Vísir - 30.10.1965, Blaðsíða 15

Vísir - 30.10.1965, Blaðsíða 15
V1 S I R . Laugardagur 30. október 1965. 32. ■eftir nokkrar mínútur, því að þá kom ég að vegvísi, hvar á mátti lesa: „Netleyhreppur — 2 mílur“. Þá vissi ég að ég var staddur á þjóðveginum milli Lundúna og Alfr ingham, og að til Alfringham voru tíu mflur; náunginn, sem barði mig í kollinn, hafði sem sagt farið með mig um sex mílna leið eftir það. Enn rigndi og það var for á veg- inum og ég var ekki' beinlínis vel upplagður til gangs; auk þes flýtti það ekki fyrir, að ég skauzt á bak við runna i hvert skipti, sem ég sá eitthvert farartæki nálgast, eða ég lagðist ofan í skurð, væri eng inn runni nálægt. Loks var ég orðinn svo örþreytt ur og stirður af kulda að ég sá framá að ég átti ekki nema um tvennt að velja — að stöðva næsta bíl og fá far, eða verða þarna úti og þó að fyrri kosturinn gæti reynzt mér afdrifaríkur, kaus ég hann heldur. Ég ákvað þó að stöðva ekki hvaða bíl sem var; helzt hefði ég kosið vörubíl, þar sem bílstjórinn var einn, en fólks- bíll gat líka gengið, væri ekki annar í honum en sá, sem sat undir stýri enda þótt litlar líkur væru til að einn maður í bíl þyrði að nema staðar til þess að taka far þega sem þannig var á sig kominn. Það sátu tveir menn frammi f bílnum, sem næst fór fram hjá, og þó að það væri gagnstætt þeirri reglu, sem ég hafði verið að enda við að setja mér, hikaði ég ekki við að veifa hendinni til merkis um að mér væri kært að hann næmi staðar, enda þóttist ég sjá hvers konar farartæki það væri, áður en ég kom auga á að þeir, sem í fram sætinu sátu, voru báðir í einkennis búningi lögreglunnar. Bíilinn heml aði, stór og þrekinn varðstjóri kom út og hjálpaði mér inn í bflinn. Hann starði í andlit mér. „Herra Cavell . . . þér eruð herra Cavell, ekki satt?‘ spurði hann. Ég vissi að ég hafði breytzt veru lega síðustu klukkustundimar, en samt kom mér ekki til hugar að þræta fyrir sjálfan mig. „Hamingjunni sé lof“, andvarpaði varðstjórinn. „Síðustu tvær klukku stundimar hefur leynilögreglan og herlögreglan leitað að yður eins og saumnál í heystakki“. Hann hágræddi mér í sætinu. „Nú skuluð þér hvíla yður“, sagði hann. „Ekki hef ég neitt á móti því“, svaraði ég og hallaði mínum renn blauta, foruga og marða skrokk aft ur á bak í sætinu. „En ég er hrædd ur um að áklæðið verði ekki jafn- gott eftir“, bætti ég við. „Það gerir minnst til; lögreglan hefur fleiri bíla til umráða" sagði varðstjórinn glettnislega og settist í framsætið hjá lögregluþjóninum, sem sat undir stýri. Hann greip hljóðnemann, en leit svo um öxl til þeirra Hardangers og Wylie“, að lögreglustjóri bfða yðar á stöð- inni“, sagði hann. „Aandartak', mælti ég. „þér meg ið ekki með neinu móti tilkynna umheiminum það að Cavell sé risinn upp frá dauðum. Haldið því leyndu. Ég vil hvergi koma, þar sem gera má ráð fyrir að einhver beri kennsl á mig. Þér verðið að koma mér á einhvern þann stað, þar sem ég get orðið eftir svo að lítið beri á“. Hann starði á mig. „Ég skil yður víst ekki“, mælti hann eftir andar- taks þögn. Ég var að því kominn að segja, að mér stæði nákvæmlega á sama hvort hann skildi mig eða ekki, hann yrði að gera svo vel að fara að öllu eins og ég segði honum. En mér fannst það ekki viðeigandi og sagði þess í stað: „Það er mjög áríðandi, varðstjóri. Að minnsta kosti hygg ég að Svo sé“. „Jæja', og hann hikaði enn við, „en það verður erfitt, herra Cavell" „En . . . heima hjá mér?“ spurði lögregluþjónninn varðstjórann. „Hvernig væri það? Þú veizt að konan mín og tengdamóðir eru að heiman". „Er það afskekkt, en þó í grennd við Alfringham, og er sími þar?“ spurði ég. „Allt þetta þrennt, herra minn.“ „Sem sagt gott. Þakka yður inni lega fyrir. Og nú getið þér talað við vfirmann yðar, varðstjóri, en farið með þetta sem einkamál. Biðj ið hann og konu mína að hitta mig þarna eins fljótt og þau fá viðkom ið, ásamt Hardanger leynilögreglu foringja, sé hann viðlátinn. Og hvernig er það hjá lögreglunni hér í Alfringham — hefur hún tök á lækni, sem óhætt er að treysta? Þér skiljið hvað ég á við.“ „Auðvitað", svaraði varðstjórinn og virti mig enn fyrir sér. „Lækni.“ Ég kinkaði kolli og fletti frá mér jakkanum. Skyrtan var rennblaut hægra megin af blóði og regni. Varð stjórinn þurfti ekki meira með. „Stígðu benzínið í botn kunningi“, sagði hann við lögregluþjóninn. „Þig hefur alltaf langað til að vita hvað skrjóðurinn kæmist, og nú er tækifærið ...“ Að svo mæltu fór hann að tala í hljóðnemann, lágt og ákaft. „Ég verð ekki fluttur í neitt blöv að sjúkrahús, og þar við stendur", sagði ég gremjulega. Nokkrar sam lokur og hálft glas af viskí hafði hresst mig til muna. „Þvf miður læknir, þetta er endanleg ákvörð- un.“ „Því miður — það segi ég líka“, sagði læknirinn, sem hafði skoðað mig eins gaumgæfilega og föng voru á. „Og því miður hef ég ekki vald til breyta þeirri ákvörðun yðar. Annars mundi ég sannarlega gera það. Tvö rif eru greinilega brotin og það þriðja brákað. Þó get ég ekki sagt um hversu alvarleg þessi meiðsl kunna að vera. Þvf að ég hef ekki röntgenaugu." „Hafið engar áhyggjur, læknir“, svaraði ég. Þér hafið búið svo vel um meiðsl mín, að ég trúi þvf ekki að rifjastúfarnir fari að sting ast inn f lungun eða út í gegnum hörundið.“ „Ég álít ekki teljandi hættu á því heldur', mælti læknirinn þurr- lega“, svo framarlega sem þér get ið stillt yður um að lenda í því alvarlegri átökum. Ég óttast miklu fremur að þér fáið Iungnabólgu. Ofþreyta, kuldi og brotin rifbein að auki bjóða henni heim. Kirkju- garðarnir eru fullir af fólki, sem gæti borið um það“. „Þér megið gerst vita, að ég þoli ekki að hlæja, læknir", varð mér að orði. „Frú Cavell", hann lét sem hann heyrði ekki til mín. „Aðgætið hit ann á klukkustundarfresti. Hækki hann nokkuð, þá gerið mér tafar- laust viðvart og eins ef erfiðleika verður vart f sambandi við andar- dráttinn. Þér hafið símanúmerið mitt. Og loks verð ég að vara- þessa herra við þvf“, hann leit til mfn. „Konan yðar og Wylie ef Cavell fer fram úr rekkju sinni næstu sjötíu og tvær klukkustund- irnar, lýsi ég mig ekki bera ábyrgð á afleiðingunum*. Hann tók tösku sína og hélt á brott. Um leið og dyrnar lokuð- ust á hæla honum sveiflaði ég fót- unum fram fyrir stokkinn og fór að hafa skyrtuskipti. Hardanger mælti ekki orð frá vörum, og þegar Wylie sá fram á að hann ætlaði ekki neitt til málanna að leggja, mælti hann: „Eruð þér að hugsa um að fremja sjálfsmorð, Cavell? Þér heyrðuð hvað læknirinn sagði. Hvers vegna bannið þér honum ekki að hreyfa sig, leynilögreglu- foringi?“ „Hann er genginn af göflunum og þýðir ekki um það að fást“, svaraði Hardanger. „Þér sjáið að jafnvel kona hans gerir enga til- raun til að kyrrsetja hann. Það eru til þeir hlutir í þessu lífi, herra lögreglustjóri, sem tilgangslaust er að ætla sér að fást við, og eitt af því er að ætla sér að koma vitinu fyrir Cavell ..." Hann hvessti á mig augun. „Jæja, svo að þú hef ur verið að rannsaka málin á eigin spýtur, rétt einu sinni, karlinn. Og hvað hefurðu svo haft upp úr því? Þú ættir bara að athuga það hvern ig þú ert leikinn. Því í ósköpunum viltu ekki viðurkenna það, maður, að eina vonin um að við fáum leyst þessa gátu, er fólgin f því að við vinnum saman? Fjandinn hafi allt þitt hugboð . . . Kerfisbundin rannsókn er hið eina, sem þýðingu hefur í slfkum glæpamálum. Og það ættirðu að vita, fjandinn hafi það . . . “ „Ég veit það“, svaraði ég. „Þol- inmóðir, þjálfaðir menn, sem leggja hart að sér undir þolinmóðri og þjálfaðri yfirstjóm. Ég er þér þar yfirleitt sammála, en ekki samt í þessu máli. Hér dugar ekki nein þolinmæði. Þolinmóðir menn fara sér hægt, en við höfum ekki neinn tfma til þess að fara ok^cur hægt. Þú hefur auðvitað séð Svo 1 um að vopnaður vörður sé um húsið, þar sem ég var f haldi og að sérfræðing ar þínir rannsaki öll spor, sem þar er að finna?“ Hann kinkaði kolli. „Komdu með söggna. .Við megum .en^an tima missa . „Þú færð að heyra hana. En samt ekki fyrr en þú hefur skýrt mér frá hvers vegna þú lézt lög- regluna sóa dýrmætum tíma frá ransókn málsins f að leita að mér og hvers vegna þú hefur ekki beitt valdi þinu til að skipa mér að liggja kyrrum í rekkju. Hefurðu kannski einhverjar áhyggjur, leyni lögregluforingi?" „Blöðin hafa komizt að öllu saman" svaraði hann hreimlaust. „Varðandi innbrotið, morðin og að djöflaveirunni hafi verið rænt. Við vorum að vona að blaðamennirnir kæmust að minnsta kosti ekki á snoðir um það síðasta . . . “ Hann benti á blaðabunka, sem hann hafði lagt á gólfið. „Þú vilt kannski at- huga frásögnina? Þeir eru gengnir af göflunum". „Eigum við að eyða tfma f það?“ spurði ég. „Það er ekki heldur það eitt, sem veldur þér áhyggj- um“. „Nei. Hershöfðinginn var að tala við mig f sfma fyrir stundu síðan. Hann var að spyrja um þig. öllum stærstu fréttastofunum hafa verið sendar fjölritaðar tilkynningar f morgun. Þar er frá því skýrt að áður gefinni viðvörun hafi ekki w.n«nviuwMuii..'!.|yi 1 .')) ..UUJHII ha! so TAKZAN 1S GOOP'?/.. HAVE YOU SEEkl WHAT HIS FIKE -r B1RP HAS 70NE?? JohH CI-M70 YOU CAHHOT azgue with success... YOU SEE 5EHIN7 ME THE PR07UCT OF OUR TREATttEMT—WHAT HAVE . BEEH YOUZ KESULT YOU WANT RESULTS?? HEKE 1S PROOF OF WHAT N YOU HAVE 70NE!.. one ofMANY ANIMALS FOUN7 k 7EA7 1N THE AKEA YOU ARE MAR1NG 'SAFE.'.'j ‘ \ 1-16 7010 Ha, svo Tarzan er góður? Hafið þið séð hvað eldfuglinn hans hefur gert? Þú getur ekki rifizt með neinum árangri. Þú sérð fyrir aftan mig hverju við höfum á- orkað. K-aða árangur getur þú sýnt? Þú vilt fá að sjá árangurinn? Héma er sönnunin fyrir þvf, sem þú hefur gert. Eitt margra dýra, sem við höfum fundið dauð á svæðinu sem þú ert að gera öruggt. 75 auglýsing / VISI kemur viða við VISIR er auglýsingablað almennings auglýsingamóttaka er sem hér segir: smáauglýs- i n g a r berist fyrir kl. 18 daginn áður en þær eiga að birtast, nema í mánudagsblöð fyrir kl. 9.30 sama dag. s t æ r r i auglýsing a r berist fyrir kl. 10 sama dag og þær eiga að birtast. AUGLYSINGA- STOFA VISIS INGÓLFSSTRÆTI 3Í S'IMI 1-16-60 visesi j Askrifendaþjönusta I Áskriftar- Kvartana- síra,nn er J 11663 [ virka daga kf 9- lö nema j laugardaga kl. 9—13. AUGLÝSING ! VISI eykur viðskiptin

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.