Vísir - 29.10.1965, Blaðsíða 3

Vísir - 29.10.1965, Blaðsíða 3
V1 S IR . Föstudagur 29. oktðber 1965, 3 TVTyndsjáin leit sem snöggvast inn á Hótel Sögu þar sem sýningarstúlkur úr Tízkuskóla Andreu voru að undirbúa sýn- ingu á grímubúningum, sem þær ætla að hafa á sunnudag- inn á vegum Reykjavíkurdeildar Rauða krossins, en sýning þessl er i síðdegiskaffinu á sunnudag- inn og ætluð til styrktar Rauða krossinum. Þegar ljósmyndarinn kom þama var frú Andrea Oddsteins dóttir að leiðbeina stúlkunum hvemig þær ættu að koma fram á sviðinu. Stúlkumar voru eins og gera mátti ráð fyrir bæði í senn ungar og laglegar, og orðn ar alvanar og útfamar i því fagra og setta göngulagi sem sýningarstúlkur þurfa að kunna. Þær vom filssandi og hlæjandi yfir þessum furðuiega klæða- burði sfnum, hefðu kannski fremur viijað ganga í „Mink“. — En það er þó tilbreyting í að setja svolitla kómediu inn í tízkusýningarnar. Ekki þurftu þær þó að kvarta um að grimubúningarair væm ekki fyrsta flokks, því þá Iánar frú Þóra Borg. En eins og oft er með grimubúninga, þá em snið- in stundum miðuð við það sem var á tímum ömmu okkar eða langömmu, en þær gátu lika verið snyrtilegar í klæðaburði. Og svo eru það pipuhattamir, þeir eru nú ættaðir frá öfum okkar og langöfum. Þeir kunnu líka, að vera „smart“ eins og það var kallað í þá daga. Aðrar stúlkur voru að ræða um kökur og rjómatertur. Ein sagði „£g er búin að útvega 45 tertur“. Allt er þetta undir- búningur undir sunnudagskaffi Rauða krossins. Þar verður Hka Savannatríóið, Þorsteinn ö. Stephensen les upp og nokkrir nemendur Hermanns Ragnars sýna dans. En Haukur Morthens er kynnir. SVART OG HVÍH Guðmundur W. Vilhjálmsson frá Loftleiðum og Pétur Daníelsson á Borginni ræðast við. Hér sitja Þorsteinn Hannesson söngvari og Brian Holt og Ralph Hannam frá brezka sendiráðinu ( talið frá vinstri til hægri). Wolfe Murry, tengdasonur sir Alec, lengst til hægri, Rolf Johansen og Steindór Ólafsson, starfsmað ur hjá Rolf. jVTýlega héldu ijón borgarinn- ar svart-hvítt mót þar sem allir viðstaddir urðu að vera í svörtu og hvítu. Annað svart-hvítt mót var i Klúbbnum á miðvikudagskvöld- ið fyrir tilstuðlan eins af kyn- þætti þeim sem á búsetu á aðal- yfirráðasvæði brezka ljóns- ins. Gestgjafinn Wolfe Murry er tengdur brezka aðlinum tengda- sonur fyrrverandi forsætisráð- herra Breta Sir Alec Douglas Hume. Var hann veitandi fyrir hönd fyrirtækis síns James Buchane & Co ltd. í þetta sinn mátti klæðnaðurinn vera rauður, blár eða græn-gulur en drykk- urinn var eingöngu „Black and White“, whisky. Þama voru samankomnlr margir gestir, auð vitað sjálfur höfuðpaurinn hér á landi fyrir „Black and White“ Rolf Johansen þjónar vínveit- ingastaða borgarinnar til þess að kynna sér sem allra bezt hvað þeir megi bjóða gestum sínum og svo fulltrúar ríkja og borga Rikisins hér í bæ sem selja þyrstum. Einnig innkaupa stjórar þeirra aðila, sem sjá fólki fyrir fari að og frá landinu. \

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.