Vísir - 29.10.1965, Blaðsíða 5

Vísir - 29.10.1965, Blaðsíða 5
TtS'I R . Föstndagur 29. október 1965. út.Iö’nd' í r.omm útlönd í mor^^oii g :önd í non^tm" ■- útl.önd; )í ■ morgim WILSONSA CÐURA FORUM HEIM Ekkert samkomulag og re fsiaðgerðír á næsfa leiti Fréttaritarar í Salisbury óttast nú, að samkomulagsumleitanimar um sjálfstæði Rhodesíu reynist gagnlausar og Wilson farí heim. Harold Wilson forsætisfáðherra Bretlands er sagður viðbúinn að hverfa heim á morgun, vegna þess, að viðræðumar hafa engan árang ur borið — að minnsta kosti ekki teij'.ndi — hvorki viðræður við S : 'i né Nkoma og Sithole — b' : lannaleiðtogana. Ef eitthvað bi . ..3t til batnaðar myndi Wilson hins vegar fresta burtför. Vegna þess að svo þunglega horf ir kom til hvassra orðahnippinga milli hans og Smiths í gær að lokn um miðdegisverði, sem fram fór í fundarhléi. Wilson er sagður hafa varað Smith enn að nýju við afleiðing um einhliða yfirlýsingar. Hann kvað 48 ríki f samtökum Sameinuðu þjóðanna þegar hafa ákveðið að samfvlkja um yiðskiptalegar refsiað gerðir gagnvart Rhodesíu og þeirra meðal væm mestu olíuframleiðslu lönd heims, en Rhodesía myndi ekki geta fengið olíu frá Portúgal, og að því er Zambiu — nágrannaland Rhodesíu varðar — mundi hún vera aðili að refsiaðgerðum. Ef Rhodes- ía gripi svo til gagnaðgerða gegn Zambiu svo sem með að neita henni að nota jámbrautina um Rhodesíu, en sú jámbraut er f raun inni lífæð fyrir Zambiu — myndu Bretar ef þörf krefði stofna til I „loftbrúar til Zambiu“ í líkingu við „Loftbrúna til Berlínar“. ikill eldsvoði í nótt í Dyflinni Mikill eldsvoði varð í nótt við höfnlna í.Dyflinni og var mörgum jámbrautarvögnum, sem sem á voru tankar með nitro-glyserini bjargað á seinustu stundu. Einnig tókst að hindra að eldurinn breiddlst í birgð arskemmur, sem sprengiefni var f. Baráttan við ekiinn stóð tvær; klukkustundir, en að kalla allt j slökkvflið borgarinnar með 15 jám ! þ i ri'g.s j á V í s i s þingsiá brautar-slökkviliðsbíla auk annarra I ingu, þar sem 60 manns voru að tækja gekk sigrandi af hólmi, eftir vinna, er eldurinn kom upp, en all- að eldurinn hafði lagt f rústir nokkr ir komust út. — Eldhafið sást um ar birgðaskemmur og jámbrautar- alla borgina. vagna. Eldurinn kom upp í bygg | þin g s j á Ví sis Nauisfn að koma afturásam- starfí um verðlagninguna Úr ræðu Ingólfs Jónssonar landbúnaðarráðherra í gær Á dagskrá neðri deildar var í gær frumvarp ríkisstjómar- innar um verðlagningu land- bánaðarafurða. Framsöguræðu flutti Ingólfur Jónsson land- búnaðarafurða. Framsöguræðu úr ræðu ráðherrans um málið hér á eftir: Með breytingu laganna árið 1960 var ákveðið, að tillit skyldi tekið til hækkunar á rekstrar- vöruliðunum og kauphækkunum ársfjórðungslega. Var það mikil leiðrétting frá því, sem áður hafði veriö. Hefði verio eðlilegt, að breytingar væru teknar til greina mánaðarlega, en framleiðsluráði landbúnaðarins hefur fundizt erfitt að reikna út breytingar á birgðum og ákveða nýtt verð með svo stuttum fresti. Mikilverðasta breytingin á lögum um verðlagn ingu búvara 1960 var verðtrygg- ing ,sem bændur fengu með út- flutningsuppbótunum. Útflutnings tryggingin hefur gert fært að greiða bændum að fullu það verð sem 6 manna nefndin ákvað bænd um, sem ekki tókst áður, meðan bændur báru sjálfir hallarm at því, sem út var flutt. títflutnings uppbæturnar hafa oft verið gerð ar að umtalsefni. Þykir ýmsum, að ríkissjóði sé bundinn þungur baggi með þessu lagaákvæði. títfiutn- ingsuppbætur urðu á sfðarta verð lagsári 184 millj. kr. og er gert ráð fyrir, að á yfirstandandi verð lagsári fari þær nokkuð yfir bOO millj. Otflutningsuppbæturnar geta þó aldrei farið yfir 10% af heildarverðmæti landbúnaðarfram leiðslunnar. Er það vissulega hem ill, sem kemur í veg fyrir, að sú upphæð sem varið er í þessu skyni hækki úr hófi fram. Niðurgreiðsl umar eru orðnar háar og þungar í skauti fyrir ríkissjóð. Það er misskilningur, sem stundum kem ur fram, að niðurgreiðslurnar komi bændum einum við og séu jafnvel nokkurs konar styrkur til þeirra. Niðurgreiðslumar Það er þó ljóst, að niðurgreiðsl urnar eru gerðar af efnahagsleg um ástæðum í því skyni að hafa hemil á verðlaginu og dýrtfð- inni. Það er ástæðulaust að gera lítið úr því framlagi, sem íslenzk ur landbúnaður nýtur. Það er einnig varasamt að mikla það fyr- ir sér, sem til landbúnaðarins er varið og halda því fram, að til landbúnaðarins megi rekja mestan þann vanda, sem við er að stríða hverju sinni í dýrtíðar- og efna hagsmálum. Það hefur oft verið til þess vitnað. áð aðrar þjóðir verja miklum fjárhæðum til land- búnaðarins og jafnvel tiltölulega meira heldur en íslendingar gera. Um leið on betta er sagt. er sjálf- sagt að viðurkenna. að brýna nauðsvn ber til, að finna leiðir til þess að iækka framleiðslu- kostr.að Sandbúnaðarvara. Það ber br’ n:! nnuðs^m tff að virna úr landbúnaðarvörunum innan- ’ands og aera þæ- Mnnie verð- mætari, áður en þær eru fluttar út. Veroi það gert. mun sá vandi, sem urri er rætt í sambandi við landbúnaðinn fara minnkandi og hverfa, þegar timar ’íða. Neitun A.S.Í. Lög þau, sem ákvarða reglur um verðlagningu landbúnaðarvara urðu ekki framkvæmd á bessu hausti. vegna þess að Alþýðusam bánd íslands neitaði að tilnefna fulltrúa í 6 manna nefndina eins og lög gera ráð fyrir. Er óskiljan legt, hvernig á því stendur, að Albvðusambandiá tók þessa af- stöðu. Haustið 1964 varð fullt sam komula” um verðlagningu bú- vara. Fulltrúar neytenda og bænda römdu um það verðlag, sem bóndinn skyldi fá. Það varð einnig samkomulag um heildsölu verð og smásöluverð. Það var fullt samkomulag um dreifingarkostn- aðinn haustið 1964, en oft er tal- að um, að þann sé óeðlilega hár. Þar sem samkomulag náðist á fyrra ári, er erfitt að skilja, hvers vegna Alþýðusambandið skerst úr leik, áður en á það reyndi. hvort samkomulag gæti orðið á( þessu hausti. tít af fyrir sig er þýðingar laust að ræða um það, hvers vegna Alþýðusambandið fór þessa leið og afsalaði sér þannig rétt inum til þess að hafa áhrif á verðlagið í haust. Það, sem máli skiptir, er framhaldið í þessum málum. Bráðabirgðalögin, sem gef in vöru út til þess að bjarga mál- inu, miðast við það ástand, sem brotthlaup Alþýðusambandsfull- trúans úr 6 manna nefndinni skap aði. Það er alménnt álitið, að tekizt hafi að leysa hnútinn með bráða birgðalögum á sanngjarnan hátt. Þannig að bændur geti unað sin um hlut og neytendur geti ekki með réttu talið, að boginn hafi verið spenntur of hátt. Sami grundvöllurinn Skv. I. gr. bráðabirgðalaganna er kveðið svo á, að á verðlagsár- inu 196$—1966 skuli byggt á verð lagsgruödvelli, er Hagstofa Is- lands reiknar cftfr -verðlagsgrund- velli haustsins 1964. Við laun bónda og sjúkrasjóðsgjald bætist geymd hækkun samkv. bókun í fundargerðarbók 6 manna nefndar innar 24. febrúar 1965 og við það hvort tveggja skuii bætt viðbót, sem er að hundraðshluta jöfn þeirri hækkun, er verður á bóta upphæðum almannatrygginga á síðari hluta ársins 1965. En bóta upphæðir þessar miðast við þær hækkanir, sem orðið hafa á kaupi verkamanna. Með þessari viðmið- un var bóndanum tryggð hækkun búsafurða að þessu sinni. Þá er gert ráð fyrir samkv. 1. gr„ að við aðkeypta vinnu bætist hlut- fallsleg hækkun. Við fjárhæðir vinnuliða þannig reiknaðar, bætist verðlagsuppbót sbr. ákvæði 4. gr. laga nr. 63 1964 um verðtrygg ingu launa. Aðrir útgjaldaliðir verðlagsgrundvallar 1964 skulu færðir fram til verðlags á hausti 1965 og eftir þeim reglum, sem gilda, þegar grundveíli hefur ekki verið sagt upp. S^ma,gildir,uih tekjuliði yerð lagsgrundvallar. Verðlag á ull og gærum í verð- lagsgrundvelli 1965-1966 skal vera meðalútflutningsverð þessara af- urða 1964-1965 að frádregnum á- föllnum kostnaði, er útflutningur á sér stað skv. matí Hagstofunn ar. Þá er Hagstofan hefur reiknað verðlagsgrundvöll landbúnaðar- vara samkv. 1. gr. þessara laga afhendir hún hann nefnd þeirri er um ræðir í 2. gr. frv. til frek- ari meðferðar Samkvæmt 2. gr. skal skip? þriggja manna nefnd til þess að færa verðlagið út skv. þeim grundvelli, sem Hagstofan hefur fundið. í nefnd þessari eiga sæti ráðuneytisstjóri landbúnað- arráðuneytisins, forstjóri Efna- hagsstofnunarinnar og fram- kvæmdastjóri Fram'eiðsluráðs landbúnaðarins Nefndin varð sammála um verð á einstökum vörum til bóndans. Hún varð einnig sámmála um heildsölu- og smásöluverð. Meðalverðhækkun til bænda varð samkvæmt þessu 11.2%. Var verðhækkunin all- miklu meira á kiöti, á kostnað mjólkurverðsins. Eins og fram kemur, er ljóst, að verðlagið á þessu hausti er í samræmi við það verð, sem ákveðið var með samkomulagi haustið 1964. Þær verðhækkanir, sem orðið hafa á rekstrarvörum og kaupgjaldi á verðlagsárinu hafa verið teknar til greina og bóndinn því fengið það bætt. Fáir munu hafa ætlazt til að haldið væri á málunum á annan veg. Þar sem samkomu- lag varð um búvöruverðið milli framleiðenda og neytenda á sl. ári, verður að ætla, að almennt sé litið svo á, að verðlagningin að þessu sinni hafi verið sann- gjörn fyrir báða aðila, framleið endur og neytendur. Eins og áður er að vikið, voru bráðabirgðalögin útgefin til þess að leysa vanda sem boðið var Ingólfur Jðnsr.on landbúnaðarráðherra. heim með því að gera 6 manna nefndina óstarfhæfa. Það er yfir lýstur vilji ríkisstjórnarinnar að gera tilraun til að koma aftur á samstarfi milli framjeiðenda og neytenda um verðlagningu land búnaðarvara. Þess vegna hef ég ., skrifað Stéttarsambandi bænda Framleiðsluráði Iandbúnaðarins A.S.Í., Sjómannafélagi Reykjavík- ur og Landssambandi iðnaðar- manna og mælzt til þess að þeir skipi fulltrúa f nefnd, sem hefur það verkefni að finna samkomu- lagsgrundvöll um verðlagningu landbúnaðarvara framvegis. Sanngirni þörf Þeir aðilar, sem hér eru nefnd ir skipuðu áður fulltrúa f 6 manna nefndinni. Líklegt er, að ríkisstjórnin skipi 7. manninn, sem verði þó jafnframt formaður nefndarinnar. Bændasamtökin hafa nú þegar tilnefnt fulltrúa af u sinnj hálfu og Landssamband iðn aðarmanna, > að ég held. Ekki er að efa, að Alþýðusambandið og Sjómannafélag Reykjavíkur munu einnig tilnefna fulltrúa í nefndina og getur hún væntan- lega bráðlega tekið til starfa. Það er mikið atriðj að sámkomulag verði um endurskoðun þeirra laga sem verðlagning landbúnað- arins byggist á. Það er nauðsyn legt að skilningur verði gagn- kvæmur milli framleiðenda og neytenda Sanngirni þarf að ráða á báða bóga. Það er von mín, að svo geti orðið og á þessu stigi megi takast að afgreiða löggjöf sem verðlagning landbúnaðarvara verði byggð á eftirleiðis. m

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.