Vísir - 25.10.1965, Blaðsíða 1

Vísir - 25.10.1965, Blaðsíða 1
243. tbl. 8 stórar síUartorfur fund- ust út af Jökli í nótt Blaðið frétti það í morgun, Benedikt Guðmundsson, til- að sfldarleitarskipið Pétur Thor- kynnti að hann hefði fundið þar steinsson hefði fundið síld út af einar 8 torfur, sem voru um 20 Jökli. Skipstjórinn á skipinu, faðma þykkar, en þær voru á Háskólarektor afhendir háskólaborgarabréfin. Nýstúdentar standa á sviðinu. HÁSKÓUNN VERÐISTÓREFLDUK 30—50 faðma dýpi. Þar utar frá kvaðst hann hins vegar ekki hafa fundið meiri sfld. Nú er ekki gott að segja hvað verður úr þessu, en Benedikt skipstjóri er traustur maður og mun það sjaldan að hann gefi út tilkynningar um síldarfund, ef hann ekki telur líkur til að hægt sé að fá þar einhverja veiði. Ef síld kemur nú í Jökul- djúpið má líta á það sem góða gjöf, því að hér við flóann standa frystihúsin svo að segja aðgerðarlaus með starfsfólk sitt. Pétur Thorsteinsson fór út til að leita á fimmtudag í sfð- ustu yiku og hefur þannig að- eins verið 3 — 4 daga í leitinni, áður hafði Hafþór leitað. Útgerðarmenn hér við Flóann eru óþolinmóðir og óánægðir yfir því að þeim finnst allt of lítið hafa verið gert að því að leita sfldar fyrir vestan landið. Nú þegar þessar fréttir berast af síldinni við Snæfellsnes má búast við að mörg skip fari að reyna veiðar þar. —■ sagði Artnann Snævarr rektor á Háskólahótíðinni Háskólahátíðin 1965 var hald- in í Háskólabíói s.l. laugardag, fyrsta vetrardag. Hófst hún með þvi að lúðrar voru þeyttir og háskólakennarar gengu fylktu liði í salinn. Til hátíðarinnar voru mættir handhafar forseta- valds, ráðherrar, sendiherrar er- lendra ríkja, nýstúdentar og fjöldi annarra gesta. Að loknum hljóðfæraleik og söng hófst ræða rektors, pró- fessors Ármanns Snævars. Bauð hann gesti velkomna en vék síð an að starfi skólans á liðnu skólaári. Á árinu voru brautskráðir 70 kandidatar, sem rektor óskaði öllum gæfu og gengis. Minnt- ist hann á að nauðsynlegt væri að athuga hversu unnt væri að skipuleggja framhaldsnám kandídata við Háskólann og hver úrræði séu til að örva menn til að stunda slíkt nám og ljúka hér doktorsprófum. Væri þetta mál, sem þarfnaðist úrlausnar hið fyrsta. Bauð rektor síðan nýstúd- enda velkomna ,en þeir eru nú 324, þar af 29 erlendir. Rektor sagði, að að undan- förnu hefði verið unnið mikið starf að endurskoðun kennslu- skipunar til B.A.-prófa og í tengslum við það endurskoðun á námi í íslenzkum fræðum. Yrði kennslan aukin og full- komnuð og þar með undirbún- ingur kennara til starfs. Væri það því von skólans að aðsókn að B.A.-deild myndi mikið auk- ast. Þá hefði verið gerð talsvert veigamikil breyting á kennslu- skipan guðfræðideildar, einkum hefði þáttur sálgæzlu verið auk- inn. Þá vék rektor að byggingar- Framhald á bls. 6. Hermann Þórarins- son lótinn Hermann Þórarinsson frá Hjalta bakka, útibússtjóri Búnaðarbank- ans á Blönduósi varð bráðkvaddur hér í borginni f gær, en hann var hér staddur til að sitja Sveitar- stjórnarráðstefnu Sjálfstæðis- flokksins. Hermann var merkis- maður og vel látinn í héraði. Hann var fæddur 2. okt. 1913, sonur Þórarins alþm. Jónssonar á Hjalta- bakka og frú Sigríðar Þorvalds- Framhald bls. fi. Flokksróðsfundur Sjólfstæðisflokksins: Fagnar stefnuyfirlýsingu rikisstjórnarinnar Flokksráðsfundi og sveitar- stjórnarráðstefnu Sjálfstæðis- flokksins Iauk í gærdag. Sam þykkti flokksráðstefnan að lýsa yfir ánægju sinni vegna hinnar nýju stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnarinnar og samþykkti yfirlýsinguna Sveitarstjórnar- ráðstefnan gerði ítarlega sam þykkt í sveitarstjórnarefnum, sem væntanlega mun verða birt hér í blaðinu á morgun. Fundir hófust á sveitarstjóm- arráðstefnunni kl. J.O í gærmorg un í Sjálfstæðishúsinu. Flutti formaður þeirrar nefndar sem skipuð hafði verið til þess að fjalla um ályktun ráðstefnunn ar, Birgir ísl. Gikínarsson framsöguræðu um álitið. Urðu síðan miklar umræður sem stóðu til hádegis og eftir há- degi allt til kl. 4 Þá var settur flokksráðsfundur á nýjan leik og fyrrgreind samþykkt gerð. M511Í kl. 5 og 7 var móttaka fyrlr fulltrúa á fundinum og ráð- stefnunni og konur þeirra. 260 þús. kr. dómur Dómur i máli Þorkels mána kemur seinna i dag Dómur hefur nú verið kveðinn upp í máli togaraskipstjórans á Hall veigu Fróðadóttur. Var skipstjórinn á Hallveigu Fróðadóttur dæmdur í 260 þús. kr. sekt og afli og veiðarfæri gerð upptæk og var hann ennfremur dæmdur til þess að greiða allan sakarkostnað. Síðdegis í dag verður kveðinn upp dómur í máli skipstjórans á Þorkeli mána. Voru báðir togararnir teknir að ólöglegum veiðum aðfaranótt föstudags 3-4 sjómílur innan þeirra marka er gilda fyrir togveiðar ís- lenzkra skipa í Faxaflóa. ERFIÐ BARÁ TTA VIÐ JÖKULSÁ Fyrir helgi var hafizt handa um að beina vatnsflaumnum i Jökulsá á Sólheimasandi, sem braut vestri brúarendann af sér, aftur austar og á laugardag hafði það tekizt og var orðið fært upp á brúna. En við það að meginstraumurinn færðist austar grófst undan aust- asta millistólpanum, svo að hann skekktist og við það seig brúin og skekktist (tvö austustu höftin). Brúin er nú ófær öllum farar- tækjum, en fær gangandi mönnum og hafa rnenn orðið að bera mjóÍK og afurðir yfir brúna. Reynt verður nú að hleypa vatn- inu vestar til þess að minnka straumþungann austur frá og aftra frekari skemmdum þar. Um það verður ekki sagt að svo stöddu hvenær hægt verður að hef]- ast handa um viðgerðir, eins og stendur er revnt að hindra frekari skemmdir, en aðstaðan þama aust- an megin var í gær, að ekki var hægt að hefjast handa um að breyta straumnum þar. Frá hinni fjölmennu sveitarstjórnarráðstefnu Sjálfstæðisflokksins, sem stóð I gær og á laugardag. Myndin sýnir hluta fulltrúahópsins hvaðanæva að af landinu. (Ljósm. Vísis).

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.