Vísir - 04.07.1966, Qupperneq 2
V í S IR . Mánudagur 4. júlí 1966.
Danska liöiö við komuna til Reykjavíkur. Myndin var tekin á Austurvelli.
Rætist ImgþráSur draumur?
ViÓ höfum lengi beðið eftir sigri gegn
Dönum og nú er eitt tækifærið enn
% Danska landsliðið í
knattspymu (leikmenn
yngri en 24 ára) kom
flugleiðis til Reykjavík-
ur í gærkvöldi og lenti
um ellefu-leytið á
Reykjavíkurflugvelli í
fallegu kvöldveðri. í
kvöld er enn einn „Dana
slagur,“ — og enn einu
sinni vonum við að ÍS-
LAND VINNI.
Og ísland getur unnið. Leik-
ur ungu leikmannanna okkar
gegn biaðaliðinu, blaðaliði, sem
loks sýndi baráttuviija og góða
samleikskafla, iofar öllu góðu
um áframhaldið. Landsiiðsnefnd
gerði vonandi það rétta, að
breyta ekki liðinu frá þeim leik.
Dönsku leikmennimir voru
fullir af fróðleiksfýsn, þegar
þeir lentu í Reykjavik. Þeir
spurðu ekki svo mikiö um hve
margir íbúar byggju þetta kvöld
roðaða land, heldur hvemig leik
ur félaga sinna gegn Englend-
ingum skömmu áður hefði far-
ið. Og svarið fékkst von bráðar,
Danir höfðu staðið sig vel, tap
að „aðeins“ 0:2 og átt góðan
leik. í þeim leik vom tveir félag
ar piltanna, sem raunar áttu að
koma hingað, en vom kvaddir
til þessa leiks á síðustu stundu.
Vom það miðvörðurinn Henn-
ing Boel frá Ikast og Schmidt
frá Horsens, en hann leikur á
hægri kanti.
Islenzku leikmennimir hafa
haft náðuga daga um helgina,
hvílt sig og reynt að safna þeim
krafti, sem nægir til að vinna
loks erfðafjenduma Dani, en sá
draumur hefur lengi verið að
rætast. En hver veit nema hann
rætist í kvöld á Laugardalsvelli.
Þaö hefur oft verið haft á
orði hve orðlatir áhorfendur
væm þegar fsland léki lands-
leiki. Það hefur stundum farið
öðm visi, fólkið hefur drifið
liðin áfram með hvatningarorð-
um. Og það er raunar ekki þörf
á að láta þess getið hér að
aðaluppistaðan í kallkómum í
kvöld ætti að vera „ÁFRAM ÍS-
LAND!“
-jbp.-
ÍSÍ-ÞING
Á ÍSAFIRÐI
í HAUST
íþróttaþing, ÍSf, verður haldið á
ísafirði næsta haust. Var frá þessu
skýrt á þingi ÍBf á ísafirði I gær-
dag, og er þetta gert í tilefni af
100 ára afmæli fsafjarðarkaupstað-
ar, sem er um þessar mundir.
FH í VAND-
RÆÐUM
FH horfir fram á mikla erfiðleika.
Liðið tapaði enn einum leik f 2.
deildinni í knattspymu og er í
falihættu í 2. deildinni. Siglfirðing
ar unnu FH í leik liðanna í gær á
Siglufirði í geysihörðum og spenn
andi leik.
Lauk leiknum með 2 : 1 sigri Sigl
firðinga og var staðan í hálfleik
1:0 fyrir Siglufjörð, en í seinni
hálfleik skoruðu báðir aðilar úr
vftaspymum.
ÖLFUSINGAR
UNNU 1:0
Ölfusingar unnu fyrsta leik 3.
deildar, sem fram fór f gær á Sauð
árkróki.
Leiknum lauk svo að aðkomu-
menn unnu heimamenn með einu
marki gegn engu og hlutu þar með
fyrstu stigin f þessari nýstofnuðu
deild.
m V'Já&ÍÆM
Tveir landsliösfélagar bera á mflli sín körfuna meö landsliösbún-
ingunum.
ENGINN ÍSL DOMARIA
HM / HANDKNA TTLEIK
Kópavogur í
úrslit 2 deildar
Á fsafirði urðu heimamenn að
horfa á eftir tveim stigum til Kópa
vogs f 2. deildarkeppninni. Þessi
tvö stig fyrir 3:1 sigur Kópavog
þýða það að Breiðablik lendir í úr-
slitum í deildinni, líklega gegn
Fram, á Laugardalsvellinum í
Reykjavík. Þetta þýðir jafnframt
að fsfirðingar eru í fallhættu f 3.
deild. Yrði það mikið áfall fyrir
ísfirðinga, sem fyrir nokkrum ár-
um léku f 1. deild.
Fyrri hálfleikur var nokkuð
jafn og allvel leikinn. Lauk hon
um svo að ísfirðingar skoruðu eina
markið. í seinni hálfleik tóku Kópa
vogsmenn völdin í sínar hendur og
skorðu 3 mörk en fsfirðingar ekk
ert, eitt markanna var skorað úr
vítaspyrnu.
Enginn íslenzkur dómari var
útnefndur til aö dæma leiki
heimsmeistarakeppninnar i hand
knattlelk f Sviþjóð í janúar
næsta ár. Það var tækninefnd
alþjóðasambandsins, sem út-
nefndi 14 dómara, sem dæma
eiga leikina i aðalkeppnlnnl og
þrátt fyrir það að fslendingar
hafi lagt á það ríka áherzlu aö
fá a.m.k. einn dómara f þennan
hóp hefur tækninefndln ekki
getað orðiö viö þeim tilmælum
og verður að segja eins og er,
aö þetta eru mikil vonbrlgðl fyr
ir þá fslenzku dómara, sem
fremstir eru, enda standast þeir
„kollegum“ sfnum f Evrópu
fyllllega samanburö.
Dómaramir, sem uröu fyrir
valinu em þessir:
Knud Knudsen, Danmörku,
Gavrilo Gojnic, Júgóslavfu, Vas
ile Sidea, Rúmeniu, C. Akhund-
ov, Sovétríkjunum, Thorild Jan-
erstam, Svfþjóö, G. Fulöp, Ung-
verjalandi, Horst Giinter Sch-
nelder, V.-Þýzkalandl, Claude
Martin, Frakklandi, Knut NIls-
son, Noregi, Bruno Freivogel,
Sviss, Hans Carlsson, Svfþjóö,
Jan Dolezal, Tékkóslóvakíu,
Hans Romaniath, V.-Þýzkalandi
Kurt Schoof, A.-Þýzkalandi.
Margir þessara dómaafc em fs
lendingum kunnir. Knudsen,
Nilsson og Karlsson hafa allir
dæmt hér og vakiö athygli fyrir
góða dóma sfna. Hans Carlsson
er einnig frægur knattspymu-
dómari og í ísknattleik má oft
sjá hann í dómarabúningi. Fyr-
ir nokkrum dögum dæmdi hann
landsleik Englendinga og Norð-
manna í knattspymu.
SELFOSS VANN
BORGARNES
Selfyssingar unnu leik sinn gegn
Borgnesingum f 3. deild í gærdag.
Fjöldi manns hafði safnazt saman
við nýja og fallega grasvöllinn á
Selfossi til að sjá heimaliðið í sín
um fyrsta deildaleik, — og hinir
ungu liðsmenn sviku áhorfendur
ekki, því að lið þeirra hefur mörg
um efnileguni leikmönnum á að
skipa.
í liði Borgnesinga voru tveir
gamlir Iandsliðsmenn, Sveinn Teits
son og Skúli Hákonarson, af Akra
nesi, en gömul kempa, þjálfari Sel
fyssinga, Guðmundur Guðmunds-
son keppti með Selfyssingum og
átti drýgstan þátt í sigurmarkinu.
í hálfleik var staðan 1:0 fyrir
Borgnesinga, en það mark var
sjálfsmark. Selfyssingar jöfnuðu
snemma en Borgnesingar skora 2:1
og enn jafna Selfyssingar, þá úr
vítaspyrnu. Síðasta markið kom úr
fyrirgjöf Guðmundar Guðmunds-
sonar utan af kanti laglegt mark.
Unnu Selfyssingar því þennan leik
og unnu á betra úthaldi. Míkla at-
hygli vakti markvörður Borgnes-
inga, efni, sem ætti áð Iáta meira
að sér kveða í framtíðinni.