Vísir - 25.10.1966, Qupperneq 11
I
Mamma hefur nóg að gera.
Flmmburamir Thandeka, Zol-
eka, Tandekíle, Tempekile og
Kululekiie.
kvikmynd
Paul semur lög í nýja
George er í Indlandi að læra á s'itar
Það fór ekki eins og ýmsir
spáðu, þegar Bítlamir komu fyrst
fram á siónarsviðið; að lög þeirra
myndu fljótlega komast úr tizku.
í stað þess njóta lögin vaxandi
vinsælda og ýmsar stórar og
„virðuiegar“ hljómsveitir hafa út-
sett Iögin og ieikið inn á hljóm-
plötur — og niðri f Iðnó dansar
„þjónn herranna tveggja“ eftir
Bítlalögum.
En hvar eru Bítlamir ? Það hef-
ur veriö heldur hljótt um þá síö-
an þeir sögðu „nokkur illa valin
orð“ í Vesturheimi, nema hvaö
fréttir hafa borizt af leik John
Lennons f Þýzkalandi svo og af
væntanlegum kvikmyndaleik
þeirra á komandi ári.
Nú er það nýjast að frétta að
John Lennon hefur lokið við aö
leika brezka hermanninn í kvik-
myndinni „Hvemig ég vann stríö-
iö“ og er kominn til Spánar í
haustfrí. George Harrison er
ásamt konu sinni, sýningarstúlk-
unni Patti Boyd, austur í Ind-
landi, en þar hyggst George
stunda nám í sítarleik í vetur.
Ringo Starr er á Spáni, þó ekki í
neinu sambandi við John Lennon,
en Paul McCartney er í London.
Paul hefur nýlega lokið við aö
semja tónlist við nýia kvikmynd,
sem ber nafnið „Wedlocked Or
All In Good Times", en í þeirri
mynd leikur Hayley Mills aðal-
hlutverkiö. Þetta er í fyrsta skipti
sem Paul semur tónlist upp á
eigin spýtur, án samvinnu við
John Lennon.
Þar sem Bítlarnir hafa ekki
komið fram opinberlega um all-
langt skeið, hefur sá orðrómur
komizt á kreik að þeir séu „að
leysast upp“ og muni ekki leika
saman framar, en Bítlamir neita
að svo sé. Fyrir skömmu fullyrti
McCartney þaö í viðtali f Lond-
on, að þeir myndu hefja aftur
hljómleikaferðir á næsta ári.
Fyrir stækk-
andi fjölskyldu
er vaiidamálið
meira rými
í Tuketueseheimilinu var orðið
þröngt á þingi. Þar voru til
heimilis herra og frú Tukutese,
tvennir Tukutese afar og ömm-
ur og fjögurra ára Tukutese-
sonur.
Þá bættust við allan mann-
skapinn fimmburamir, tvær
stúlkur og þrfr drengir.
Svo aö nú er búiö áð gefa
fjölskyldunni frá East London,
Suður-Afriku, húsið við hliðina
1 heimilinu sínu til þess að búa
líka. Sjóður og sjóðstjóm, sem
omið var upp til að fylgjast
með velferð fimmburanna sjö
mánaða gamalla hefur séð frú
Tukutese fyrir útlærðri hjúkr-
unarkonu til þess að hjálpa
henni við þetta ógnarmikla
starf að ala fimmburana upp.
Allur útbúnaður og aðrir hlut-
ir í nýia heimilinu hafa verið
sérstaklega gerðir með það fyr-
ir augum að vinnan yrði unn-
in á hagkvæmasta og fljótleg-
asta hátt.
Herra Tukutese vinnur sem
verkamaður í kolum fyrir lágt
kaup, en sjóðurinn hjálpar upp
á sakimar i peningamálunum.
Skurðgrafa — Fek að mér að
grafa fyrir undlrstöðum o. fl. Uppl.
f sfma 34475.
• Skógræktin og
Z peningarnir
•
• Og nú er búreiknrngurinn á
• dagskrá, þ. e. a. s. fjárlögin, og
• ekki frekar en endranær, eru
2 menn á eltt sáttir, hvort eyða
• eigi meiru í eitt fremur en ann-
Z að.
ÞJóðin f heild þarf mlkið til
• hnífs og skeiðar, og þarfirnar
J eru miklar, fastar og fljótandi.
• Á einu sviði, sem ekki heyrir
• að vísu beint undir fjárlög, eyö-
• um við mörgmn milljónum ár
• hvert, sem aflað er á ýmsan
2 hátt, sem mér hefir dottið f hug
• hvort ekki væri betur varið á
• annan hátt, og það eru allar
•
milljónirnar, sem látnar eru í
skógrækt.
Nú hefir skógrækt verið
stunduð í nokkuð mörg ár, og
væri ekki einmitt tími til að
gera úttekt á, hvar spilið stend-
ur, þannig að óvilhallir menn
gerðu fyrir hönd þjóðarbúsins
rannsókn á, hversu mikið bær
krónur hefðu gefið af sér, sem
varið hefir verið til skógræktar
á undanförnum árum, eða búast
má við að gefi af sér á komandi
árum. Taka verður að sjálf-
sögðu tillit til þess gagns, sem
skógrækt gerir gegn uppblæstri
o. s. frv.
Maður hefir illan grun um
að skógræktin hafi ekki uppfyllt
þær vonir, sem við hana voru
bundnar, því að hríslur, sem
gróðursettar voru fyrir mörgum
árum, þær ná manni naumast
í öxl, samanber dvergskóginn
við Rauðavatn. Fyrir tuttugu
árum, gróðursetti ég nokkur
birki- og furutré f einum af
reitum skógræktarinnar, og ég
sá nú í sumar, að furuhríslum-
ar eru margar dauðar eða hafa
verulega kalið, en birkihríslum-
ar em kræklur, sem ekki ná
hæð manns.
GÖTU
Til samanburðar þessari skóg
ræktarrannsókn ættl að fara
fram hliðstæð rannsókn á því,
hvort grasrækt gefur betri raun
þannig að arðbærara þættl að
flytja til eitthvað af fjármagn-
inu, og auðvitað eitthvað af því
„propaganda", sem notað var til
að afla þess, yfir á grasræktina.
Hrafna-spá 2
Mönnum verður tamt að ræða 2
veðrið, enda fléttast það mikið •
inn í tilveru okkar á allan hátt, •
jafnvel ræður að einhverju leyti 2
skapgerð okkar og hugarfari.
Ég var aö ræða við gamlan 2
mann, sem mér hefir oft virzt •
veðurglöggur, fyrir tveimur dög •
um, og auðvitaö ræddum við um 2
veðrið. Hann sagði mér. að f •
nágrenni borgarlnnar værl ó- •
venjumikiö af hrafni, og sagði 2
hann, að það væri fom trú, að •
það boöaði harðan vetur — veð- 2
urfarslega. 2
Ég vona að sá gamll, eöa •
hrafnamir, reynist ekki sann- 2
spáir að þessu sinni. •
Þrándur f Götu. •
ÞRÁNDUR í