Vísir - 20.08.1966, Page 9
M S IR . Laugardagui '0. ágúst 1966.
..
Risatraktorinn, sem flytur eldflaugarnar út á skotpallana.
miðstöð tunglferðanna
Bandarískur leiðangur á að stíga á land á tungl-
inu í apríl 1968, aðeins 10 árum eftir að fyrsta
bandaríska gervihnettinum var skotið á loft. Menn
vita ekki enn, hvort þessi tímaáætlun stenzt, en á-
ætlunin er þó svo Iangt komin að slíkt ætti ekki að
vera útilokað. Undir öllum kringumstæðum virðist
vera augljóst, að Bandaríkjamönnum takist að
komast til tunglsins, áður en þessi áratugur er lið-
inn, og þar með ná því marki, sem Kennedy for-
seti setti, þegar hann árið 1961 gerði tunglferðina
að einu höfuðverkefni þjóðarinnar. Nafni hins
myrta forseta er nú heiðrað með því að kalla geim-
höfnina, sem leiðangurinn leggur upp frá, Kenne-
dyhöfða.
svo stór, aö það verður að
flytja hana til Kennedyhöíöa á
sérstökum pramma, sem er dreg '
inn að höfðanum eftir kerfi af
sérstökum skufðum, sem hafa
verið grafnir. Næsti liðurinn er
eldflaug, sem er næstum 30 m.
há og er tvöfalt öflugri en
sterkasta eldflaug, sem hingað
til hefur verið notuð fyrir
mönnuð geimflug. Þriðja þrep
ið er aöeins 7 m. breitt, en hæö
in er samt 20 m. Ofan á þessum
turni er svo að lokum Apollo
geimskipið með neyðareldflaug
um, eldneytisgeymi, lendingar-
skipi og eldflaug til að fljúga
til baka í.
Þegar allt þetta er saman kom
ið, heitir eldflaugin Saturnus 5
ApoIIo. Verið er að smíða 12
slíkar. ÁÖur hafa menn þekkt
Saturnus 1 og Satumus 1B en
þeir eru eins og dvergar í sam
anburði við Saturnus 5, sem er
jafnöflugur og 600 þrýstilofts-
flugvélar. Þegar Satumus 5 lyft
ist frá jörðu, skapar hann 7.5
millj. punda þrýsting eða um
3700 tonn.
Stærsti traktor í heimi
Það er þegar búið aö setja
upp fyrstu Saturnus 5 eldflaug
ina á Kennedyhöföa. En það er
margt sem er eftir að gera, áður
en hægt verður að leggja upp í
fyrsta tunglleiðangurinn í apríl
1968. Annað risafyrirbrigði á
Kennedyhöfða er stærsti traktor
í heimi. Traktorinn vegur 3000
tonn og er á 8 beltum, sem
hvert er um 4 m hátt og 10 m
langt. Traktorinn getur borið
um 6000 tonn með u.þ.b 1 km.
hraða á klukkustund. Þegar
traktorinn er fullhlaðinn, vegur
hann 9000 tonn eða eins og
stærstu flutningaskip.
Tveir ganga á land
Allt þetta er miöaö við kröf
ur tunglferðarinnar. Áætlun
Bandaríkjamanna miöast við að
Apollo geimíarið snúist í kring
um tungliö með einn mann um
borð, meðan hinir tveir leið-
angursmennirnir gangi á land á
tunglinu úr sérstöku landgöngu
skipi, sem hægt er aö láta lenda
hægt á tunglinu með hjálp heml-
unareldflauga.
Þeir munu aðeins dvelja á
tunglinu í 12 stundir. Þeir munu
skiptast á um að fara út úr land
gönguskipinu til þess að kynna
sér landslagið á tunglinu og
koma með sýnishorn af stein-
tegundunum þar. Þegar þeir
eru búnir að leysa þetta verk-
efni, munu þeir skjóta lending-
arflauginni aftur til móðurskips
ins, og síðan mun móðurskipið
geysast inn í lofthjúp jarðar
með 40 þús. km. hraöa á klukku .
stund.
í heild vegur Saturnus 5
Apollo eldflaugin 3000 tonn, en
geimskipið sjálft vegur aöeins
7 tonn, og það er það eina sem
kemur til baka aftur. Hitt
eyðileggst á leiðinni, eða er
skilið eftir. Sá hluti eldflaug-
arinnar sem nær til tunglsins
vegur 42 tonn. Þar af vegúr
landgönguskipið 15 tonn.
Aðeins byrjunin
Fyrsti leiðangurinn er aðeins
byrjunin á tunglrannsóknaráætl
uninni. Þegar búið er að leysa
flutningavandamálið, verða
geimfarar sendir til tunglsins á
þriggja til fjögurra mánaða
fresti og þar munu þeir dvelj
ast í lengri og lengri tíma, Ýmis
verkfæri verða flutt til tungls-
ins og reist sérstök athugunar-
stöð þar.
Þetta eru áætlanir sem ekki
er talað mikið um núna, en það
er verið að vinna að þeim í kyrr
þey, á sama hátt og fyrir 6 ár-
um var veriö aö reikna út f kyrr
þey og gera tilraunir með þá
þætti, sem nú hafa náöst í tungl
áætluninni.
A þessum stað hefur orðið mik
il breyting á þessum áratug
og þeir sem voru þar um 1960,
munu áreiðanlega ekki kann-
ast við hann aftur. Kostnaður-
inn við þetta mikla ævintýri er
svo mikill, að íslenzk fjárlög
margra ára mundu ekki nægja
til að greiöa hann. Áætlaö er
að samanlagður kostnaður til
að koma mönnum til tunglsins
verði um 1000 milljarðar króna
Það er meira en allur gullforð-
inn í Fort Knox.
Stærsta hús í heimi
Meðal annars hefur verið
reist á Kennedyhöfða stærsta
hús heimsins, þar sem eldflaug
arnar eru settar saman. Þetta
hús er um 1.9 millj. kúbikfet
að stærö. Þetta hús, eða sam-
setningarskáli, er svo stórt, að
allt Pentagon, skrifstofur her-
málaráðuneytisins, þar sem 35
þús. starfsmenn starfa, mundi
komast fyrir innan í því, og
stærsti egypzki pýramídinn
mundi ekki fylla nema 60% af
plássinu. Húsið er 175 m. hátt
og þaö væri hægt að aka
skýjakljúf Sameinuðu þjóö-
anna inn um einar dymar og
út um aðrar, án þess að bygg-
ingin rispaöist nokkuð. Þessi
mikli salur hefur kostað u.þ.b.
6 milljarða króna, og þarna á
að setja saman tunglflaugamar.
3700 tonna þrýstingur
Gert er ráð fyrir 4 eldflaug-
um. Fyrsta eldflaugin eöa
fyrsta þrepið hefur 5 vélar bg
verður um 41 m. á hæð og 11
m. breið Þessi risaeldflaug er
Heimsins stærsta
hátt,
höfninni við Kénnedy-höfða.