Vísir - 16.11.1966, Page 8
G<»
tifSL'tl.&fu...
V F S I R Miðvilaidagur 16. nóvember'19S3.
massusa
Otgefandi: BlaöaQtgáfan VISIR
Frnmkvæmdastjóri: Dagur Jónasson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Aðstoðarritstjórt: Axei rhorsteínson
Auglýsingar: Þingholtsstræti 1, símar 15610 og 15099
Afgreiðsla: Túngötu 7
Rltstjórn: Laugavegl 178. Simi 11660 (5 Unur)
Áskriftargjald kr. 100.00 á mánuöi innanlands.
1 lausasölu kr. 7,00 eintakiö
Prentsmiðja Vlsis —x Gdda h.f.
Hagsýsla ríkisins
Umsvif ríkisvaldsins hér á landi hafa vaxið gífurlega
síðustu áratugi. Stofnanir og deildir á vegum ríkis-
ins hafa sprottið upp í ríkum mæli, svo að nú er orð-
ið algengt að tala um „ríkisbákn“. Geysilega mikið
fé fer til að réka þessar stofnanir og til framkvæmda
á vegum þeirra. Hér er um svo mikla fjármuni að
ræða, að full ástæða er fyrir ríkisvaldið að líta sem
bezt eftir þessum rekstri og reyna að gera hann sem
ódýrastan. Ffam til þessa árs var ekki neinn ákveð-
. inn aðili, sem hafði slíkt verkefni, og liggur því í
augum uppi, að margt hefurVerið framkvæmt á of
, dýran hátt hjá ríkinu.
Þegar tilkynnt var snemma á þessu ári, að stofnuð
hefði verið enn ein deildin á vegum ríkisins, fjárlaga-
og hagsýslustofnun í fjármálaráðuneytinu,. kunna
ýmsir að hafa hrist höfuðið og hugsað um hið vax-
andi ríkisbákn. En raunar hefur hér verið komið á
fót stofnun, sem hefur m. a. það verkefni að hamla
gegn óhóflegum vexti og eyðslu í stofnunum ríkisins.
Með tilkomu þessarar deildar hefur ríkisstjórnin
markað nyja og nauðsynlega stefnu í ríkisrekstrin*
um. Þessi nýja deild undirbýr fjárlög og fylgist með
framkvæmd þeirra. Hún hefur forustu um endurbæt-
ur í ríkisrekstrinum, leitar að tæknilegum nýjungum
og bendir á leiðir til betri hagnýtingar á ríkisfé, auk-
ins sparnaðar og hagræðingar. Öll þessi atriði hafa
grundvallargildi til að fjármálastjórn ríkisins sé heil-
brigð og hagnýting ríkisfjár sé skynsamleg.
Ágæt reynsla er þegar fengin af þessari nýju stofn-
un. Hún annaðist allan undirbúning að fjárlagafrum-
varpi því, sem lagt var fyrir Alþingi í haust. Er nú
sú tíð liðin, að samning þessa mikilvæga frumvarps
sé íhlaupavinna. Hagsýslustjóri ræddi í þetta sinn
fjárhagsáætlanir allra helztu ríkisstofnana við for-
stöðumenn þeirra og gat því fengið mun betri yfirsýn
en áður var hægt að fá, auk þess sem hann gat fengið
nánar skýringar á ýmsum fjárbeiðnum. Þessi ræki-
legi undirbúningur hefur leitt til þess, að hægt hefur
verið með sterkum rökum að synja um fjárveitingu
i mörgum tilfellum og að draga úr þenslu í öðrum
tilvikum. Má því búast við, að áætlanir frumvarpsins
í þetta sinn séu raunhæfari en áður, og að ekki sé
áætlað fyrir síðari niðurskurði í meðferð Alþingis.
Þetta leiðir til þess, að í framtíðinni verður hægt
að krefjast þess af forráðainönnum ríkisstofnana, að
beir haldi útgjöldum sínum innan ramma fjárlaganna.
Þessi staðreynd ætti að geta skapað meiri festu og
aöhald á öllum sviðum ríkisbúskaparins og gera þjóð-
inni kleift að framkvæma meira fyrir það fé, sem
hún leggur á hverju ári í sameiginlegan sjóð sinn,
, ríkissjóð.
Jónas Haralz forstöðumaður Efnahagsstofnunarinnar •
Yið verðum að íeta okk-
ur áfram með skyn-
samlegum úrræðum
Hið mikla vaxtar- og velgengnistimabil undanfarinna ára liðið
hjá, aðallega vegna óhagstæðrar verðlágsþróunar erlendis
Jónas Haralz, forstööumaður
Efnahagsstofnunarinnar ræddi á
almennum fundi Kaupmanna-
samtakanna í fyrrakvöld um
þróun efnahagsmálanna og þau
viðhorf sem framundan eru í
þeim málum. — Kom margt
fram í ræðu Jónasar Haralz,
sem verður reynt að gera laus-
leg skil hér.
Seinasta 4—5 ára tímabil er
eitt mesta framfaraskeið í sögu
þjóðarinnar. Meðalvöxtur þjóð-
arframleiðslunnar hefur verið
5—6% á ári, sem er meira en
í flestum löndum, sem eiga að-
ild að O.E.C.D. Aðeins í þróun-
arlöndunum Grikklandi, Spáni
og í Japan hefur vöxtur þjóðar
framleiðslunnar verið meiri.
Vöxturinn er þó mun meiri ef
tekinn er fyrir vöxtur þjóðar-
tekna. Verð á útflutningsvörum
okkar hefur hækkað mjög veru
lega undanfarin tvö ár, en á
sama tíma hefur hækkun á inn
flutningsvörum verið lftil. Þessi
hagstæða þróun hefur ekki ver-
ið í nágrannalöndum okkar.
íslendingar hafa notað þessi
auðæfi, sem skapazt hafa vegna
hagstæöra efnahagsþróunnar, til
neyzlu, fjárfestingar til að bæta
stööu okkar út á við. Fjárfesting
in hefur vaxið sérstaklega mik
y ið og þá helzt f þeim atvinnu-
greinum þar sem vöxturinn hef
ur orðið örastur. Á þetta aöal-
lega við sjávarútveginn„ en einn
ig um iðnað. Opinberar fram-
kvæmdir, hafa einnig aukizt
mjög mikið og þá sérstaklega
framkvæmdir bæjar- og sveitar-
félaga.
Samkvæmt athugunum Efna-’
hagsstofnunarinnar hefur aukn-
ing þjóðarteknanna dreifzt mjög
vel milli hinna einstöku stétta.
Að vísu hefur Efnahagsstofn-
unin ekki getað gert á því ná-
kvæma könnun með tilliti til
allra stétta, en samkvæmt at-
hugun sem var gerð á tekjum
sjómanna, iðnaðarmanna og
verkamanna er sýnt aö þessar
stéttir hafa haldið vel í við
aukningu þjóðarteknanna, jafn-
vel gert heldur betur, einkum
á síðast liðnum 2 árum.
Á þessu tímabilj hefur okk-
ur tekizt að byggja upp gjald-
eyrisvarasjóð, sem nemur um
40% af árlegum innflutningi.
Þetta er mikil breyting frá því
sem áður var. Höfum við ekki
átt verulegan gjaldeyrisvara-
sjóð áður síðan fyrstu ár eftir
stríð. Vegna þess hvað útflutn-
ingur okkar er óstöðugur þyrft
um við þó meiri gjaldeyrisvara
sjóð til að mæta erfiðum tímum.
Þessi gjaldeyrisvarasjóður er
forsenda fyrir frjálsum innflutn
ingi, sem nú nemur um 90%
af heildarinnflutningi. Þessi
sjóður er einnig grundvöllur að
lánstrausti erlendis.
Vöxtur þjóðarframleiðslu og
tekna hefur að miklu leyti staf
að af miklum vexti sjávarútvegs
óg þá sérstaklega síldveiða og
síldarvinnslu. Árin 1962 og 1963
hélt iðnaðarþróunin i þróun sjáv
arútvegsins en greinilegt er, að
árin- 1964 og 1965 hefur vöxtur
þessara atvinnugreina ekki ver
ið eins mikill, jafnvel staðið í
stað.
Við stöndum frammi fyrir
mikilli breytingu í efnahagslif-
inu, sagði Jónas Haralz. Þessi
vaxtartímabil standa ekki að ei
Jónas Haralz forstöðumaður
Efnahagsstofnunarinnar.
lífu. Við hagfræðingar höfum
alltaf verið aö búast við því
undanfarið að draga mundi úr
vexti, en það hefur ekkj gerzt
fyrr en nú.
Það er nú að verða alveg
ljóst, að það verður ekki um
aukningu þjóðartekna að ræöa
þetta ár. Stafar það fyrst og
fremst af verðlagsþróun erlend-
is, en einnig liggja fyrir því
innlendar ástæður. t Síldveiðar
hafa að vísu haldið áfram að
aukazt, en um töluverðan sam-
drátt var að ræða á seinustu
vetrarvertíð. Þorskaflinn dróst
saman um 10%. Einnig hefur
verið mikill samdráttur í togara
útgerð.
Verðfall á síldarlýsi og mjöli
hefur numið 20—30% á árinu.
Á sama tíma hefur orðið veru
leg lækkun á freðfiskmarkað
inum í Bandaríkjunum. Bendir
fátt til að breyting veröj á þess
ari óheppilegu verðlagsþróun
næstu mánuði.
Við í Efnahagsstofnunni, sagði
Jónas, höfum gert ráð fyrir
3—4% aukningu þjóðarfram-
leiðslu á þessu ári, en á sama
tíma hefur verðfall orðið á okk
ar helztu útflutningsvörum.
Mundi ég álíta að verðfallið
mundi gera að engu þá aukn-
ingu, sem við áttum von á og
verði því ekki um neina aukn-
ingu þjóðarteknanna að ræða.
Þetta er betri útkoma en verð
fallið gefur tilefni til, en það
stafar af þvi að fallið varð ekki
fyrr en á miðju ári. „Ul.
Þetta mikla vaxtar !og vél-
gengnistímabil, sem hér hefur
verið undanfarin ár er nú lið-
ið hjá sagði Jónas I lok ræðu
sinnar. Við vitum ekki nú hven-
ær nýtt vaxta og velgengnis-
tímabli mun aftur hefjast, en
við getum ráðið því miklu meira
um, en áður var hægt, ef við
höldum skynsamlega á málun-
um. Við erum miklu betur und-
ir það búin nú að bregðast skyn
samlega við vandanum. Skiln-
ingur á nauðsynlegum ráðstöfun
um til að mæta vandanum hef-
ur vaxið. — Þetta sýnir t.d. júní
samkomulagið frá 1964. Vegna
þeirrar erfiðleika í efnahagslíf-
inu verðum við að sætta okkur
við einhverjar hömlur, hversu
óæskilegar sem þær annars
kunna að Þykja. Hvemig til
tekst er óvíst, en við verðum
að feta okkur áfram með skyn-
'samlegum úrræðum.
Bækur Hörpuútgófunnar
Hörpuútgáfan hefur sent frá sér
bókina HULINN HEIMUR eftir
bandaríska útvarps- og sjónvarps-
fréttamanninn Frank Edwards. —
í þessari bók eru fjörutíu og fjór-
ar frásagnir af furðulegum fyrir-
bærum sem enn hefur ekki tekizt
að upplýsa með nokkru móti.
Bókin HULINN HEIMUR hefur
verið gefin út í flestum enskumæl-
andi löndutn og t.d. verið prentuö
í fimm útgáfum í Bandaríkjunum.
Bókin er prentuð í Prentverki
Akraness hf. Þýðandi er Jóna Sig-
urjónsdóttir.
Ut eru komnar tvær bækur um
HAUK FLUGKAPPA, lögreglu lofs
ins, SPELLVIRKI 1 LOFTI og FÍFL
DJARFIR FLUGRÆNINGJAR, sem
nú kemur út í 2. útgáfu, en bókin
seldist úpp fyrsta árið. Aðrar bæk-
ur f þessum flokki eru KJARN-
ORKUFLUGVÉLIN, SMYGLARA-
FLIJGyÉLIN og LEYNIFLUG-
STÖÐIN, sem allar hafa hlotið
miklar vinsældir meðal íslenzkra
drengja.
Höfundar bókanna eru tveir,
brezki rithöfundurinn Eric Leyland
og T. E. Scott Chard, yfirflugstjóri
B.O.A.C. Otgefandj er Hörpuút-
gáfan. Bækurnar enj prentaðar i
Prentsmiðju Akraness h.f.
Ut er komin hjá Hörpuútgáf
unni ný læknaskéldsaga, BLIND
ÁST, sem er fyrsta bókin f ís-
Ienzkri þýðingu eftir áströlsku
skáldkonuna SHANE DOUGLAS.
en bækur hennar hafa verið gefnar
út í flestum enskumælandi löndum
og eru einnig gefnar út a öhum
hinum NorðurlönJunum.
Þetta er saga um ást ungrar
stúlku. á lækni bennar. en stúlkan
þjáist af ólæknandi hjartasjúk
dómi. — Bókin er prentuð í Prent
verki Akraness h.f. Þýðandi er Ás-
geir Jakobsson.