Vísir - 26.01.1967, Blaðsíða 8

Vísir - 26.01.1967, Blaðsíða 8
8 J VISIR UtgefancU: BlaOaðtgáran VISIK Framkvæmdastjórl: Dagui Jónassoo Ritstjóri: Jónas Kristjánsson AOstoflarrltstjóri: Azei Fhorsteinsoo Fróttastjóri: Jón Birgir Pétursson Auglýsingastjóri: Bergþór Úlfarssoa. Auglýsingar. Þingholtsstræti 1. símar 15610 og 15099 Afgreiflsla: Túngötu 7 Ritstjóm: Laugavegi 178. Siml 11660 (5 llnur) Askriftargjald kr. 100.00 á mánuOi innanlands. I lausasöiu kr. 7,00 eintakiO PrentsmiOja Vlsis — Edda h.f. Fiskiskipasmíðar JTiskiskipastóll íslendinga hefur breytzt undanfarin ár. Stór og nýtízkuleg síldveiðiskip hafa bætzt við flotann en togarar og bátar hafa gengið úr sér. Skipa- kaup útgerðarmanna hafa að sjálfsögðu miðazt við þær veiðar, sem mest hafa gefið af sér undanfarin ár, síldveiðarnar. Eru nú í eigu íslendinga margir tugir nýrra síldveiðiskipa, sem hafa átt drýgsta þáttinn í að gera fiskimiðin að meiri gullnámu en nokkru sinni fyrr. Þess floti er betur útbúinn en nokkur annar hlið- stæður floti erlendis. Og hann stækkar í sífellu. Nú eru 34 stálfiskiskip í smíðum fyrir íslenzka útgerðar- menn. Athyglisvert er, að stærð þessara skipa er yfirleitt yfir 300 tonna og í sumum tilvikum um 500 tonna. Síldveiðiskipin eru að verða eins stór og ný- sköpunartogararnir voru. Þessi vel útbúnu og verðmætu skip verða að nýt- ast vel. Nokkuð hefur borið á því, að ný síldveiði- skip hafi verið einhliða útbúin til þeirra veiða, og því ekki gert ráð fyrir, að þau þurfi að stunda aðrar veiðar. Hins vegar hlýtur að vera óvarlegt að gera ráð fyrir, að síldveiðar verði um aldur og ævi aðal- veiðar íslendinga, og því ætti að smíða þessi skip þannig, að með tiltölulega litlum tilkostnaði mætti gera þau út á togveiðar .eða aðrar veiðar, sem borga sig hverju sinni. Saga togaranna er fordæmi á þessu sviði. Lengi hefur verið reynt að bja'rga útgerð þeirra með því að gera þá út á síld, en þær tilraunir hafa gengið erfiðlega. Það vakti því fögnuð, þegar togar- inn Sigurey, sem aflakóngurinn Þorsteinn Gíslason keypti nýlega, fékk 370 tonna afla 4. janúar s.l. Von- andi táknar sá afli, að takast megi með árangri að breyta togurunum og gera þá út sem síldveiðiskip. Vandamál togaranna sýna, að ný fiskiskip eiga að vera fjölhæf, svo rekstur þeirra verði síður undir happdrætti kominn. Verulegt fagnaðáréfni er, hve hröðum skrefum eykst stálskipasmíði innanlands. Og það eru engin smáskip, sem smíðuð eru. Eitt er 520 tonna, amiað 460 tonna og tvö eru yfir 30Ö tonna. Þessi unga iðn- grein hefur farið vel af stað, þótt hún hafi átt við að stríða fjárskort, sem jafnan háir ungum fyrirtækjum í uppbyggingu. Ríkisvaldið hefur stutt með ráðum og dáðum þróunina í þessari grein, en innlendar skipa- smíðar verða samt ekki byggðar upp á svipstundu. Nú smíða þrjár stöðvar stálskip ,nokkrar slíkar stöðv- ar eru í byggingu og enn flei’ri eru á teikniborðinu. Það væri mikil gæfa, ef hinn ákveðni stuðningur rík- isvaldsins við þessa ungu iðngrein yrði til að reisa hér öflugar skipasmíðar á einum eða tveimur áratug- um. Ef þróunin heldur áfram með sama hraða og nú, ætti það að takast. íslenzkri útgerð yrði það ómetan- legur styrkur og öryggL I í V1SIR. Fimmtudagur 26. janúar 1967. MOBUTO NEITAR BELGÍSKUM SÉR- FRÆÐINGUM UM HEIMFARARLEYFI - HVAÐ GERIST, EF KATANGAHÆNAN HÆTTIR AÐ VERPA GULLEGGJUM? í NTB-frétt frá Briissel sl. laugardag var sagt, að belgiska stjómin gæti ekki sætt sig viö þá ákvörðun stjómarinnar í Kinshasa, höfuöborg Kongó, að neita belgiskum sérfræðingum að hverfa helm, en áður hafði verið birt tilkynning um slíka ákvörðun, en tekið fram, að þeir sem vildu fara yrðu að tilkynna það með árs fyrirvara. Sérfræð- ingar þessir starfa í Katanga- námunum sem Kongóstjóm iagðl hald á um áramótin. Um þessi mál hafa áður ver- ið birtar fréttir hér í blaðinu, og þess m.a. getið, aö af hálfu námufélagsins (Union Miniére) væri litið á iögtakið „sem stærsta þjófnað sögunnar" og var af þess hálfu hótað málaferl um gegn öllum, sem keyptu af- urðir hins nýja félags, sem stofn að var í stað hins. Og í bili að minnsta kosti var allur útflutn- ingur á námuafuröunum stöðv- aður. Nú er belgiska stjómin orðin aðili enn frekar en áður að þeim deilum, sem komnar eru til sögunnar og átökum, þar sem um harkalegar aöfarir er að ræða og vafalaust ólöglegar gegn belgiskum þegnum, sem starfa í Kongó. í tilkynningu frá utanríkis- ráðuneytinu i Briissel segir, að Kongóstjóm hafi verið tilkynnt að ef sérfræðingamir fái ekki heimfarárieyfi leiði það til al- varlegrar deilu milli landanna og hjá því vilji Belgíustjórn kom ast. Það var á fimmtudagskvöld, sem Kongóstjóm tilkynnti of- annefnda ákvörðun sína um sér- fræðingana og fékkst raunveru- lega með henni viðurkenning á því, að hún geti ekki starfrækt námumar án aðstoðar þeirra. Kongóstjóm greip sem kunnugt er til þess ráðs að söisa undir sig námumar eftir að stjóm Únion Miniére hafði neitað að flytja aöalskrifstofumar frá Brussel til Kinshasa og að Kongómenn yrðu í meirihJuta í stjóm námufélagsins. Til frekari skýringar á hvað hér er um að ræða skai hér birt- Vir kafli úr yfirlitsgrein frá 10. jan., en hún birtist í Norður- landablaöi: „Hefir Joseph Mobutu forseti með þessum aðgerðum gegn Uni on Minlere du Haut Katanga komið af stað viðburðarás, sem endar með drápi „hænunnar, Moise Tsjombe. — Hann dvelst í útlegð en bfður nýs tækifæris til að ná völdum í Kongó. sem verpti gulleggjunum? Frá námufélaginu hefir Kongóstjóm fengið helming ríkisteknanna og yfir 70% af þeim erlenda gjald- eyri, sem hún fær tii umráða — gjaldeyri, sem verðbólgulandið Kongó hefir sára þörf fyrir. Munu Kongómenn nú eftir lög- takið geta haldið fekstrinum á- fram? Koma þeir afurSunum á markað: Kopar, cobolt, urani og öðrum afurðum þessara auö- ugu náma?“ Við þessum spumingum er svarið raunverulega komið. — Kongómenn geta þetta ekld, afl mlnnsta kosti ekki um sinn — án þess aO njóta hæflleika, reynslu og starfsorku beigísku sérfræðinganna — og hafa neyðzt til að banna þeim aO fara úr landi. Verðmæti þess, sem Kongó- stjóm lagði hald á, nam sem svarar til 36 milljarða fslenzkra króna. í hinu nýja félagi á Kongó 60% hluta, en það sem eftir var boðið á alþjóða mark- aði. Ekki lofaði Mobuto neinum skaðabótum til gamla félagsins, en lofaði þó að málið skyldi tek- ið upp, er Union Minére í Briiss- el hefði greitt Kongó upphæö sem svarar til um 6 milljarða fsílenzkra króna, það telur Mo- buto Kongó eiga inni hjá fé- laginu. Og ef þetta yrði ekki greitt fyrir 15. janúar að leggja undir Kongó allar eignir stuðn- ingsfélagsins Societé Genciale de Belgique, sem á meginhluta hlutanna í Union Miniére. Ekk- ert benti til að féiagið mundi greiða Kotigó einn franka hvað þá meira og ekki hefir frétzt, að það hafi verið gert. En fé- lagið stofnaði til mótaðgerða (hiptanirnar mn málshöföanir) og vonaðist til með því, að geta lagt viðskiptabann á Kongó. En félagið lagði það í sjálfsvald 2200 belgfskra starfsmanna í Kongó, hvort þeir störfuðu á- fram þar eða kæmu heim. Það er augijóst, að Belgiu- stjóm ástundar að koma fram af festu en jafnframt af varúð, vegna öryggis hins beigísk® fólks í Kongó. — Mobuto og fleiri hafa æst menn upp — og það þarf ef til vill ekki mikið til, að allt fari í blossa, og það verði látið bitna á hinu belgfska fólki í landinu. Belgíustjórn ósk ar áreiðanlega ekki eftir blóð ugum átökum eins og urðu eft ir að landið varð sjálfstætt. Þess er afl geta, að Union Framh. á bls. 2 Þegar þessi mynd var tekin af Joseph Mobuto forseta var hann nýbúinn aö segja: — Þaö er betra að vera snauöur og sjálfstæöur, en auðugur og öðrum háður. Nú er honum mikill vandi á höndum, ef „Katangahænan hættir að verpa gulleggjum- |

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.