Vísir - 27.10.1965, Page 1
VISIR
55. árg. — Miðvikudagur 27. október 1965. - 245. tbl.
Ráðnir tíi sjóampsms
Lítið hefur nú gerzt i sjón-
varpsmálunum um skeið. Er
stofnunin nú að búa sig undir
að fara að innrétta hina stóru
myndatökusali, sem hún hefur
fengið í húsinu Laugavegi 176.
Þá liggur það fyrir að ráða
ýmsa fleiri starfskrafta að sjón-
varpinu. Þó að ráðning þeirra sé
enn ekki formlega staðfest muri
ráðning þeirra þó vera til fulls
ákveðin, og sumir þeirra eru
jafnvel farnir til útlanda á V'eg-
um sjónvarpsins til að kynna
sér ýmis mál erlendis.
Þeir, sem blaðið veit að muni
verða ráðnir til að starfa í dag-
skránni, eru þessir: Markús Örn
Antonsson og Andrés Indriða-
son, ungir menn, sem báðir hafa
Framhald bls. 6.
JOKUISARBRU íR NU B0R6ID
1 morgun lauk bráðabirgða-
viðgerð á brúnni yfir Jökulsá
á Sólheimasandi og átti þá að
hieypa yfir hana umferð
léttra bíla. Mjög mikið hefur
minnkað í ánni í gær og i
nótt og nú er komin norðan-
átt um landið, svo að brúnni
má heita borgið, þótt aust-
urendi hennar sé mjög tæpur.
Verður nú hafizt handa við
að bægja ánni frá austurbakk
anum til þess að hægt sé að
ljúka viðgerðinni, en það er
talið mjög torsótt verk. Ekki
mátti tæpara standa, að
sjatnaði í Jökulsá, því hún
var nærri búin að grafa i
sundur eystri bakka sinn
kringum brúarendann.
Blaðamaður Vísis var við
Jökulsá á Sólheimasandi síðdeg-
is í gær og skrifar þetta urn
ástandið við ána og viðgerðina
á brúnni:
Þegar blaðamaður Visis kom
að brúnni yfir Jökulsá á Sól-
heimasandi á þriðja tímanum
síðdegis í gær, var mikið um
að vera þar. Milli bakka vall
fljótið fram eins og þykkur
grautur í þremur kvíslum. Jarð
ýtur ruddu upp görðum í gríð
og ergi á vestri bakka árinnar,
svo þar sáust lítil merki land-
brotsins, sem varð, þegar fljót-
ið bylti sér vestur fyrir brúna,
en austan megin hafði fljótið
grafið stóran sveig í bakkann
ofan brúarinnar, svo þar stóð
brúarendinn tæpt á mjóum
tanga. Vegavinnumenn höfðu
slegið upp skúrum sínum við
vestri bakka árinnar og beggja
vegna brúarinnar stóð fjöldi
bíla, mest yfirbyggðir flutninga
bilar. Á brúnni kepptust menn
Vegagerðarinnar við að log-
sjóða og rífa upp þólf brúarinn
ar og fjölmenn sveit Skaftfell-
inga var að selflytja varning yf
ir brúna.
Stór flutningabíll frá Þrótti,
R 4492 var úti á miðri brú og
hafði honum verið bakkað frá
vestri bakka árinnar. Þetta var
bíll, sem Kaupfélag Skaftfell-
inga hafði fengið leigðan til að
flytja varning að brúnn; á móti
bílum kaupfélagsins, sem stóðu
austan fljótsins. Uppi á palli
vörubílsins kepptust menn við
að demba sementi og ýmsum
öðrum vamingi ofan í hjólbör-
ur. Farmurinn var síðan smám
saman selfluttur á hjólbörum
yfir skakkan og veigalítinn aust
Brúarmennirnir eru hér í óða önn að rífa upp gólfið í brúnni yfir skakka stöplinum til þess að getakomizt að til að losa austasta hafið
frá. Maðurinn með kúbeinið er Valmundur Bjömsson, verkstjóri. í baksýn tii hægri eru búðir vegavinnumanna.
Blaðamaður Vísis segir fró atburðum við brúna. Sjd einnig í myndsjú
urenda brúarinnar yfir á fast
land aftur, þar sem vörunum
var kippt inn um afturenda
kaupfélagsbíls, sem hafði bakk-
að fram að brúarendanum. Hjól
börurnar fluttu sement austur
yfir en rófnapoka vestur yfir.
Á vestri bakka árinnar beið
vörubíllinn L-15 með tóma
mjólkurbrúsa frá Solfossi, góð-
vinur okkar eftir að hafa kippt
fólksbíl okkar í gang við Selja
landsmúla, þar sem vatnselgur
hafði dregið allan mátt úr kert-
um og kveikju fólksbílsins .Og
á eystri bakkanum beið líka
vörubíll eftir að komast að
brúnni og þar var annar flutn
ingabíil, sem nýbúið var að losa
Fjölmennt starfslið var þarna
frá kaupfélaginu að vinna við
umhleðsluna og þar á meðal var
kaupfélagsstjórinn, Guðmundur
Á. Böðvarsson. Við leituðum
frétta hjá honum um flutning
ana.
— Við höfum verið i þessum
selflutningum síðan á sunnu-
dagsmorgun, eða í tæpa . þrjá
daga. Aðalflutningamir eru í
mjólkinni, sem við flytjum vest
ur yfir ána á hverjum morgni.
Síðan fyllt var upp hérna aust
an megin að brúnni eftir land
brotið, höfum við getað komið
frá okkur allri mjólk. Þetta eru
mjög nauðsynlegir flutningar
fýrir okkur, því mjólkin er ekki
vara, sem geymist. Mjólkur-
flutningamir hafa gengið slysa
laust, þótt þeir hafi verið sein-
legir.
— Kjöt og aðrar afurðir höf
um við einnig flutt frá okkur
á þennan hátt, hélt Guðmundur
áfram. í staðinn höfum við flutt
austur yfir fljótið tóma mjólk-
urbrúsa, póst, böggla, matvör-
ur og ýmsa aðra vöru sem nauð
synlegt hefur verið að fá fljótt
austur. Nú erum við t.d. að
flytja sement austur yfir
brúna. Það eru margir hjá okk
ur, sem standa í byggingum um
þetta leyti Qn eru að reyna að
ljúka steypu áður en fer að
frjósa. Þessum mönnum ríður
mikið á að fá sementið tíman-
lega, því veturinn getur gengið
í garð, hvenær sem er.
— Þessir selflutningar yfir
ána mega teljast stanzlausir
allan daginn og oft verða vöm
bílarnir að bíða lengi eftir að
komast að brúnni. Við erum
með þrjár hjólbörur I gangi á
brúnni í selflutningunum, eða
eins margar og hægt er að
koma fyrir, og um tíu menn frá
okkur eru nú að vinna að þess-
um selflutningum. Þetta eru
mjög kostnaðarsamir flutning-
ar, eins og gefur að skilja, en
um annað er ekki að ræða. Við
getum verið fegnir, að brúin
skuli þó lafa þetta uppi.
— Þetta umrót okkar á
brúnni er náttúrlega mjög fyr-
irferðarmikið, en menn Vega-
gerðarinnar hafa verið okkur
ákaflega liðlegir í þessu sam
bandi, sagði Guðmundur Á.
Böðvarsson kaupfélagsstjóri að
lokum.
Tveir flokkar vegagerðar-
manna unnu að viðgerðinni.
Annar var vegaflokkur ofan af
Skeiðum undir verkstjórn
Brands Stefánssonar úr Vík og
vann að því að treysta vestri
bakka árinnar. Til þess höfðu
þeir fengið tvær stórvirkar jarð
ýtur ofan úr Þjórsárdal. Á
brúnnj sjálfri var flokkur brúar
manna undir stjórn Valmund-
ar Björnssonar brúarsmiðs og
vann að viðgerðum á brúnni
sjálfri.
Þar hittum við Björn Ólafs-
son verkfræðing,- sem sér um
vegi Suðurlands af hálfu Vega-
gerðarinnar og báðum hann að
segja okkur frá viðgerðinni.
— Áin brauzt fyrst í gegnum
vestri bakkann og braut niður
brúarendann þeim megin. Okk
ur tókst fljótlega að ryðja aft-
ur upp garði þar út að brúar-
endanum og losa frá endahafið
sem hékk niður og gera bílfært
Framhald á bls. .3.
/ morgun í togaradeilunni
Samið
t
Samningar voru und-
irritaðir í morgun í deilu
I
yfirmanna á togurum og
verða nú lagðir fyrir fé-
lagafundi.
Eins og getið var í frétt í
Vfsi í gær voru horfur öllu væn
legri um samkomulag í deilu yf-
irmanna á togurunum, að lokn
um fundinum, sem stóð í fyrra-
kvöld og fyrrinótt, en samkomu
lagsumleitunum var haldlð á-
fram á fundl, sem hófst kl. 21
í gærkvöldi, og lauk honum
milli kl. 8 og 8,30 f morgun með
samkomulagl, sem er bundið
þeim fyrirvara, að aðilar í dell
unni samþykki það.
Frá efni samninganna er ekki
greint fyrr en þeir hafa verið
Iagðir fyrir félagafundi.
Framh. á 6. sfðu.
/
t