Vísir - 05.09.1966, Side 2
V1S IR . Mánudagur 5. september 1966.
Akurnesingar „burstaðir
á heimavelli mei 7:2
% Það er sjaldgæft að heimalið tapi með 5 marka
mun í 1. deild í knattspyrnu. Þetta gerðist í gærdag á
Skipaskaga. Þá töpuðu Akurnesingar fyrir Akureyri
með 2:7, — í hálfleik höfðu Akureyringamir skorað
5 mörk, Akumesingar ekkert. Þetta vom óvænt úr-
slit, — að vísu mátti alveg eins reikna með sigri Ak-
ureyringa, en að þeir mundu gjörsigra Akranessliðið
með þeim yfirburðum, sem þeir sýndu, það hefði eng-
inn getað ímyndað sér.
Yfirburðir Akureyringa í fyrri
hálfleik voru mjög miklir og þeir
áttu tækifæri á að skora enn fleiri
mörk en þau fimm, sem þeir skor-
uðu. 1 seinni hálfleik var leikurinn
allur mun jafnari, enda var greini-
legt að Akureyringar voru hættir
að beita sér af alefli, enda algjör-
lega óþarft meö slíka yfirburða-
stöðu.
Skúli Ágústsson skoraði fyrsta
mark leiksins á 4. mín. eftir að
Steingrímur gaf fallega fyrir mark-
ið. Skúli afgreiddi boltann eftir að
Valsteinn hafði klúðrað tækifæri,
sem honum bauðst. Á 15. mínútu
átti Kári gott mark upp úr þvögu
við Akranessmarkið, en skömmu
síðar urðu Akurnesingar fyrir því
óláni að Bjöm Lárusson varð að
yfirgefa völlinn, enda var hann
meiddur fyrir leikinn, en taldi sig
þó geta leikið. Á 22. mín. kom
3:0. Það kom úr vítaspyrnu, sem
Einar Hjartarson dæmdi réttílega,
þegar Skúla Ágústssyni var brugð-
ið innan vítateigs. Skúli skoraði
örugglega úr spyrnunni. Á 29. mín.
óð Valsteinn upp að endamörkum
með boltann. Hvort hann ætlaði
að gefa fyrir eða skora er ekki
vitað, en skot hans lenti ofarlega
í gagnstæðu horni. Loks kom mark
á 40. mínútu, en þá fór Kári lag-
lega fram hjá Jóni Leóssyni og
skoraði með laglegu skoti 5:0.
Með allt þetta á bakinu voru
Akurnesingar vitaskuld búnir að
vera. Að ekki sé talað um eftir
nokkrar mínútur I seinni hálfleik.
Þá skorar Magnús Jónatansson
með góðu langskoti 6:0. Þá var
loks komið að Skagamönnum.
Guðjón Guðmundsson skorar 6:1,
en Rikharður lætur verja víta-
spymu sína, sem var heldur illa
tekin. Steingrímur skorar 7:1 á
móti, en síðasta orðið £ þessum
markafansi áttl ungur nýliði Har-
aldur Sturlaugsson v. innherji.
Akranessliðið er greinilega lak-
asta liðið í 1. deildinni í dag, endai
þótt það verði hlutskipti Þróttar
að falla í 2. deild. Akurnesingar1
hafa verið heldur heppnir í sumar
og eflaust gera þeir sér ljósa þá
hættu sem framundan er, ef ekki
verður að gert í tíma. Undanfarin
10 ár hafa Akumesingar ævinlega
vericVí fyrsta eða öðru sæti á ís-
landsmótinu, — a.m.k. alltaf bland
að sér í baráttuna um meistara-
tignina. 1 ár verða þeir næstneðstir.
Akureyringar em nú í sínu bezta
formi eins og venjulega um þetta
leyti árs. Þeir eiga nú smámögu-
leika á að verða efstir ásamt fleiri
liðum, jafnvel fjómm, og
mundu þá verða að leika aukaleik
1 mótinu. Þessi möguleiki er heldur
lítill, en Akureyringar hafa engu
að síður gert það gott í þessu móti.
A-Þjóðverjar unnu
flesta EM-titlana
Evrópumeistaramótinu í
Budapest lauk f gær. Það var
8. mótið f röðinni og var haldið
á Nep-vellinum glæsilega. Mótið
fékk skemmtilegan endi, því
þessi mótsdagur var langbezt
heppnaður að öllu leyti. Sett
vom 7 ný meistaramótsmet í
þeim 12 greinum, sem keppt
var í til úrslita, en tvö voru
jöfnuö.
Romuald Klim setti met 1
sleggjukastinu kastaði 70.02 m
en hann vann Ungverjann
Zivotsky og Uwe Bayer (Sigurð
Fáfnisbana), Frakkinn Michael
Jazy vann 5000 metrana á
13.42.8, Manfred Matuschewski,
A.-Þýzkalandi vann 800 metr-
ísofjörður fer í uðalkeppninu
Stórglæsilegt mark, sennilega
eitt það fallegasta, sem sézt hefur
hér í Reykjavík í sumar, gerir það
að verkum að ísafjörður lendir í
aðalkeppninni í Bikarkeppni K.S.Í.,
ásamt 1. deildarliðunum i sumar og
mjög sennilega nýliðunum í 1.
deild, Fram.
isfirðingar skoruðu eina markið
f fyrri hálfleik og var Kristmann
Kristmannsson miðherji ísafjarðar
þar að verki og komst einn inn
fyrir og skoraði fram hjá markverð
inum.
KR-b tókst að jafna eftir rúmar
15 mínútur í seinni hálfieik og var
FRAM UPP AFTUR
Vann Breiðablik 3:0
Framarar munu leika að
nýju í 1. deild í knatt-
spymu næsta ár. í gær
unnu þeir Breiðablik úr
Kópavogi með 3 mörkum
gegn engu í næsta fátæk-
legum knattspyrnuleik, —
leik, sem yrði þeim ekki
haldgóður næsta sumar,
þegar þeir mæta sterkari
liðum en úrslitaliðið var í
þetta sinn.
Framarar hafa ungu og efnilegu
liði á að skipa, en það þarf að
slípa ýmsa agnúa af liðinu til að
það geti starfað sem ein heild.
Enn sem komið er hefur liðið að-
eins nokkra góða einstaklinga, en
sem lið er það heldur „óstabilt“,
það er ekki hægt að treysta því aö
liðið sigri, jafnvel þó að andstæö
ingurinn sé örugglega langt að baki
þvi að getu.
1 leiknum í gær á Laugardals
vellinum, sem á annað þúsund
manns horfðu á var litil spenna
að þvi er virtist. Fólkiö sem kom
til að horfa á virtist lítiö vilja hafa
sig í frammi, en úrslitaleikir í 2.
deild hafa oftast verið mjög lífleg-
ir bæði leikirnir sjálfir og eins á-
horfendurnir, sem mætt hafa og
hvatt lið sín til dáða.
Fram sótti frá byrjun mun meira
en sóknin virtist hvorki þung né
hættuleg. Framarar skutu að vísu
yfir úr mjög góðu færi fyrir miðju
marki og á 25. mín. áttu þeir skot
í stöng úr mikilli þvögu í leðjunni
við markið.
Á 36. mín. kom loksins markið,
og það var álit margra að þar hefði
Baldur Þórðarson verið fullstrang-
ur. Kópavogsmaður braut á Elm-
ari Gei. ,syni, vinstri útherja Fram
við vítateigslínuna úti,£ hominu og
Baldur dæmdi vitaspyrnu. Persónu-
lega fannst mér sjálfsagt að dæma
vitaspymu, enda var brotið innan|
teigs ow dómari ákveður, hvort
dæmd skuli aukaspyrnu eða vita-
spyma. En ekki voru þó allir á
sama máli. Úr þessari spymu skor-
aði Helgi Númason örugglega 1:0.
Eftir 22 mínútur í seinni hálf-
leik áttu Framarar mestallan
leikinn gegn örþreyttum Kópavogs
mönnum. í bæði skiptin var Hreinn
Elliðason, ungur og „gráðugur"
miðherji að verki. 1 fyrra skiptið
fékk hann laglega sendingu upp
miðjuna, sem hafði skyndilega opn
azt og hann skoraði fram hjá hinum
ágæta markverði Loga Kristjáns-
syni og hafði heppnina með sér,
boltinn valt í stöng og inn. Hreinn
var enn að verki á 35. mínútu,
skaut af stuttu færi og skoraði
3:0, algjöra gulltryggingu á 1.
deildarveruna næsta ár.
Breiðablik ógnaði Fram lítið all
an leikinn og undir lokin var bar-
átta þess algjörlega að renna út
í sandinn, liðið var. greinilega búig
með allt sitt úthald. Fram var sterk
arí aðilinn í þessum leik, en var
sannarlega ekki með knattspymu á
boðstólum, sem getur gengið í I.
deild, þó oft sé á þá knattspymu
deilt.
Það er samt ástæða til að óska
Fram til hamingju meðþetta„nýja“
1. deildar lið sitt, því þama er
mjög ungt lið á ferðinni, lið sem
vænta má nokkurs af, lið sem vænt
anlega lætur ekki staðar numið við
það eitt „að vera efnilegt."
Ingvar N. Pálsson, ritari Knatt-
spymusambands íslands afhenti
Frömurum bikar þann, ,sem keppt
er um og hélt stutta en snjalla
ræðu og bað menn hylla sigurveg
arana og alla þá, sem þátt tóku í
keppninni.
Einhverjir hylltu Framarana á
þann hátt aö þegar þeir gengu af
velli helltu þeir úr kampavínsflösku
yfir þá. Sáust kampavínsflöskum-
ar nokkrum sinnum á lofti I leikn-
um, a.m.k. jafnoft og mörkin
komu. Vonandi verður sigurinn þó
ekki eins og kampavínsfroða. Það
er orðið heldur hvimleitt fyrirbæri
aZ sömu liðin séu eins og I föstum
áætlunarferðum milli 1. og 2.
deildar.
Dómari í leiknum var Baldur
Þórðarson og dæmdi vel. -jbp.-
Theodói, þar að verki með fallegt
skot af stuttu færi.
ísfirðingar skoruðu sigurmarkið
10 mínútum fyrir leikslok og skor
aði Hafþór Sigurgeirsson v. útherji
það mark. Sendi Bjöm Helgason,
langbezti leikmaður ísfirðinga, bolt
ann út til vinstri á vitateignum, en
Hafþór skaut viðstöðulaust og fór
boltinn með eldingarhraða yfir
markvörðurinn efst uppi við þver-
slá.
Hið unga KR-lið skipað 5 leik-
mönnum úr unglingalandsliðinu í
sumar gerði góðar tilraunir en
tókst ekki aö jafna.
ana á 1.42.8 mín., Stoykosvki
frá Búlgaríu vann þrístökk á
16.66 metra stökki, en þess má
geta að enda þótt það afrek sé
meistaramótsmet mundi það
ekki nægja til að hnekkja ís-
landsmeti Vilhjálms Einarsson
ar, sem er 16.70 m. Met voru
sett i öllum boðhlaupunum.
Frakkar unnu 4x100 metrana
á 39.4 sek., Pólland 4 X 400 á
3.04.5 og 4X100 metra boð-
hlaup kvenna unnu pólsku
stúlkumar á 44.4 sek. 1 110
metra grindahlaupi var Eddi
Ottoz frá ítaliu fyrstur og jafn-
aði meistaramótsmetið á 13.7
og sama er um 800 metra hlaup
kvenna að segja, þar sigraði
Vera Nicolic frá Júgóslavíu og
jafnaði metið á 2.02.8 mín. í
öðmm greinum fóm leikar svo
að Breti vann maraþonhlaupið.
Heitir sá Jim Hogan og fór því
svo að Bretar fara heim meö
tvenn verðlaun í stað einna, en
í sárabætur eru bæði úr gulli.
íslendingar hafa reyndar gert
það sama, því fyrir 12 ámm
komu tveir gullpeningar heim
frá þessu móti og vom það
Gunnar Huseby og Torfi Bryn-
gerisson, sem léku þaÖ. Og að
lokum vann Taisia Tsjentsjik
frá Sovétríkjunum hástökk
kvenna og Karin Balzer, A.-
Þýzkalandi 80 metra grinda-
hlaup.
Frh. á bls. 4.
Skrifstofustarf
Opinber stofnun óskar að ráða skrifstofu-
mann (fulltrúastarf kemur til greina) til
skýrslugerðar. Laun samkvæmt launalögum
Fullt tillit verður tekið til menntunar og
starfsreynslu. Nauðsynlegt er að umsækjandi
geti unnið sjálfstætt.
Tilboð sendist Vísi merkt: „2047“
©
Sdelmann
KOPARFITTINGS
KOPARROR
83
i ■ps> ariif | *ifr' él
HVERGIMEIRA
ÖRVAL
OGF&.CO
Laugavegi 178, sími 38000.