Vísir - 12.09.1966, Page 5
VÍSIR . Mánudagur 12. september 1966,
5
morgun
útlönd í morgun
útlönd í morgun
útlönd i morgún
útlönd í morgim
útlönd
Þingkosningar í Vietnam og Kambódíu
Um 80 af hundraði kjósenda i Suður-
Vietnam greiddu atkvæði
Stjóm Suður-Vietnam tilkynnti í
gærkvöldi, að þátttakan í þingkosn-
ingunum hefði reynzt miklum mun
meiri víða en hægt var að gera sér
vonir um og sókn Vietcong til þess
að fá menn, með illu eða góðu, til
þess að sitja heima, hefði lítinn
árangur borið, þar sem um 80 af
hundraði kosningabærs fólks i land
inu hefði greitt atkvæði, og sums
staðar hefði þátttakan komizt upp
í 90 af hundraði og jafnvel yfir á
stöku stað.
Bandaríkjastjórn hefur einnig
látið í ljós mikla ánægju yfir þátt-
tökunni. Um úrslit er ekki kunn-
ugt. Hlutverk þingsins verður að
ganga frá nýrri stjórnarskrá.
í Bandaríkjunum kom mönnum
— í Washington sem annars staö-
ar — alveg óv»nt hve kosninga-
þátttakan var il, og að sjálf-
sögðu hefur þaó vakið mikla á-
nægju og gert menn bjartsýnni
Einn af ráðunautum Johnsons for
Afgreiðslustúlku
vantar í nokkra tíma á dag við afgreiðslu í
Austurstræti og á Laugavegi 86.
PRIM A
Símar 41918 og 20254
Stúlka eða piltur
óskast til afgreiðslustarfa.
KJÖRBÚÐ S. S.
Álfheimum 2
seta, Walt Rostow sagði í gær, að
þátttaka í kosningum í Bandaríkj-
unum, þegar kjósa ætti forseta,
væri um 50% að meðaltalý og að-
eins um 39% við þingkosningar
milli forsetakosninga. Kosningaþátt
takan í mörgum þéttbyggðum lands
hlutum I Suður-Vietnam (um 83%)
væri því furöulega mikil og hlyti
öllum að finnast til um svo mikla
kosningaþátttöku.
Menn hafa víða um heim dregið
í efa, að stjórn Suður-Vietnam heföi
I rauninni meirihluta þjóöarinnar
meö sér. Ef kosningaúrslitin sanna
hið gagnstæöa má líklegt telja, að
það hafi mikil áhrif á almennings-
áiitið í heiminum varðandi Vietnam
styrjöldina.
KOSNINGAR I KAMBODÍU
Þingkosningar fóru einnig fram
í Kambodíu og fóru þær ákaflega
friösamlega fram.
Kambodía er nágrannaland Viet-
Nam, fékk sjálfstæði úr hendi
Frakka 1955. — Sihanouk prins er
sonur konungshjónanna, sem þá
voru við völd, en hann tók sér
ekki konungstitil, er hann settist
í valdastól, heldur er hann kall-
aður þjóöhöfðingi Kambodíu.
Wilson.
Wilson boðar ekki breytta
Rhodesiustefnu
Harold Wilson, forsætisráðherra
Bretlands flytur í dag ræðu á Sam-
veldisráðstefnunni um Rhodesíu-
stefnu stjómar sinnar.
Hann ræddi óformlega við sam-
veldisleiðtoga á ráðstefnunni um
helgina.
Brezka útvapfSið hafði þaö eftir
stjórnmálafréttaritara sínum
snemma í morgun, aö Wilson
myndi ekki boða neina stefnubreyt-
ingu, heldur reyna að sannfæra Af-
ríkuleiðtogana um, að með stefnu
stjórnarinnar væri fariö eins langt
og unnt væri og skynsamlegt til
að verða við kröfum þeirra, mark-
ið væri hið sama, og skoðanamun-
urinn ekki eins mikill og þeir vildu
telja hann vera,
Fjármálaráðherra Zambíu lét svo
um mælt í gærkvöldi, að ef það
væri rétt sem sagt væri fyrirfram
um ræðu Wilsons kynni sendinefnd
Zamíu aö hafa skemmri viðdvöl í
London en upphaflega var ætlað,
en fyrir Samveldisráöstefnuna
sagði forseti Zambíu, Kenneth
Kaunda, að ef ekki yrði gengið að
kröfum Zambíu á ráöstefnunni,
myndi hún segja sig úr samveld-
inu.
Wilson mun því að líkindum
beita allri sinni mælskusnilli til
þess að sannfæra menn um að
stefna brezku stjómarinnar sé hin
rétta og skynsamlega.
heims-
horna
milli
► Johnson Bandaríkjaforseti
hefur boðað mikinn sparnað á
ríkisútgjöldum til innanlands-
þarfa eða sem nemur einum
milljaröi. Ýmsar aðrar ráðstaf-
anir hefur hann boðað gegn vax-
andi veröbólgu og mun von á
fleiri um áramótin.
► Norskur fréttaritari símar frá
Helsingfors, aö á vettvangi
finnskra stjómmála minni
allt á logn á undan stormi. —
öllum sé ljóst, aö stormur nálg-
ist, jafnvel ofviöri, en enginn
geti gert sér grein fyrir afleið-
ingunum, þegar það skellur yfir
ríkisstjórnina og þingflokkana.
Spurningin sé, hvort samsteypu-
stjómin, sem loks tókst aö
mynda í vor þrauki, eöa gliöni
sundur og til nýrrar stjómar-
kreppu komi. M. a. er deilt um
uppbætur á landbúnaöarafurö-
ir.
► Þaö þykir tíöindum sæta, aö
á Farnborough-flugsýningunni
brezku, sem nú er haldjn, var
aðeins ein ný flugvélartegund til
sýnis. Þetta er 25. Farnborough-
sýningin og hin mesta, sem hald
in hefur verið. Að henni standa
brezku flugfélögin. — Nýja flug
vélartegundin nefnist „The Is-
lander“ (Eyjarskegginn) og er lít
il tveggja hreyfla flugvél fram-
leidd af Britten-Normans verk-
smiðjunum.
► í fréttum frá Stokkhólmi seg-
ir, aö í þá átt stefni að komiö
veröi á því fyrirkomulagi í Sví-
þjóö, aö starfsfólki verði greidd
föst laun, en ákvæöisvinnufyr-
irkomulagið lagt niður. Þetta
stafar af síxaxandi tækni svo
aö framleiöslan er æ minna und
ir hverjum einstökum verka-
manni komin.
KOSS FYRIR DE GAULLE
Þegar de Gaulle Frakklandsfor-
seti var í þann veginn að stíga á
þilfar beitiskipsins DE GRASSE
til þess að vera viðstaddur mestu
kjarnorkusprengingu Frakka til
þessa kvaddi þeldökk Tahiti-mær
hann með kossi og ekki annað sjá-
anlegt en að forsetinn látj þér það
vel líka. Hann er nú á leið til
Guadaloupe á Kyrrahafi, seinasta
viðkomustaðarins í hnattferðinni,
eftir að hafa veriö nálægur er
sprengd var frönsk kjarnorku-
sprengja á Kyrrahafi, 10 sinnum
öflugri en sú var, sem lagðj Hiro-
shima í rústir í seinustu heims-
styrjöld.
Útför föður okkar, tengdaföður og afa,
JÓHANNS KR. HAFLIÐASONAR,
húsasmíðameistara,
Freyjugötu 45,
fer fram frá Fríkirkjunni miðvikudaginn 14. sept. kl. 13.30.
Blóm eru afþökkuð, en þeim sem vilja minnast hans er
bent á líknarstofnanir.
Hafliði Jóhannsson, Svanfríður Ingibergsdóttir
Vigdís Jóhannsdóttir, Einvarður Hallvarðsson,
Gunnsteinn Jóhannsson, Steinvör Egilsdóttir,
Jón Jóhannsson,
Valgerður Guðmundsdóttir
og barnaböm.