Vísir - 02.10.1965, Side 6
V1 S.I R . Laugardagur 2. október 1965.
TJm sveit -- bæ og borg
Frh. af bls. 9:
síðustu viku í þeirri viðleitni, að
telja Reykvíkingum trú um að
framkvæmdir í skólamálum höf
uðborgarinnar gengju mjög mið
ur. Fann Tíminn upp það vopn,
að benda á Kópavog sem gagn-
stætt dæm'i og birti mikinn
talnalestur í því sambandi. Öllu
gamni fylgir nokkur alvara og
er sjálfsagt að hugleiða fram-
kvæmd fræðslumálanna í Kópa
vogi, að gefnu þessu tilefni.
T ár er Kópavogsbær 10 ára en
1 nokkuð lengra er siðan hin
öra fólkfjölgun hófst þar. Öll
þessi ár hafa runnið í tímans
straum, svo að stjómendur þar
syðra hafa látið undir höfuð
leggjast að beina uppbyggingu
og framkv. f skipulegan farveg.
Þeir hafa til skamms tíma ekki
einu sinni virzt gera sér raun-
verulegar hugmyndir um þær
skyldur, sem því era samfara
að mynda þéttbýli.
Eins og kunnugt er hefur
þetta stjómleysi dregið dilk á
eftir sér. Bæjarfélaginu hefur frá
upphafi reynzt um megn að
byggja upp og halda uppi þjón-
ustu f samræmi við þarfimar
og ems lög og reglur gera ráð
fyrir. 1 þeim efnum hefur í raun
inni aðeins gengið misjafnlega
mSter.
Það sem bezt hefur gengið,
vegna þess hve óhjákvæmilegt
það er eftir boði laganna, er
framkvæmd fræðslumálanna.
Þau anál hafa jafnan verið efst
á baugi og vegna þeirra hefur
ýmislegt annað verið sett á
hakann, eins og fólk verður ó-
þyrmilega vart við. Það mætti
því að óathuguðu máli álykta,
að þessi mál hlytu að vera í
viðunandi horfi. Sú er þó ekki
raunin.
Af þessu kjörtímabili eru lið-
in rúm þrjú ár. Á fyrsta árinu
bættist engin skólastofa við, í
fyrra urðu þær 9 og f ár standa
vonir til að 3 stofur bætist við,
en 10 ára börn í Vesturbænum
bíða eftir þeim um þessar mund
ir. íþróttahús hefur staðið til að
byggja til viðbótar því sem fyr-
ir er en ekkert orðið af. Sund-
höll átti að byggja, skv. ákvörð-
un fyrri bæjarstjórnar, stórkost
legt mannvirki. Var grafið fyrir
henni að nokkru um kosningam
ar en síðar ýtt yfir aftur, vegna
slysahættu, og mun ríkið hafa
verið látið greiða sinn hlut í
kostnaði við hvorutveggja Við
bót við gagnfræðaskólann átti
að byggja í sumar og hafði
reyndar verið sótt um leyfi fyr
ir þeim framkvæmdum tvö fyrri
ár. Þessi bygging tafðist vegna
þess að undirbúningsvinna var
ekki hafin fyrr en í vor, þ. e.
breytingar' á teikningum. Fram-
kvæma átti fyrir um 8y2 millj.
kr. í ár en nú mun vera búið að
framkvæma fyrir um 3 m'illj.
kr. og er/ orsökin fyrir seina-
ganginum sú fyrst og fremst,
að undirbúningur hefur rekið á
reiðanum, þar til framkvæmdir
hafa átt að hefjast, enda hefur
aldrei verið til nein fram-
kvæmdaáætlun um bæjarfram-
kvæmdir fram í tímann.
í vetur verður ástandið þann-
Jarðarför föður okkar og tengdaföður
KRISTJÁNS ÁSGEIRSSONAR,
fyrrv. verzlunarstjóra, Flateyri,
fer fram frá Dómkirkjunni mánudaginn 4. október kl. 2 e.h.
Blóm eru vinsamlegast afbeðin, en þeim, sem vildu minn-
ast hins látna, skal bent á líknarstofnanir.
Elínborg Kristjánsdóttir
Helga Kristjánsdóttir
Magnús G. Kristjánsson
Guðmundur Kristjánsson
Steinarr Kristjánsson
Rögnvaldur Kristjánsson
Edwin Ámason,
Guðmundur Sigurðsson
Svava Sveinsdóttir
Gróa Ólafsdóttir
Þórunn Hafstein
Svava Guðmundsdóttir
ig, að eins ásett er í bamaskól
ana þrjá og gagnfræðaskólann
og framast er unnt. Verður þó
að skera niður lögboðna náms-
skrá. Handavinnukennsla verður
takmörkuð, 7, 8 og 9 ára börn fá
ekki íþróttakennslu, aðeins 10,
11 og 12 ára börn fá stutt sund-
námskeið fyrir góðvilja Hafnfirð
inga. Þá eiga nemendur undir
önnur bæjarfélög að sækja með
allt sémám, sérstaklega Reykja
vík.
Enginn fræðslufulltrúi er í
Kópavogi og eftirlit með rekstri
fræðslumálanna í höndum nefnd
ar, sem engin tök hefur á að
framkvæma eftirlit, nema að ó-
veralegu marki.
Sanianburðar„tækni“
Tjað er svo annað mál, að velta
því fyrir sér hvernig sam-
anburður Tímans milli Reykja-
vikur og Kópavogs um skóla-
byggingar á að geta orðið Kópa
vogi í hag, enda kemur í Ijós.
að töluverðar sjónhverfingar
þarf að framkvæma til þess.
Tíminn miðar nefnilega ein-
göngu við það, að Reykjavík
hefði átt að framkvæma allt tí-
falt á við Kópavog — eða
í samræmi við heildar fólks-
fjölda.
Sé nú hins vegar miðað við
framkv fræðsluskyldunnar, eins
og um er að ræða og jafnvel
gengið út frá svipuðu ástandi
me ðskólarými á báðum stöðun
um, sem vitað er þó að er langt
um betra en í Rvík, þá væri að
eins um að ræða að byggja yfir
fjölgun skólabama árlega, það
væri Kópavogi meira að segja
mjög hagstætt, því Reykjavík
keppir að einsetningu í skólana
en Kópavogur að því að skerða
ekki námsskrána en verður að
þrísetja í skólana.
Eins og Tíminn getur rétti-
lega, þá fjölgar skólabörnum á-
líka mikið árlega á báðum stöð
unum þessi árin. Það væri því
nægilegt fyrir Reykjavík að
byggja jafn mikið og Kópavog
ur, til þess að standast saman-
burð'inn. En eins og Tíminn
bendir einnig réttilega á þá var
byggt í Reykjavík í fyrra fvrir
37 millj. kr. en í Kópavogi fyrir
8,5 millj. kr. og áætlað i Reykja
vík í ár fyrir 39 millj. kr. í
vík í ár fyrir 39 millj. kr. fyrir
8.7 millj. kr. í Kópavogi
Tómas Tryggva-
son, jarðfr., látinn
Tómas Tryggvason andaðist
snögglega að heimili sínu um kl. 2
í fyrradag. Með honum er hniginn
í valinn merkur vísindamaður og
mætur maður.
Tómas heitinn var fæddur 26
aprfl 1907 að Halldórsstöðum í
Bárðardal. Stúdent varð hann frá
Menntaskólanum á Akureyri 1933
Phil cand prófi í jarðfræði og berg
fræði lauk hann frá Uppsalahá-
skóla 1940 og þhil lic. frá sama
skóla ‘43. Starfaði að jarðfræðirann
sóknum í Svíþjóð ‘39—46 Kom
heim til íslands ‘46 og starfaði síð
an við Atvinnudeild Háskólans.
Tómas var kvæntur Kerstin
Janckes frá Sviþjóð. Þau eignuðust
4 böm.
PILTUR EÐA STÚLKA
óskast hálfan daginn til sendiferða.
Vátryggingaskrifstofa
SIGFÚSAR SIGHVATSSONAR
Lækjargötu 2, 3. hæð.
„Eldgos64 -
Framhald af bls. I.
ið í gærmorgun, en þá var hann
að koma vestan frá New York.
Smári skýrði svo frá að hann
hefði séð einhvers konar ólgu
í sjónum, sem kæmi upp ann-
að veifið, en hyrfi þess á m'illi.
Sama sögðu flugmenn og áhafn
ir í öðram flugvélum, sem flugu
yfir staðinn skömmu síðar. AIl
ir sáu og eitthvað fljótandi,
sem líktist vikri, á um það bil
200 m. svæð'i við þennan ólgu-
blett í sjónum. Bjuggust flestir
þeirra er flugu yfir stað'inn, við
að þarna væri neðansjávargos
að hefjast.
í símtali við Arnór Hjálmars
son flugumferðarstjóra á
Reykjavikurflugvelli sagði hann
að „gos“-staðurinn væri stað-
settur 43 sjómílur frá Kefla-
víkurflugvelli og 258 gráður
þaðan, eða talsverðan spöl suð
vestan við Ge'irfuglasker.
Amór sagði, að skömmu eft
ir að fregnin um þessar neðan-
sjávargoshræringar hefði borizt
með Loftleiðavélinnj hefðu þrjár
flugvélar hafið sig t'il flugs, ein
hervél frá Keflavík og tvær
flugvélar úr Reykjavík, vél flug
málastj. og vél frá Bimi Páls-
syni. Þær hefðu allar lagt upp
á tímabilinu kl. 10.30-11.00 Kl.
langt gengin í 2 e.h. fór flug-
vél frá Lufthansa yfir staðinn
og barst tilkvnning frá henrii
um að eitthvað undarlegt sæist
í sjónum, en gat ekki greint nán
ar hvað það var, enda var flug
vélin þá að „klifra“ og mun
hafa verið komin í allmikla
hæð.
Litlu seinna flaug landhelg'is-
flugvélin yfir staðinri og var
það sfðasta flugvélin sem blaðið
hafði fréttir um að flogið hefði
yfir „gosstöðvarnar“ nýju f gær
dag.
Vísir sneri sér til eins þátt-
takandans f þessum leitarleið-
öngrum úr lofti f gær, en það
var dr. Sigurður Þórarinsson,
jarðfræðingur.
.— Það sem ég sá, sagði dr.
Sigurður, var Eldeyjarboði með
BLAUPUNKT
SJÓNVÖRP . HEIMILISÚTVÖRP . BÍLAÚTVÖRP . FERÐAÚTVÖRP
dálitlu vikurkögri úr Syrtllngi
í kring. Vikur úr honum er kom
inn út um allan sjó, meira að
segja norður fyrir land.
Og þar sem brýtur á boðan-
um lítur út eins og ólga í sjón-
um, en ég sá ekki nein einkenni
elds eða eldsumbrota. Ég hef
reyndar heyrt, bætt’i Sigurður
við, að Smári Karlsson flug-
stjóri hafi staðsett sínar „eld-
stöðvar" talsvert nær landi, eða
27 sjómílur frá Keflavíkurflug-
velli. Hafi svo verið, höfum við
alls ekki verið á rétta staðnum
Hins vegar hefðum við átt að
fljúga yfir þær í leiðinni, en
ég gat hvergi orðið neins var
■ nema Eldeyjarboða eins — og
þar var ekki neitt eldgos.
Landhelgisflugvélin flaug líka
þama yfir og flugmennirnir í
henni sáu það sama og ég —
sáu Eldeyjarboða en ekkert gos.
Eldeyjarboði mun vera á á-
þekkum slóðum og neðansjávar
eldgosin urðu ár'ið 1793. Þá
myndaðist eyja úr hafi, en hún
hvarf árið eftir.
Vísir hafði samband við
Landhelgisgæzluna en flugvél
hennar flaug yfir sjóinn út af
Reykjanesi. Flugmaðurinn Þröst
ur Sigtryggsson varð einskis
óvenjulegs var á þeim slóðum.
Hann flaug yfir Eldeyjarboða og
telur að það sé boðinn sem
komið hafi þessum hugmyndum
af stað og bendir á það, að þeg
ar þannig stendur á sjó sem í
dag geti br'imið staðið eins og
strókur hátt í loft af boðanum.
Greinileg merki
Framhald af bls. I.
magnaðist þó og hjaðnaði til skipt
is. Þeir flugu tvo hringi í kringum
það og virtu það fyrir sér og allir
þeir sem voru frammi í stjómklef
anum sáu það greinilega. Hins
vegar kvaðst hann ekki hafa séð
ástæðu til að gera, farþegunum við
vart um það. Það er alveg sama
hvað jarðfræðingar eða aðrir
segja um þetta, hér var á ferðinni
fyrirbæri sem benti til neðansjáv
arumbrota.
Yetrarverð -
Framh. af bls. 16
verður kr. 1.55. Er það sama verð
og í fyrravetur en 5 aurum hærra
en sumarverðið. Miðast það við
innvegið magn, það er síldin upp
til hópa.
Síld til skepnufóðurs er nú kr.
1.45, en var í fyrra kr. 1.25.
Bræðslusíld er kr. 1.40 kg. eða
sama verð og í sumar ,en í fyrra
vetur var það kr. 1.02.
Mjólk -
Framh. af bls. 16
víkurflugvelli mælzt til þess,
að fá sína mjólk afgreidda í
þessum umbúðum. Hefur þegar
verið sett upp ein átöppunarvél
hjá mjólkursamsölunni í Reykja
vík, sem tappar á 23 lítra kassa
til varnarliðsins. Er sú fram-
leiðsla þegar komin í gang og
er búið þannig um 1500—1600
mjólkurlítra á dag. Vélin, sem
sett var upp, afkastar margföldu
því magni, en samt er ekki ráð
gert að setja neina slíka kassa
á markaðinn í Reykjavík, svo
hyrnurnar verða þar enn alls ráð
andi í næstu framtíð.
L
GUNNAR ASGilRSSON H.F.
Suðurlandsbraut 16 . Sími 35200
K.F.U.M.
Á morgun: Kl. 10.30 f.h. Sunnu
lagaskólinn við Amtmannsstíg.
Barnasamkoma í samkomusalnum
Auðbrekku 50 Kópavogi
Kl. 10.45 Drengjadeildin Kirkju-
teig 33.
Kl. 1.30 e.h. Drengjadeildirnar við
Amtmannsstíg og Holtaveg.
Kl. 8.30 e.h. Almenn samkoma í
húsi félagsins við Amtmannsstíg
Séra Jóhann Hannesson, prófessoö
talar Fórnarsamkoma. Allir vel-
komriir.