 áskrifenda úr stórum hópl þeirra, sem sendu inn svör við verðiaunagetraunlnni. Á bak við sjást innbundnir árgangar af Vísi, en hann er elzta dagblað lands- ins, hóf göngu sina 14. desember 1910, eða fyrir nær því 55 árum. Geysilegur fjöldi úrlausna barst til blaðsins viðvíkjandi verðlaunagetrauninnl, sem birtist í s.l. mánuði. Reynd- ist allmikil vinna við að fara yfir þær áður en dregið var um hverjir skyldu hljóta verð laun fyrir réttar lausnir. Það hefur nú verið gert og birtist hér skrá yfir þá 8 áskrifend- ur VÍSIS, sem verðlaunin hlutu: Sveinn Guðmundsson, Álfhóls vegi 72, Kópavogi, hlaut fatn- að eftlr eigln vali fyrir 5 þús. kr. frá Herradeild P & Ó. Kristján Jónsson, Þingvalla- stræti 20, Akureyri, hlaut fatn- að eftir eigin vali fyrir 5 þús. kr. frá Tízkuskemmunni h.f. Páll H. Ásgeirsson, Smára- flöt 9, Garðahreppi, hlaut fattaað eftir eigin vali fyrir 5 þús. kr. frá Bernharð Laxdai, Kjörgarði. Kári Þórðarson, Kirkjuvegi 5, Keflavík, hlaut fatnað eftir eig- in vali fyrir 5 þús. kr. frá Guð- rúnarbúð, Klapparstíg. Sigurður Jónsson, Arnarhrauni 28, Hafnarfirði, hlaut fatnað eft- ir eigin vali fyrir 5 þús. kr. frá Parísartízkunni. Margrét Viihjálmsdóttir, Gnoð arvogi 26 Reykjavík, hlaut fatn að eftir eigin vali fyrir 5 þús. kr. frá London, dömudeild. Páll Guðjónsson, Laugateig 10, Reykjavík, hlaut fatnað eft- ir eigin vall fyrir 5 þús. kr. frá Elfur, dömudeild. Edda Sigurðárdóttir, Háaleit- isbraut 45, Reykjavík, hlaut námskeið í Tízkuskóla Andreu, að verðmæti 2 þús. kr. Eins og sjá má höfðu á- skrifendur utan Reykjavíkur heppnina með sér að þessu sinni og Reykvíkingar kom- ust ekki á blað fyrr en und- ir lokin. VÍSIR þakkar öllum þeim aðilum, sem stuðluðu að framkvæmd þessarar get- raunar og einnig þeim fjölda- mörgu, sem sendu úrlausnir, jafnframt þvf sem hann ósk- ar verðlaunahöfunum ánægju af verðlaununum, en ávísana- bréfa á þau má vitja hjá sölu- stjóra blaðsins í Ingólfsstræti 3, Reykjavík. ■EEXr -jr.xa

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.