Vísir - 16.11.1966, Blaðsíða 3
/ '/■
VÍSIR . Miðvikudagur 16. nóvember 1966.
mwumrr
Það hefur alla tíö skinið ein-
hver sérstæður þróttur út úr
svip þessara raanna. Þeir minna
mann gjama á landnema og
frumbýlinga harðsóttra landa,
eins og þessar þrautseigu hetj-
ur, sem eitt sinn voru og hétu
í „villta vestrinu“. — Að ryðja
hrjóstrugt land, veita vaxandi
atvinnulífi farveg um afdali og
fram til yztu annesja, stytta
leiðir milli frænda og granna —
ryðja menningunni land, gera
þjóðinni vegi undir nýja skó —
þetta var þeirra starf og er, þó
að allt sé nú breytt.
Já, vegaverkstjórar em sér-
stæð stétt manna. Það er ekki
laust við að fylgi þeim einhver
vottur af trölldómi, eitthvaö,
sem hefur magnazt í þeim við
þrældóm margra sumra — í
glímunni við torfærur á fjalla-
leiöum, furðuteikn náttúrunnar,
í viðskiptum viö sjálfa vætti
landsins.
Frá borðhaldi í „Domus medica“.
Við háborðið frá hægri: Kristrún Eyvindsdóttir, Karl Friðriksson og heiðursgestimri: Ásgeir Ásgeirsson fr^ Fróðá og Karólína Sveins-
dóttir, Lýður Jónsson, Steingrímur Davíðsson og kona hans, Helga Jónsdóttir, og Þormóður Pétursson.
Þormóður Pétursson, Helga Jónsdóttir, Einar Sigurjónsson, Ásgeir Ásgeirsson frá Fróðá, Steingrímur
Davíðsson, Lýður Jónsson.
írá samsæti vegaverkstjóra
Þegar maður hugsar út í það
er það aldeilis magnað, hverju
fáir menn hafa áorkað í vega-
lagningu um þetta víðáttumikla
og stórskoma land. Það er að
vísu margt af vanefnum gert og
stundum af hyggjuviti og fyrlr
þarfir landnemans fremur en
fyrir þá flóðöldu tæknideildar-
innar, sem nú brýzt út um borg
og bí, enda sáust engin merki
hennar, þegar menn hlóðu
þrönga vegi og krókótta með súr
um sveita endur fyrir löngu.
Það er einungis fátækt hinna ný-
ríku, sem haldið hefur í tilvem
þessara frumbýlingsvega, langt
fram yfir tímann sumum hverj-
um, vélaldarmönnum til þrot-
lausrar gremjy og armæðu.
Myndsjáin gat ekki stillt sig
um að birta einu sinni, að tæki-
færi gafst, myndir af þessari sér
stæðu stétt, sem er gerandinn i
vegamálum okkar.
Tilefni þessa samkvæmis vega
verkstjóra var raunar þakklætis-
vottur við einn elzta samstarfs-
mann vegagerðarinnar, Ásgeir
Ásgeirsson frá Fróðá, skrifstofu-
stjóra, sem nú lætur af störfum
eftir 47 ár — haldið í „Domus
medica“ 10. þessa mánaðar. Þar
fluttu verkstjórar Ásgeiri ávörp
og gjafir og heiðursskjal undir-
ritaö af 47 verkstjómm, þannig
orðaö:
„Vér undirritaðir, verkstjórar
vegagerðarinnar, viljum, með
þessu ávarpi og meðfylgjandi
gjöf, votta þér þakklæti okkar
fyrir ágætt samstarf á liðnum
ámm og áratugum og sérstakar
þakkir fyrir mikilsveröa og rétt-
láta fyrirgreiðslu i starfi okkar.
Svo og virðum við og þökkum
það ómetanlega starf, sem þú,
sem aöalskrifstofustjóri vega-
geröarinnar £ fjömtíu ár, hefur
unnið í þágu alþjóðar.. .*
Tvær kempur: Karl Friðriksson og Magnús Ingimundarson.