Vísir - 31.08.1965, Síða 8

Vísir - 31.08.1965, Síða 8
8 VÍSIR . L2 VISIR Útgefandi: Blaðaútgáfan VÍSIR Ritstjóri: Gunnar G. Schram Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson Fréttastjórar: Jónas Kristjánsson Þorsteinn Ö. Thorarensen Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178 Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3 Áskriftargjald er 80 kr. á mánuði í lausasölu 7 kr. eint. — Sími 11660 (5 h'nur) Prentsmiðja Vísis — Edda h.f. Timi vinnufriðar Á föstudaginn gerðust þau tíðindi, að víðtækt sam- komulag náðist í kjaramálum, er samið var við félög járn- og málmiðnaðarmanna. Samkomulagið var í aðalatriðum mjög svipað því sem gert var við verk- lýðsfélögin í sumar. Vinnutíminn var styttur niður í 44 stundir, nokkur kaupháekkun veitt og samið um aldurshækkanir og flokktilfærslur. Samkomulagið er mikilvægur áfangi, og út frá því má ganga, að það verði fyrirmynd að svipuðum samningum við önnur iðnaðarmannafélög, sem lausa samninga hafa. Eru því horfumar mun betri á að samnmgar takist við þau félög án verkfalla eftir að samkomulag þetta var gert. Hér hefur enn tekizt að semja við stóran starfshóp og viðhalda með því vinnufriðnum. Mjög hafa veður skipazt í lofti í þeim efnum síðustu miss- erin. Áður gengu sífelld verkföll yfir landið og spilltu dýrmætum árangri kjarabaráttunnar. Nú hefur vinnu- friður verið í landinu í heilt ár og búið að semja um frið á vinnumarkaðinum við mörg heildarsamtök ár fram í tímann. Verður það lengsta vinnufriðartímabil í sögu íslenzkrar verklýðshreyfingar. Hefur rflris- stjórn Bjarna Benediktssonar þar náð hinum merk- asta áfanga, sem allir landsmenn fagna. Því gefst nú tími og tækifæri til þess að takast á við stóru verkefnin og umfram allt lausn dýrtíðarvandans, sem aftur ógnar á þessu hausti. Sá vandi verður ekki leyst- ur nema í samvinnu allra stétta landsins, og það verk- efni bíður nú brýnast úrlausnar í íslenzkum þjóð- málum. Frestun framkvæmda það var athyglisvert að stjómarandstaðan treysti sér vart til þess að gagnrýna ákvörðun meirihluta Alþingis að heimila frestun á opinberum framkvæmd- um þessa árs að nokkrum hluta. Sú fjárlagaheámild var miklum mun nauðsynlegri en í fljótu bragði mætti virðast. Einn meginþáttur ofþenslunnar í hinu ís- lenzka efnahagskerfi hefur verið sá að fjárfesting ríkis og annarra opinberra aðila hefur verið of mikil, of ör. Afleiðingin hefur verið samkeppnin um vinnu- aflið á hinum frjálsa markaði með þeim greinilegum dýrtíðar og verðþenslueinkennum sem því fylgja. Þess vegna er það mikill þáttur í baráttunni við verðbólg- una að opinberri fjárfestingu og framkvæmdum sé mun meir í hóf stillt en verið hefur síðustu ár. Hér þarf ríkið að draga saman seglin og fresta þeim fram- kvæmdum sem ekki geta bráðnauðsynlegar talizt. Ella tekst þjóðinni ekki að hafa hemil á verðbólgu- skrúfunni og lægja öldur ofþenslu og dýrtíðar sem þotið hafa yfir landið á undanförnum árum. Afmælisspjall við frú Herdísi Ásgeirsdóttur ☆ )rÉg var stödd niðri við Þinghúsið og þá sé ég, að dymar á Dómkirkj- unni eru opnar — þetta er í miðri viku og ekki nokkum mann að sjá. Þegar ég kem inn í for- dyrið, er enginn þar. Ég opna aðaldymar — og ekki nokkur maður á nokkrum bekk; það var glampandi sólskin og sterk birta féll inn um kórgluggana. Ég stend þama agndofa...“ Frú Herdís Ásgeirsdóttir að heimlli sinu á Hávallagötu 9 í gærdag: „Hvað sem hver gerir á móti þér, máttti ekki hata hann <og ekki óska honum ills — þefta er sannfæring mín og lífsskoðun — heldur biðja fyrir honum“. (Ljósm. stgr.). „Ekkert guði er um megn" Frúin á Hávaöagötu 9, sem er sjötug í dag, sat við glugg ann á stásstofunni, og sagði frá atviki, sem hana hafði dreymt. Rétt í því smaug bjartur sólar- geisli inn um gluggann. Hún hélt áfram: „Á kórgólfinu situr postulleg- ur öldungur. Hann er að spinna á rokk og snjóhvít lopahönkin liggur á gólfinu, og hann er að eins byrjaður að spinna innan úr henni — hún var af venjulegri stærð . . . Ég stend alveg högg dofa og horfi á þetta undur. Þá lítur hann fram og segir (hann var ákaflega fagur og postulleg ur útlits): „Herdís mín, það var gott að þú komst — ég var ein- mitt að byrja að spinna lífsþráð inn þinn, þangað tfi að þú byrj ar að spinna hann sjálf". Þá fínnst mér ég standa þama og virða þetta fyrir mér — og geng svo út úr kirkjunni; þá verður mér litið á klukkuna í tuminum, og þá er hún 2,30, og ég segi við sjálfa mig: „Já — bíddu við tveir og hálfur tugur . . . “ Ég segi móður minni frá draumnum. „Þetta er fyrir giftingu þinni, Herdís mín“. Svo trúlofaast ég 23 ára og ég er nákvæmlega 25 ára, þegar ég gifti mig. Ég er fædd síðast í ágúst, en gifti mig 7. október 1920. Mannsefn- ið mitt fékk þá frí frá því að sigla út . .'. “. "EVú Herdís Ásgeirsdóttir, kona A Tryggva Ófeigssonar, út- gerðarmamfs, sagði blaðamanni Vísis, að svona gæti hún rakið líf sitt. Fædd er hún og uppal- in i Vesturbænum i Reykjavík. Hún heitir i höfuðið á ömmu sinni Herdísi Jónsdóttur, konu Þorsteins Þorleifssonar frá Hjallalandi í Vatnsdal; Herdís þessi var dóttir síra Jóns Eiriks sonar á Undirfelli Bjamasonar í Djúpadal í SkagafirðL Móðir síra Jóns var Herdís Jónsdóttir, frá Bakka í Viðvíkursveit, er var náskyld þeim Steingrími Jóns- syni biskupi og Bjama konfer- enzráði. Standa að frú Herdísi Ásgeirsdóttur í föður ætt merkir stofnar, Vídalínar og Finnungar. í móðurætt er hún komin af vestfirzku kjamafólki. Móðir hennar hét Rannveig Sigurðar- dóttir Símonarsonar, skipstjóra. Frú Herdís sagði, að kannski hefði hún erft léttleikann frá langafa sínum Þorleifi á Hjalla- landi. Hann var allra manna fót hvatastur. Einn daginn um sum armál hljóp hann frá Svartagili í Þingvallasveit norður í Húna- vatnssýslu og náði háttum að Hvammi í Vatnsdal. Rifahjarn var og gangfæri gott. Var haft að orði, að hann hefði einhvern tíman tekið til fótanna. „Ég brokkaði þetta jafnt“, svaraði hann. „Þorleifur langafi minn hefði sennilega unnið maraþon- hlaup, ef hann hefði lifað nú á dögum“, sagði frá Herdis. Hún sagði frá því, að hún hefði oft farið í kapphlaup við strákana, leikfélaga sína í Vesturbænum, þegar hún var að alast þar upp. „Ég varð alltaf fyrst. Oft kölluðu þeir á eftir mér: „Dísa — þú ert að detta í sundur“. Þeir ætluðust auðvitað til, að ég færi að hlæja, svo að þeir næðu mér. T eiksvið barnanna í Vestur- bænum í þá daga var Vest- urgatan og Ægisgatan og fjaran, þar sem slippurinn er nú. „Þar undum við mikinn hluta dags- ins við að vaða út í sjóinn — við lékum okkur að skeljum og kuðungum í Kríuklettum. Þegar fjara var, gengum við út í Örfirisey. Váð viss- um oft eklri, hvað tímanum leið og reiknuðum ekki alltaf með aðfallinu, og komumst við illan leik til baka. Við vorum öll ó- synd“. Herdís var send í fisk- vinnu og látin breiða fisk og taka hann af mni á Kirkjusandi. Þangað þurfti hún að trítla tvisv ar á dag. Hún var látin vinna. (Þó var hún af efnaheimili). Þegar Herdís er sjö vikna göm ul, deyr faðir hennar. „Hann kvaldist óskaplega — hann fór úr gallsteinum. Hljóðin í honum heyrðust langar leiðir. Hann dó í blóma lífsins, aðeins 33 ára að aldri frá tveim dætrum. Eitt sinn hafði ég legið lengi veik. Ég hafði stillt myndum af börn- unum mínum fjórum á náttborð ið og beðið án afláts og hafði verið að hugsa um, hve sárt væri að þurfa að deyja frá þeim svona ungum. Þá sofnaði ég og mig dreymdi, að hjá mér stend- ur maður og segir: „Herdís mín, þú átt ekki að deyja — þú átt að fá að lifa. Nú á faðir þinn að taka við og lækna þig. Kristur hjálpar öllum píslarvottum". jl/Tóðir Herdísar giftist Páli Matthíassyni, skipstjóra, þegar Herdís er fimm ára. Þess vegna var Herdís send sem léttatelpa vestur að Baulhúsum í Amarfirði til Mátthíasar Bjamasonar, föður Páls stjúpa hennar, sem hún kallaði ósjálf- rátt afa sinn. Hún sagðist hafa verið þar hjá góðu fólki. Þá var hún eitt sinn ráðin á bæ í Mósfellssveit með þeim kjörum, að hún fengi það í kaup, sem hún ætti skilið. Samtímis henni var jafnaldri hennar, drengur, ráðinn á sama bæ upp Framh. á 6. sfðu MKwr.wf-' ■ 'wmivnm

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.