Vísir - 08.10.1965, Side 1

Vísir - 08.10.1965, Side 1
 VÍSIR 55. árg. — Föstudagur 8. október 1965. — 229. tbí ALÞINGI SEn I ÐAG Alþingi átti að setja í dag að lokinni guðsþjónustu 1 dómkirkj- unni, sem hófst kl. 1,30. — Séra Amgrímur Jónsson prédikaði. Þingsetning átti að fara fram með venjulegum hætti, að þvi und anteknu að forseti íslands, herra Ásgeir Ásgeirsson, gat ekki verið viðstaddur, en hann dvelst nú er- lendis. Forseti Hæstaréttar, Þórður Eyjólfsson, sem er einn af þremur handhöfum forsetavalds, setur þing ið fyrir þeirra hönd. Engum þingskjölum verður út- hlutað f dag, en frumvarp til fjár- Iaga mun verða fyrsta frumvarpið, sem lagt verður fram á þinginu. Fjárlögin aígreidd hallalaus Engar nlmennnr söluskntts- eðn tollnhækknnir, sogði Jónsson fjármólnróðherra í viðtali við Vísi í morgun \rísir átti í morgun tal við f jármálaráðherra Magn- ús Jónsson og spurðist fyrir um það, hvað liði und- irbúningi fjárlaga. Fjármálaráðherra gaf blaðinu eftirfarandi upplýsingar: Samkvæmt venju verða fjár- lögin fyrsta mál þingsins. Verða þau lögð fyrir Alþingi á mánudaginn, en verið er nú að ganga fá prentun frum- varpsins. — Hvað viljið þér segja um efni og niðurstöður fjár lagafrumvarpsins að þessu sinni? — Ég tel ekki rétt á þessu stigi, áður en fjárlagafrum- varpið er iagt fram, að skýra frá einstökum atriðum þess. Hins vegar er fjárlagafrum- varpið byggt á þeirri megin hugmynd að rikisbúskap- urinn verði hallalaus á næsta ári. Við sérstaka erfiðleika hefur þó verið að glíma til þess að ná því marki vegna þess hve útgjöld rikissjóðs hafa aukizt mjög tvö siðustu árin. Verulegur halli varð á ríkisbúskapnum 1964 og fyr- isjáanlegt er að halli verður einnig á þessu ári. Þessi halli stafar fyrst og fremst af því að á ríkissjóð hafa fallið, eft ir að fjárlög þessara tveggja ára voru afgreidd, ófyrirséð útgjöld, sem numið hafa mikl um fjárhæðum. Hins vegar hafði afkoma rikissjóðs árin 1962 og 1963 verið mjög hag stæð. — Teljið þér að það muni takast að afgreiða fjárlög hailalaus að þessu sinni, án þess að hækka tolla og skatta? - Þar sem við jafn mikla erfiðleika hefur verið að striða í ríkisbúskapnum og raun ber vitni, ekki sízt vegna hinna miklu nýju út- gjalda sem af launahækkun- unum stöfuðu, verður að sjálfsögðu ógerlegt að af- greiða greiðsluhallalaus fjár- lög að þessu sinni, án þess að takmarka verulega marg- * vísleg útgjöld ríkissjóðs. Jafn framt þarf að gera ráðstafan ir til að afla nýrra tekna. í því sambandi hefur það verið meginstefna að ekki þyrfti að skerða þau mikil- vægu tekjuskattshlunnindi, sem veitt hafa verið á undan förnum árum. Og jafnframt er það ætlunin að ekki þurfi 160 hektara laxaklak í Lárósi 300 metra stíflugerð lýkur efftir húlfu udru viku. Almenningshlutu- félug stofnuð. 140 þúsund seiði komin í ósinn næstu sumur að koma til almennra hækk- ana á söluskatti og aðflutn- ingsgjöldum. Hinar nýju tekjuöflunarleiðir verða því allar á takmarkaðri sviðum, sagði fjármálaráðherra að Iokum. SAAAAAA/WVAAA/WWWV\ !| Aðeins | einn | eftir / Aðeins einn sklpverja á m.s. *iLangjökli situr nú í gæzluvarð-' | J haldi út af smyglmálinu fræga. ]> Öllum öðrum hefur þegari| 11 verið sleppt og tveim þeim síð-J, lustu s.l. miðvikudag. ,» Ji Þess má geta, að varðhalds-1| ,'úrskurður yfir þessum eina skipS <|verja sem inni situr. rennur út,1 Jiá mánudaginn kemur, þann 11.«, <|þ. m. AAAAAAAAAAAAAAAAAAA< Ókunnugir gætu haldið, að miklar hafnarframkvæmdir væru I gangi við Lárós f Eyrar sveit á norðanverðu Snæfells- nesL Raunar er það laxaklak, sem verið er að undirbúa þar. Blaðamanni Vísis var i gær boðið að skoða framkvæmdir þessar, sem hafa staðið yfir í sumar Lárós, sem er á stærð við Meðalfellsvatn hefur verið lokað með miklum garði og gerð steypt flóðgátt. Hefur ver ið varið á fimmtu milljón króna til þessara framkvæmda, en ráð gert er, að stofnkosnaður verði alls sjö milljónir króna. Næstu daga verður stofnað almenn- ingshlutafélag um laxaklakið í Lárósi og á hlutaféð að nema sjö milljónum króna. Jón Sveinsson, rafvirkjameist ari og Ingólfur Bjarnason for- stjóri hófu undirbúning að laxaklakinu fyrir þremur árum með kaupum jarða og ræktun seiða. 12. júnf í sumar hófust framkvæmdir við Lárós. Var þar fyrst gerð steinsteypt flóð gátt, 15 metra breið, við austur strönd útfallsins úr ósnum. Slð an var farið að aka jarðvegi í 300 metra langan stíflugarð yfir útfallið og hækka grandann, sem fyrir var, á hálfs annars kílómetra kafla, um allt að Séð vestur yfir stíflugarðinn milli Látravíkur og Láróss Næst er steypta flóðgáttin fjær grandinn, sem framlengdur var með stíflugarðinum. Vinstra megin er hinn 160 hektara Lárós, t.h. Breiðafjörður. Ingólfur Bjarnason (t.v.) og Jón Sveinsson á stfflugarðinum. Bak við er jarðýta a ðryðjá garðinn og vörubílar í grjótflutningum. tvo og hálfan metra. Hafa um og yfir 10 vörubílar verið í stanzlausum flutningum í garð- inn, Eru flutningarnir nú svo langt komnir, að séð er, að þeim muni ljúka á hálfri ann- arri viku. Eftir er að koma lokum og gildrum fyrir í flóðgáttinni og að setja upp klakstöð við ósinn, og verður það gert næsta sum ar. Þeir Jón og Ingólfur hafa alið yfir 100.000 niðurgöngu- seiði, sem eiga að fara I ósinn næsta vor, en þegar hafa þeir látið 40.000 seiði í ósinn í fyrra og hittifyrra. Ósinn er enginn smáleikvöllur fyrir seiðin, 160 hektarar að stærð. I stað eldistjarna er ráðgert að nota nýjung, — svonefndar flotkvíar, sem hafa sjálfvirka fóðurgjöf. Þessar flotkvíar hafa verið reyndar af opinberum að ilum í Noregi, og gefizt mjög vel og eru mun ódýrari í bygg ingu og rekstri. Danskur fiski- ræktarmaður, sem starfar nú á vegum Jóns og Ingólfs við upp eldi seiðanna, mun sjá um laxa klakið við Lárós, Jón og Ingólfur hafa nú á- kveðið að stofna ’almennings- hlutafélag um laxaklakið eins og fyrr segir og verður félagið stofnað innanfárradaga.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.