Vísir - 14.12.1965, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 14. desember 1965.
þingsjá Vísis
þingsja Visis
þingsjá Vísis
Framlög til skólamála hafa stóraukizt
Sagði Jón Árnason við 3. umr. fjárlaga
Ræða formanns
fjárveitinganefndar.
Fjárlagafrumvarpið kom til
3. umræðu á Alþingi í gær.
Fyrstur tók til máls formaður
fjárveitinganefndar, Jón Áma-
son 'S) og lýsti hann breyting-
a ' gum nefndarinnar. For-
nr' : 'nn sagði, að heildartil-
lc ? nefndarinnar fælu í sér
hækicun á fjár-
veitingum til
barnaskóla-
húsa og skóla-
stjóraíbúða,
sem næmi
706.733,00 kr.
og til gagn-
fræðaskóla
2.561.769,00 kr. eða samtals til
barna og gagnfræðaskóla
3.268.502,00 krónur. — Sam-
kvæmt tillögum nefndarinnar
væru að þessu sinni fjárveiting
ar til 18 nýrra skólahúsa og
skólastjóraíbúða, en auk þess
væru nú tillögur um viðbótar
framlög til þeirra skólahúsa,
sem áður hefðu hlotið fjárveit
ingu, en framkvæmdir ekki
hafnar við. Hér væri um 26
ný skólahús að ræða. Verði
þessar tillögur nefndarinnar
samþykktar hefðu 7 þessara
skólabygginga hlotið um helm-
ing áætlaðs framlags ríkis-
sjóðs, ein skólabygging hefði
hlotið um 3/5 hluta og 6 skóla
hús hefðu hlotið um 1/5 hluta
hluta af framlagi ríkissjóðs.
Þingmaðurinn sagði, að það
væri augljóst mál, að þessar
fjárveitingar, sem hér væri um
að ræða, væru í mörgum til-
fellum það ríflegar, að þær
ættu að tryggja, að skóiahúsin
yrðu byggð á skemmri tíma
en ella.
Nú væri sá háttur hafður á
um fjárveitingu til skólabygg
inga í kaupstöðum, sem hefðu í
byggingu fleiri en eitt skóla-
hús á hvoru fræðslustigi, að
frúmlög ríkissjóðs til barna-
og gagnfræðaskóla væru tekin
einu lagi. Þetta væri gert til
'iagræðis fyrir bæjarfélögin, en
öau gætu þá beint heildarfjár-
nagninu til ákveðinna bygg-
inga, sem að þeirra dómi væru
mest aðkallandi hverju sinni.
Tón sagði, að sér væri ljóst, að
æskilegt væri, að fjárveitingar
til bygginga hinna ýmsu skóla
húsa vfðs vegar um land gætu
verið enn ríflegri en þessar til
lögur nefndarinnar fælu í sér.
En jafnframt mætti fullyrða,
að ef bornar eru saman fjár-
veitingár til skólabygginga í tíð
vinstri stjórnarinnar og svo aft
ur þær fjárveitingar, sem í
þessu fjárlagafrumvarpi fælust,
væri hlutur núverandi ríkis-
stjórnar að miklum mun betri.
Árið 1958, en það var síðasta
árjð, sem vinstri stjórnin sat
að völdum, hefðu fjárveitingar
til skólabygginga verið sem
hér segir: Styrkur til bygg-
inga barnaskóla og íbúða fyrir
skólastjóra samtals 9.760.000,
00 kr. þar af til nýrra skóla-
húsa og skólastjórabústaða
1.333.760,00 kr. Styrkur til
byggingar gagnfræðaskóla og
héraðsskóla hefði þá verið sam
tals 3:599.500,00 kr. og þar
af til nýs gagnfræðaskóla 100
þús. kr. Auk þess hefðu verið
veittar 2 millj. kr. sem stofn
framlag vegna barnaskóla- og
gagnfræðaskólabygginga, sem
voru fullsmíðaðar árið 1954.
Samtals hefðu því fjárveitingar
til byggingar barna- og gagn
fræðaskóla árið 1958 verið
15.359.500,00 kr. Samkvæmt
fjárlagafrumvarpinu sem nú
lægi fyrir að viðbættum tillög-
um nefndarinnar væru fjárveit
ingar til barna- og gagnfræða-
skóla samtals að upphæð 102.
548.502,00 kr. Einnig minnti
ræðumaður á að árið 1958 hefði
verið veittur styrkur til bygg
ingar Iðnskóla í Reykjavík 500
þús. kr., en samkvæmt fjár-
lagafrumvarpinu væri nú lagt
til að veita til iðnskóla í Reykja
vík, Hafnarfirði og Akureyri
samtals 3.580.000,00 kr. Til
byggingar húsmæðraskóla
hefði verið veitt 1/2 millj. kr.
árið 1958, en nú væri lagt til
að veita til húsmæðraskóla
4.600.000,00 kr. Til mennta-
skóla hefðu verið veittar 1.375.
000,00 kr. 1958, en nú væri lagt
til að veita á næsta ári 10.367.
500,00 kr„ til byggingarfram-
kvæmda við menntaskóla. Til
byggingarframkvæmda fyrir
bændaskólana hefur verið 1958
veittar 252.500,00 kr„ en sam
kvæmt fjárlagafrumvarpinu
yrðu veittar á næsta ári til
byggingarframkvæmda við
bændaskólana 3.375.000,00 kr.
Auk þeirra byggingarfram-
kvæmda, sem upp hafa verið
taldar hefði verið veitt á 20. gr.
fjárlaga 1958 1.341.000,00 kr.
en hins vegar væru ótaldar
skólaframkvæmdir samkvæmt
20. gr. fjárlaga nú 16.540.000,00
kr. Samtals hefði verið veitt
til skólabygginga 1958 19.828.
000,00 kr„ c í samkv. fjárlaga-
frumvarpinu og að við bættum
þeim tillögum, sem nefndin
flytti, væri lagt til að veita á
næsta ári 141.511.002,00 kr. tií
þessara sömu framkvæmda. ■
Þingmaðurinn sagði, að sam-
kvæmt upplýsingum Hagstof-
unnar hefði byggingarvísitala
í desember 1958 verið 134 stig„
en í desember 1965 hefði hún
hins vegar verið 267 stig eða
rétt tvöfalt hærri miðað við
árið 1958. Það væri hins vegar
rétt, að til viðbótar vísitölu-
hækkuninni hefði á þessu tíma
bili verið um nokkra fólksfjölg
un að ræða í landinu og væri
því rétt að taka jafnhliða tillit
til þess. Samt sem áður væri
hér um geysiháar fjárupphæðir
að ræða, sem í þessum fjárlög
um væru veittar til byggingar
skólahúsa umfram það að ná
til jafns við fjárveitingar
vinstri stjórnarinnar. Með því
að leggja til grundvallar hækk
un byggingarkostnaðar sam-
kvæmt upplýsingum Hagstof-
unnar kæmi í ljós, að raunveru
leg hækkun næmi ekki lægri
upphæð en 100 millj. kr. í þess
um 100 millj. kr. fælist sá mun
ur, hversu miklu betur væri
staðið að þessum málum nú
heldur en í tíð vinstri stjórnar
innar sagði Jón að lokum.
Næstur tók til máls'Hlalldór
E. Sigurðsson (F) framsögu-
maður 1. minnihluta fjárveit-
ingamefndar og sagðist vera
samþykkur hækkun framlaga
til skólamála, en að öðru leyti
stæðu framsóknarmenn ekki að
frumvarpinu. 1 fjárlagafrum-
varpinu væri ekkert gert til að
spara eða draga úr útgjöldum
ríkissjóðs. Stefnubreyting væri
nauðsynleg, en hún yrði ekki
nema ný stjóm tæki við völd-
um.
Framlög til flóabáta
og vöruflutninga.
Sigurður Bjarnason (S) mælti
fyrir nefndaráliti frá samvinnu
nefnd samgöngumála. Sigurður
sagði, að nefndin hefði eins og
áður unnið að
undirbúningi
og gerð til-
lagna um fram
lög ríkissjóðs
til flóabáta og
vöruflutninga.
Hefði nefndin
notið aðstoðar
og tillagna' forstjóra ?Skipaút-
gerðar ríkisins við þetta verk.
Sigurður sagði, að allmikil
hækkun hefði orðið á árinu á
rekstrarkostnaði flóabátanna,
og væri afkoma sumra þeirra
mjög léleg. Nefndin hefði því
ekki komizt hjá að gera tillög
ur um hækkun framlaga til ein-
stakra flóabáta, en sú hækkun
væri þó mun minni en á síðast
Iiðnu ári.
Síðan gerði Sigurður grein
fyrir rekstri og afkomu hinna
einstöku flóabáta.
Norðurlandssamgöngur. Af-
koma Norðurlandsbátsins
Drangs hefir verið mjög léleg,
og væri í rekstraráætlun hans
fyrir næsta ár reiknað með
20% tekjurýmun. Nefndin
legði til, að styrkur til Norð-
urlandsbáts hækki úr 1200
þúsund í 1350 þúsund.
Gert væri ráð fyrir, að fram
lag til Strandabáts lækki úr 190
þús. krónum í 60 þús. kr. Breyt
ingin stafaði af því, að akfært
væri nú norður í Ámeshrepp
og því unnt að fella þessar
ferðir niður.
Framlag til Haganesvíkur-
báts v^eri óbreytt, en styrkur
til Hríseyjarbáts hækkaður
um 10 þús. kr. Þá væri styrkur
til Grímseyjarflugs hækkaður
um 15 þús. kr.
Lagt væri til, að rekstrar-
styrkur til Flateyjarb. á Skjálf-
anda yrði óbreytt, bátnum
hins vegar veittur 30 þús. kr.
viðbótastyrkur vegna véla-
kaupa.
Austfjarðasamgöngur. Lagt
væri til, að styrkur til Mjóa-
fjarðarbáts hækki um 5 þús. kr.
en styrkur til Loðmundarfjarð
arbáts yrði óbreyttur. Þá væri
gert ráð fyrir, að styrkur til
snjóbifreiðar á Austfjörðum
yrði hækkaður úr 50 þús. kr.
í 100 þús. kr.
Suðurlandssamgöngur. Nefnd-
in legði til, að framlag vegna
vöruflutninga í Vestur- Skafta
fellssýslu hækki um 50 þús.
kr. og til vöruflutninga til ör-
æfa um 15 þús. kr. Ennfremur
væri lagt til, að styrkur til
Vestmannaeyjabáts vegna
mjólkurflutninga hækki um 25
þús. kr.
Faxaflóasamgöngur. Ræðu-
maður sagði, að H.f. Skallagrím
hefði verið samtals veittur 1700
þús. kr. styrkur s. 1. ár. Nú
hefði fyrirtækið sótt um stór-
aukinn styrk, bæði v/rekstr-
ar síns og flokkunarviðgerðar
á skipi sínu, m. s. Akraborg,
samtals um 2 millj. 650 þús. kr.
Nefndin teldi sér ekki viðráð
anlegt að verða við þessari ósk.
Sagði það skoðun nefndarinn
ar, að nauðsynlegt væri að að
stoða Skallagrím h.f. Nefndin
vildi þó koma einhvað til móts
við óskir fyrirtækisins og legði
því til, að fyrirtækinu verði
veittur 300 þús. kr. styrkur
vegna viðgerðar þeirrar sem
fram fór á skipinu á þessu ári.
Hinsvegar yrði rekstrarstyrkur
skipsins óbreyttur Heildarfram
lagið til Skallagríms myndi því
hækka um 200 þús. kr.
Breiðafjarðarsamgöngur. Lagt
væri J41i;-að rejcstrarstytkur til^;
Flateyjgrbátf inf, Konráðs, yrði
óbreyttur. Einnig væri lagt til
að styrkur Stykkishólmsbáts
hækki um 150 þús. kr. Loks
væri lagt til, að styrkur til
Langeyjarnesbáts hækki um 20
þús. kr.
Vestfjarðasamgöngur. Lagt
væri til, að styrkur til M. s.
Fagranes sem Djúpbáturinn h.f.
á Isafirði ræki yrði aðeins
hækkaður upp í 1350 þús. kr„
því rekstur hans gengi mjög
vel. Þá væri einnig lagt til, að
framlög til þriggja smábáta á
Vestfjörðum, Dýrafjarðarbáts,
Patreksfjarðarbáts, og Skötu-
fjarðarbáts yrðu óbreytt, en
framlög til þeirra hækkuðu
nokkuð á s.l. ári. Ræðumaður
sagði að lokum að heildarfram
Iag til flóabáta og vöruflutn-
inga yrði því 8.372.000,00 kr.
árið 1966. Næstur tók til máls
Geir Gunnarsson (K) og kom
lítið nýtt fram í ræðu hans.
Fjármálaráðherra Magnús
Jónsson þakkaði fjárveitingar
nefnd fyrir vel unnin störf Ráð
herra sagðist
vilja vekja at
hygli á þvi að
ríkisstjórnin
legði ekki að
þessu sinni
fram neinar til
lögur um lán-
tökuheimildir
vegna einstakra framkvæmda,
svo sem til flugvallargerðar,
vegamála, sjúkrahúsbygginga
og skólamála, enda væri nú
unnið að gerð framkvæmda-
áætlunar fyrir næsta ár, en hún
væri ekki það langt komin að
fyrir lægi, hverra fjármuna
þyrfti að afla hennar vegna. En
þegar þetta lægi fyrir mundi
lántökuheimildar verða aflað
með sérstöku frumvarpi þegar
ljóst væri hvaða lánsmöguleik
ar væru fyrir hendi til hinna
ýmsu framkvæmda.
Fundi var aftur framhaldið
um kvöldið og tóku þá til máls
Gísli Guðmundsson, Ásgeir
Bjarnason, Lúðvlk Jósefsson,
fjármálaráðherra og Jón Áma-
son og verður nánar vikið að
ræðum þeirra síðar. Atkvæða-
greiðslu um málið var frestað.
Tekur sæti á Alþingi.
1 gær tók
Ragnar Jóns-
son, skrifstofu
stjóri, sæti á
Alþingi í fjar-
iveru Ingólfs
Jónssonar,
landbúnaðar-
ráðherra.
9,
H
ar-l
íþróttir —
framhald af bls. 2
markvörðurinn Abaijshvili, Phaka-
dse, hinn sterki Klimov, fyrirliðinn
Matsezchinskas, sem reyndar
mætti losna við nokkur aukakíló,
Zelonov og Tsentvadge. Það er ó-
hætt að spá því að Rússar komast
í aðalkeppni HM og furðulegt má
það teljast ef þeir gera það ekki
gott í þeirri keppni.
íslenzka liðið brást á köflum
eins og fyrr segir, einmitt á mikil-
vægum köflum. Það vantar „kondi-
sjón“, meira úthald og ég veit að
piltamir hafa áhuga á að lagfæra
þá hlið áður en til alvörunnar kem
ur virkilega í næsta mánuði, þegar
Pólverjar og Danir koma hingað.
Gunnlaugur var langbezti maður-
inn í gær ásamt Ingólfi Óskars-
syni, sem sýndi margt mjög fall-
egt, en undir lokin brást Ingólfi
þó oft bogalistin, sem og liðinu
í heild. Þorsteinn varði og ágaet-
lega f markinu. Aðrir komu all
sæmilega frá þessari raun en nokkr
ir heldur slælega.
Dómarinn, Hans Karlsson,
dæmdi heldur illa f fyrri hálfleik,
en sá seinni var þó hálfu verri.
Honum til afsökunar var þó, að
leikurinn var mjög erfiður, en samt
hefur Karlsson séð hann svartari
og þó haldið leikmönnum innan
ramma laganna. Þetta var bara
einn af hans slæmu dögum, og við
því verður ekki gert. — jbp —
SENDIFERÐIR
Piltur eða stúlka óskast nú þegar 1/2 eða
allan daginn.
LUDVIG STORR, Laugavegi 15.