Vísir - 25.10.1966, Side 8
8
VISIR
Dtgefandi: BJaOaatgáfaD VISIR
Framkvæmdastjóri: Dagur Jónasson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Aðstoðarritstjóri: AxeJ rhorsteinson
Auglýsingar: Þingholtsstræti 1, símar 15610 og 15099
Afgreiðsla: Túngötu 7
Rltstjóm: Laugavegj 178 Stm) 11660 (5 Unur)
Áskriftargjald kr. 100.00 á mánuði innanlands.
i lausasölu kr. 7,00 eintakið
Prentsmiðja Vösis — Edda h.f
Forustuhlutverk og ábyrgð
§tundum hefur það heyrzt úr herbúðum stjórnarand-
stæðinga, að ríkisstjómin sinni ekki forustuhlutverki
sínu í st.jórnmálum, svo sem hverri ríkisstjórn vissu-
lega ber, en láti reka á reiðanum. Hún beri ekki fram
úrræði til að hefta hina alvarlegu verðbólgu í land-
inu og svo framvegis.
Ákaflega hljóma slíkar aðfinnslur undarlega úr
hópi núverandi stjórnarandstæðinga. Viðreisnar
stjórnin, undir forustu Ólafs Thors, tók við einu al-
varlegasta óreiðu* og uppgjafarbúi nokkurrar hér-
lendrar ríkisstjórnar, sem vinstri stjórnin hafði skilið
eftir sig. Sú ríkisstjóm tók við völdum eftir alþingis-
kosningar á sumrinu 1956 með ekki svo litlu yfirlæti
og fyrirheitum um allsherjarúttekt á þjóðarbúinu fyr-
ir opnum tjöldum og um varanleg úrræði í efnahags-
málum. Loksins þegar vinstri stjórnin hafði setið að
völdum nærri tvö ár, lagði hún fram „bjargráð“ sín
á Alþingi. Sjálf lýsti hún því yfir, að þau mundu ekki
duga og meira þyrfti til. Hina lofuðu úttekt á þjóðar
búskapnum fengu menn aldrei að sjá.
Og hvað sögðu fulltrúar verkalýðshreyfingarinnar
um þessi „bjargráð“ vinstri stjómarinnar? Þeir sögðu
eftirfarandi: „Greinilegt er, að þessar ráðstafanir í
efnahagsmálunum leiða til frekari verðbólguþróunar
og eru því fráhvarf frá þeirri stefnu, sem 25. þing
Alþýðusambandsins fagnaði og lýsti fylgi sínu við,
og efnahagsmálanefnd og miðstjórn Alþýðusam-
bandsins síðan hafa ítrekað, þ. e. að stöðva verð-
þensluna. Ráðstafanirnar brjóta því í bága við verð-
stöðvunarstefnuna, er verkalýðssamtökin og ríkis-
stjórnin þá tóku höndum saman um“. Nokkmm mán-
uðum seinna fór vinstri stjórnin „fram af brúninni“
í óðaverðbólgu og uppgjöf.
Viðreisnarstjórnin lagði fram mjög ýtarlegar efna-
hagsmálatillögur á Alþingi á gmndvelli úttektar á
uppgjafarbúskap vinstri stjórnarinnar, sem alþjóð var
gerð grein fyrir. Auðvitað vom hinar róttæku ráð-
stafanir ekki allar vinsælar í upphafi, en þær voru
nauðsynlegar. Síðan voru þær áréttaðar og fylgt eftir
með viðbótarráðftöfunum. Viðreisnarstjómin brást
ekki forustuhlutverki sínu og þeirri ábyrgð, sem á
henni hvíldi. Mikil og erfið átök voru síðasta verk
Ólafs Thors sem forsætisráðherra á Alþingi haustið
1963 til verðstöðvunar. Bjami Benediktsson hafði for
ustu um þau straumhvörf, sem júní-samkomulagið
19(W markaði til þess að hefta verðbólguna. Og enn
vinnur ríkisstjómin örugglega að samkomulagi við
verkalýð og atvinnurekendur og með eigin ráðstöf-
unum að stöðvun verðhækkana í þjóðfélaginu.
Úr rústunum í Aberfan í Wal
es má sjá hvar gjallið rann niö-
ur hliðarnar í tveimur megin
straumum, sem báru með sér
tortímingu 200 barna og ungl-
inga heils hverfis. Þyngsti og
breiöasti straumurinn valt í
gegnum eitt hverfið í bænum,
á skólabygginguna og siðan
gegnum einfalda húsaröð. Bygg-
ingarnar hrundu nærfellt til
grunna, en straumurinn kæfði
allt lifandi nema alda i nokkr-
um húsum, sem breiddust út í
hrúgunum, sem mynduðust.
Aberfan, vettvangur mesta
siyss í Bretlandi síðan í heims-
^ \.f--JfMERTHÝR TYPFIL^ "
V í S I R . Þriðjudagur 25. október 1966.
í V___________3 mlk:s JYf r To Cardiff ■
Kortið sýnir legu Aberfan í Wales.
Gjallskriðm rana hljóð-
laust á Aberfan
styrjöldinni síöari, er námubær
35 km. norður af Cardiff i Wal-
es. Þar eins og víðs vegar um
allt Wales höfðu myndazt gjall-
haugar og þessi stórskaðlegi
haugur lá í hlíð 130 metra of-
an við Aberfan, beint ofan við
skólann.
Hljóðlaus skriða
Ógæfan dundi yfir fimm mín-
útur yfir níu á föstudagsmorgun
augnabliki eftir að bömin höfðu
beðið morgunbænir í skólastof-
um Pantglas Junior School.
Skriðan fór um 300 metra á
nokkrum sekúndum fyrirvara-
laust og nærri hljóölaust. Hins
vegar varð vart eins konar jarð-
skjálfta þegar skriöan féll.
Skriðubylgjan var 12-13 metra
há. Neyðarpípur blésu og fólkið
þusti út úr húsum sínum. Það
bjóst við námuslysi. En það sem
mætti augum þess átti sér enga
hliöstæðu í slysaríkri sögu námu
héraðanna í Wales.
2000 manns
við uppgr'óft
Karlmenn bæjarins hófu þeg-
ar uppgröft, ataðir kolaleðju, en
konur þeirra horfðu grátandi á
vegsummerkin. Um 2000 manns
tóku þátt í björgunarstarfinu
þþegar flest var. Fæstir þeirra
undu sé hvíldar fyrr en á
þriöja sólarhring, þá ofkeyröir
af áreynslunni. Sjúkrabílar
streymdu að úr nærliggjandi
bæjum og byggðarlögum. Og
enn síðar komu bifreiðar hlaðn-
ar líkkistum.
Bömin voru grafin upp hvert
af öðru, sett á börar og flutt
til bænahúss Betaníu, sem hafði
verið gert að líkstofu. Þangaö
komu mæður, afar, ömmur eða
nánir ættingjar til að kanna
hvort þau bæru kennsl á bömin.
Telpa i vatni upp
undir höku
Einn hinna fyrstu sem komu
að skólahúsinu gat bjargað
nokkrum börnum út úr tveimur
stofum, en er hann leitaði inn-
ar var engin böm að sjá. Loks
komst hann lengra í hrandu hús
inu. Þetta var 27 ára gömul
húsmóöir Pauline Evans að
nafni. Hún heyröi samt rödd
einnar telpu innar í byggingunni
Það var ekki hægt að bjarga
henni í bili, án þess að eiga á
hættu að allt hryndi yfir þær.
Seinna bjargaði slökkviliðsmað-
ur telpunni þar sem hún stóð
í vatni upp undir höku, sjö ára
gömul.
Eins og að moka vatni
Það er enn ekki vitað með
vissu hve margir fórust, en taia
þeirra er um 200. Níu ára ár-
gangur Aberfanbæjar þurrkaðist
nærri því út. Sjötta hvert bam
er talið látið. Björgunarstarfið
var hið erfiðasta. Það var eins
og að róta vatni í gryfju að
moka til leðjunni og gjallinu. Það
leitaöi alltaf í sama farið aftur.
Það hélt einnig áfram að renna
úr gjallhrúgunni uppi I hlíðinni
niður I bæinn, inn í húsin og
skólann. Það var engu líkara
en gjallið ætlaði ekki að láta
bömin ganga sér úr greipum.
Orsakir og ábyrgð
Hverjar era orsakir slyssins?
Sennilegast er að vatn hafi safn
azt 1 gjallfjallið, grafið undan
því, en rigningar undanfarinna
daga hafi síöan gert það að verk
um að skriðan féll einmitt nú.
Hver ber ábyrgðina? Það var
margsinnis búið að vara við
hættu af gjallbingnum. Frú ein
Frh. á bls 4.
Ömmur, frænkur og mæður horfðu á vegsummerki og fylgdust með björgunarstarfiau,