Vísir - 09.10.1965, Blaðsíða 6

Vísir - 09.10.1965, Blaðsíða 6
6 VISIR . Laugardagur 9. október 1965. Ábyrgðnrleysið — J'Tamhald af bls. 9. ákvæði hafa verið sett um slíkt á annað borð, ökumenn sé blóðalkóhól þeirra undir vissu lágmarki (hér 0,5 pro mille). Menn, sem mælast með blóð- alkóhóli undir þessu lágmarki, geta þó, samkvæmt gerðum rannsóknum verið varasamir i umferð á stundum, og eins geta þeir, sem mælast nokkuð yfir þvf, vafalítið verið sæmilega færir í það og það skiptið. Þar ræður oft ýmislegt annað, hvað ofan á verður. Hið alvarlega í málinu er, að mönnum skuli koma til hugar að snerta vín er þeir ætla sér að aka, treystandi á, að hæfni þeirra verði óskert og að þeir sleppi við afskipti lögreglu. Langholtsvegarslysið er, vegna allra aðstæðna, illkynj- aðasta umferðarslys, sem orðið getur. Þar er ekki hægt að koma við heinni afsökun. Ég tel mig ekki harðari mann en gengur og gerist, eða mikið fyrir að beita aðra harðræðum en í svona tilfellum finnst mér að ekki megi beita ofmikilli linkind. Ýmsum mun kannski finnast þetta hart, en verðum við ekki að vera einbeittir vegna heildarinnar? Hins vegar held ég ekki, að við í næstu framtfð komumst svo langt að geta komið f veg fyrir slys eins og hér um ræðir. En við getum reynt að vinna á móti þeim svo sem unnt er, bæði með löggjöf, kennslu úrvali og samtökum borgaranna. Tillögur mínar til úrbóta eru eftirfarandi: 1. Ákvæði 25. greinar um- ferðarlaganna, varðandi vfn- andamagn f blóði ökumanna, verði breytt þannig, að í stað 0,5 0/00 (pro mille) komi 0,35 0/00 og f stað 1,20 0/00 komi 0,80 0/00. Við lítum þann- ig á í BFÖ að löggjafinn ætti ekki að sætta sig við, að menn LÉTTLÉTTARALÉTTAST VAXOL er nýr þvotta- og viðhaldslögur fyrir plast-, gúmmí- og linoleumdúk og flísar, sem þvær og bónar samtímis. VAXOL er framleitt úr jurtaolíu sem rotnar ekki, það eykur slitþol gólfsins og gefur fallega áferð. VAXOL inniheldur glycerin, sem fer vel með hendur yðar. HEILDSÖLUBIRGÐIR BJÖRN WEISTAD HEILDVERZLUN SlMI 19133 PÓSTHÖLF 579 LÉTTLÉTTARALÉTTAST vitandi vits dragi úr hæfni sinni við akstur. Mark þetta er svo lágt að erfitt mun að neyta á- fengis án þess að komast yfir það. 2. Ökukennurum sé gert skylt að fræða nemendur sína mjög verulega um skaðsemi áfengis við akstur, einkum með tilliti til dómgreindar og viðbragða- öryggis. Nemendum sé gert skylt að mennta sig í umferðar- sálfræði og síðan sé hún gerð að próffagi við almenna öku- kennslu. 4. Ökunemendur séu sálfræði- prófaðir af lærðum sálfræðingi og vinsaðir úr þeir, sem ekki standast það próf svo og al- mennt greindarpróf. 5. Bifreiðastjórum, sem svipt- ir hafa verið ökuleyfi .,ævi- Iangt“, vegna ölvunar við akst- ur, sé ekki veitt ökuleyfi á ný, nema að þeir geti fært sterk rök fyrir því að þeir hafi verið bindindismenn í samfleytt fimm ár eftir brotið. 6. Gert sé verulegt átak í þá átt að flýta dómum vegna um- ferðarbrota. Það er skaðvæn- legt, að ökumenn, sem framið hafa gróft umferðarbrot, séu látnir bíða eftir dómum hálf og heil árin, og fái að aka á með- an. Dæmi munu til þess að slík- ir menn hafi verið búnir að valda öðru broti áður en dómur fellur fyrir það fyrra. Skjót refs ing er og áhrifamest, sálfræði- lega séð. 7. Ökubyrjendur fái aðeins bráðabirgða ökuskírteini fyrsta árið og lögreglustjóri svipti þá því þegar í stað ef tilefni gefst til og meðan þeir kannski bíða nánari dóms. Sviptingu skírtein- is á þessu tímabili sé beitt ó- vægilegar en endranær, sbr. 81. gr. umferðarlaganna, 6. máls- grein og ákvæðið um vikufrest sé ekki látið gilda í þessum til- fellum. 8. Kenningarlega séð, og enda líka 1 raunveruleikanum (mun hafa komið fyrir hér á landi) eru til svo vel afsakanleg brot á 25. gr. umferðarlaganna, að ekki sé rétt að beita ákvæðum þeirra. Þetta er þó afar sjald- gæft. Við almennum drykkju- akstri legg ég hins vegar til að auk sviptingar ökuleyfis sé vægasta hegning alltaf skilorðs- bundinn fangelsisdómur. Nafn sé birt við fyrsta brot. Stórkost- legir tjón- og slysavaldar séu sviptir ökuleyfi ævilangt og alltaf óendurheimtanlega, auk annarrar refsingar. Ég sé ekki annað en að nauðsynlegt sé að herða viðurlög og beita þeim af fullri einbeitni. Samstarfsnefnd í umferðar- málum, sem Slysavamafélag Is- lands (SVFÍ), Félag fslenzkra bifreiðaeigenda (FÍB) og Bind- indisfélag ökum. (BFÖ) standa að, hefur margrætt drykkju- akstur og þann voða, sem af honum stafar. Ég fullyrði að nefndin og stjórnir allra hinna nefndu félaga fordæmi hann og telji hann engum ökumanni sæmandi. Um þetta er mér vel kunnugt þvi ég er einn þriggja nefndarm. Hins vegar er það sem ég hefi skrifað hér að fram an, varðandi mér senda spum- ingu, á mína eigin ábyrgð að miklu leyti. Sundahöfnin -- Framhald af bls. 1. andi borgarstjóri skýrði m. a. frá því við umræðurnar að nú í sumar hafi verið unnið að verk fræðilegum undirbúningi að því að bjóða út framkvæmd við fyrsta áfanga Sundahafnar. Er þelm undirbúningi lokið og fer útboð fram á næstunni. Vonir standa til að nauðsynlegt fjár- magn fáist og á að hefja verkið á næsta ári og verja þá til þess 35 milljónum króna. Á borgarstjómarfundinum i gær voru til umræðu tillögur um að hækka verulega ýmis hafnargjöld, með tilliti til þeirra stórfelldu og kostnaðarsömu framkvæmda, sem nú á að fara að ráðast í. Gaf borgarstjóri þó greinargott yfirlit yfir það að hækkun hafnargjaldanna hefði sáralitla hækkun í för með sér á vömmar, og búizt væri við, að innflytjendur myndu vinna það upp með bættri aðstöðu við höfnina og lækkun uppskipunar kostnaðar. Fulltrúar minnihlutaflokk- anna í bæjarstjóm mæltu gegn þessari gjaldahækkun hafnarinn ar, en þeir viðurkenndu það fyllilega, að þessar fyrirhuguðu framkvæmdir 1 hafnargerð væm raunhæfar og fögnuðu þeim. Á fyrmefndu fimm ára fram kvæmdatímabili er lauslega á- ætlað að verja til hafnarfram- kvæmda í Reykjavík 184 milljón um króna. Af þeim eiga 113 miíljónir króna að fara til þessa fyrsta áfanga Sundahafnar en 71 milljón króna til endurbóta á gömlu höfninni. Gamla Reykjavíkur- höfn. Þær framkvæmdir sem á- kveðnar em á gömlu höfninní em þessar: Aukning á viðleguplássi verð ur aðallega framkvæmd í Vest- urhöfninni og áætlað, að þar fá- ist 500—600 metra viðlegupláss til viðbótar því sem nú er f smfðum. Nú er sem kunnugt er unnið að gerð viðlegupláss við Norðurgarð rétt hjá Faxaverk- smiðjunni og verða framkvæmd irnar þár vlð svökallaðan Norð- urgarð og í Vésturkróknum. Gert er ráð fyrir þvf að Vestur höfnin verði fiskihöfn borgar- innar, sérstaklega eftir að Sundahöfn er komin upp, en þangað verður ýmiskonar vöm- flutningum í stórum stíl beint. Fiskiskipaflotinn á að fá vera- lega aukið viðlegurými á þess- um slóðum og má einnig minna á f þessu sambandi að fyrir nokkm var frá þvf skýrt, að fiskvinnslufyrirtækjum væri ætl að rúm suður eftir Eiðisgranda, þar sem öskuhaugamir áður vora. Þá er ákveðið, að höfnin reisi tvær stórar hafnarskemmur. Önnur þeirra verður 2800 ferm. á óbyggðri lóð á Grandagarðin- sem hafnarskemma, en f fram- um. Yrði hún f fyrstu notuð tfðinni hugsuð til nota fyrir fisk iðnaðinn. Hina hafnarskemmuna á að reisa á Austurbakkanum og á að verða stærsta vömskemma sem hér hefur verið gerð, allt að 8 þúsund fermetrum. Kostn- aður við byggingu á þessum tveimur hafnarskemmum er á- ætlaður samtals um 40 millj. kr. Sundahöfnin. Full ástæða er til þess að hefjast handa um framkvæmdir í Sundahöfn svo fljótt sem auð ið er. Er nú gert ráð fyrir því að framkvæmdir þar hefjist þeg ar á næsta ári. Fyrsti áfangi hennar sem þá yrði byrjað á er gert ráð fyrir að gefi 400 metra viðlegupláss. Auk þess verður að reisa þar hafnar- skemmur og ýmsar aðrar fram kvæmdir, þar sem um er að ræða nýtt hafnarsvæði. Það liggur nú þegar fyrir, að með tilkomu hafnarmannvirkja f Sundunum muni verða hægt að taka upp hagkvæmari flutn- inga á vissum vömtegundum til Iandslns, jafnframt þvf sem var an yrði flutt inn lftt unnin. Gæti þar orðið um vemlegan gjaldeyrissparnað að ræða og hafa innflytjendur sýnt þessu máli áhuga. Það er vissulega vel, að nú á að fara að hefjast handa um þessar stórþýðingarmiklu fram- kvæmdir. Við upphaf þeirra skapar það góða undirstöðu, að fjárhagur Reykjavíkurhafnar er' nú mjög góður. Höfnin eins og hún nú er með þeim mörgu mannvirkjum sem þar standa er nú skuldlaus og af henni hef ur verið nokkur tekjuafgangur. Hann nam á s. 1. ári um 9 milljónum króna. Þær framkvæmdir sem nú er ráðizt í á næsta fimm ára tíma- bili em áætlaðar að muni kosta alls 184 millj. kr. Reiknað er með að eigin framlag Reykjavfk urhafnar geti orðið um 20 millj. kr. á ári eða alls á þessum fimm árum um 100 milljónir króna. Samkvæmt því er reiknað ‘með að heildarlánsfjárþörfin verði um 80 milljónir króna. Verzlunarráð — Framhald af bls. 1. rfkisstjómina, að kannað verði sem fyrst, hvaða samningum megi ná til þess að tryggja við- skiptahagsmuni landsins innan Fríverzlunarbandalags Evröpu (EFTA), þar sem Iítils árangurs virðist mega vænta af tolla- samningum innan GATT. — Að öðrum kosti er viðbúið, að land ið einangrist viðskiptalega, en það mun bitna á lífskjörum þjóð arinnar þegar til lengdar lætur. — Fundurinn mælist til þess við viðskiptamálaráðherra, að hann láti semja ýtarlega og aðgengi- lega greinargerð um þetta mál, svo að sem flestir geti kynnt sér það til hlítar“. Þá gerði fundurinn ályktanir um, að verðlagsákvæði verði af numin, frílisti aukinn, tollar lækkaðir á flugfragt, stofnlána deild verði stofnuð fyrir verzl- unina, allir viðskiptabankarnir fá leyfi til gjaldeyrisverzlunar, athugun verði gerð á rekstrar- fyrirkomulagi Áfengis- og tó- baksverzlunar ríkisins, tollar á ýmsum vörum verði lækkaðir, greiðslufrestur verði veittur á tollgreiðslum, meir; umbætur verði gerðar á afgreiðslu inn- flutningsskjala, ákvæði um kaupþing komi til framkvæmda, íslenzk sendiráð veiti verzlunar- þjónustu, útflutningsverzlun verði gefin frjáls og loks um ýmsar endurbætur á skattalög- um. »----------------------------- Leifsdagur í dag 1 dag klukkan 2 síðdegis verður minnzt Leifs heppna Eirfks- sonar með stuttri athöfn við styttu hans á Skólavörðuhæð. Það er gert að tilhlutan fslenzk-amer- fska félagsins, og er þetta f annað sinn sem Leifsdagur er haldinn hátíðlegur. Þar munu flytja ávörp dr Bjarni Benediktsson forsætis- 'ráðhérra 'og‘ J.' Éénfield, sendiherra Bandaríkjaiína. f kvöld verður svo árshá- tíð íslenzk-amerfska félagsins, og mun þar flytja erindi Einar Haug- en frá Harvard háskóla, sem kom hingað til lands í i gærkvöldi. Pró- fessor Haugen er mikill kunnáttu- maður um norræn málefni, af norsku bergi brotinn og kvæntur norskri konu. Alúðarþakkir færum við öllum, er vottuðu okkur hluttekningu og vináttu vegna andláts GUÐMUNDAR VILHJÁLMSSONAR fv. framkvæmdastjóra. Sérstaklega þökkum við h.f. Eimskipafélagi I'slands fyrir þá vinsemd og þann velvilja að gera hinum látna virðulega útför. Kristín Thors Vilhjálmsson Börn og tengdaböm Systkini. Sjálfstæðiskvennafélagið HVÖT Fyrsti íundur félagsins eftir sumarfríin verður haldinn þriðjudaginn 12. október kl. 8.30 e. h. í Sjálfstæðishúsinu. DAGSKRÁ: Landbúnaðarráðherra Ingólfur Jónsson talar um verð á landbúnaðarvörum og samskipti milli sveita og kaupstaða. Skemmtiatriði: Savannah-tríóið leíkur. Kaffidrykkja. Félagskonur, takið með ykkur gesti. Aðrar Sjálfstæðiskonur velkomnar. STJÓRNIN.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.