Vísir - 14.12.1965, Side 15
VISIR . Þriðjudsjgur 14. desember 1965.
75
Hvað varð af
Eftir
Louis Bromfield
-X
Önnu Bolton?
önnur kona gæti þrætt svo veg
dyggðarinnar, sem hún gerði, mitt
í glaumnum og svallinu. Og mér
fannst þetta I rauninni ekki henni
líkt. Engin kona svo auðug sem
hún var gat komizt hjá því, að
hafa biðla á hverjum fingri — og
það þótt hún hefði verið eins Ijót
og hin þríhöfðaða Cereba. En
allir fóru biðlamir vonsviknir frá
henni.
Nafn ungfrú Godwin er að
skjóta upp kollinum í sögunni og
er víst eins gott að nota tækifærið
nú eins og síðar til þess að segja
sögu hennar.
En þá var hún ekki enn búin að
„sýna þeim þama í Lewisburg“
hvert hún gæti náð. Hún átti mik-
inn auð — ótrúlega mikinn auð,
en maður hennar hafði hagað fjár
festingu þannig, að hann var að
mestu undanþeginn sköttum, en
hún leit á það, sem henni hafði
hlotnazt aðeins sem hjálparmeðal
til þess að öðlast það, sem hún
þráði. Hún lifði í tómi auðs og
glæsileika. Aldrei hafði hún nvik-
að frá áðurgreindum ásetningi,
en það furðulega var, að ef þeir
þama í Lewisburg vom ekki bún-
ir að gleyma henni, mundu þeir
mavglr hafa óskað henni góðs
gengis. Mary — hreingerningar-
konan, var dauð — og hin fagra
dóttir hennar næstum gleymd, En
ásetningur hennar var henni orku-
’íjafi sem aldrei dvínaði, hann
brann hið innra með henni sem
'rogi, sem aldrei dofnaði, og þannig
hefði það getað verið ævina á
mda — ef ekki hefði verið vegna
óess. sem gerðist í Frakklandi.
•ikömmu eftir hófið i Haddon-
field House fór ég í ferðalag til
meginlandsins, til Vínarborgar,
Moskvu, Stokkhólms, Berlínar og
Rómaborgar og að lokum til Par-
ísar og var það í októbermánuði,
•sem ég kom þangað. Hvarvetna,
bar serri' ég kom sá ég bresti I öll
um stoðum nema Moskvu heim, þar
sem undirhyggjumenn og bragða-
refir vom áhrifamestir, heim lítil
menna, heim, þar sem skortur var
heiðarleika og sannrar fomstu,
svo að vart gat nokkurs staðar
að líta afburða stjómmálamenn,
vitran forustumann. 1 Vínarborg
var allt með svip hins rnáða og
lúna og aumkunnarlega. Vínarborg
var eins og gömul gleðikona, sem
eitt sinn hafði verið fögur.
í Berlín ríkti eitthvað, sem að
minnsta kosti hafði á sér brag
reglu og skipulags, — skipulags,
sem mér fannst þó að aldrei
mundi geta átt sér nokkurn aldur,
ekki aðeins vegna þeirrar sundr-
ungar, heimsku og máttlevsis, sem
ríkjandi var í þeim löndum, sem
skipulagið átti að eyðileggja,
heldur líka vegna þess, að í þessum
löndum voru menn, sem voru reiðu
búnir til þess að greiða götu þess,
menn eins og Bonnet og Schusn-
igg, Chamberlain og Ciano, menn,
sem studdu það annað hvort af
heimsku eða í eigin hagsmuna
skyni.
í Frakklandi lá við byltingu
vegna spillingar og svika ríkis-
stjómarinnar í landinu.
En verst var þetta í Rómaborg.
Einræðisherrann hafði á snærum
sínum hálfa tylft kvenna, sem í
raun réttri voru gleðikonur, þótt
nokkur stigmunur væri á. Ciano —
utanríkisráðherrann var einn af
heilli tylft viðvaninga í hópi diplo-
mata, og rákust menn títt á hann
í hófum, þar sem aðalskemmtunin
var fjárhættuspil, 'sem stóð fram
á rauða morgun. I Grand og Ex-
14.
celsior var allt fullt af Rússum,
Frökkum, Þjóðverjum, Englend-
ingum, Austurríkismönnum, Spán
verjum — og enginn þeirra til þess
að þjóna neinum góðum tilgangi
og svo voru þarna líka vellrilír
Bandaríkjamenn af þeirri ein-
földu ánægju, að þeir vildu njóta
þess að vera þátttakendur í þesu
mikla spillingar- og svallhófi álf
unnar. Og — svo furðulegt sem
það var — þá var ekki heimsborg
ara-andrúmsloft ríkjandi í Róma
borg — andrúmsloftið minnti á
höfuðstað héraðs- eða fylkisborg
ar, þar sem allt logar í kjaftæði,
rógi og öfund. Maður hafði á til-
finningunni, að drottningin, Col-
onna prinsessa og frú Mussolini
hlytu að skreppa niður á aðaljám-
brautarstöðina til þess að sjá lest-
imar koma og fara.
Það var í Rómaborg, sem fund-
um okkar Önnu bar aftur saman.
Henni hafði orðið vel ágengt. Nafn
hennar var á allra vömm. Brezki
ambassadorinn — vafalaust til
þess hvattur frá yfirboðumm í
Lundúnaborg, — hafði boð mikið
henni til heiðurs daginn eftir
komu hennar. Og frá þeirri stundu
hafði hún verið hvarvetna þar sem
eitthvað var um að vera, hún var
á hinum miklu dansleikjum, sem
fólk af Colonna, Pecci, og Rospig-
liosiættunum efndi til f smáveizl-
um Ciano og Eddu Mussolini (la
petroleuse eins og hún var kölluð
í franska sendiráðinu) — en í þeim
veizlum var tefld kotra eða spilað
ur poker — og stórfjárhæðir í
borði.
Fáeinir virtust hafa lesið önnu
niður í kjölinn, hlógu að henni og
voru beiskyrtir í garð óheflaðra
Bandaríkjamanna, karla og kvenna,
sem hugðu sig geta fengið allt
fyrir peninga. En hún var hafin
til skýjanna af flestum. Hún hafði
ekki á sér sjónleikslegan glæsi-
brag, þótt fögur væri. Hún neytti
ekki áfengis í óhófi, hún þurfti
ekki áhrifa þess með til þess að
geta notið ánægju sinnar af að
vera á þessum vettvangi — hún,
ANNIE — dóttir hreingeminga-
konunnar — f félagsskap á stund
um með sjálfum Mussolini (sem
var sonur heiðvirðs jámsmiðs) og
dóttur hans (sem ekki fékk löggetn
ingarvottorð fyrr en hún var full-
orðin), og utanríkisráðherra (sem
í raun réttri var eins konar gigolo,
en þvf nefni nefnast ungir ftalskir
iðjuleysingar og spjátmngar, sem
títt eru fylgdarsveinar auðugra,
miðaldra kvenna, eða láta gleði-
kvendi sjá fyrir sér) prinsessu,
sem var dóttir auðugs teppakaup-
manns á Sýrlandi, páfalegur greifi,
sem var ósköp venjulegur New
York-búi, og fjölda margir, sem
bám fræg nöfn, sem enn var á
ljómi endurreisnartímabilsins. Það
vantaði ekki birtuna á þessu leik-
sviði né, að leiktjöldin væru ekki
skrautleg.
Á þessum vettvangi eða braut
glæsibragsins og spillingarinnar
gat Anna skemmt sér, haft á sér
taumhald éða sleppt þvf fram ’af
sér, að geðþótta, — þar gátu menn
innan marka hans, hagað sér að
vild, ef menn vom nógu auðugir,
nógu kænir og nógu ósvffnir. Á
þeim dansleik spillingarinnar sem
haldinn var í Evrópu á þessum
tíma náði hún hámarki f Róma-
borg.
Þótt einkennilegt væri komust
engar hneykslissögur á kreik um
Önnu, þegar undantekið er, að
hún olli hneyksli á þeim vettvangi
sem hún hafði valið sér, vegna
þess að hún tók sér ekki ástmann
— ekki einu sinni neinn til þess
að leika slfkt hlutverk. Hún lifði
hreinleikans lífi f Sódóma og
Gómorra Excelsior gistihúss alveg
eins og hún hafði gert í Haddon-
field House í Lundúnum — hafði
bara sitt þjónustufólk — og einka
ritara sinn — ungfrú Godwin.
Ég verð að játa, að það vakti
furðu mína, að svona var þetta,
þegar ég minntist hinnar blóm-
legu ungu stúlku, sem sat gegnt
mér f skólanum í Lewisburg. Mér
fannst það gagnstætt öllu sem ég
hafði kynnzt eða hafði gert mér
í hugarlund, að Anna eða nokkur
Ég hefi þegar lýst henni nokkuð
eins og Hún kom mér fyrir sjónir f
hófinu í Haddonfield House. Hún
var jafnan við hlið Önnu hvert
sem hún fór, og það er mikilvægt
að muna það, að hvar sem hún
kom, sá og sigpaði, er hún
kynntist nýju fólki, var ungfrú
Godwin henni stoð og stytta. Ef
til vill var hún eini, sanni
vinur hennar. Hún lét miklu meira
í té en henni bar, — hún spurði
ekki um laun, og hún veitti henni
það, sem var margfalt meira virði
en hægt var að fá fyrir laun,
hversu há sem þau voru, því að
hún gæddi hana virðingu og sið-
ferðilegu þreki, og verndaði hana
gegn öllum, sem ella hefðu reynt
að svíkja út úr henni fé, blekkja
hana, traðka á henni.
Það var hún, einkaritarinn, ung
frú Godwin, sem hafði svör við
öllu: Á yfirborðinu var gamla tím-
ans virðingarsvipur en hið innra
fyrir var sú vizka lífsreynslunnar,
sem þróazt hafði við áhyggjur
harma og mótlæti liðsins tíma.
Eitt sinn — fyrir löngu, — hafði
einnig hún verið auðug, og þá
hafði hún gist sali þeirrar Evrópu,
sem var gerólik Evrópu árin milli
heimsstyrjaldanna — Evrópu
valdatímabils Játvarðs VII. Ung-
frú Godwin gat gert sér nána
ferein' fyrir hvers virði 'vár líóna
eins og lafði Haddonfield eða
greifafrú Ciano. Hún vissi um
hverjir höfðu hafizt til vegs án
eigin atgervis og hverjir án þess
að læra neitt meðan þeir voru
að upphefjast, og hún þekkti þá
úr, sem lífið hafði lagt allt upp
i hendurnar á, til þess að komast
áfram, en varpað því frá sér og
raunverulega engu betri orðnir en
svikarefir og trúðar.
Það var sannast að segja eins og
góðar forlagadísir hefðu sent hana
til Önnu, þegar hún dag nokkum
vegna meðmæla kunningja hringdi
í Ritz-gistihús í New York, vegna
þess að þar bjó þá auðug kona,
frú Anna Bolton, sem þurfti á
ferðafélaga og einkaritara að halda
Lyftubíllinn
Sími 35643
Það sem var áður lítill lækur er nú orðið Ég hefði átt að
WE CAM'T STAY HEEE -
WE C0UU7 PROWN!..
r ISH0UL7 HAVE
REAUZE7 THAT
WE WEK.E IN A j
VALLEY WHEM .
I SAW THE , /
Rwatekfall!)
ITO, WE ttUST ^
TAK.E OUR CHAHCES
IN THE FOEESTÉÍ
gera mer grem rynr ao Viö getum ekki verið hér við gærurn drukkn
að beljandi kvísl, sem brýtur yfir bakkann við værum í dalverpi, þegar ég sá fossinn. að. Ito við verðum að hætta á það að fara
og flæðir yfir nálægt svæði. Tarzan hvaðan
inn í skóginn. Förum.
er þetta vatn, sem flæðir inn á okkur?
EFLIÐ
SAMBAND
ÆTTINGJA
OG VINA
ERLENDIS
VIÐ
ISLAND
SENDIÐ
ÞEIM
ÁRSÁSKRIFT
AÐ VÍSI
/
I
JÚLAGJÖF
ÁSKRIFTARSIMI
1-16-61
, wkswm
KOPAVOGUR j
4fgreiðslu VÍSIS i Kópa j
vogi annast frú Bima
Karlsdóttir, sími 41168. j
Afgreiðslafi skráir
nýja kaupendur og
þangað ber að snúa
sér, ef um kvartanir
er að ræða
HAFMARFJðRÐUR
Afgreiðslu VÍSIS í
Hafnarfirði annast frú
Guðrún Ásgeirsdóttií,
sími 50641
Afgreiðslan skráii
nýja kaupendur og
þangað ber að snúa
sér, ef um kvartanii
er að ræða
KEFLAVÍK
Afgreiðslu VÍSIS í Kefla
/ík annast Georg Orms-
on. sími 1349.
! Afgreiðslan skráir
nýja kaupendur og
bangað ber að snúa
sér. ef um kvartann
er að ræða
Auglýsi: í Vísi
eykur viðskiptir