Vísir - 19.10.1965, Blaðsíða 1
Forsætisráðherra til Finnlands
á forsætisráðherrafund N-landa
Forsætisráðherra Bjami Bene-
diktsson fer utan til Finnlands í
næstu viku til að sitja fund með
forsætisráðherrum Norðurland-
anna og forsetum Norðurlanda-
ráðs. Verður fundurinn haldinn í
borginni Imatra dagana 29—30.
október. Á fundinum verður tekin
afstaða til ýmissa mála sem-efst
verða á baugi á fundi Norður-
landaráðs í Kaupmannahöfn i Jan
úar n. k. í för með forsætisráð-
herra verða Sigurður Bjamason
forseti Norðurlandaráðs, Guðmund
ur Benediktsson deildarstjóri í
forsætisráðuneytinu og Friðjón Sig
urðsson skrifstofustjóri Alþingis.
Fjárlagaræða Magnúsar Jónssonar:
Aðstaðan góð og tækifærin mörg
ssj•* ■> ,
. i
■.'■■.'..^■'■Vv 'X-vÍ-' v1- ■
Magnús Jónsson flytur fjárlagaræðu sína á Alþingi í gærkvöldi.
— ef þjóðin snýst nf djörfung við vnndamölum sínum
það er ástæðulaust annað en líta
björtum augum til framtíðarinnar, ef
rétt er á málum haldið, sagði Magn-
ús Jónsson fjármálaráðherra við
f járlagaumræðumar á Alþingi í gær-
kvöldi. Forsenda jákvæðrar sóknar
til meiri framfara og bættra lífs-
kjara er að þjóðin geri sér almennt
grein fyrir undirstöðustaðreyndum
efnahagslífsins og snúizt sé við
vandamálum hvers tíma af djörfung
og raunsæi. Réttmæt gagnrýni á það
sem miður fer er nauðsynleg, en þeir
sem reyna að villa mönnum sýn
vinna illt verk.
■r'
★ Enii sem fyrr er meginvandamálið þafl
aS við gerum kröfur til hraðari kjarabóta
en aukning þjóðarframieiðslunnar leyfir og
því hefur ekki tekizt að hafa hemii á verð-
bólgunni, sa^ði fjármálaráðherra í hinni
glöggu yfirlitsræðu sinni um fjárniál rikis-
ins.
★ Höfuðáherzlu verður að leggja á að
komast úr úr vítahring víxlhækkana kaup-
gjalds og verðlags. Fyrir ríkisbúskapinn hef-
ur verðbólgan hin óheillavænlegustu áhrif
og knýr stöðugt á um nýjar tekjuleiðir.
★ Það þarf að tryggja það að menn geti
ekki hagnazt óeðlilega d verðbólgunni. Þvf
sagði ráðherrann að stefnt væri að verð-
tryggingu sparifjár og lána til langs tíma.
★ Látum ekki skilningsleysi á eðli vanda-
málanna verða okkur að fótakefli, sagði
fjármálaráðherra í niðurlagi ræðu sinnar.
Aðstaða okkar er góð og tækifærin mörg.
Þótt leið okkar til aukinna framfara og vel-
megunar sé grýtt á stöku stað, þá er und-
irstaðan þegar orðin það traust að með
samstilltu átaki verður létt að ryðja hindr-
Unum úr vegi.
Síðari hluti ræðu fjármálaráðherra blrtlst
orðréttur á bls. 7, 8 og 9 i Vísi í dag.
m VAR HRÆDDUR, EN ÞETTA VAR AÐ-
EINS 5 MlNÚTNA VERK
— segir skipstjórinn á Imperialist eftir frækilega
björgun íslenzkra og færeyskra sjómanna
Það voru miklir fagn-
aðarfundir niðri á Gróf-
arbryggjunni nú rétt
fyrir hádegi, er togar-
inn Imperjalist frá Fleet
wood lagðist þar að með
alla skipverjana níu á
Strák heila á húfi innan
borðs. Fjöldi fólks safn
aðist saman á bryggj-
unni, en auk þess komu
þar vinir og vandamenn
skipbrotsmannanna til
að fagna þeim.
Vísir átti stutt samtal við
Engilbert Kolbeinsson skip-
stjóra. Hann var uppi í brúnni
með brezka togaraskipstjóran-
um Mecklenburgh sem varð
þeim til bjargar.
Engilbert sagði að sjór hefði
riðið yfir skipið, þegar hann var
út af Grindavik og um leið urðu
þeir varir við leka I vélarúminu.
Hann taldi að báturinn hefði
slegið úr sér. Ekki drapst á vél-
inni, en þeir ákváðu bráð-
Iega að setja upp segl og reyna
Framh. á bls. 6
Engilbert Kolbeinsson t.h. kveður Mecklenburgh togaraskipstjóra og
þakkar honum lífbjörg.
Aðrir úr áhöfn Stráks á þilfari brezka togarans í morgun.
Gisli Ólafsson, stýrimaður, við komuna til Rvíkur i morgun. Synir
hans, Ólafur og Karl tóku á móti honum.