Vísir - 20.08.1966, Page 8
,8
V í S I R . Laugardagur 20. ágúst 1966.
VISIR
Otgefandl: Blaðaútgáfan VISIR
Ritstjórl: Gunnai G. Schram
Aðstoðarritstjórl: Axel Thorstelnson
Fréttastjóri: Jónas Kristjánsson
Auglýsingastj.: Oalldór Jónsson
Auglýsingar' Þingholtsstræti 1
Afgreiðsla: Túngötu 7
Ritstjóm: Laugavegi 178. Sfmi 11660 (5 linur)
Áskriftargjald kr. 100.00 á mánuöi innanlands.
I lausasölu kr. 7,00 eintakið
Prentsmiðja Vlsis — Edda h.f.
Sorpskrif Timans
Tíminn hefur undanfarið verið að endurtaka gömul
ósannindi sín um lausn landhelgisdeilunnar. Það er
furðuleg óskammfeilni hjá blaðinu, að tyggja enn á
ný upp þann blekkingavaðal, sem þar flæddi um all-
ar síður um það leyti, sem lausn deilunnar stóð yfir.
Og það ber vott um takmarkalausa fyrirlitningu á
dómgreind almennings, að bjóða honum enn upp á
að trúa þessum þvættingi.
Lausn landhelgisdeilunnar var stjórnmálaafrek sem
allar ríkisstjórnir hefðu verið stoltar af, enda er mála
sannast, að forustumenn stjórnarandstöðunnar voru
grænir af öfuncf yfir því, að viðreisnarstjórninni
skyldi takast svo giftusamlega sem raun varð á um
lausn þessa erfiða deilumáls. Vinstri stjómin hafði
léð máls á, eða jafnvel boðið upp á samninga, sem
gengu miklu skemmra en það samkomulag, sem
Tíminn er að fordæma.
Öll þjóðin, að undanteknum nokkrum pólitískum
ofstækismönnum í forustuliði stjórnarandstæðinga,
fagnaði lausn landhelgisdeilunnar og taldi hana mik-
inn sigur fyrir íslendinga. Þúsundir manna, sem að
öðru leyti eru andstæðir núverandi ríkisstjóm, við-
urkenna, að í landhelgismálinu hafi mikið samnings-
afrek verið unnið.
Vinstri stjómin fór að mörgu leyti óheppilega að í
landhelgismálinu. Þar voru áhrif kommúnista fyrst
og fremst að verki. Þeir vonuðust til að útfærsla
fiskveiðilögsögunnar gæti komið af stað illindum,
sem yrðu til að hrekja okkur úr Atlantshafsbandalag-
inu. Það var þeim aðalkeppikeflið. En þarna var jafn-
framt gullið tækifæri til þess að láta líta svo út, að
þeir væru að hugsa um þjóöarhag.
Hvenær sem Tíminn hefur hreyft þessu máli, hafa
þau skrif verið hrakin svo gersamlega, að þar hefur
ekki staðið steinn yfir steini. Og öll þjóðin veit fyrir
löngu, að blaðið fer þama með blekkingar og stað-
lausa stafi. Það mætti því halda þessum vaðli áfram
endalaust þjóðarinnar vegna. Hún tekur ekkert mark
á honum. En það getur orðið málstað okkar skaðlegt
út á við þegar málgagn næststærsta stjómmálaflokks
ins í landinu rangtúlkar sýknt og heilagt samninga
við önnur ríki. En sem betur fer er þetta oftast gert
á svo ofstækisfullan og klaufalegan hátt, að slík skrif
munu hvergi vera tekin alvarlega. Þetta er blaða-
mennska á lægsta stigi, eða hvað segja þeir, sem lásu
„Á víðavangi" í Tímanum sl. miðvikudag? Er hægt
að hugsa sér öllu tuddalegri og ófyrirleitnari sam-
setningu? Tæplega. Þeir mega hafa sig alla við í Þjóð-
viljanum, ef þeir eiga að komast svo langt í dónaskap.
Það er engu líkara en ritstjórar Tímans keppi mark-
visst að því að gera hann að mesta sorpblaði á ís-
landi.
Hvar verður
Shape staðsett?
Þaö er deilt áfram um það
hvar SHAPE — herstjórnarstöð
N-Atlantshafsbandalagsins eigi
að vera, en það á að vera búið
að flytja hana frá Frakklandi
innan 7 mánaða.
Bandalaginu stendur til boöa
að hún veröi staðsett I Belgíu,
en eins og áður hefur veriö getið
er Lemnitzer yfirhershöfðingi
bandalagsins óánægður með
staðinn, sem í boði er —
Brosio
Chievrés-Casteau, milli Ath og
Mons, en Lemnitzer vill stað-
setningu nær Briissel, á Wavre
eða Waterloo-svæðinu.
Lemnitzer kom og skoðaöi
Chievres-Casteau-landsvæðið 1.
ágúst. Það var hellirigning og í-
búamir fóra ekki út fyrir hús-
dyr og á húsum margra voru
spjöld með óvinsamlegum orð-
um í garð NATO. Ekki hafði
Lemnitzer miklar áhyggjur af
því og fór þegar til Wavre.
Meðal þess, sem Lemnitzer fann
staðnum til foráttu er, að það-
an er 80 mínútna akstur til
Brússel, en þar eru margar
NATO-skrifstofur (að vísu ekki
hemaðarlegar) og hálfs annars
tíma akstur til alþjóðaflughafn
arinnar. Á hinn bóginn er þess
að geta, að það er hemaðariegur
flugvöllur nálægt Chievrés-Cast
eau, og áformað er að leggja
bílabraut milli Brússel um Mons
til Parísar, skammt frá þeim
stað, sem aöalbygging stöðvar-
innar myndi standa. Lemnitzer
virðist hafa gran um að belg-
íska stjómin vilji ekki leggja
fram fé, fyrr en hún eigi vísa
fjárhagsaðstoð til þess frá
NATO.
Afstaða ríkisstjórnar Belgíu
er sögð þessi: Ríkisstjómin ræð-
ur þqma yfir 700 hekturum
Iands. Efnahagur manna er bág-
borinn þama þar sem hefur orð
ið að loka mörgum verksmiðj
um, en héraðið yrði íbúunum
gósenland, ef herstjómarstöð-
in yrði staðsett þama, því að
þangað myndu flytjast 2-3000
NATO-liðsforingjar og fulltrúar.
Og bærinn liggur á mörkum
„tungumálalandamæranna'* —
þ.e. þar sem mætast sá landshl.
Belgíu er fólk talar flæmsku, og
hinn, sem franskan er mál íbú-
anna. Og þar sem Belgía yrði
að leggja fram vegna flutnings
ins sem svarar 300 millj. ísl. kr.
vill hún fá eitthvað fyrir snúð
sinn og ráða nokkru um hvað
hún fái.
Engum dylst, að deila er upp
Lemnitzer
komin og að framkvæmdastjóri
NATO — Brosio — styður
Lemnitzer.
En belglskir ráðherrar segja:
Belgía hefur ekki óskað eftir
gestgjafahlutverki, , og gestir
þeir, sem boöið hafa sjálfum sér
til Belgíu, veröa að koma fram
sem gestir. Um þetta eru sam-
mála stjórnarflokkamir og
stjómarandstaöan.
Kaþólska blaðið HET VOLK
segir: Við getum ef til vill ekki
boðið hinum háu herrum frá
NATO upp á skemmtanalíf á
borð við þaö sem er £ París, en
það verða þeir að sætta sig vió.
Við gerum heldur ekki ráð fyrir
að NATO-Iiösforingjamir komi
til Belgíu til þess eins að
skemmta sér.
Ákvöröun veröur- tekin á
næsta ráðherrafundi Noröur-At-
. lantshafsbandalagsins.
Uppdráttur, sem á eru staðim-
ir, sem um er deilt.
Deila um landgrunnið
Embættismenn frá Hollandi
V-Þýzkalandi og Danmörku
samþykktu nýlega í Kaupmanna
höfn að vísa mjög alvarlegu
deilumáli þessara landa tll al-
þjóðadómstólsins í Haag. Deilu
mállð er hver eigi rétt á að nota
Iandgrunnið i Norðursjónum, en
Iandgrunnið er talið ná út á 200
m. dýpi.
Þessir samningar hafa stað-
ið yfir í næstum 2 ár, og það
er ekki lítið sem er í húfi. Und-
Kort af Norðursjónum. Land-
grunnið er þverstrikað. Feitu
strikalínurnar sýna, hvemig á-
kveðið var áriö 1958 að skipta
landgrunninu. Á kortinu sést,
að Þjóðverjar fengu minnsta
bitann.
ir botni Norðursjávarins er
nefnilega tugmilljóna króna
virði af olíugasi.
England hefur með fjórum
borunum fyrir vestan þetta
svæði fundið gas, og Holland
hefur fundið milljarða kúbik-
metra gass undan ströndinni, og
það er ekki nóg með, að þama
séu óhemjulegar birgöir af gasi,
heldur telja menn líklegt, að
einnig olia sé þama undir botn-
inum.
Á alþjóölegri ráðstefnu í Genf
1958 var samþykkt sú grund-
vallarregla, að löndin eigi rétt
á að nota landgrunnið fram á
brún úthafsins. Ef landamæri
Hollands eru dregin áfram út
f sjóinn, fá Hollendingar og Dan
ir stórar skákir af Norðursjón-
um, en V-Þjóðverjar fara mjög
illa út úr þvi, þar sem landa-
mærin liggja þannig, aö þeir
fá aðeins lítið hom. Þeir hafa
því verið mjög óánægðir með
þennan úrskurö og hafa ekki
viljað samþykkja hann.
Raunar átti þetta deilumál að
vera útkljáð, þegar Sameinuðu
þjóðimar samþykktu 1963 rétt-
arreglur um að löndin ættu land
grunnið undan ströndum sínum.
Til þess áð leysa þetta deilu-
mál hafa löndin þrjú nú sam-
þykkt að vísa málinu til alþjóða
dómstólsins f Haag og hann á
að kveða endanlegan úrskurð
um það, hvaða hlutar Noröur-
sjávarins tilheyri hverju landi,
og þá náttúrlega líka, hvaða
lönd fái afnotarétt af verömæt-
ustu gaslindunum á þessu svæöi
► Nokkrir ættarhöfðingjar í
Yemen, stuðningsmenn iýðveld-
isstjórnarinnar hafa tekið sér
stöðu með Hassaa A1 Hamry
forsætisráðherra í andspyrnu
hans gegn Abdullah E1 Sallal,
sem nýtur stuðnings egyp ku
hersveitanna í landinu. Hafa
ættarhöfðingjarnir sent Nasser
skeyti og krafizt þess, að hann
hætti stuðningi við Sallal og
kveðji heim egypzku her-
sveitirnar úr höfuðborginni. I
skeytinu segir: Sallal hefir ver-
ið forseti 4 ár með yðar stuðn-
ingi. Á þessum tíma hefir Yem-
en ekki haft af öðru að segja
en ósigrum og h'tilsvirðingu,
efnahagslegu hruni um gervallt
landið. Þetta ástand og afvopn-
un þjóðhollra hersveita hefir
vakið megna óánægju um landið
allt. Þetta allt hefir grafið
undan trú okkar á þær stoðir,
sem þér hafið byggt á skoðanir
yðar og afstöðu — og á þeim
tíma, sem þér segizt vera leið-
togi arabiskra þjóða sendið þér
Sallal til Sanaa til þess að
stjórna í stað löglegrar rikis
stjórnar. Era því nú tvær rík-
isstjómir, leppstjórn með stuðr
ingi Egypta, og þjóðholl stjóri)
sem nýtur hylli hersiiis og þjóð
arinnar.