Vísir - 20.08.1966, Side 6
o
Þrír aðaNeikendanna á Reykjavikurflugvelli í gær: Wisnevsky, Uwe Bey
er (SSgurður Fáfnisbani), Rolf Henninger (Gunnar Gjúkason).
Þýzka kvikmyndafólkið kom i gær:
Surtsey notuð sem
eldfjall í myndinni
VISIR. Laugardagur 20. ágúst 1966.
skilningi, annars vegar í sam-
bandi við fyrirhugaða breytingu
á læknishéruðum, þar sem í at-
hugun er að sameina tvö eöa
fleiri læknishéruð og hafa eina
læknamiðstöð fyrir héruðin, en
hins vegar hefur orðið lækna-
miðstöð veriö notað um sam
vinnu lækna í einu læknishér-
aði eins og t. d. fyrirhugað er
á Húsavík og í Vestmannaeyj-
um.
Áhugi mun nú vera mikill
meðal lækna í landinu á sam-
starfi og eru t. d. þeir tveir
læknar sem sitja á Sauðárkróki
að undirbúa samstarf og á
Hvammstanga hefur verið vísir
að slíku samstarfi.
Hífeladalur —
Framhaíd af bls. 16
bátar héðan á snurvoð og hefur
afli þeirra veriö ágætur, en gæft
ir hins vegar verið frekar stirðar
Byggingarframkvæmdir eru all-
miklar á staðnum. Nýlega var
hafizt handa um nýbyggingu
Pósts og síma og veröur það
mikil bygging. Þá er og verzlun
Jón Bjarnason að auka viö hús-
næði sitt, verður þaö 50 ferm.
viöbygging á þremur hæðum.
Nýr bamaskóli veröur væntan-
lega tekinn í notkun í haust, en
bygging hans hefur staðiö lengi
yfir og gengið hálferfiölega. Nú
er verið aö ljúka við að mála
bygginguna og leggja síöustu
hönd á innréttingu hennar.
Skólabyggingin er á tveimur
hæöum, og eru í henni 4 stór-
ar kennslustofur auk aöstööu
fyrir skólastjóra og kennara.
Söltun —
Framhald af bls. 16
Sauöárkrók. — Til þessa hefur
sáralítið verið saltað á Eyja-
fjarðarhöfnum og aðeins rúm-
ar 5 þús. tunnur á Siglufirði. —
Haföminn, nýja síldarflutninga
skipið ríkisverksmiðjanna var á
Siglufirði og landaöi þar 2650
tonnum og gekk löndunin mjög
vel, skipið er nú á leið aftur á
miðin.
Mest mún þó um aö vera á
Raufarhöfn. Hreiöar Valtýsson
hjá Norðursíld, sagði í samtali
við Vísi síðdegis í gær að fram
boðið á síldinni væri miklu
meira en þessar 10 söltunar-
stöðvar á staðnum gætu annaö
og væri þó saltað á þeim öllum
— Nýting aflans til söltunar
virtist mjög góð og fulltrúar
kaupendanna, sem staddir eru á
Raufarhöfn væru mjög ánægðir
með síldina.
— Við erum að byrja söltun úr
þriðja skipinu og búnir að salta
um 1000 tunnur síðan i gær-
kvöldi sagði Hreiðar og hérna
vinna mikil 60 og 70 stúlkur, en
við fluttum stúlkur frá Seyðis
firði i gærkvöldi, þegar fréttist
um þessa miklu og góðu síld
hér noröur frá. — Mér finnst
Tryggvi Gunnarsson skipstjóri
á Siguröi Bjamasyni eiga þakkir
skildar fyrir að taka sig svona
út úr flotanum og sigla einskipa
þarna noröureftir. Hann fékk
þarna góöan afla sólarhring á
undan öðrum, sem varð til þess
aö allur flotinn kom á eftir,
sagði Hreiðar að lokum.
Loks höfðum við samband við
Kristján Sigurðsson hjá söltun-
arstööinni Bára á Eskifiröi, stóð
þá yfir söltun úr tveimur skip
um, sem komu af syöra svæðinu
— Síldin er stór og feit, sagði
hann og alveg óskemmd. Þetta
er fyrsta almennilega síldin sem
við fáum í salt héma og ég
gizka á að nýtingin verði um
60%, við vorum búnir að salta
f 850 tunnur fyrir þessa töm,
en hæsta planið hér, Auðbjörg,
er nú komiö með um 3 þúsund.
Bílaþurrkunarstöðin er lengst til vinstri í þvottastöðinni.
jburrkaðir og ryksognir á 10 minútum
Kl. 10 í gærkveldi kom til
Reykjavfkur, með flugvél Flugfé-
lags íslands, 35 manna hópur
þýzks kvikmyndafólks, sem mun
dveljast hér f rúman hálfan mánuö
við töku myndarinnar „Die Nibel-
ungen". Það er þýzka kvikmynda-
fyrirtækið C C C-film, sem lætur
gera þessa mynd, sem verður sú
dýrasta, sem Þjóðverjar hafa ráð-
izt í, en hluta útiatriðanna á aö
taka hér á landi.
í HveravelGir —
Framhald af bls. 1.
ir aö spyrja þau hvernig dvölin
á öræfunum legðist i þau.
„Ágætlega“, segir Kristján,
sem veröur aðallega fyrir svör-
um og Hulda tékur undir það.
„Við eigum fjórtán ára dóttur
en hún verður ekki með okkur,
veröur í heimavistarskóla í vet-
ur, ég held að henni lítist ekld
svo illa á þetta, hún kemur til
með að vera hjá okkur næsta
sumar og ég htíid, að hún
hlakkl til þess. Annnrs stírðnaði
fólk upp, þegar maður sagðist
vera að fara, það heldur að
þetta sé milclu erfiðara, en það
er í raun og veru,“ segir Krist
ján.
Hvemig þeim hafl dottið f
hug að sækja um starfið, og
hyort þau kvíði ekki vistinni?
„Það eru fyrst og fremst laun
in, sem eru sæmileg er þaö
ekkj það, sem fólk sækist eftir
f dag? Við erum alin upp á
þeim stöðum þar sem er hörð
veðrátta, á Vestfjörðum og
Austfjörðum, ég er ísfirðingur,
en Hulda Reyðfirðingur. Ég segí
fyrir mig, að mér iíður ekki illa
þótt ég sjái snjó“.
Hér grípur Þórir Sigurðsson
veðurfræðingur inn í samtalið
og segir, að snjólétt hafi verið á
Hveravöllum í vetur, mesta snjó
dýptin hafi mælzt á annan
metra og að síðasti snjór hafi
horfið þann 31 maí
Gera verður veðurathuganir
á þriggja stunda fresti, en hjón-
in láta sér ekki bregða við það.
„Við höfum ekkert annað að
gera“, segir Hulda.
„Við hlökkum bæði til þess
að fara“, segir Kristján, „þótt
við verðum þama í aiian vetur
þá held ég að það verði ekki
meiri einangrun en á sumum
sveitabæjum í gamla daga. Við
höfum þó bæði talstöð og út-
varp“.
Framkvæmdastjórinn við kvik-
myndatökuna, Caritovski, gat
þess, er Vísir náði tali af honum
á flugvellinum f gær, aö flogið
hefði veriö yfir Surtsey, en til
stæði aö nota hana fyrir eldfjall
f myndinni. Væri því einkar hag-
stætt fyrir myndatökuna að gosið
væri byrjað þar aftur.
Meðal leikenda í myndinni eru
margir þekktir þýzkir leikarar —
Leikstjórinn, Dr. Reinl, gat þess
að hin þekkta kvikmyndaleikkona
Karin Dor heföi ekki getað komiö
fyrr en í dag ( laugardag) þar eð
hún hefði verið að leika í nýrri
James Bond-mynd í Japan og
kæmi hún beint þaöan.
Surtur —
Framh. af bls 1.
morgunsárið aö sögn Áma
Johnsens athugunarmanns, þeg
ar blaðið talaði við hann í gær
kvöldi. Hefur Ámi verið við
athuganir úti í Surtsey und-
anfariö og varð fyrstur manna
var við gosið, lýsti hann því á
þessa leið.
— Gosið hefur töluvert sfö-
an f dag og er hrauntungan
samfelld, 250 m. á lengd, lið-
lega 100 m. á breidd og iíklega
3 m. á hæð. Hér hefur aldrei
verið hraungos áður, aðeins
öskugos. Mótaðist gosið úr
þrem hrauntöppum og sér í
opna spranguna 150 m. á lengd
og breiddin er breytileg frá
7-15 m. Gosstöðvamar eru aust
arlega á eynni um 500 m. frá
hömrunum.
Ég var á gangi austur með
eynni um eittleytið ásamt Sig-
urði Richter, sem ætlaði um
borð í Maríu Júlíu, þegar viö
heyrðum mikinn hvin og læti í
loftinu. Þegar fyrir fjallsnöf-
ina kom austarlega á eynni sá
ég alla dýrðina. Um morgun-
inn haföi ég vaknað við jarð-
skjálftakipp, þegar klukkan
var að halla í sjö, en sinnti því
engu, þar sem þarna eru oft
jaröhræringar, þótt þeirra hefði
ekki orðið vart f nokkra daga.
Gosiö verður tilkomumeira,
þegar líður á kvöldið og sól
sezt, sagöi Ámi að lokum, séð
í austur er rauð glóð, sem legg
ur daun af og hita, en hraun-
sletturnar ná allt aö 50 m. í
loft upp.
Tvæ.r ferðir voru farnar út
f Surtsey í gærdag frá Heimaey
með vfsindamenn, kom fyrri
hópurinn þangað kl. 6.15.
Fóru út f eyju þeir Þorbjöm
Sigurgeirsson prófessor, Sig-
urður Steinþórsson, jarðfræð-
ingur, Steingrímur Hermanns-
son, formaður Rannsóknarráös
ríkisins, Bandaríkjamaöur nokk
ur og Osvaldur Knudsen. Flutti
þyrla Landhelgisgæzlunnar þá
úr eynni um kvöldið nema Þor-
bjöm og Osvald, sem urðu eftir
í eyjunni ásamt Áma. Um morg-
uninn var von á Sigurði Þórar-
inssyni o.fl. vísindamönnum til
eyjarinnar.
Um hálftíu í gærkvöldi náði
blaðið tali af Þorbimi Sigur-
geirssyni þar sem hann var
staddur f Surtsey.
— Ég er að huga að jarð-
skjálftamælum, sagði Þorbjörn
Mælarnir era fimm á ýmsum
stöðum á eyjunni. Var einn
mælanna rétt þar hjá sem gos
ið kom upp, en gosið eyöilagöi
leiðslu f mælinn, sem tók jarð-
hræringarnar upp á segulband
og verður lesið úr þeim síðar.
Við sjáum ekki að svo stöddu
hvenær gosið byrjaöi, en Ámi
Johnsen vaknaði upp við jarð
skjálftakipp kl. 7 í morgun og
getur það verið byrjun á gosinu
Sagði Þorbjöm að lokum að f
ráði væri að fara og mæla
hitastigið þá á eftir en úr Surts
ey fer hann morguninn eftir.
fþróttir —
• .mhald af bls 2
Markús Jóhannsson bar sigur úr
býtum. Markús er sonur hins góð
kunna kylfings, Jóhanns Eyjólfs-
sonar, og er aðeins 15 ára gam-
all. Hann hefur verið mjög á-
hugasamur við æfingar og keppni
í sumar, og má áreiðanlega mik-
ils af honum vænta f framtíð-
inni, ef hann leggur áfram slíka alúð
í þjálfunina. Ásamt honum hafa
nokkrir aðrir unglingar æft allvel
í sumar og verður gaman aö fylgj
ast með meistarakeppni unglinga,
sem háð verður í lok þessa mánað-
ar. Urslit urðu annars sem hér
segir:
högg
1. Markús Jóhannsson 64-20= 44
2. Hilmar Pietsch 66-21=45
3. Haukur Guðmundss. 60-14=46
4. Erlendur Einarsson 64-17=47
5. Jónatan Ólafsson 73-23=50
Læknamiðstöð -
Framh. af bls. 1.
Á tillöguuppdráttum þeim,
sem nú liggja fyrir heilbrigöis-
yfirvöldunum er heilsuvemdar-
stöð f sambandi við læknamið-
stöðina en áður var búið að
ákveða teikningu að heilsuvernd
arstöð í sambandi við sjúkra-
húsið. Er ákvörðunar um þessi
mál að vænta innan skamms.
Eins og fram kom í viðtali
við Gisla Auðunsson lækni f
Vísi í fyrradag, mun verða kom-
ið á fót lækningamiðstöð á Húsa
vík í haust, með samstarfi
lækna sem þar eru, en þeir verða
tveir í vetur. Það skal tekið
fram að orðið læknamiðstöð
hefur verið notað í tvennum
Fyrstí
Bilarnir þvegnir,
Bílaþurrkari hefur verið tekinn
í notkun í þvottastöðinni við Suður
landsbraut og þurrkar hann bílana
eftir þvottinn og tekur þurrkun-
in ekki nema 2]/2 mínútu. Þá er og
hægt að fá bílana ryksogna að inn
an á sama stað og tekur þvottur,
þurrkur og ryksugun ekki nema
um 10 mínútur.
Þvottastöðin hefur nú verið
starfrækt í 10 mánuöi með góðum
árangri og eru það tvær sjálfvirk
ar þvottavélar sem þvo bílana upp
úr bílaþvottaefni, sem skilur eftir
siliconhúð á bílunum, og eftir að
þurrkarinn hefur feykt vatninu af
meö sterkum loftblæstri gljáir lakk
ið næstum eins og nýbónað væri.
Verö á þurrkun veröur frá kr. 25
til kr. 35 eftir stærö bíla og ryk-
sugun kostar 15 kr. Stöðvarstjóri
er Wágner Walbom.
Milli kl. 9 og 11 á morgnana
verður hægt að panta tíma fyrir
bílana og geta þeir sem vilja skil
ið þá eftir í umsjá stöðvarstjóra.