Vísir - 02.10.1965, Síða 16

Vísir - 02.10.1965, Síða 16
1 4 VISIR Þrettán baðu í smíSi dráttarbrautar á Akureyrí Fyrir nokkru voru opnuð til- boð í smíði dráttarbrautar fyr- ir Akureyri. Var það gert í Innkaupastofnun ríkisins. Til boðin voru eins og gengur all- misjöfn tæknilega og er nú ver-<*> ið að kanna það á tæknilegan j hátt, hvert þeirra sé aðgengileg- ! ast og annast Vitamálaskrifstof- i an um þá athugun. Getur það • tekið nokkurn tíma að gera sam j anburðinn og þarf m. a. að fara norður og athuga aðstæður all- ar. En gert er ráð fyrir að drátt- arbrautin eigi að geta tekið 500 tonna þunga. Þýzkalandi, A.-Þýzkalandi og Póllandi. Það voru einungis út- lendir aðilar, sem gerðu tilboðin að því undanskildu að Slippstöð in i Reykjavík bauð í hluta verks. Tilboðin vqqju mjög mishá, en þar virtust m. a. vera allgirnileg tilboð frá Póliandi og frá vest- ur-þýzku fyrirtæki. Myndin er af ísskáp á Akureyri. Þegar tappað er af mjólkurkössunum, er togað í tappann, sem lokast síðan sjálfkrafa, þegar honum er sleppt. Þyrilvængjun sýndi notagildi sitt ikmgri flugferS yfir hálendi íslunds Hér eru Kristján Jóh. Kristjánsson, forstjóri Kassagerðarlnnar, sem ,Jann“ þessa tegund mjólkurumbúða i Bandarikjunum í fyrra, og Gylfi Hinriksson, framkvæmdastjóri Pappírsvara h.f., sem flytur inn átöppunarvélarnar og plastpokana, — og eru þeir með hinar nýju umbúðir fyrir framan sig. Fremst er plastpoki, fullur af mjólk og ónotaður pappakassi, en fjær eru kassar, sem gengið hefur verið alveg frá til sölu. Kassarnir eru með merkjum Mjólkursamlags KEA. Selfyssingar verða í þess- um mánuði aðnjótandi mjólk- urkassa af sömu gerð og slógu í gegn á Akureyri í sumar. Atöppunarvélin var sett upp hjá Mjólkurbúi Flóa- manna í fyrrakvöld og er nú aðeins beðið eftir fitusprengi, til þess að framleiðsian geti hafizt. Mjólkinni er tappað á geysi- sterka plastbelgi, sem settir eru f ferhymda pappakassa, sem passa í allar gerðir ísskápa, og er sérstakur sjálflokandi krani settur á umbúðimar, sem taka tíu lítra mjólkur. Reynsla sumarsins af þessum nýstárlegu mjólkurumbúðum á Akureyri bendir til þess, að mjólkin geymist mun betur í þessum umbúðum en öðmm, enda kemst hvorki loft né ljós að mjólkinni og hún verður ekki fyrir neinum hitabreytingum, þvf kassamir eru ekki teknir út úr fsskápnum, þegar tappað er af þeim. Þessar umbúðir þykja líka óvenju sterkar, leki enginn og þær taka lfka mun minna pláss en aðrar mjólkurumbúðir. „Viðtökumar vom miklu betri, en við bjuggumst við“, sagði Jónas Kristjánsson, mjólk urbústjóri á Akureyri, í viðtali við Vísi. „Við ætluðum aðallega að selja mjólkina til skipa, í mötuneyti og veitingahús, en reynslan varð sú, að mikið magn seldist af henni í venjulegri smá sölu. Þessar umbúðir gera okk ur nefnilega kleift að senda mjólkina heim tii húsmæðrarma, sem fagna þessari nýjung ákaf- lega. Við seljum þegar meira en þriðjung af allri okkar nevzlu mjólk í þessum umbúðum." Þá hefur vamarliðið á Kefla- Framh. á 6. síðu. Tilboð munu hafa borizt frá : þrettán að'ilum í ýmsum | löndum, svo sem Englandi, , Frakklandi, Bandaríkjunum, V.- j Nú um miðja vikuna fór þyr'il vængja Landhelgisgæzlunnar í iangt öræfaferðalag á vegum raf orkumálaskrifstofunnar til að gera virkjunarrannsóknir. 1 þess ari ferð sannaði þyrlan mjög á- gæti sitt þar sem hægt var að komast á henni á fáeinum Sendiherra afhendir skilríki sín Mynd þessi var tekin i Stjómarráðinu í gær, þegar danski sendiherrann, Birger Ove Kronmann, afhenti handhöfum forsetavalds embættisskilríki sín. í fjarveru Ásgeirs Ásgeirssonar forseta íslands tóku handhafar for- setavalds f gær á móti embættis- skilrikjum tveggja sendiherra, beggja frá Norðurlöndum, er ný- lega hafa tekið hér við embætti. Fóru athafnir þessar báðar fram f stjórnarráðsbyggingunni við Lækjartorg. Danski sendiherrann, Birger Ove Kronmann, kom þar kl. 2 og gekk á fund handhafa for- setavalds og sænski sendiherrann, Gunnar Granberg, kíukkustund siðar. Handhafar forsetavalds eru þeir dr. Bjarni Benediktsson forsætisráð herra, dr. Þórður Eyjólfsson for- seti Hæstaréttar og Birgir Finnsson Alþingisforseti. Auk þess var utan- ríldsráðherra Emil Jónsson við- staddur. klukkustundum léið sem hefði tekið marga daga á landi. Þannig stóð á þessu ferða- lagi, að hingað kom norskur sérfræðingur að nafni Berdal, sem er einn af þeim erlendu sér fræðingum sem sérsjóður Sþ hefur kostað til að veita íslend ingum leíðbeiningar í sambandi við virkjunarframkvæmdir. Fór Jakob Björnsson á raforkumála skrifstofunni með þessum norska manni i þennan þyrlu- leiðangur, en Björn Jónsson flugmaður stjórnaði þyrlunni. Farið var héðan austur fyrir fjall og alla leið austur að Vatna jökli, að Langasjó og upptökum Tungnaár. Við Lang^Isjó var áð og snætt nesti í 1000 m hæð og 19 stiga hita af sólinni. • Þá var haldið að Þórisvatni og Ient við upptök Köldukvísl- ar. Og þaðan að Þjórsá og lent bæði við Stakk og athug anir gerðar á ýmsum stöðum. Þá var farið að Haldi en þar eru benzínbirgðir fyrir þyril- vængjuna. Síðan yfir Þjórsá og yfir suðurjaðar Hofsjökuls, að Hvítárvatni þar sem athuganir voru enn gerðar, og þá niður eft ir Hvítá þar sem lent var einn ig á nokkrum stöðum til að gera athuganir, m.a. við Gull- foss. Loks var flogið beint í vestur yfir Apavatn og Þing- vallavatn til Reykjavíkur. Alls hafði ferðin tekið 8!/2 klst., þar af var flugtími 5 klst. Vetrarverð á síld við Suð- ur ©§ Vesturlund úkveðið / Verðlagsráð sjávarútvegsins hef ur nú ákveðið síldarverð fyrir Suð ur- og Vesturlandi í vetur og er það lít’ið breytt frá því sem verið hefur í sumar. Ekki hefur verið tekin ákvörðun á verði á síld sem afhent er beint í síldarflutninga- skip á miðunum, en verður gert síðar ef til þess kemur, að síldar flutningaskip verður notað við Suður- og Vesturland. Verðið á síld til heilfrystingar, söltunar, flökunar og í niðursuðu- verksmiðjum er kr. 1.70 á kg. og er þá miðað éinungis við það magn sem fer í vinnslu, en úrgangssíld er þá skilað aftur. Þetta er sama verð og var í fyrravetur, en 5 aur um hærra en verðið sem gilti i sumar. ísvarin síld til útflutnings í skip Framhaid á Ms. 6.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.