Vísir - 25.10.1966, Side 15
V í S IR . Þriðjudagur 25. október 1966.
75
aö ég drepist ekki úr leiöindum
héma. Mér finnst þetta enska
sveitalíf ekki beinlínis örvandi!
— Þér mundi kannski finnast
þaö ef þú sýndir meiri áhuga á því.
— Hvað ráðleggur þú mér aö
ge'ra? Gefa mig fram í líknarstarf-
semi eða eitthvað þess háttar?
— Þú gætir reynt aö hugsa meira
um heimiliö þitt.
— Þú hugsar svo vel um það, að
ég þarf þess ekki.
— Ég mundi gleðjast því, aö
þú vildir taka við því af mér. Ég
hef óskað þess daglega síðan þú
komst hingað. Ég hef nóg annaö
að hugsa. Og þú veizt bezt sjálf,
aö ég vil helzt flytja aftur í fbúð-
ina mína í London.
— Mér datt í hug, hvort þetta
væri sími til mín.
— Já, Robert' Drake. Ég vissi
ekki aö þú þekktir hann. Fran hló
dillandi. — Ég segi þér nú ekki
allt, Jenny litla. — Ég læt
ekki gægjast á spilin hjá mér. Viss-
irðu það ekki?
Hún vatt sér fram hjá Jenny og
tók símann. — Halló! Sæll vertu!
En hvað þú varst vænn að hringja!
Jenny fór inn í herbergið sitt og
fór að vinna. Hún var agndofa.
Hvers vegna haföi Fran ekki
minnzt á aö hún þekkti Robert
Drake? Hvers vegna vildi hún ekki
„láta gægjast á spilin“ hjá sér?
Hvers konar manneskja var hún
eiginlega? Jenny gat fyrirgefið
henni að hún var löt, að hún var
kærulaus og ónýt húsmóðir. Og
jafnvel — þó að erfitt væri — gat
hún fyrirgefið henni að hún skeytti
ekkert um bömin. En ef hún var
nú þegar, svona stuttu eftir gifting-
una, farin að hafa ieynifundi
með öðmm eins flagara og Robert
Drake, þá var Jenny nóg boðið.
Hún sárvorkenndi Chris, sem elsk-
aði Fran svo heitt og í blindni.
Jenny var svo æst að hún átti
bágt með að hafa hugann við vinn-
una. Hún hrinti stólnum frá borð-
kra og stóð upp, staðráðin í að
spyrja Fran hvað hún meinti með
þessu. Þegar hún kom út f gang-
inn sá hún að Fran var á leið-
irmi txpp stigann.
— Ég vissi ekki að það var orðið
svona áliðið, sagöi Fran, og Jenny
fann á sér að hún mundi segja
þetta til þess að reyna að komast
hjá óþægilegum spurningum. — Ég
verð að flýta mér aö komast í bað
og klæða mig. Ég er alveg hissa á
mér. En þið farið svo snemma á
fætur héma í Englandi, og bókin
mín var svo spennandi...
Já, það var á henni að sjá, að
hún hefði upplifað eitthvað spenn-
andi. Það var roöi í kinnunum, sem
að jafnaði voru fölar, og glampi í
augunum. Það var eitthvað dular-
fullt í augnaráðinu líka. Hún forð-
aðist að líta framan í Jenny og
spurði: — Hvernig gengur teikning-
in hjá þér?
— Illa.
— Það var leiðinlegt. Veslingur-
inn! Geturðu ekki hvílt þig í einn
eða tvo daga?
— Nei, það er ekki hægt. Ég er
að vinna aö mynd, sem ég verð aö
skila á morgun.
Fran rétti ietilega upp hendum-
ar og geispaði. Jenny datt í hug
nývaknaöur kettlingur, þegar hún
horfði á hann. Þaö var eitthvað
kattarlegt við Fran. Skyldi Chris
hafa tekið eftir þvf?
— Fran? sagöi Jenny.
— Já, hvað var það?
— Hvar kynntist þú Robert
Drake? Og hvenær?
Fran hló lágt.
— Við kynntumst af tilviljun —
fyrir tveim—þrem vikum. Þú mátt
ekki segja Chris frá þvf. Ég hef
tekið eftir, að eiginmenn eru stund-
um svo skelfing siðavandir ... Ætl-
arðu að segja mér að þú hafir
hneykslazt á þessu? Ég segi þér
satt, að það er allt í mesfa sak-
leysi. Ég var inni í Ashford að ná
f bækur í bókasafninu, og þá hjálp-
aði hann mér.
— Það er ekkert saklaust í sam-
bandi við Drake, sagði Jenny þurr-
lega. — Ég veit hvað ég er að
tala um.
— Mér er alveg sama hvort Ro-
bert Drake er meinlaus eða ekki,
sagði Fran og hló. — Reyndar
finnst mér alltaf þessir meinlausu
menn vera leiðinlegir menn. Ertu
ekki á sama máii?
— Það kemur ekki málinu við,
sagði Jenny stutt. — Mergurinn
málsins er sá, að þú átt ekki að
hafa stefnumót við Drake á laun.
En þaö hefurðu gert, býst ég við.
— Ekki nema sjaldan, sagöi
Passamyndir
-eknar í dag — Tilbúnar á morgun.
Sér tímar eftir samkomulagi.
Ljósmyndastofa Péturs Thomsens
Ingólfsstræti 4. Sími 10297, eftir kl.
Fran, og nú var allt í einu kominn
ólundarsvipur á hana. — Mér er
bara ómögulegt aö skilja að þetta
komi þér nokkurn skapaðan hlut
við.
— í rauninni kemur það mér
ekki við. Að öðru leyti en því, að
mér þykir vænt um Chris og langar
ekki til að hann lendi í raunum,
og verði óhamingjusamur.
— Hann verður ekki óhamingju-
samur. Að minnsta kosti ekki ef
þú ferö ekki að bera út söigur.
— Þaö geri ég varla. En Fran
. .. Jenny studdi á handlegginn á
henni. — Viltu ekki þiggja vin-
samlegt ráð af mér?
— Ég er ekki vön að þurfa á
ráðleggingum að halda, sagöi Fran.
— Og ég er heldur ekki vön að
ráðleggja öörum.
Jenny roðnaði. — En reyndu aö
skilja að þetta er áríðandi, Fran.
Viltu ekki lofa mér því að hitta
ekki Robert Drake oftar?
— Hvers vegna ætti ég að fara
að lofa því?
— Ef til vill vegna þess, að ég
veit betur. hvers konar maður hann
er, en þú gerir. Hann er ekki mikils
virði, Fran.
— Hvemig, meinarðu?
— Ég ætti ekki að þurfa að út-
skýra það fyrir þér, þú ert ekki
fædd í gær. En hvað sem því líður
þá verður ekki komizt hjá því aö
þú sjáist, ef þú hittir hann oftar.
Og þá fer fólk að tala um þetta.
Hugsaðu þér aö það bærist Chris
til eyma.
— Já, og hvað um það?
— Hann mundi taka sér það
mjög nærri, Fran. Þú hlýtur að
skilja það.
— Jæja, þá það, sagði Fran af-
undin. — Ég skal vera varkár, sem
þú kallar. En ég vona umfram allt,
Fran pírði augunum. — Væri
ekki réttara að þú yröir héma enn
um stund — þó ekki væri til ann-
ars en hafa gát á mér? Vegna hans
Chris, á ég við ...
Allt í einu breyttist svipurinn á
henni og röddin var biðjandi er
hún hélt áfram:
— Góða Jenny, ég fullvissa þig
um að þú þarft ekki að hafa á-
hyggjur af neinu. Mér finnst afar
leiðinlegt ef þú heldur það. —
Kanriski hefur það verið flónska af
mér að hitta Robert á laun. Ég
lofa þér því, að það skal ekki koma
fyrir oftar. Jæja — ertu þá ánægð?
Jenny brosti. Fran var óumræði-
lega heillandi, þegar hún vildi það
við hafa. Það var ómögulegt að
standast hana.
— Þú skilur það sjálf, Fran.
— Og þá talar þú ekki meira um
að fara til London aftur?
— Nei, ekki fyrst um sinn, að
minnsta kosti.
Fran hallaði sér fram og kyssti
Jenny á kinnina.
— Góða Jenny, þú ert svo yndis-
leg, og ég tilbið þig blátt áfram.
Mér er óskiljanlegt hvers vegna
Chris giftist þér ekki fremur en
mér. Það hefði verið miklu skyn-
samlegra.
— Er hann nýr?
— Nei, elskan mín ég hef átt
hann i eilífðar tíma. Ég keypti
hann þegar ég var með henni
mömmu í New York í fyrra. Chris
brosti. — Hann fer þér ljómandi
vel.
Éran steig nokkur dansspor fyrir
framan hann, svo að hann gæti
dáðst að henni. Jenny var á leið-
inni niður stigann og heyröi sam-
talið. Henni þótti þetta leitt, því
að hún þóttist viss um að blái lín-
ÞÝZKAR ELDHÚSINNRÉTTINGAR
úr harSpIasti: Format innréttingar bjóða upp
á annaó' hundraS tegundir skópa og litaúr-
val. Allir skópar me3 baki. og borðplata sér-
smíðuff. EldhúsiS fæst með hljóðeinangruð-
um stúlvaski og raftækjum af vönduðustu
gerff. - Scndið cóa komið meS mól af cldhús-
inu og viS skipuleggjum eldhúsið samstundis
og gerum ySur fast verStilboð. Ótrúlega hag-
stætt verð. Munið að söluskattur er innifalinn
í tilboðum fró Hús & Skip hf. Njótið hag-
stæðra greiðsluskilmóla og _ _
lækkið byggingakostnaðinn.
7 sími 24410.
HÚS&SKIP.hf.- LAUGAVEGI II *SfMIX15IS
T
A
ft
Z
A
N
Meöal sjómannanna þorparalegu voru fimm
manns, sem litu út fyrir að vera annarrar
manngerðar.
Tveir eldri menn, sýnilega fræðimenn, fríð-
ur ungur maður, skelfingu lostinn negrakona
og einn, sem mér varð starsýnt á — falleg,
ung stúlka.
„ TWO etP&Kl y
ewp£Hny scholars..
A GOOO -
LOOK/NG
YOUNOMAN:
^ATBAAOR-Y^rHBONe
F/LLEO i WHOR&tLLY
NBGHESS^
kjóllinn hefði ekki verið keyptur 1
New York í fyrrasumar. Hann virt-
ist að vísu ekki dýr, en útlitið gat
aðeins gabbað karlmenn, sem ekki
höfðu vit á kvenfatnaði. Jenny gat
þekkt módel-kjóla frá öðrum, og
hún hefði þorað að veðja um, að
þessi kjóll hefði verið í öskjunni
frá Norman Hartrym, sem Lily hafði
tekið viö af póstberanum nýlega og
lagt inn á rúm Fran.
— Þú hefur svei mér gott vit á
kjólum, elskan, sagði Chris gæl-
inn.
Orðsending
Nú geta þeir bíleigendur, sem aka
á hálfslitnum eða slitnum sumar-
dekkjum látið breyta þeim í snjó-
munstruð-dekk á aðeins 20 mfn. og
kostar aðeins frá kr. 100 (pr. dekk)
Verið hagsýn og verið á undan
snjónum. Við skoðum ykkar dekk
að kostnaðarlausu.
Opið virka daga kl. 8-12.C3 og
14-20, laugardaga frá ki. 8-
12.30 og 14 -18, og sunnudaga
eftir pöntun i síma 14760.
MUNSTUR OG
HJÓLBARÐAR
Bergstaðastræti 15
(gengið inn frá Spítalastíg)
METZELER
hjólbarðamir 6ru sterkir og
mjúkir, enda vestur-þýzk gæða-
vara.
Hjólbarða- og benzínsalan
við Vitatorg. Sími 23900
Barðinn h.f.
Armúla 7. Sími 30501
Ai -onna \ erzlunarfélagið h.t.
Skipholti 15. Sími 10199