Vísir - 25.10.1966, Side 6
6
v i s i K . pnojuaagur 20. OKxooer 1900.
Olympíuskákmótið á
Kúbu sett í dag
Olympíuskákmótið, sem að
þessu sinni er haldið á Kúbu,
verður sett í dag, en síðan verð-
ur skipað niöur í riðla. Yfir 40
þjóðir taka þátt í mótinu og
meðal keppenda eru margir fær-
ustu skákmenn heims.
Sveitunum verður raðaö þann
ig niður, að sterkustu sveitimar
dreifast um riðlana og tvær til
þrjár sterkar sveitir I hverjum
riðli. — 2 efstu sveitimar í hverj
um riðli keppa svo til úrslita
í A-flokki, 3. og 4. sveit hvers
riðils lendir i B-flokki og 5. og 6.
i C-flokki og svo framvegis.
Á síðasta Olympíuskákmóti,
sem haldiö var í ísrael, lentu ís-
lendingar í C-flokki lokakeppn-
innar. Islenzka sveitin er því
talin fremur veik sveit og lend-
ir þess vegna í riðli með tveim-
ur sterkustu sveitum eða jafn-
vel þremur. — Raunar er ís-
BÍLAR:
RAMBLER AMERICAN ’66
Ekinn 5 þús. km.
RAMBLER CLASSIC ’65
Góður bíll.
RENAULT MAJOR ’65
Sem nýr.
RAMBLER CLASSIC ’63
Góöur bíll.
OPEL CARAVAN '64
Toppgrind o. fl.
AUSTIN GIPSY ’63
Benzín á fjöðrum.
OPEL REKORD ’64
Special de luxe.
VAUXHALL VELOX ’63
Elnkabill
Og meira úrval af notuðum bil-
um. — Hagstæð kjör.
Chrysler umboðið
VÖKULL H.F.
Hringbraut 121 — Simi 10-600
lenzka sveitin skipuð okkar
sterkustu skákmönnum, og Frið-
rik Ólafsson sagði við brottför-
ina, að veik von væri um aö
komast í A-flokk. Auk hans em
þeir Ingi R. Jóhannsson, Frey-
steinn Þorbergsson, Guðmundur
Pálmason, Gunnar Gunnarsson
og Guðmundur Sigurjónsson í
sveitinni. — Vísir mun leitast
við að afla sem gleggstra frétta
af framgangi mótsins.
Áfengisneyzla —
Framh. at bls. 1
aö hér er ekki leyfð sala áfengs
öls.
Ári' 1964 var áfengisneyzla á
Ibúða í Danmörku 4.99 1, í Sví-
þjóð 4.27 1, í Noregi 2.65 1 og
i Finnlandi 2.21 1,
Hefur áfengisneyzlan í þess-
um löindum farið vaxandi frá
árinu 1960, en þá var hún: Dan-
mörk 4.00 I, Svíþjóð 3.70 1,
Noregur 2.431 og Finnl. 2.00 1.
Áfengis- og tóbaksverzlun rik
isins rekur nú 3 áfehgisútsölur
í Reykjavík og 4 úti á landi, á
Akureyri, Siglufirði, Seyöisfirði
og Isafirði. Vínveitingahús, sem
hafa almenn vínveitingaleyfi eru
aöeins í Reykjavik og Akureyri.
Á Akureyri eru þau tvö, bæði
búin vínstúkum, en í Reykjavík
eru þau 11 og með samtals 21
vínstúku. Salir og vínstúkur vin-
veitingahúsa i Reykjavik hafa
rúm fyrir nær 3600 gesti.
Nýstúdenfar —
Framhald af bls. 16
máladeildum. Undir þessa þróun,
sem ætla mætti að héldi á-
fram, yrði aö búast meö
þeim hætti m. a. að efla og auka
kennslu við Háskólann í raun-
greinum, sem ætla mætti að
stærðfræðistúdentar leggi fyrir
sig að öðru jöfnu.
HIIRÐIR PANEL
Harðviðarhurðir, stuttur afgreiðslutími.
Mjög hagstætt verð.
Loft- og veggklæðningar.
BIRGIR ÁRNAS0N
Hallveigarstíg 10. Sími 14850
Dönsk úrvalsvara
Síríus —
Framhald af Ms. 16
hafnir svipaðar þeim, sem sézt
hafa á eyðihúsunum. Gengið
haföi verið um skipið meö
brauki og bramli, gramsað í vist
arverum og tæki eyðllögð og
jafnvel stolið. — Ýmsir hlutir
lágu eins og hráviðj um brúna.
Kompás skipsins var á bak og
burt og það sem eftir haföi ver-
ið skilið af siglingatækjum
þess, þegar því var lagt.
Sírius hefur legið á Sundun-
um síðan ’62, utan hvað hann
var telcinn stuttan tíma í land í
vetur og sáust að vísu merki
um mannaferðlr um skipiö, en
ekki elns eyðileggjandi og nú.
Bjami Ingimarsson, sá gamal
kunni togaraskipstjóri var stadd
ur um borð í skipinu, þegar Vis-
ismenn bar þar að i gær og
hann hristi aðeins höfuðið yfir
spellvirkjunum, enda ömurleg
sjón að horfa upp á ástand
skipslns, skemmdir og niður-
níðslu, sumt af vöidum nátt-
úrunnar og sumt af mannavöld-
um, því miður. Bjamj sagðist
ekki geta gizkað á hversu mikl-
ar skemmdimar væru, en þær
yrðu bráðlega metnar tii fjár.
BIÐU BANA I
BÍLSLYSINU
Myndin er af hjónunum Þóru A. Jónsdóttur og Jóhanni Fr. Guð-
mundssyni, en þau létust eftir hið sorglega slys, sem varð á sunnu-
daginn á Reykjanesbraut.
Heimsókn —
Framh af bls. 1
Er hinir íslenzku gestir höföu
stígið út úr flugvéiinni og
heilsað gestgjöfum sinum, lék
herlúðrasveit þjóðsöngva ís-
lands og Svíþjóðar en að því
búnu könnuðu forsætisráðherrar
Islands og Svíþjóða heiðurs-
vörð á flugvellinum. Að því
búnu var ekiö til Grand Hotel,
en þar munu islenzku gestimir
búa meðan á hinni opinberu
heimsókn stendur.
Forsætisráðherrahjónin fóru
viða um í gær. Áttu forsætis-
ráöherrar íslands og Sviþjóðar
meðal annars viðræður, þar
sem rætt var um sambúð Norð-
urlanda. Þá ræddi íslenzki for-
sætisráðherrann einnig við
Gunnar Lange, viðskiptamálaráð
herra Svia.
I morgun kl. 11.30 heimsóttu
dr. Bjami Benediktsson og frú
hans aðsetur hins viðlesna dag-
biaðs „Svenska Dagbladet" í
Stokkhólmi, en er forsætisráð-
herrahjónin höfðu skoðað skrif-
stofur blaðsins, sátu þau há-
degisverðarboð aðalritstjóra
balðsins, Allans Hemelius.
Síðar i dag munu hinir islenzku
gestir skoða Fomminjasafn rikis
ins (Statens Historiska muse-
um), og i kvöld munu þeir sjá
Iistdanssýningu í Konunglega
óperuhúsinu og verður þar sýnt
Svanavatnið. Að lokinni sýningu
munu íslenzku gestimir snæða
kvöldverð á Operaterrassen.
í fyrramálið mun forsætisráð-
herra og fylgdarlið fara flug-
leiðis til Linköping og skoða þar
verksmiðjur og fleira en komið
verður aftur til Stokkhólms um
kvöldið.
Cleveland —
Framhald af bls. 1.
og annaö nefndi hann: Fyrirsjáan-
legan möguleika á því að hafa á-
hrif á veöráttuna meö tæknilegum
aðferöum.
Cleveland benti á aö löndin í
NATO væru í rauninni kjarninn í
Sameinuöu þjóöunum, þýöingar-
mestu alþjóöastofnuninni er leit-
aöist við aö skapa friö og alþjóða-
reglur. Vestrænu löndin legöu
sameiginlega fram meira en helm-
ing alls fjár sem kæmi til starf-
semi Sameinuöu þjóðanna, þau
greiddu tvo þriðju hluta af tekjum
hjálparsjóða Sþ og tvo þriðju til
þrjá fjórðu hluta alls kostnaðar
við friðargæzlu SameinuÖu þjóö-
anna. Hann hrósaöi fslendingum
fyrir hið hlutfallslega mikla fjár-
framlag þeirra til Sþ og benti á
að íslendingar heföu ætíö veriö
málsvarar gagnkvæmra hagsmuna
og skynsamlegra alþjóðareglna.
Ræðu Clevelands var mjög vel
tekiö af fundarmönnum og var hon
um þakkað með dynjandi lófataki.
SAS —
Framhald at bls. 1.
heyrt neitt frekar um þær fyrir-
ætlanir, eða hvemig SAS hygö-
ist haga þvi flugi. Taldi Öm
litlar líkur fyrir því að íslands-
flug SAS gæti úr þessu hafizt
fyrr en á árinu 1968, þvi að
undirbúningur aö nýrri áætlun
tæki ávallt langan tima.
Kristján Guölaugsson sagöi
SAS ekki hafa boðið Loftleiðum
upp á neina slíka samvinnu.
Eina samvinnan, sem væri milli
þessara tveggja félaga nú væri
sú, að SAS afgreiddi Loftleiðir
á Kaupmannahafnarflugvelli og
gerði það meö hinni mestu
prýði. Sagði Kristján að eftir
síðustu samninga fyrir tveimur
árum hefðu LoftleiÖir, aö ráði
ríkisstjórnanna, boðið SAS upp
á samvinnu varðandi farmiða,
þannig aö Loftleiðir tækju SAS-
miða gilda og öfugt og félögin
önnuöust farmiðasölu hvort
fyrir annað, en SAS hefði ekki
tekið því boöi. Væri þetta
minnsta samvinna, sem væri
milli flugfélaga og heföu Loft-
leiðir slíka samvinnu við öll
flugfélög nema SAS.
SAS ætlar að tvöfalda
farþegafjöldann á 7 árum.
Á fyrmefndum blaöamanna-
fundi í Osló sagði Nilsson
nokkuð frá framtíöaráætlunum
SAS. Kom þar fram aö félagið
skilar nú rekstrarafgangi fjórða
árið í röö. Á næstu sjö árum
er ætlunin að tvöfalda farþega-
fjöldann og árið 1970 veröa
einungis þotur í notkun, einnig
á innanlandsleiöum. Er ætlunin
að SAS ráöi þá yfir 20—25
flugvélum af DC-8 gerð til nota
á lengri flugleiöum og 40—50
vélum af DC-9 gerö til nota á
styttri leiöum. Samkvæmt þess-
ari áætlun SAS mun fjárfesting-
in nema 1900 milljónum
sænskra króna. Eru þá ekki
reiknuð með möguleg kaup á
svonefndum „júmbo-þotum".
sem taka 500 farþega, eða flug-
vélum, sem fara hraðar en
hljóðiö.
Rekstrarerfiöleikar vegna
Vietnam-stríðsins.
Nilsson sagði ennfremur aö
SAS gerði ráð fyrir miklum
rekstrarerfiðleikum á næsta ári
og kenndi þar Vietnam-striðinu
um. SAS hefur pantað 7 DC-8
vélar hjá Douglas-verksmiöjun-
um og áttu þær að vera tilbún-
ar vorið 1967, en vegna flugvéla
framleiðslu til nota í Vietnam
geta Douglasverksmiðjumar
eSki afgreitt SAS-vélamar fyrr
en á miðju næsta sumri, þegar
SAS verður búiö aö gera sumar-
áætlunina í samræmi við flug-
vélakostinn eins og hann er nú.
Douglas-verksmiðjumar em
ekki bótaskyldar vegna þessarar
afgreiðsluseinkunar, því að í
samningi stendur, aö bætur
þurfi ekik aö greiða, sé seinkun-
in af hemaðarlegum ástæðum.
hagsmunum, viöhorfum og stefnu
Bandaríkjanna og þeirra ríkja, sem
þau heföu samskipti við. Þar með
væri lagður grundvöllur að friðsam-
legri sambúð og nánar samstarfi.
Hann benti á 'að tækniþróun
nútímans hefði gert alþjóðareglur,
viöurkenndar af öllum, nauðsyn-
legri en nokkm sinni fyrr. Þróun
kjamorkuvopna væri eitt þeirra
Stúlka óskast
til afgreiöslustarfa.
GILDASKÁLINN
Aðalstræti 9 . Símar 10870 og 60179