Vísir - 07.10.1965, Síða 2
2
viðlR
:3agur 7. októL.j 1TO5.
^ {jjj|| y| ||i I # |Jj æ Sl I RITSTJó'rF JÓN BIRGÍR PErí/SSo?||P|jf||Hjp(|
y ..
Lítíl athugasemd vegna
mm ” p ' ^ |
leiks KR og IA
frá Ellert B. Schrarn, fyrirliða KR
Viðbrögð áhorfenda að lokn-
um leik KR og Akraness s.l.
sunnudag og skrif ýmissa dag-
blaða dagana á eftir, valda því,
að ég hef tekið þá ákvörðun að
stinga niður penna og Ieggja
nokkur orð í belg:
í fyrsta lagi vil ég taka skýrt
fram, að KR-liðið harmar mjög,
að bera þurfti tvo af ieikmönn-
um Akraness slasaða af leik-
veili, 7—8 mínútum fyrir leiks-
lok, enda varpa þau atvik
nokkrum skugga á slgur KR í
leiknum, ekkl sízt í okkar eigin
augum. Hins vegar er það skoð-
un mín, að fram að þessum ó-
happaminútum hafi leikurinn
ekki verið harkalegur né grófar
lelkinn en gengur og gerist i á-
ríðandi leikjum sem þessum. Ég
er elnnig sannfærður um, að
leikmenn Akraness og aðrir,
sem vlðstaddir voru, viður-
kenna, þegar atvik sem þessi
eru skoðuð í réttu Ijósi, að slys
þessi voru eins og hver önnur
óhöpp, sem átt geta sér stað f
knattspymukappleik.
Flestum er vel kunnugt, að
slfklr atburðir eru engin eins-
dæmi. Ekki þarf að leita lengra
en aftur f leik KR og Akraness
fyrr í sumar, einmitt á Laug-
ardaisvellinum. tll að benda á
hliðstætt atvlk.
i fyrri háiflelk þess Ieiks
þurfti Heimir Guðjónsson mark-
vörður KR að yfirgefa leikvöll-
inn, eftir að hafa fengið spark
í andlitið, með þeim afleiðing-
um, að tennur skekktust og
brotnuðu, og sauma þurfti sam-
an svöðusár í andliti hans. Var
Heimir frá vlnnu í a.m.k. 10
daga vegna þessa atviks.
KR tapaði leiknum 2:3, og
hvarflaði þó aldrei að okkur
KRingum, að ásaka Akurnesinga
fyrir þetta óhapp.
í leik Akraness og Akureyr-
ar, um mánaðamótin ágúst/
september s.l. slasaðist Magnús
Jónatansson framvörður Akur-
eyrlnga með þeim afleiðingum,
að hann hefur legið rúmfastur
síðan og mun vart verða vinnu-
fær næstu mánuði. Hafa ekki
borizt frásagnir af þeim atburði
f dagblöðunum að þvf ég bezt
veit, enda hér sömulelðis um
slys að ræða.
1 leiknum á sunnudaginn nef-
brotnaði annar bakvörður KR,
markvörðurinn tognaði og tveir
eða þrír aðrir hlutu önnur
meiðsl. Hér eru enn slys ein,
sem ekkl er ástæða til að blása
upp. Þau sýna það eitt, að á
leikvelllnum á sunnudaginn var
barizt á báða bóga, enda senni-
lega báðir aðllar gert sér ijóst,
að „dúkkuspil“ dygði ekki tií
slgurs i lelknum þelm.
Undirrltaður hefur leikið með
meistaraflokki KR frá og með
1957 eða nær 170 leiki, og að-
eins einu sinni áður hefur það
komið fyrir. að ég muni, að KR
hafi verið ásakað fyrir grófan
leik. Var það undirritaður sjálf-
ur, sem lá undir þeim ámælum,
og var ég einmitt sérstaklega
ávitaður í dagblöðum, með tii-
liti til þess, hversu liðið í heild
lék prúðmannlega knattspyrnu.
Ég get ekki ímyndað mér
annað en að keppinautar okkar
svo og dómarar og áhorfendur
geti borlð því vitni, að KR-liðið
leikl kannski fast og ákveðið,
en aldrei gróft né beinlínis vilj-
andi ólöglega.
Sem betur fer urðu melðsli
Eyleifs Hafsteinssonar ekki al-
varleg, en hins vegar hefur
komið á daginn, að Ríkharður
Jónsson verður að liggja rúm-
fastur um nokkum tíma vegna
þeirra meiðsla, sem hann hlaut.
Ég legg áherzlu á, að við KR-
ingar hörmum mjög þetta slys
og vonum hellshugar, að Rfk-
harður fái skjótan og góðan
bata. Sendum við honum beztu
kveðjur okkar.
íþróttafréttaritarar dagblað-
anna eru yfirleitt á einu máli
um, að sigur KR í umræddum
leik og þá einnig f íslandsmót-
inu hafi ekki verið verðskuld-
aður að þessu sinni. Auðvitað er
hverjum og einum frjálst að
hafa sína skoðun þar á, en þessi
skrif vekja mig hins vegar til
umhugsunar um, hvað sé verð-
skuldaðnr sigur og hver hafi f
rauninni verðskuldað sigur í
þessu íslandsmóti.
Verðskuidaði Akranes sigur,
eftir áð hafa fengið eitt stig út
Framh á hls 6
Ungfrú tennis"
Glímunámskeið Víkveria
Helga Schultze frá Hanau f V.-Þýzkalandi var kjörin „fallegasta t
tennisstúlkan“ í hinu víðfræga tfmariti „Sports Illustrated“ í fyrra.
Nú hefur „Ungfrú tennis“ ákveðið að hætta. 1 hinni hörðu al- 1
þjóðakeppni misstl hún hellsuna enda þótt hún væri ekki nema I
25 ára gömui. Hún hefur fengið nýmasjúkdóm, fær svimaköst og |
hefur lágan blóðþrýsting. Nú aö auki gekk henni heldur aldrei |
mjög vel í hörðum keppnum. Hún var ekki í fremstu röð. En .
fyrir augað, þar var hún drottning hinna mikiu tennisvalla, það
var enginn vafl á þvf. ^
Ungmennafélaglð Víkverji efnir
til glimunámskelðs, sem hefst föstu
daginn 8. október. Kennslan fer
fram f fþróttahúsi Jóns Þorstelns-
. sonar, Lindargötu 7. Kennt verður
þrjá daga f viku. Á mánudögum og
föstudögum kl. 7—8 og á laugar-
dögum kl. 5,30-6,30.
Félagið vill sérstaklega hvetja
unga menn á aldrinum 12—20 ára
til þátttöku í námskeiðinu.
öllum ungmennafélögum hvaðan
sem er af landinu er heimil þátt-
taka.
Kennslufyrirkomulag verður með
svipuðum hætti og var á s.l. vetri.
Ungmennafélagið Víkverji leggur
áherzlu á, að glíman verði æfð á
þann hátt að hinir góðu eiginleikar
glímunnar njóti sín til fulls.
Nfð og bol á að hverfa úr glím-
unni. Mýkt. fimi og snerpa skipi
öndvegi glímunnar ásamt dreng-
skap f leik.
Aðalkennari námskeiðsins verður
Kjartan Bergmann, en auk hans
kenna Þorsteinn Kristjánsson, hinn
kimnl glfmusnillingur og Gunnar
R. íngvarsson.
Að glímunámskeiðinu loknu mun
hefjast námskeið hjá Vfkverjum í
víkivökum og þjóðdönsum.
Nokkrir glfmumenn á æfingu hjá Ungmennafélaginu Víkverja 2. maí 1965, ásamt þjálfara Kjartani Bergmann t. v. og gjaidkera félagsins
Valdimar Óskarssyni t. h. Fremst eru drengir, sem hlutu viðurkenningu fyrir ástundim og glímukunnáttu. Að baki þeirra eru m. a.
bikarhafi og slgurvegari í flokkaglímu Vfkverja.
ii nr«iiftfi'iinrfirriin'nirTr a