Vísir - 09.10.1965, Blaðsíða 2

Vísir - 09.10.1965, Blaðsíða 2
V í S IR . Laugardagur 9. október 1965. HVILD OG HELGI KIRKJAN Séra Óskar J. Þorláksson, dómkirkjuprestur, sem skrifar hugvekju kirkjusíðunnar í dag ,er Skaftfellingur að ætt og uppruna. Þar eystra byrjaði hann prestsskap sinn, er hann vígðist að Kirkjubæjarklaustri 18. október 1931. Eftir 4 ára veru á Síðunni fékk hann Siglufjörð, þar sem hann þjónaði til ársins 1951 er hann varð eftirmaður sr. Bjarna við Dómkirkjuna. Sr. Óskar er mikill og farsæll starfs- maður, enda hefur hann gegnt mörgum störfum fyrir utan verkahring sinn eins og t. d. í Goodtemplarareglunni, Rotaryhreyfingunni, Slysavarnafélaginu o. fl. Á morgun messar séra Óskar I Dómkirkjunni kl. 5 Það er fyrsta sí& degismessan á þessu hausti. I. Lúk.: 14.1—6. /"''uðspjall þessa helgidags seg- ir frá lækningu vatns- sjúks manns á hvíldardegi, en lækning þessa manns var eitt af hinum mörgu kraftaverkum Jesú. Gyðingar voru mjög strangir í hvlldardagshaldi sínu á dög- um Jesú, og svo kvað enn vera í hinu nýja ríki þeirra í Israel. Jesú Kristur var miklu frjáls- lyndari en samtíðarmenn hans, bæði hvað snerti helgihald hvíidardagsins og í kenningum sínum yfirleitt. Að hans dómi hafði Guð gefið mönnunum hvíldardaginn þeim til blessunar, en ekki til þess að þeir færu að hlaða utan um hann múr af reglum og fyrir- mælum, sem yrði þeim fjötur um fót og enginn gæti farið eftir, nema með alls konar und- anbrögðum og lögskýringum. Trúareinlægni og kærleiks- þjónusta var mælikvarði Jesú á hvlldardagshelgina, og þess vegna var það eðlilegur þáttur í lífi hans, að ganga inn í sam- kunduhúsin á helgum dögum og hugleiða þar hin helgu rit, og láta sannindi þeirra varpa ljósi yfir lífið. Og þess vegna lækn- aði hann hiklaust á hvíldardegi og vann önnur kærleiksverk. Allir þekkja þessi ummæli hans: „hvíldardagurinn varð til mannsins vegna, en eigi mað- urinn vegna hvíldardagsins (Mark. 2.27). sölubúða á helgum dögum og skemmtanalíf á stórhátíðum, geta flestir gert það, sem þeim sýnist á þessum dögum, innan ramma almenns velsæmis. En ef að vér lítur á hvíldar- daginn sem guðlega ráðstöfun. eins og Gyðingar forðum, og eins og Kristur sjálfur leit á helgihald hvíldardagsins, þá fáum vér varla varizt þeirri hugsun, að vér erum komin langt frá þeirri hugsjón hvíld- Sr. Öskar J. Þo.Iaksson dómklrkjuprestur. II. vorum dögum þurfum vér ekki að stynja undan marg- brotnum reglum og fyrirmæl- um varðandi helgihald sunnu- dagsins. Vér höfum að vísu helgidagalöggjöf, en sú löggjöf er ekki ströng og lítill áhugi að fylgja henni eftir. Að frátöldum nokkrum ytri reglum, sem gilda um lokun Mitt ærlega andlit „Gott mannorð er gulli dýrmætara“, segir í heil. ritningu. Hér er saga, sem sýnir hvers virði það er að hafa traust og álit samferðamanna sinna á lífsleiðinni: 1 janúar árið 1800 voru nokkrir menn á ferð í Vatns- dal. Þeir voru að ganga suður í verið. Þegar þeir komu um Ás. sáu þeir mannþyrpingu heima á hlaðinu og kom saman um að ganga heim til að vita hvað væri um að vera. Það reyndist orsök mannssafnaðarins, að uppboð skyldi haldið og Ás seld, en hún er ein mesta jörð í Vatns- dal. í vermannahópnum var maður einn á þrítugsaldri, mik- ill á velli og vörpulegur, Guðmundur hét hann Halldórs- son. Hvort sem var af rælni eða Guðmundi vann hugur til jarðarinnar, þá tók hann að bjóða í hana og varð brátt hæstbjóðandi. Sýslumaður, ísleifur Einarsson á Geitaskarði, spurði þennan djarflega aðkomumann að heiti og heimili og því næst hvort hann gæti greitt jarðarverðið á tilsett- um skildaga. Guðmundur kvaðst treysta því, en raunar væri hann maður íélítill. Þá spurði sýslumaður hvort hann gæti sett tryggingu fyrir skilvísri greiðslu. „Ekki nema mitt ærlega andlit“, svaraði hann og strauk ennið hátt og mikið. Félagar Guðm»ndar sönnuðu það með honum, að hann væri skilamaður og drengur góður. Og með því sýslu- manni gazt vel að manninum og fékk traust til hans, sló hann honum jörðina Að því búnu héldu vermennirnir á- fram ferðinni suður. Sagnir herma, að Guðmundur fengi góðan hlut á vertíðinni. (Heim.: Hrakhólar og höfuðból.) ardagshelginnar, sem Kristur sjálfur hélt á lofti. Margt fólk er gjörsamlega hætt að virða helgi hvíldar- dagsins og notar hann yfirleitt sem hvern annan virkan dag. Menn eru meira að segja hættir að tala um hvíldar og helgidaga, en tala I þess stað um frídaga og skemmtidaga. Menn nota sunnudaginn oft til almennrar vinnu, þevsa upp um fjöll og firnindi og skemmta sér með ýmsum hætti. Vestfirzkir presfar^á fundi og námskeiði Þann 5. ágúst sl. héldu prestar Vestfjarða aðalfund sinr. hjá sr. Lárusi í Holti. í sambandi við fundinn hafði verið haldið nám skeið í helgisiðafræðum og messusöng. Kennarar voru sr. Sigurður á Selfossi og söng- málastjóri. Námskeiðið sóttu 7 prestar nokkuð af söngmáia- fólki í Holtsprestakalli. í lok námskeiðsins söng sr. Sigurður Pálsson klassiska messu í Flat- eyrarkirkju með aðstoð sr. Sig urðar prófasts á ísafirði og sr. Sigurpáls á Bíldudal. Söngstjórj var Robert A. Ottoson en org- anisti frú Rannveig Sigurbjöms dóttir. Á fundinum drap formaður á helztu atburði í vestfirzku kirkjuiífi sl. ár. Kom þar ber- !ega fram, að f mörgu sýna söfn uðir kirkjunum alúð og ræktar- semi. í stjórn Prestafélags Vest- fjarða eru nú sr. Sigurður pró- fastur á ísafirði formaður ,sr. Jóhannes prófastur á Stað í Súgandafirði ritari og sr. Tóm as á Patreksfirði gjaldkeri. III. 1^0 hvað er sunnudagurinn frá kristilegu sjónarmiði? Hann er hvíldar- og helgidagur, sem Guð hefur gefið mönnunum til líkamlegrar og andlegrar end- umæringar. Þeir sem vinna vel alla virka daga, þeir þurfa hvíldar, einn dag í viku, það er nauðsynleg heilbrigðisráðstöfun. En eins og líkaminn þarf hvíldar, þarf sál mannsins einnig andlega endur- næringu, þess vegna tölum vér um hvíldar- og helgidag. „Maðurinn lifir ekki á brauði einu saman, heldur á sérhverju orði, sem fram gengur af Guðs munni“. (Matt.: 4.4). Um leið og menn hvílast, þurfa þeir að leggja rækt við trú slna. opna hug sinn fyrir á- hrifum Guðs anda, lifa bæna- lífi, hugleiða hin opinberuðu sannindi Guðs orðs, svo að þau megi bera ávexti í lífinu sjálfu, og leita samfélags við það fólk, sem lifir trúarlífi. Því miður eru helgistundir hvíldardagsins, að mestu, horfn- ar úr lífi margra. Menn dauf- heyrast við kalli kirkjuklukkn- anna, sem kalla til helgra tíða, en um leið hverfur helgi og hátíðleiki sunnudagsins, og þá hverfur Ifka sá innri friður og jafnvægi hugans, sem helgi- stundir og trúarsamfélag veitir hjörtum mannanna. Margir segja, að það þurfi mikið til að breyta þeirri þróun, sem orðin er í þessum efnum. Ef að einstaklingurinn Vaknaði og ÞIOÐIN til meðvitundar um gildi hvíldar dagshelginnar, þá kæmi breyt- ingin af sjálfu sér. Viltu nú ekki, lesandi góður, íhuga, hvernig þú heldur sunnu- daginn sem hvíldar- og helgi- dag? Viltu ekki prófa, að gera þenn an dag að sönnum hvíldar og helgidegi fyrir þig og fjölskyldu þína? Þá verður þess ekki langt að bíða. að þú sjáiLjífið í nýrra og fegurra ljósi. Óskar J. Þorláksson. * Asólfsskálakirkja Ásólfsskáli undir Eyjafjöllum er kenndur við Ásólf alskik. Flann var vel kristinn og vildi ekki eiga við heiðna menn og eigi vildi hann þiggja mat af þeim. Fljótt var byggð kirkja á þeim bæ, e.t.v. með þeim fyrstu á landi hér. Svo iagðist hún niður og var reist á prests- setrinu Holt.i, en þaðan varð að flýja með hana undan vatna gangi, því þá braut Holtsá land ið og olli miklum spjöllum. Þá reis kirkja aftur á Ásólfsskála fyrst timburkirkja, ofarlega á síðustu öld, en núverandi k'irkja er úr steini mikið hús og stæði legt. Nýlega hefur Ásólfsskála- kjrkju borizt rausnarleg gjöf frá Sveinbirni Jónssyni Yzta- skála og börnum hans, kr. 34. 265,- til minningar um Sigurjón Sveinbjörnsson Yzta-Skála, sem andaðist á Vífilsstöðum í apríl í vor og var jarðsettur að Ásólfsskála laugardaginn fyrir páska.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.