Vísir - 25.10.1966, Page 4
í.
V í SIR . Þriðjudagur 25. október 1966.
w
Vetrardagskrá útvarpsins
y
Aukin áherzla á þœtti sérstak-
lega unna fyrir útvarpið
í vetrardagskrá Ríkisútvarpsins,
sem hófst frá og með deginum i
gær, verður lögð meiri áherzla á
að þættir og erindi verði sérstak-
lega unnir fyrir fiutning í útvarp
en verið hefur. — Skýrði útvarps-
stjóri Vilhjálmur Þ. Gíslason frá
þessu á fundi með fréttamönnum
í gær um leið og hann skýrði frá
ýmsum breytingum, sem verða á
flutningi útvarpsins. Einnig skýrði
hann frá ýmsum mannabreytingum,
sem hafa orðið við útvarpið.
Guömundur Jónsson er yfirmað-
ur hljóðvarpsdeildar, sem er nýtt
embætti innan stofnunarinnar. Har-
aldur Ólafsson er dagskrárstjóri f
stað Andrésar Björnssonar, sem nú
er lektor í Svíþjóð. Þorkell Sigur-
bjömsson hefur verið ráðinn til tón-
listardeildar, en á sama tíma hef-
ur dr. Hallgrímur Helgason látið
af störfum og er farinn utan. Sig-
urður Þórðarson, skrifstofustjóri,
hefur látið af störfum við útvarpið
vegna aldurs, en í hans stað er
Gunnar Vagnsson yfirmaður fjár-
máladeildar.
Breyting hefur verið gerð á
kvöldfréttatímunum. Fyrri fréttir
em nú lesnar kl. 7, en seinni frétta-
tfminn kl. 9. Er ætlunin að hafa
fyrri fréttatíma 20 mfnútur en
f seinni fréttatíma verða fréttimar
ftarlegri með aukinni áherzlu á
fréttaaukum. Þá verður gerð breyt-
ing á auglýsingalestrinum. Einnig
verður auglýsingagjaldið haft mis-
hátt eftir því hvenær lesið er. Aug-
lýsingar, sem lesnar verða klukkan
9.30 að morgni og kl. 3 að degi
munu kosta .15 kr. pr. orð. Aug-
lýsingar, sem lesnar verða um há-
degi og fyrir kvöldfréttir 20 kr.
orðið. Auglýsingar, sem verða lesn-
ar frá kl. 7.20 til 7.30 kosta 40
kr. pr. orð. Verður seinasti auglýs-
ingatiminn algjöriega takmarkaöur
við 10 mínútur.
Af nýjum erindum og þáttum, sem
verða fluttir f útvarpið f vetur, má
nefna: „Nítjánda öldin", sunnudags
erindi, ílytja fsl. sagnfræðingar
og aðrir 25 erindi um 19. öldina.
„Skáldamál'1. þar sem tekin verða
fyrir nokkur forn og ný islenzk
skáldverk. ailt frá Eddukvæðunum
til verka Halldórs Laxness. Verður
flutt erindi um þessi verk, en auk
þess flytja tónlistarmenn útvarps-
ins tóniist, sem íslenzk og erlend
tónskáld hafa samið við verkin.
Á hljóðbergi heitir þáttur í umsjá
Björns Th. Björnssonar. Flytur
hann þar og skýrir erlend skáld-
verk.
Þrír nýir umræðu- og viðtals-
þættir verða teknir upp: Á rök-
stólum (stjóm Tómas Karlsson),
„Athafnamenn (Magnús Þórðarson)
og „Þjóðlíf" (Ólafur Ragnar Gríms-
son).
Ámi Waag flytur 10 mín. þætti,
„Á víðavangi“ um fuglalíf og nátt-
úruvernd" annan hvem sunnudag.
Fyrsta framhaldsleikrit vetrar-
ins nefnist Silkinetið, eftir Gunnar
M. Magnúss.
Næsta framhaldssaga nefnist:
..,'að gerðist í Nesvík", eftir séra
5:gurð Einarsson í Holti.
Kristján Árnason flytur 4 er-
índi og þýðingar úr fjórum grískum
harmleikjum er síðan verða fluttir í
nútfma óperubúningi eftir nokkur
bekkt nútímatónskáld.
Af skemmtiþáttum má nefna
þættina „Margt með mö.rgu“ og „Á
hraðbergi". sem verða fluttir til
~vintis annan hvem sunnudag.
Eftir hádegi á laugardögum verð-
ur Gísli J. Ástþórsson með 40 min-
útna þátt, „Einn á ferð", en f hon-
ir í verður Páll Berabórsson með
10 mín. veðurfræðiþátt.
Að vanda verður miklum tfma út
varpsins varið til flutnings tón-
listar. Sinfónfutónleikar verða um
40. íslenzkir tónlistarmenn munu
flytja verk Roberts Schumans í
20 dagskrám. Útvarpað verður tón-
leikum Tónlistarfélagsins og Mus-
ica Nova. Fluttir verða nokkrir
söngleikir og ýmislegt annað tón-
listarefni eins og venja hefur verið.
Hljóðfæraverkstæði
Pálmars Arnars
Laugavegi 178, sími 18643.
Píanó — harmoníum og pípuorgelaviðgerðir
og stillingar. Tek notuð hljóðfæri í umboðs
sölu. Geymið auglýsinguna.
Aberfan —
-rn i-
í bæjarráðinu hafði varað við
þessu fyrir tveimur árum. Það
var varað við þessu aðeins
nokkrum klukkustundum áður
en skriðan féll. Ráðherra sá,
sem fer með málefni Wales hef-
ur fyrirskipað rannsókn. Stjórn
kolasamsteypunnar í Bretelandi,
sem er ríkisfyrirtæki hefur fyrir-
skipað rannsókn. Meðan þær
rannsóknir fara fram streyma
samúðarkveðjur til fólksins f
Aberfan, sem á um sárt að binda
þessa dagana. _ ___
Auglysing í Vísi
eykur viðskiptin
ÍLVIÍL. Hafnarfjarðarbió:
mynair
kvik myndir kvik kvik myndir myndir
Sumarnóttin hrosir
(Sommernattens leenede).
Sænsk frá 1955. Leikstjóri:
Ingmar Bergman.
Sýningarstaður Hafnarfjarðar-
bíó, sýningartími 125 mín.
essi mynd var sýnd hér í Tjarn-
arbíói 1958 eða 1960 og er mik-
ill fengur að fá að sjá hana aftur,
einnig mun sama bíó hafa í
hyggiu að endursýna „Sjöunda inn-
siglið" og munu margir hugsa gott
til glóðarinnar. Erlendir kvikmynda
gagnrýnendur kalla Bergman stór-
kostlegan impressionista og hér er
hann i essinu sínu sem slíkur. Flest
ir leikstjórar, þrátt fyrir meira fjár
magn en Bergman hefur yfir að
ráða, hafa gefið of litla tilfinningu
fyrir gamaldags sviðsetningu þegar
um myndir frá liðnum tímum hefur
verið að ræða, en þarna fáum við
sviðstilfinningu fyrir heilum bæ,
vegna frábærrar uppsetningar. Gat-
an með gasljóskerunum, gömlu hús-
in þegar t.d. þau þrjú fara heim til
leikkonunnar um kvöldið og mynd
þeirra speglast f drullupollinum.
Myndina kallar Bergman sjálfur
rómantíska ástargamanmynd og
þarf er af þessu þrennu og engum
þarf að leiðast enda glumdi bíóið
af hlátrum, en þar er líka grunnt
á harminn eins og f öllum hans
myndum. Lögfræðingurinn Eger-
man (Gunnar Björnstrand) er
kvæntur ungri yndisfríðri konu um
tvítugt, Önnu (Ulla Jackobsson), en
þau Iifa ekki eðlilegu hjónalífi, því
hún er hrædd og hann vill bfða þar
til hún kemur til hans af fúsum
vilja. Á heimilinu er sonur hans af
fyrra hjónabandi (Bjöm Bjelve-
stad) á aldur við Önnu, mjög alvar
lega þenkjandi ungur maður enda
að læra til prests. Lagleg léttlynd
þjónustustúlka er á heimilinu (Bibi
Anderson). Leikkonan Deseré (Eva
Dalbech) hefur verið ástkona Eger-
mans, en er nú viðhald greifans Mal
coms (Jarl Kulle), eiginkonu hans
til sárrar hrellingar. Svo verða á-
horfendur sjálfir að sjá hvernig spil
in stokkast, þótt reynt sé að svindla
pínulftið svo „kaballinn" gangi upp.
Textinn, tónlist, klipping og svið-
setning og ekki sízt leikur er svo
vel unninn að unun er að. Sviðsetn
ingamar eru mátulega fagrar og
rómantískar til að gefa trúverðuga
mynd af lífi þessa hefðarfólks, leið-
indum kvennanna, sem ekkert nyt-
samt höfðu fyrir stafni, þar sem
allt varð að vera slétt og fellt á yf-
irborðinu þó hjartanu blæddi t.d.
Egerman við veizluborðið, þegar
Hendrik hefur talað af sér og Anna
getur ekki dulið ást sína. Myndim
ar úr sveitinni og gamli bíllinn auka
þokka myndarinnar. Tónlistin fellur
afar vel að efninu, t.d. gamaldags
rokokotónlist, þegar veizlan er, og
drynjandi hergöngutónlist þegar
greifinn fer á stjá. Þrátt fyrir allt
fjasið í fína fólkinu lætur Bergman
sannleika myndarinnar, ef svo má
að orði komast, koma frá fjöraga
þjóninum í höll móður Deseré sem
fékk höllina fyrir að skrifa ekki
endurminningar sínar. Hann segir
á þá leið að sumamóttin brosi
þrisvar, fyrst um miðnættið fyrir
þá sem ástin er sem gjöf eða
hegning. Þeir eru hinir einu, sem
raunverulega elska. Svo eru það
þeir sem eilíft leita að ástinni,
hrópa á hana en höndla hana aldrei,
fyrir þá brosir sumamóttin um 3
leytið. Svo í morgunsárið brosir
hún í þriðja sinn fyrir okkur hina
bjánana sem ekki hafa annað úr-
ræði en fara í eldhúsið og fá okkur
kaffisopa. Allar persónur era
mjög skýrar, hver hefur sinu mjög
afmarkaða hlutverki að gegna og
öll eru þau manni hugstæð, greif
inn Malcom sem getur ekki svarið
konu sinni trúnað því hann veit
að hann er ekki maður til að
standa við það, trúr á sinn hátt,
því getur hann lofað. Ungi prestur-
inn, sem verður að nýjum manni
er ást hans er endurgoldin. Leik-
konan, sem veit að hún er konan
sem Egerman þráir og hvemig hún
fer að koma vitinu fyrir hann þrátt
fyrir allt, Egerman, sem feltrr sig í
skugganum þegar ástin hans þeysir
á brott með sínum heittelskaða og
tekur hvítu slæðuna hennar, sem
nú hefur blettazt, tákn um saídeysi
hennar, upp af veginum. Þfórmstu-
stúlkan sem Bibi Anderson leikur
af svo mikilli snilli að fátitt er.
Þau era öll svo sjáifum sér sam-
kvæm og reglulegt yndi að sjá
þau og heyra, að enginn er svikmn
af að sjá þessa mynd. — P. L.
Námskeið í sjúkrahjálp í
Borgarspítalanum
Skógræktarfélag Reykjavikur
Fræðslu- og
skemmtifundur
Námskeið í sjúkrahjálp á vegum B orgarspítalans hefst þann 6. janúar
1967. Námskeiðið, sem stendur í 8 mánuði, byrjar með 4 vikna forskóla,
ensíðanferstarfsþjálfunframásjúkrahúsum og lýkur með prófi. Laun
sjúkraliða eru samkv. reglum um laun opinberra starfsmanna. Nemendur
í sjúkrahjálp fá 60% af launum sjúkraliða. Umsækjendur skulu hafa lok
ið prófi skyldunámsstigsins og vera ekki yngri en 17 ára og ekki eldri en
50 ára.
Umsóknareyðublöð fást í Heilsuverndarstöð Reykjavíkur og hjá for
stöðukonu Borgarspítalans í Fossvogi, sem lætur í té frekari upplýsing-
ar, sími 41520.
Umsóknir skulu hafa borizt Sjúkrahúsnefnd Reykjávíkur Heilsuvernd-
arstöðinni fyrir 18. nóvember 1966.
verður haldinn í Tjamarbúð niðri, þriðjudaginn 25. októ-
ber í tilefni af 20 ára afmæli félagsins og hefst kl. 8.30 s.d.
Ávarp
Litskuggamyndir úr Heiðmörk, skóg-
ræktarstöðinni í Fossvogi og úr trjágörð
um í Reykjavík og nágrenni:
Erindi um búfjárbeit í skógum, sem dr.
agric Kristian Bjor flytur.
Dans
Aðgöngumiðar fást i Bókabúðum Lárasar Blöndal á Skóla-
vörðustíg og f Vesturveri.
Reykjavík 24.10 1966 Sjúkrahúsnefnd Reykjavíkur
Skemmtinefnd
a