Vísir - 02.10.1965, Blaðsíða 6

Vísir - 02.10.1965, Blaðsíða 6
V1 S.I R . Laugardagur 2. október 1965. TJm sveit -- bæ og borg Frh. af bls. 9: síðustu viku í þeirri viðleitni, að telja Reykvíkingum trú um að framkvæmdir í skólamálum höf uðborgarinnar gengju mjög mið ur. Fann Tíminn upp það vopn, að benda á Kópavog sem gagn- stætt dæm'i og birti mikinn talnalestur í því sambandi. Öllu gamni fylgir nokkur alvara og er sjálfsagt að hugleiða fram- kvæmd fræðslumálanna í Kópa vogi, að gefnu þessu tilefni. T ár er Kópavogsbær 10 ára en 1 nokkuð lengra er siðan hin öra fólkfjölgun hófst þar. Öll þessi ár hafa runnið í tímans straum, svo að stjómendur þar syðra hafa látið undir höfuð leggjast að beina uppbyggingu og framkv. f skipulegan farveg. Þeir hafa til skamms tíma ekki einu sinni virzt gera sér raun- verulegar hugmyndir um þær skyldur, sem því era samfara að mynda þéttbýli. Eins og kunnugt er hefur þetta stjómleysi dregið dilk á eftir sér. Bæjarfélaginu hefur frá upphafi reynzt um megn að byggja upp og halda uppi þjón- ustu f samræmi við þarfimar og ems lög og reglur gera ráð fyrir. 1 þeim efnum hefur í raun inni aðeins gengið misjafnlega mSter. Það sem bezt hefur gengið, vegna þess hve óhjákvæmilegt það er eftir boði laganna, er framkvæmd fræðslumálanna. Þau anál hafa jafnan verið efst á baugi og vegna þeirra hefur ýmislegt annað verið sett á hakann, eins og fólk verður ó- þyrmilega vart við. Það mætti því að óathuguðu máli álykta, að þessi mál hlytu að vera í viðunandi horfi. Sú er þó ekki raunin. Af þessu kjörtímabili eru lið- in rúm þrjú ár. Á fyrsta árinu bættist engin skólastofa við, í fyrra urðu þær 9 og f ár standa vonir til að 3 stofur bætist við, en 10 ára börn í Vesturbænum bíða eftir þeim um þessar mund ir. íþróttahús hefur staðið til að byggja til viðbótar því sem fyr- ir er en ekkert orðið af. Sund- höll átti að byggja, skv. ákvörð- un fyrri bæjarstjórnar, stórkost legt mannvirki. Var grafið fyrir henni að nokkru um kosningam ar en síðar ýtt yfir aftur, vegna slysahættu, og mun ríkið hafa verið látið greiða sinn hlut í kostnaði við hvorutveggja Við bót við gagnfræðaskólann átti að byggja í sumar og hafði reyndar verið sótt um leyfi fyr ir þeim framkvæmdum tvö fyrri ár. Þessi bygging tafðist vegna þess að undirbúningsvinna var ekki hafin fyrr en í vor, þ. e. breytingar' á teikningum. Fram- kvæma átti fyrir um 8y2 millj. kr. í ár en nú mun vera búið að framkvæma fyrir um 3 m'illj. kr. og er/ orsökin fyrir seina- ganginum sú fyrst og fremst, að undirbúningur hefur rekið á reiðanum, þar til framkvæmdir hafa átt að hefjast, enda hefur aldrei verið til nein fram- kvæmdaáætlun um bæjarfram- kvæmdir fram í tímann. í vetur verður ástandið þann- Jarðarför föður okkar og tengdaföður KRISTJÁNS ÁSGEIRSSONAR, fyrrv. verzlunarstjóra, Flateyri, fer fram frá Dómkirkjunni mánudaginn 4. október kl. 2 e.h. Blóm eru vinsamlegast afbeðin, en þeim, sem vildu minn- ast hins látna, skal bent á líknarstofnanir. Elínborg Kristjánsdóttir Helga Kristjánsdóttir Magnús G. Kristjánsson Guðmundur Kristjánsson Steinarr Kristjánsson Rögnvaldur Kristjánsson Edwin Ámason, Guðmundur Sigurðsson Svava Sveinsdóttir Gróa Ólafsdóttir Þórunn Hafstein Svava Guðmundsdóttir ig, að eins ásett er í bamaskól ana þrjá og gagnfræðaskólann og framast er unnt. Verður þó að skera niður lögboðna náms- skrá. Handavinnukennsla verður takmörkuð, 7, 8 og 9 ára börn fá ekki íþróttakennslu, aðeins 10, 11 og 12 ára börn fá stutt sund- námskeið fyrir góðvilja Hafnfirð inga. Þá eiga nemendur undir önnur bæjarfélög að sækja með allt sémám, sérstaklega Reykja vík. Enginn fræðslufulltrúi er í Kópavogi og eftirlit með rekstri fræðslumálanna í höndum nefnd ar, sem engin tök hefur á að framkvæma eftirlit, nema að ó- veralegu marki. Sanianburðar„tækni“ Tjað er svo annað mál, að velta því fyrir sér hvernig sam- anburður Tímans milli Reykja- vikur og Kópavogs um skóla- byggingar á að geta orðið Kópa vogi í hag, enda kemur í Ijós. að töluverðar sjónhverfingar þarf að framkvæma til þess. Tíminn miðar nefnilega ein- göngu við það, að Reykjavík hefði átt að framkvæma allt tí- falt á við Kópavog — eða í samræmi við heildar fólks- fjölda. Sé nú hins vegar miðað við framkv fræðsluskyldunnar, eins og um er að ræða og jafnvel gengið út frá svipuðu ástandi me ðskólarými á báðum stöðun um, sem vitað er þó að er langt um betra en í Rvík, þá væri að eins um að ræða að byggja yfir fjölgun skólabama árlega, það væri Kópavogi meira að segja mjög hagstætt, því Reykjavík keppir að einsetningu í skólana en Kópavogur að því að skerða ekki námsskrána en verður að þrísetja í skólana. Eins og Tíminn getur rétti- lega, þá fjölgar skólabörnum á- líka mikið árlega á báðum stöð unum þessi árin. Það væri því nægilegt fyrir Reykjavík að byggja jafn mikið og Kópavog ur, til þess að standast saman- burð'inn. En eins og Tíminn bendir einnig réttilega á þá var byggt í Reykjavík í fyrra fvrir 37 millj. kr. en í Kópavogi fyrir 8,5 millj. kr. og áætlað i Reykja vík í ár fyrir 39 millj. kr. í vík í ár fyrir 39 millj. kr. fyrir 8.7 millj. kr. í Kópavogi Tómas Tryggva- son, jarðfr., látinn Tómas Tryggvason andaðist snögglega að heimili sínu um kl. 2 í fyrradag. Með honum er hniginn í valinn merkur vísindamaður og mætur maður. Tómas heitinn var fæddur 26 aprfl 1907 að Halldórsstöðum í Bárðardal. Stúdent varð hann frá Menntaskólanum á Akureyri 1933 Phil cand prófi í jarðfræði og berg fræði lauk hann frá Uppsalahá- skóla 1940 og þhil lic. frá sama skóla ‘43. Starfaði að jarðfræðirann sóknum í Svíþjóð ‘39—46 Kom heim til íslands ‘46 og starfaði síð an við Atvinnudeild Háskólans. Tómas var kvæntur Kerstin Janckes frá Sviþjóð. Þau eignuðust 4 böm. PILTUR EÐA STÚLKA óskast hálfan daginn til sendiferða. Vátryggingaskrifstofa SIGFÚSAR SIGHVATSSONAR Lækjargötu 2, 3. hæð. „Eldgos64 - Framhald af bls. I. ið í gærmorgun, en þá var hann að koma vestan frá New York. Smári skýrði svo frá að hann hefði séð einhvers konar ólgu í sjónum, sem kæmi upp ann- að veifið, en hyrfi þess á m'illi. Sama sögðu flugmenn og áhafn ir í öðram flugvélum, sem flugu yfir staðinn skömmu síðar. AIl ir sáu og eitthvað fljótandi, sem líktist vikri, á um það bil 200 m. svæð'i við þennan ólgu- blett í sjónum. Bjuggust flestir þeirra er flugu yfir stað'inn, við að þarna væri neðansjávargos að hefjast. í símtali við Arnór Hjálmars son flugumferðarstjóra á Reykjavikurflugvelli sagði hann að „gos“-staðurinn væri stað- settur 43 sjómílur frá Kefla- víkurflugvelli og 258 gráður þaðan, eða talsverðan spöl suð vestan við Ge'irfuglasker. Amór sagði, að skömmu eft ir að fregnin um þessar neðan- sjávargoshræringar hefði borizt með Loftleiðavélinnj hefðu þrjár flugvélar hafið sig t'il flugs, ein hervél frá Keflavík og tvær flugvélar úr Reykjavík, vél flug málastj. og vél frá Bimi Páls- syni. Þær hefðu allar lagt upp á tímabilinu kl. 10.30-11.00 Kl. langt gengin í 2 e.h. fór flug- vél frá Lufthansa yfir staðinn og barst tilkvnning frá henrii um að eitthvað undarlegt sæist í sjónum, en gat ekki greint nán ar hvað það var, enda var flug vélin þá að „klifra“ og mun hafa verið komin í allmikla hæð. Litlu seinna flaug landhelg'is- flugvélin yfir staðinri og var það sfðasta flugvélin sem blaðið hafði fréttir um að flogið hefði yfir „gosstöðvarnar“ nýju f gær dag. Vísir sneri sér til eins þátt- takandans f þessum leitarleið- öngrum úr lofti f gær, en það var dr. Sigurður Þórarinsson, jarðfræðingur. .— Það sem ég sá, sagði dr. Sigurður, var Eldeyjarboði með BLAUPUNKT SJÓNVÖRP . HEIMILISÚTVÖRP . BÍLAÚTVÖRP . FERÐAÚTVÖRP dálitlu vikurkögri úr Syrtllngi í kring. Vikur úr honum er kom inn út um allan sjó, meira að segja norður fyrir land. Og þar sem brýtur á boðan- um lítur út eins og ólga í sjón- um, en ég sá ekki nein einkenni elds eða eldsumbrota. Ég hef reyndar heyrt, bætt’i Sigurður við, að Smári Karlsson flug- stjóri hafi staðsett sínar „eld- stöðvar" talsvert nær landi, eða 27 sjómílur frá Keflavíkurflug- velli. Hafi svo verið, höfum við alls ekki verið á rétta staðnum Hins vegar hefðum við átt að fljúga yfir þær í leiðinni, en ég gat hvergi orðið neins var ■ nema Eldeyjarboða eins — og þar var ekki neitt eldgos. Landhelgisflugvélin flaug líka þama yfir og flugmennirnir í henni sáu það sama og ég — sáu Eldeyjarboða en ekkert gos. Eldeyjarboði mun vera á á- þekkum slóðum og neðansjávar eldgosin urðu ár'ið 1793. Þá myndaðist eyja úr hafi, en hún hvarf árið eftir. Vísir hafði samband við Landhelgisgæzluna en flugvél hennar flaug yfir sjóinn út af Reykjanesi. Flugmaðurinn Þröst ur Sigtryggsson varð einskis óvenjulegs var á þeim slóðum. Hann flaug yfir Eldeyjarboða og telur að það sé boðinn sem komið hafi þessum hugmyndum af stað og bendir á það, að þeg ar þannig stendur á sjó sem í dag geti br'imið staðið eins og strókur hátt í loft af boðanum. Greinileg merki Framhald af bls. I. magnaðist þó og hjaðnaði til skipt is. Þeir flugu tvo hringi í kringum það og virtu það fyrir sér og allir þeir sem voru frammi í stjómklef anum sáu það greinilega. Hins vegar kvaðst hann ekki hafa séð ástæðu til að gera, farþegunum við vart um það. Það er alveg sama hvað jarðfræðingar eða aðrir segja um þetta, hér var á ferðinni fyrirbæri sem benti til neðansjáv arumbrota. Yetrarverð - Framh. af bls. 16 verður kr. 1.55. Er það sama verð og í fyrravetur en 5 aurum hærra en sumarverðið. Miðast það við innvegið magn, það er síldin upp til hópa. Síld til skepnufóðurs er nú kr. 1.45, en var í fyrra kr. 1.25. Bræðslusíld er kr. 1.40 kg. eða sama verð og í sumar ,en í fyrra vetur var það kr. 1.02. Mjólk - Framh. af bls. 16 víkurflugvelli mælzt til þess, að fá sína mjólk afgreidda í þessum umbúðum. Hefur þegar verið sett upp ein átöppunarvél hjá mjólkursamsölunni í Reykja vík, sem tappar á 23 lítra kassa til varnarliðsins. Er sú fram- leiðsla þegar komin í gang og er búið þannig um 1500—1600 mjólkurlítra á dag. Vélin, sem sett var upp, afkastar margföldu því magni, en samt er ekki ráð gert að setja neina slíka kassa á markaðinn í Reykjavík, svo hyrnurnar verða þar enn alls ráð andi í næstu framtíð. L GUNNAR ASGilRSSON H.F. Suðurlandsbraut 16 . Sími 35200 K.F.U.M. Á morgun: Kl. 10.30 f.h. Sunnu lagaskólinn við Amtmannsstíg. Barnasamkoma í samkomusalnum Auðbrekku 50 Kópavogi Kl. 10.45 Drengjadeildin Kirkju- teig 33. Kl. 1.30 e.h. Drengjadeildirnar við Amtmannsstíg og Holtaveg. Kl. 8.30 e.h. Almenn samkoma í húsi félagsins við Amtmannsstíg Séra Jóhann Hannesson, prófessoö talar Fórnarsamkoma. Allir vel- komriir.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.