Vísir - 14.12.1965, Qupperneq 2
2
V í S I R . Þriðjudagur 14. desember 1965.
VONBRIGÐI EFTIR GÓÐÁ BYRJUN
Síðari hluti seinni hálfleiks var slak-
ur hjá Islendingum, sem létu „rúss-
nesku birnina" slá sig niður
\
9 Það voru vonsviknir áhorfendur sem yfirgáfu nýju íþróttahöllina eftir lands-
leik íslands og Rússlands í gær. Ég veit ekki hver átti vonbrigða „púið“ frá hin-
um 2500 sem sóttu þennan leik. Það gat átt við lélegan leik íslenzka liðsins í
seinni hálfieik, grófan og ruddalegan leik Rússanna á sama tímabili, — eða
jafnvel furðulélegan dóm Svíans Karlssons í seinni hálfleik og þá einkum síðustu
mínútur leiksins, sem voru hrein slagsmál af hálfu rússnesku vamarinnar án
þess að leikmenn fengju fyrir „reisupassann“ sinn, sem þó hefði oft verið
ástæða til.
@ Fyrri hálfleikur var eins góður hjá íslenzka liðinu og sá síðari var slakur.
Það kunna að vera margar skoðanir á lofti um það hvað olli því að í seinni hálf-
leik fengum við mörg mörk af ódýrari gerðinni, en ég álít að hér hafi keppnis-
þreyta og úthaldsleysi á þýðingarmiklu augnabliki ráðið. ÞETTA þarf að lagfæra
m. a. áður en við leggjum út í heimsmeistarakeppnina.
Forystan var frá byrjun ís-
lenzk forysta og íslenzka liðið lék
mun betur en hið rússneska. Karl
Jóhannsson skoraði 1:0 eftir 2y2
mínútu og Þorsteinn Björnsson ver
vítakast Rússa, Tsentvadse jafnar
eftir 6 mín. leik en Ragnar skorar
fyrir Islendinga og enn er jafnað.
ísland nær enn forystu og Rússar
jafha 3:3 Hörður skorar .4:3 og
Rússihn Klimov, stærsti og sterk-
asti leikmaður þeirra, sem þegar
hafði skorað tvö mörk með hörku-
skotum, skoraði 4:4, en einhvem-
veginn virtist þetta mark fara fram
hjá dómara og markdómara, —
en engum öðrum f salnum að ég
held. Mjög snöggt skot, en boltinn
fór greinilega alla leið í netið en
skauzt út sem elding aftur.
Nú skoraði Ingólfur Óskarsson á
13. mín. 5:3 fyrir Island, en hann
var þá nýkominn inn aftur. Rússar
skora 5:4, en tvö mörk Islands frá
Gunnlaugi færa okkur í 7:4. Þor-
steinn varði vel og vörnin var sem
ein órofa heild, — dansandi vegg-
ur, sem Rússarnir áttu erfitt með
'að skora í gegnum. Þannig ' leið
tíminn þar til 15 mín. voru eftir
og staðan orðin 10:6 fyrir ísland.
Þá var sem liðið væri búið að vera.
Rússar skoruðu tvö mörk fyrir leik
hlé, og stóð þá 10:8. Það reyndist
þó erfitt fyrir Rússana að ná for-
ystunni. Fyrstu mínúturnar i seinni
l hálfleik var eins og einhver neisti
í íslenzka liðinu og á 18. mín.
var staðan mjög góð, 14:11 fyrir
Island. Allir reiknuðu með áfram-
haldi á þessu, — íslenzkur sigur
blasti við.
En hvað gerist? Rússarnir beita
hörku, sem dómarinn hefði átt að
dæma mun meira á og vísa leik-
mönnum þeirra af velli, en það
gerði hann þó ekki. Einn Islending
ur fékk þó að „hvíla sig“, Birgir
Björnsson var rekinn út af í 2 mín.
á 17. mjn.
Nú missa okkar menn boltann og
Zhordenko brunar upp og skorar
14:12. Zelenov skorar 14:13 og á
22. mln. jafnar Phakadze, línu-
maður skemmtilega eftir árangurs-
lausar tilraunir og sífelldar niður-
stungur fslendinga með boltann
fyrir framan rússnesku vörnina.
Loks komast Rússar yfir. Tsentv-
adge notar enn einu sinni einfalt
bragð með skrokknum og platar
Ágúst Ögmundsson, kemst inn á
línu og skorar. Síðasta markið skor
aði Phakadze línumaður, 16:14.
Rússneska liðið hefur greinilega
meiri leikreynslu en íslenzka liðið
eftir 6 erfiða leiki að undanfömu.
Og það sem meira er, það virðist
Gunnlaugur Hjálmarsson skorar.
ekkert bita á liðið og bendir það
ótvírætt til að þessir leikmenn séu
færir um að keppa i heimsmeist-
arakeppni. — Það er einmitt þetta
sem lið þarf að geta til að komast
langt í slíkri keppni, — erfiðir leik
ir dag eftir dag án þess að á liðinu
sjáist. Liðið er skipað sterkum leik
mönnum, nærri því stirðum, en
mjög sterkum, og er engu líkara en
„rússneski björninn" hafi búið um
sig í hverjum og einum þeirra.
Línuspilið er þeirra sterka hlið og
vöm c0 markvarzla góð, en eins
og leikurinn var á köflum í seinni
hálfleik, getur liðið ekki leikið hjá
dómara, sem hefur töglin og hagld-
irnar.
Beztu menn Rússa fundust mér
Framh. á bls. 5
Ekkert mark í 14 mínútur
Þorstelnn varði 12 skot, þar
af eltt vítakast. Rússnesku
markverðirnir vörðu 13 skot,
þar af eltt vítakast. íslenzkar
sóknir vom 47 talsins og mörk-
in 14. Rússnesku sóknimar vom
47 og mörkin 16. (í hðlflelk
vom samsvarandl tölur 20 fyr-
\
ir ísland og 10 mörk, en 16
sóknir Rússa og 8 mörk).
Rússar fengu 3 vítaköst og
skoruðu úr þeim 2 mörk, ís-
land fékk 1 vítakast sem mis
heppnaðist. Rússar áttu 2 stang
arskot en ísiand eitt.
Útaf voru reknir í 2 mín.
hvor, Rússamir Matsezchinskas
í fyrri hálfleik og Zdorenko í
seinni hálfleik, og Hörður í
seinni hálfleik.
íslendingar skoruðu aðeins 4
mörk í seinni hálfleik gegn 8
og síðustu 14 mínúturnar kom
ekkert mark frá islendingur.
— klp —
Til fróðleiks tók blaðamaður Vísis saman skrá yfir sóknir íslenzka liðsins í landsleiknum í .ær.
Á þcssari skrá má sjá hvemig einstökum sóknum lyktaði.
Skot á mark Mark Framhjá Varið Sent á línu Röng si
Gunnlaugur Hjálmarsson 10 4 2 3 1 1
Ingólfur Óskarsson 6 4 0 2 5 1 3
Hörður Kristinsson 7 4 1 2 0 0
Karl Jóhannsson 6 1 3 2 0 1
Ragnar Jónsson 3 1 0 2 1 2
Birgir Björnsson 2 0 1 1 0 1
Guðjón Jónsson 0 0 0 0 1 4
Ágúst ögmundsson 1 0 0 1 0 0
Stefán Sandholt 0 0 0 0 0 0
Einn Rússanna heldur Ágústi Ögmundssyni á lofti