Vísir - 25.10.1966, Side 2
V í S IR . Þriðjudagur 25. október 1966.
SKRILSFRAMKOMA AÐ LOKN-
UM BIKARURSLITUM
Nokkur eftirmáli ætl*
ar að verða að síðasta
leik ársins á knatt-
spyrnusviðinu, sem leik-
inn var á sunnudaginn á
Melavellinum. Magnús
Pétursson, dómari í þess
BALLETT
LEIKFIMI
JAZZBALLETT
FRÚARLEIKFIMI
Búningar og skór í úrvali.
ALLAR STÆRÐIR
Sími 13076.
um leik, hefur kært einn
knattspymuleiðtoga
Vals fyrir að því er hann
telur ósæmilega hegðun
í búningsklefa dómara
og línuvarða að leik
loknum.
„Ég neyðist til að kæra at-
ferli mannsins“, sagði Magnús,
„eftir að hann réðist að okkur
með fúkyrðum og látum í bún-
ingsklefa okkar. Viö getum
varla liðiö það að forystumenn
félaganna leggi leið sfna til okk-
-<í>
BÍLAlRAF
í RAFKERFID
Startarar, dlnamóar, anker-spól-
ur. straumlokur, bendixar o. fl.
Varahlutir — Viðgerðir á raf-
kerfum bifreiöa.
BÍLARAF s.f.
Höfðavík við Sætún
Sími 24700.
ar að leikjum loknum til að
hella úr skálum reiði sinnar“,
sagði hann.
Annað leiðindaatvik gerðist
einnig á Melavelli, sagði Magn-
ús, en það var þegar ungur leik-
maöur úr Val í áhorfendahópi
kom aðvífandi og gaf Magnúsi
vel útilátiö högg honum að ó-
vörum. Magnús kvaðst ekki
hafa nennt að elta ólar við
piltinn, en einn leikmanna KR,
Bjami Felixson sá hvaö gerðist
og greip til piltsins og hugðist
koma honum undir manna
hendur fyrir verknaðinn. Þá
gerðist það næst að leikmaður
úr Val vatt sér inn á sviöið og
réöist að Bjama og hrinti hon-
um burtu og spurði hvem fjár-
ann hann væri að skipta sér af
frænda sínum! Magnús kvaðst
ekki ætla að leggja fram kæru
vegna þessa óábyrga unglings.
Enn eitt Valsmönnum því
miöur til hnjóðs gerðist þegar
Hörður Markan var að ganga í
átt að verðlaunapallinum. Ung-
ur liðsmaður í yngri flokkum
Vals brá fæti fyrir Hörð þannig
að hann féll við.
Atvik sem þessi eru að verða
óhugnanlega tíð. Ótíndur skríll
veður uppi á leikvöllum borgar-
innar, — og því miður virðast
hér aö verki piltar úr íþrótta-
starfinu sjálfu. Það er það
hryggilega við allt saman. Hvar
er hið þroskandi íþróttastarf?
Hvar er uppeldið, sem æsku-
menn eiga að hljóta á íþrótta-
völlunum? Það atriði virðist
hafa gleymzt í uppeldi íþrótta-
æskunnar, en þó er hér senni-
lega um það atriði sem þjóöfé-
lagslega séð er langmikilvægast,
en ekki það, hve mörg stig félag
hlýtur samanlagt í mótum sum-
arsins eins og nú virðist vera.
Þess ber vitanlega að geta að
hér á aöeins hluti af ungling-
unum þátt, en sá hluti er of
stór.
Persónulega finnst mér það
leitt að verða aö þurfa að setja
þessi orð á prent, ekki sízt þar
sem Valsmenn hafa ætíö getið
sér gott orð fyrir drenglyndi
innan vallar sem utan. En hér
er verkefni fyrir unglinga-
leiðtoga félagsins og raunar
allra félaga hér í borginni og
víðar. — jbp —
KOMAi
KVÖLD
• 1 kvöld eru væntanlegir
fimleikamennirnir frá Ollerup,
en þeir hafa ferðazt um Banda-
ríkin síðustu 10 vikumar og
sýnt þar við góðar undirtektir
áhorfcnda, sem eru orðnir yfir
100 þúsund talsins.
• Lokasýningar flokksins
verða hér í Reykjavík annað
kvöld og á fimmtudagskvöldið
í Laugardalshöllinni. Sýningar
hefjast báða dagana kl. 20.15,
og skal áherzla lögð á breyt-
inguna, sem verður á sýningar-
tima seinna kvöldið, en þá verö-
ur sýnt fyrir skólanemendur og
hefst sú sýning sem sé kl. 20,15
en ekki 17,30 eins og áður hafði
verið tilkynnt.
• Á myndinni er flokkurinn
að ganga inn á sýningarsvæði í
Bandaríkjaferö sinni undir fán-
um. Til hægri er stjómandi
flokksins, Ame Mortensen.
Aðalfundur
SKRR
Aðalfundur Skíðaráðs Reykja-
víkur verður haldinn að Café Höll,
Austurstræti, þriðjudaginn 1. nóv.
kl. 9 e. h.
ÓSKAR — dvelur við æfingar
í hálfan mánuð meö félögum
"sínum í Danmörku.
ÆFA IDANM0RKUI
TVÆR VIKUR
Næstu dagana eru á förum til
Danmerkur þrír fremstu bad-
mintonleikarar okkar, þeir
Óskar Guömundsson, KR, Jón
Ámason, TBR, og Garðar Álfons
son, TBR.
Óskar tjáði blaðamanni
íþróttasíðunnar i gærdag að
þeir félagar mundu verða við
æfingar í Danmörku i tvær vik-
ur og fá þá þjálfun, sem bezt
þekktist í Danmörku, en Danir
eru frábærir badmintonmenn og
framarlega á heimsmælikvarða.
Þeir félagar komust í kynni
við beztu leikmenn Dana, þegar
þeir komu hingað fyrir tveim ár-
um og sýndu hér.
t