Vísir - 20.08.1966, Qupperneq 15
'KEKCHAK. CHARGE7 /AA7LY-
I HA7 TO KEEF’ THOSE LOHG,
POWERFUL AKttS PRO/A
_^ ENCIKCLIKIG ME...
V í SIR . Laugardagur 20. ágúst*1966.
svona hausinn, Julian? Láttu ekki
eins og allir árar vitis væru á hæl-
unum á þér! Farðu burt! Faröu!
Mér leiðist að sjá þig.
Nú varö ' hreyfing í herberginu
Leonie flýtti sér að komast niður
stigann og skjótast inn í herberg
ið sitt.
Ef Claire var hér kvöldið, sem
Marcus var drepinn ... Leonle
mundi eftir sumu, sem sagt var
í réttinum: Kona getur hafa gert
það: Kona gat hafa tekið litlu
steinmyndina og rotað hann með
henni...
En þetta var óhugsandi! Claire
gat ekki hafa verið í húsinu. Lög-
reglan hefði hlotið að sjá þess
merki, og yfirheyrt hana í þaula.
Leonie reyni að hrinda þessum
hugleiðingum frá sér, er hún braut
blaðið saman og stakk því í tösk-
una sína. Hún leit á klukkuna og
sá að hún mundi verða of sein inn
í borgina nema hún flýtti sér.
RANNSÓKN í MÚSÍKSTOFUNNI
Eftir æfinguna í leikhúsinu fór
hún í skrifstofu Philips og afhenti
stúlkunni í biðstofunni bréf. Hún
hafði skrifað Philip aö hún mundi
verða heima í íbúðinni sinni
seinna um daginn. Og sýnishomið
af ritvélarskriftinni fylgdi.
Philip símaði til hennar eftir
að hún kom heim. — Slæmar frétt
ir, Leonie. Þetta er ekki rétta rit-
vélin.
— Nei, ég bjóst heldur ekki við
því. Viðkomandi, sem sendi bréf-
ið, mundi fremur hafa fariö inn
í einhverja verzlun og þótzt ætla
að kaupa ritvél og fengið að prófa
hana, og notað tækifærið til að
hripa þessar línur.
— Og þú vilt ekki enn að ég
fari til lögreglunnar með þetta?
— Nei, Philip.
— Þú ert stöð eins og húð-
arjálkur. En eitt geri ég, , hvort
sem þú vilt eða ekki: ég læsi bréf
ið hérna inni í peningaskápnum
mínum.
Þegar Leonie kom labbandi
heim að Hferon House um kvöldiö
sá hún að Venetia var á gangi
milli blómabeðanna í garðinum.
Hún fékk tækifæri til aö athuga
hana betur áður en amma hennar
kom auga á hana. í mjúkri kvöld
birtunni var Venetia aöeins gömul
kona, sem hugsaði um blómin sln.
Sólin skein á húsið bak við hana.
Bíll Julians var kominn úr við-
gerðinni og stóð á hlaðinu. Fugl-
arnir sungu í trjánum.
Þetta var allt svo eðlilegt og
fallegt, aö varla var mögulegt að
ímynda sér að skuggi hvíldi á Her
on House. Og það var óskiljanlegt
líka, að nokkur manneskja hataði
eða óttaöist Leonie svo mikið að
hún vildi flæma hana úr húsinu.
Amman kom auga á Leonie og
benti henni að koma til sín.
— Ég ætla að gróðursetja fleiri
rósir, sagöi Venetia. — Mér datt
í hug að þessi tvö beð hérna ...
Hún hélt áfram og studdi hend-
inni á handlegg Leonie, og nú
komu þær að grasblettinum fyrir
i PUCKEP ASI7E ANP PUOVE My'KNIFE
TOTHE HILT ",'í
wc
Kerchak -geystist áfram. Ég varð, hvað
sem það kostaði að halda þessum löngu,
sterku örmum frá þvi að vefja sig utan um
mig.
Ég henti mér til hliðar og rak hnífinn upp
að skafti í skrokk hans.
Enda þótt þetta mikla dýr hefði hlotið
banasár þreif þaö í mig og reyndi að koma
kjaftinu að hálsinum á mér.
METZELER hjólbarðarnir,
eru sterkir og mjúkir, enda
vestur-þýzk gæðavara.
Baröinn hf.,
Ármúla 7 — Sími 30501
Hjólbarða- og benzínsalan
v/Vitatorg — Simi 23900
Almenna verzlunarfélagið h.f.
Skipholti 15 — Sími 10199
"TH0UGH MOKTALLY WOUNPEP, THE MIGHTY
BRUTE GRASPE7 ME...H1S GREAT JAWS
SEEKINS My THKOAT!"
FRAMKÖLLUN
KOPIERING
ST/EKKUN
CEVAFOTO
LÆKJARTORCI
utan músíkstofugluggann. —
Helzt hefði ég viljað gróðursetja
oleander. Ég hafði hann f New Orle
ans, en líklega þrífst hann ekki
héma. Hún þagnaði og leit uop. —
Hvað var þetta?
Þær þögðs nlustuðu. Nú
heyrðu þær kattarmjálm.
— Þetta er „Liwy“ sagöi Le-
onie. Mjálmið kom úr músfkstof-
unni.
Nú kom nýr svipur á Venetiu.
Öll blíöan hvarf úr andlitinu. —
Kötturinn hennar Hildu. Hvemig
hefur hann komizt þama inn? En
það er líklega óþarfi að spyrja að
því. Jafnvel þó aö Hilda sé laf-
hrædd við. draugagang hérna get-
ur hún ekki stillt sig um að vera
sísnuðrandi »— þó mér þætti gam-,
an að vita hvað hún býst við að
finnp.
— Ættum við ekki aö hleypa
kettinum út?
— Jú, vitanlega. Venetia snerf
sér að Leonie. — Taskan mín ei'
f svefnherberginu. Taktu lykilinn
hann er í henni. Það er stór lykill
CATHERINE FROY:
ÍH Í33
HÚS
GÁTUNNAR
— Það var svo áður. Hún var...
— Nei, tók Philip fram f, láttu
, mig segja það. Seg þú bara „já“
l'pg „nei“. Ritvélin stóð f herberg-
linu inn af músíkstofunni?
— Já.
— Gætirðu komizt þangað inn
og skrifað nokkrar línur á hana
ef hún er þar enn? að gildir einu
hvað það er. „Rauði refurinn
hoppaði yfir hundinn" til dæmis.
— Ég skal gera það.
! — Og hringdu til mín á morg-
i’un þegar þú kemur á æfinguna.
— Ég skal gera það.
— Ef þú finnur ekki ritvélina í
herberginu, getur vel verið að hún
sé uppi á háalofti. Það mun vera
háaloft þarna f Heron House?
— Já, stórt gímald, Philip...
— Segðu ekki meira, hvíslaði
hann. — Vertu blessuð og sæl-
Hann sleit sambandinu.
Leonie sneri sér frá símanum og
amma hennar kom upp stigann.
■' Venetia sagði rólega — Var það
■ Claire sem Philip ætlaði að tala
Vvið?
— Nei.
— Ég var heima. Ég var niðri
thjá Berthu, ef það var ég sem
hann vildi tala við.
— Nei, Philip þurfti að tala nokk
j|r orð við mig.
— Komdu inn í stofuna, barnið
mitt. Stattu ekki þama á þrösk-
uldinum.
j- Leonie fór inn og settist á stól-
i^rík. Venetia horfði á hana gljá-
þvidi augum. — Það var gott að
3!að var ég en ekki Claire sem
kom upp stigann, sagði hún.
— Ég talaði ekki nema fáein orð
við hann. Ég meina ...
— Hann símaði ekki til þín til
lý.ess að tjá þér ást sína? Er það
iTiað, sem þú meinar? Venetia hló.
j Ég vona að hann hafi ekki gert
Íað. Hún beið átekta eins og hún
ildi fá skýringu.
Leonie beygði sig fram, tók vindl
ing af borðinu og kveikti í.
— Claire hefur komið hingað áð-
ur, var það ekki? spurði Venetia
allt í einu.
Leonie hrökk við en lét ekki á
því bera og svaraði rólega: — Þú
spurðir mig að því áðan, amma,
og ég sagði þér að ég vissi það
ekki.
—r Hefurðu reynt að komast að
því? Leonie hristi höfuðið. — Þá
veröur þú að gera það. Talaðu við
hana. Hver veit nema hún tali
af sér viö þig. Hún varaði sig
þegar hún talaði við mig. Hún hljóp
á sig áðan þegar hún var aö tala
um lampana, sem Marcus notaði.
Hún gleymdi sér þá, en nú verður
hún vör um sig framvegis.
— Það skiptir varla miklu
hvort hún hefur komið hingaö
meðan Marcus lifði, eða ekki, sagði
Leonie. — Hún vill kannski helzt
gleyma þvf, eftir það sem gerðist.
Venetia lét sem hún heyrði
ekki hvað hún sagði. Hún var að
fikta við hölduna á stóru töskunni
sinni og tautaði: — Hve vel þekkti
Claire Marcus? Og hvenær þekkti
hún hann? Var það skömmu áður
en hann dó?
— Heyrðu amma, sagði Leonie
allt f einu. — Hvers vegna lætur
þú hana vera hérna hjá þér úr því
að þú hugsar svona til hennar?
Af hverju lætur þú hana ekki fara
heim til sín?
— Nei. Svarið var ákveðið. —
Nei, sagöi hún aftur. — Ég vil hafa
Claire héma. Ég er forvitin. Ég
vil vita hverju hún leynir.
Kerlingar-duttlungar? Hafði heil
inn i henni ekkert að sýsla viö
nema það sem var í kringum hana?
Leonie hugsaði með sér að annaö
væri þetta ekki.
Julian kom inn í stofuna. Og
Leonie bað um að hafa sig afsak
Passamyndir
Teknar í dag — Tilbúnar á morgun.
Sér tímar eftir samkomulagi.
Ljósmyndast. Péturs Thomsens
Ingólfsstræti 4. Sími 10297, eftir kl.
7 sími 24410.
aða og fór. Hún vissi að hún
mátti ekki reyna að finna ritvél
Marcusar í kvöld, þó hún væri
í húsinu. Bezt að fresta því til
fyrramálsins, þá þurfti hún ekki
á ljósi að halda, og allir hefðu
nóg að hugsa, hver um sitt.
Eftir árbítinn morguninn eftir
reyndi Leonie að komast inn í mús
ikstofuna. Báðar dyrnar voru læst
ar. Þegar hún kom út í garðinn
aftur datt henni í hug, að ef fyrri
kona Marcusar hefði ekki tekiö
ritvélina meö sér þegar hún hirti
innanstokksmunina hans, væri
hugsanlegt aö ritvélin hefði verið
látin upp á háaloftið. Hún gat at-
hugað það núna.
Þegar hún var að koma upp stig
ann sá hún Hildu bregða fyrir
gegnum opnar svefnherbergisdym-
ar hennar. Hún var að búa um
rúmið sitt. Leonie læddist fram
hjá og að mjóa stiganum upp á
háaloftið. Hún fór varlega upp stig
ann.
Við giuggann stóð gamalt borð
og á borðinu stóð ritvélin. Leonie
tók blaðið sem hún hafði haft
með sér og flýtti sér svo að skrifa
setninguna sem Philip hafði nefnt
— þrisvar sinnum. Svo lagöi hún
skýluna yfir vélina aftur og hlust-
aði. Allt virtist hljótt niðri. Hún
gekk niður fyrstu stigaþrepin en
stanzaði fljótlega.
Dymar að svefnherbergi Vene-
tiu stóðu í hálfa gátt og hún
heyrði' glöggt hvassa röddina: —
Þú veröur að tala við Claire. Þú
verður að komast að þessu.
— Ég vildi óska aö þú gætir
losnað við hana með einhverju
móti. Þetta var Julian og kvíði var
í röddinni.
— Láta hana fara áður en ég
veit hvaö hún veit. Talaðu ekki
svona flónslega, Julian.
— En...
— Hér er ekki um neitt „en“
að ræða. Claire þekkti Marcus. Ég
held að hún hafi þekkt hann vel.
Ég vil fá að vita hve vel — og
hvenær hún var hérna og hvers
vegna hún lýgur.
— Þú heldur þó ekki að hún hafi
verið hérna — þetta kvöld?
— Hún hefði vel getað vérið
þaö, hvers vegna sagði hún þá
ekki frá þvf? Af- hverju hengirðu