Vísir - 14.12.1965, Síða 6
6
V1 S IR . Þriðjudagur 14. desember 1965.
Fusffar reglur —
Framhald af bls. 1
til eftirlits og gera almenningi
ótvírætt ljóst hvað sé leyfi-
legt og hvað bannað.
SÉ EKKI SÖLUVARNINGUR
En hins vegar telur ráðu-
neytið það á engan hátt skyn
samlegt að hafa slíkar reglur
svo óhæfilega strangar að
þær séu ekki í neinu sam-
ræmi við það sem leyft er í
nálægum löndum, og geti
þannig beinlínis verkað öfugt
við tilgang sinn. En á það
verður nú lögð hin ríkasta á-
herzla að halda uppi sem öfl-
ugastri tollgæzlu. Er i því
sambandi rétt að vekja sér-
staka athygli á því að allar
undanþágur um tollfrjálsan
innflutning varnings ferða-
manna og farmanna eru við
það miðaðar að ekki sé um
söluvaming að ræða, sagði
fjármálaráðherra að lokum.
Lundhelgi —
Framh. af bls. 1
má sjá að þær hafa verið mjög
vandvirknislega gerðar, en í
málum eins og þessum hefðu
ein mistök við mælingar verkað
sakbomingum í hag. En allt
stóðst þetta og leiddi það til
þess að Hæstiréttur staðfesti
refsidómana yfir skipstjórunum.
T.d .töldu sérfræðingar að til
þess að undirbúa kast vörpu
hefðu togaramenn þurft 5—6
mínútur, en innan tímareikning
anna var ekki hægt að finna
þann tíma til þess verks.
Annar þessara dóma var kveð
inn upp yfir Richard Taylor sem
var skipstjóri á togaranum Pet-
er Scott. Hafði hann hlotið
þungan dóm í héraði, Akureyri
vegna ítrekunar og annarra
brota og var hann að öllu stað
festur 45 daga varðhald og 350
þúsund króna sekt.
Hinn dómurinn var yfir Raw-
ciiffe skipstjóra á togaranum
Pritjce Phillip, sem hafði verið
dæmdur á ísafirði. Dómurinn
var staðfestur. Þó vekur það at-
hygli, að Hæstiréttur hækkaði
sektina úr 260 þús. kr. í 300
þús. kr. og virðist þetta benda
til að sektir fyrir venjuleg land
helgisbrot sem hafa verið 260
þús. kr. eigi nú að jafnaði að
hækka upp f 300 þús. kr. Báð
ir voru skipstjóramir dæmdir
til að greiða háan málskostnað.
Brezki sendi-
herrann kveður
Basil Boothby
Á morgun heldur héðan af landi
burt sendiherra Breta hér í
Reykjavík, Basil Boothby. Hann hef
ur fyrir nokkru verið skipaður
sendiherra Bretlands hjá Evrópu-
ráðinu og mun hann taka við því
starfi eftir jólin.
Basil Boothby hefur verið sendi-
herra lands síns á Islandi síðan
árið 1962. Er hann kom fyrst hing
að til lands var fiskveiðideilunni
nýlokið en þó við ýmis vandamál
að etja í sambúð íslands og Bret
lands sem af þeirri deilu stöfuðu.
Var því starf hans frá upphafi fjarri
því að vera vandalaust. Nú að
nokkrum árum liðnum, er sendi-
herrann hverfur á brott, munu all
ir sem til þekkja sammála um að
hann hafi kunnað að taka vanda
málin réttum tökum og lagt fram
ÍRSKIR LISTAMENN
KOMA EFTIR JÓLIN
%vv\\vvw\v
/nifjÆrg/l
BOÐIN
WGF
Eftir áramótln er væntanlegur til! stjóri er Walter Firner, sem gegn-
landsins hópur irskra listamanna á
vegum Þjóðleikhússins. Er þetta 20
manna hópur söngvara og dansara
og nefnist flokkurinn Feis Eireann.
Listafólkið kemur hingað frá
Dublin, og héðan er förinni heitið
til Bandaríkjanna og Kanada og
sýnir flokkurinn þar á næstu fjór
um mánuðum 'f nær því 40—50
borgum.
Aðeins verður um stutta dvöl
leikflokksins að ræða hér á landi
og sýna þeir einu sinni hér í Þjóð-
leikhúsinu.
Á efnisskránni eru mestmegnis
írsk þjóðlög og þjóðdansar og
verða listamennimir klæddir írsk-
um þjóðbúningum. Sjálfir leika
þeir á hljóðfærin á þessari sýningu,
en þar ber mest á hinni ævafomu
írsku hörpu.
Fararstjóri og stjórnandi er Al-
bert Morini.
Um þessar mundir eru fimm leik
rit í æfingu hjá Þjóðleikhúsinu.
Fyrst ber að telja leikrit Bertold
Brechts, Mutter Courage, sem verð
ur frumsýnt á annan í jólum. Leik-
ir prófegsorsstöðu við Listaháskól-
ann í Vfnarborg. Hefur Fimer
dvalizt hér á landi tvívegis áður
við uppsetningu leikrita, Don Cam
illos, árið 1957 og Andorra, árið
1963.
Með aðalhlutverkin í Mutter
Courage fara þau Helga Valtýs-
dóttir, sem leikur titilhlutverkið,
Bessi Bjarnason, Gunnar Eyjólfs-
son, Róbert Arnfinnsson, Jón Sig-
urbjömsson, Valur Gíslason og Sig
ríður Þorvaldsdóttir.
Næsta frumsýning hjá Þjóðleik-
húsinu verður um nýárið á bama
leikritinu Ferðin til Limbó, en
þeirri sýningu stjómar Klemens
Jónsson. Þá er einnig byrjað að
æfa Gullna hliðið eftir Davíð Stef-
ánsson og er Lárus Pálsson leik-
stjóri, verður það væntanlega fmm
sýnt um mánaðamótin jan.-febr.
j Einnig er byrjað að æfa tvö leik
i rit fyrir Litla sviðið í Lindarbæ og
1 eru það leikritin Hrólfur eftir Sig-
j urð Pétursson, leikstjóri er Flosi
J Ólafsson og pólskur einþáttungur
; er nefnist Á rúmsjó, og er eftir
■ Mrozek, leikstjóri er Baldvin Hall-
dórsson.
drjúgan skerf til þess að jafna
þann ágreining sem skapazt hafði.
Skömmu eftir komu sína hingað
til lands hafði Boothby forgöngu
um að brezk-íslenzka félagið Ang-
lia hóf aftur starf sitt, en starf-
semi þess hafði þá legið niðri um
nokkurra ára skeið. Hefur hann
síðan stutt félagið af ráðum og dáð
en það starfar nú af vaxandi þrótti
og telur nær 500 félagsmenn inn
an sinna vébanda. Þá féll það einn
ig í hans hlut að annast af Breta
hálfu undirbúning komu Prins
Philipps hingað til lands fyrir tæp
um tveimur ámm.
Þótt Basil Boothby hafi áður á
ferli sínum í utanríkisþjónustunni
alið langan aldur í Austurlöndum
varð hann skjótt gjörkunnugur
mönnum og málefnum hér á landi.
Hann og kona hans em miklir
ferðalangar og á hverju sumri hafa
þau farið um Iandið þvert og endi
langt á fjallabifreiðum sínum, og
stundað náttúruskoðun að hætti
margra landa sinna.
Er Basil Boothbv og kona hverfa
af landi brott fylgja þeim góðar
óskir hinna fjölmörgu vina þeirra
um velgengni f nýju starfi í brezku
utanríkisþjónustunni.
Bronco —
Framh. af bls. 16
á bifreiðum þá, urðu við upp
skipun í Reykjavík. Að þessu
sinni verður enn reynt að draga
úr skemmdunum með því að full
trúi tryggingarfélags verður við
staddur uppskipun. Það tíðkast
allmikið erlendis að tryggingar
félög láti umboðsmenn sina
fylgjast með uppskipun og fer
nú í vöxt hér á landi, þar sem
tryggingafélögin hafa orðið fyr
ir miklum tjónum vegna
skemmda við uppskipun.
Wilson á íund Öryggisráðs
HAPPDRÆTTI
LANDSMÁLAFÉLAGSINS
VARÐAR
DREGIÐ 11. FEBRÚAR 1966
' VERÐMÆTI VINNINGA KR.315.000.00
Varðarfélagar. Munið afmæHshappdrættið. Skrifstofan er í
Sjálfstæðishúsinu við Austur völl.
TIL SÖLU
Höfum til sölu 4 herb. íbúð. á 3. hæð + herb.
í kjallara við Dunhaga. Suðursvalir 110 ferm.
með harðviðarhurðum. Mjög góð íbúð. Einnig
3ja herb. íbúð 90 ferm. á 3 hæð í blokk við
Kaplaskjólsveg. Allar innréttingar úr harðviði.
íbúðin öll teppalögð. Mjög góð íbúð.
TRYGGINGAR OG FASTEIGNIR
Austurstræti 10A. 5. hæð. Simf 24850. Kvöldslml 37272.
Harold Wilson forsætisráðherra
Bretlands talar sennil^ga á fundi
öryggisráðs nú í vikunni, er tekið
verður fyrir Rhodesíumálið, — þ.
e. tlllaga Jomo Kenyatta um að
fyrirskipa refsiaðgerðir gegn Rhod-
esíu.
Jomo Kenyatta bað um skyndi-
fund í ráðinu f ofangreindum til
gangi, en það var einnig hann,
sem í gær óskaði þess að fund-
inum yrði frestað um sólarhring
og hefst hann kl. 19 í kvöld.
Segja má, að nú gangi maður
undir manns hönd í mörgum lönd-
um til þess að afstýra því, að
flanað sé að neinu 1 Rhodesíumál-
inu, svo sem að einstök lönd í
Brezka samveldinu 'rjúki til og
segi sig úr því eða slíti stjóm-
málasambandi við Bretland, verði
stjórn Wilsons ekki búin að koma
Iam Smith frá fyrir 15. þ. m. —
en eins og menn muna setti ráð-
stefna Einingarsamtaka Afríku
brezku stjórninni úrslitakosti, og
er fresturinn útrunninn á miðnætti.
Voru þá mælt mörg orð og stór,
en þegar leið að hinum mikla degi
og augljóst var, að brezka stjórnin
ætlaði ekki aþ láta ýta sér út á
vettvang „óábyrgra aðgerða", fóru
menn að draga inn seglin. Keisar-
inn í Eþíópíu, sem var vigreifur, er
hann setti ráðstefnuna, hefur nú
lagt að stjómum einstakra rikja í
Einingarsamtökunum, að slíta ekki
stjórnmálasambandinu, nema um
það sé samstaða. Nasser vill nýj-
an fund um málið á næsta ári,
og Balewa forsætisráðherra Nig-
eríu (sambandsstjórnar) er kominn
til Lundúna til viðræðna við Wil-
son um tillögu, sem hann hefur
borið fram um fund í Lagos og
sitja hann forsætisráðherrar allra
brezku samveldislandanna og fleira
mætti nefna, sem sýnir úr hvaða
átt vindurinn blæs nú, þótt ein-1
staka menn hóti enn slitum stjórn
málatengsla, eins og dr. Nyerere.
erere.
Atvinnuleysi er mjög tekið að
aukast í Rhodesiu, einnig meðal
hvitra manna.
Aðalbankastjóri Alþjóðabankans
er kominn til Rhodesíu til þess að
ræða við stjórn félagsins, sem rek
ur Khariba-mannvirkin en til þeirra
lánaði bankinn 38 milljónir punda
á sínum tíma og er mestur hluti
lánsfjárins ógreiddur. Bretar eru
meðal þeirra, sem ábyrgðust lánið.
Wilson fer frá New York til Was
hington til viðræðna við Johnson
forseta.
Litla hjartkæra dóttir okkar
GUÐFINNA ARNA
lézt á barnadeild Landspítalans 12. des.
Anna M. Thorlacíus
Sigurlaugur Sigurðsson.
Eiginmaður minn
MAGNÚS JÓNSSON
yfirvélstjóri Brávallagötu 22
lézt í Landakotsspítalanum 13. desember.
Sigurborg Ámadóttir.