Vísir


Vísir - 07.10.1965, Qupperneq 2

Vísir - 07.10.1965, Qupperneq 2
2 viðlR :3agur 7. októL.j 1TO5. ^ {jjj|| y| ||i I # |Jj æ Sl I RITSTJó'rF JÓN BIRGÍR PErí/SSo?||P|jf||Hjp(| y .. Lítíl athugasemd vegna mm ” p ' ^ | leiks KR og IA frá Ellert B. Schrarn, fyrirliða KR Viðbrögð áhorfenda að lokn- um leik KR og Akraness s.l. sunnudag og skrif ýmissa dag- blaða dagana á eftir, valda því, að ég hef tekið þá ákvörðun að stinga niður penna og Ieggja nokkur orð í belg: í fyrsta lagi vil ég taka skýrt fram, að KR-liðið harmar mjög, að bera þurfti tvo af ieikmönn- um Akraness slasaða af leik- veili, 7—8 mínútum fyrir leiks- lok, enda varpa þau atvik nokkrum skugga á slgur KR í leiknum, ekkl sízt í okkar eigin augum. Hins vegar er það skoð- un mín, að fram að þessum ó- happaminútum hafi leikurinn ekki verið harkalegur né grófar lelkinn en gengur og gerist i á- ríðandi leikjum sem þessum. Ég er elnnig sannfærður um, að leikmenn Akraness og aðrir, sem vlðstaddir voru, viður- kenna, þegar atvik sem þessi eru skoðuð í réttu Ijósi, að slys þessi voru eins og hver önnur óhöpp, sem átt geta sér stað f knattspymukappleik. Flestum er vel kunnugt, að slfklr atburðir eru engin eins- dæmi. Ekki þarf að leita lengra en aftur f leik KR og Akraness fyrr í sumar, einmitt á Laug- ardaisvellinum. tll að benda á hliðstætt atvlk. i fyrri háiflelk þess Ieiks þurfti Heimir Guðjónsson mark- vörður KR að yfirgefa leikvöll- inn, eftir að hafa fengið spark í andlitið, með þeim afleiðing- um, að tennur skekktust og brotnuðu, og sauma þurfti sam- an svöðusár í andliti hans. Var Heimir frá vlnnu í a.m.k. 10 daga vegna þessa atviks. KR tapaði leiknum 2:3, og hvarflaði þó aldrei að okkur KRingum, að ásaka Akurnesinga fyrir þetta óhapp. í leik Akraness og Akureyr- ar, um mánaðamótin ágúst/ september s.l. slasaðist Magnús Jónatansson framvörður Akur- eyrlnga með þeim afleiðingum, að hann hefur legið rúmfastur síðan og mun vart verða vinnu- fær næstu mánuði. Hafa ekki borizt frásagnir af þeim atburði f dagblöðunum að þvf ég bezt veit, enda hér sömulelðis um slys að ræða. 1 leiknum á sunnudaginn nef- brotnaði annar bakvörður KR, markvörðurinn tognaði og tveir eða þrír aðrir hlutu önnur meiðsl. Hér eru enn slys ein, sem ekkl er ástæða til að blása upp. Þau sýna það eitt, að á leikvelllnum á sunnudaginn var barizt á báða bóga, enda senni- lega báðir aðllar gert sér ijóst, að „dúkkuspil“ dygði ekki tií slgurs i lelknum þelm. Undirrltaður hefur leikið með meistaraflokki KR frá og með 1957 eða nær 170 leiki, og að- eins einu sinni áður hefur það komið fyrir. að ég muni, að KR hafi verið ásakað fyrir grófan leik. Var það undirritaður sjálf- ur, sem lá undir þeim ámælum, og var ég einmitt sérstaklega ávitaður í dagblöðum, með tii- liti til þess, hversu liðið í heild lék prúðmannlega knattspyrnu. Ég get ekki ímyndað mér annað en að keppinautar okkar svo og dómarar og áhorfendur geti borlð því vitni, að KR-liðið leikl kannski fast og ákveðið, en aldrei gróft né beinlínis vilj- andi ólöglega. Sem betur fer urðu melðsli Eyleifs Hafsteinssonar ekki al- varleg, en hins vegar hefur komið á daginn, að Ríkharður Jónsson verður að liggja rúm- fastur um nokkum tíma vegna þeirra meiðsla, sem hann hlaut. Ég legg áherzlu á, að við KR- ingar hörmum mjög þetta slys og vonum hellshugar, að Rfk- harður fái skjótan og góðan bata. Sendum við honum beztu kveðjur okkar. íþróttafréttaritarar dagblað- anna eru yfirleitt á einu máli um, að sigur KR í umræddum leik og þá einnig f íslandsmót- inu hafi ekki verið verðskuld- aður að þessu sinni. Auðvitað er hverjum og einum frjálst að hafa sína skoðun þar á, en þessi skrif vekja mig hins vegar til umhugsunar um, hvað sé verð- skuldaðnr sigur og hver hafi f rauninni verðskuldað sigur í þessu íslandsmóti. Verðskuidaði Akranes sigur, eftir áð hafa fengið eitt stig út Framh á hls 6 Ungfrú tennis" Glímunámskeið Víkveria Helga Schultze frá Hanau f V.-Þýzkalandi var kjörin „fallegasta t tennisstúlkan“ í hinu víðfræga tfmariti „Sports Illustrated“ í fyrra. Nú hefur „Ungfrú tennis“ ákveðið að hætta. 1 hinni hörðu al- 1 þjóðakeppni misstl hún hellsuna enda þótt hún væri ekki nema I 25 ára gömui. Hún hefur fengið nýmasjúkdóm, fær svimaköst og | hefur lágan blóðþrýsting. Nú aö auki gekk henni heldur aldrei | mjög vel í hörðum keppnum. Hún var ekki í fremstu röð. En . fyrir augað, þar var hún drottning hinna mikiu tennisvalla, það var enginn vafl á þvf. ^ Ungmennafélaglð Víkverji efnir til glimunámskelðs, sem hefst föstu daginn 8. október. Kennslan fer fram f fþróttahúsi Jóns Þorstelns- . sonar, Lindargötu 7. Kennt verður þrjá daga f viku. Á mánudögum og föstudögum kl. 7—8 og á laugar- dögum kl. 5,30-6,30. Félagið vill sérstaklega hvetja unga menn á aldrinum 12—20 ára til þátttöku í námskeiðinu. öllum ungmennafélögum hvaðan sem er af landinu er heimil þátt- taka. Kennslufyrirkomulag verður með svipuðum hætti og var á s.l. vetri. Ungmennafélagið Víkverji leggur áherzlu á, að glíman verði æfð á þann hátt að hinir góðu eiginleikar glímunnar njóti sín til fulls. Nfð og bol á að hverfa úr glím- unni. Mýkt. fimi og snerpa skipi öndvegi glímunnar ásamt dreng- skap f leik. Aðalkennari námskeiðsins verður Kjartan Bergmann, en auk hans kenna Þorsteinn Kristjánsson, hinn kimnl glfmusnillingur og Gunnar R. íngvarsson. Að glímunámskeiðinu loknu mun hefjast námskeið hjá Vfkverjum í víkivökum og þjóðdönsum. Nokkrir glfmumenn á æfingu hjá Ungmennafélaginu Víkverja 2. maí 1965, ásamt þjálfara Kjartani Bergmann t. v. og gjaidkera félagsins Valdimar Óskarssyni t. h. Fremst eru drengir, sem hlutu viðurkenningu fyrir ástundim og glímukunnáttu. Að baki þeirra eru m. a. bikarhafi og slgurvegari í flokkaglímu Vfkverja. ii nr«iiftfi'iinrfirriin'nirTr a

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.