Vísir - 18.02.1967, Side 7

Vísir - 18.02.1967, Side 7
Eins og aðrir Reykjavíkurklerkar er sr. Þorsteinn Bjömsson einn af kunnustu kcnnimönnum kirkj- unnar. Hann er fæcldur 1. júlí 1909 í Garöl suðr, stúdent 1931, cand. theol. 1936. Sama ár vígðist hann aðstoðarprestur til sr. Sveins Guðmundsso nar í Ámesi, fékk síðan það brauð og hélt til 1942, að hann fhittist tH Þingeyrar, þar sem hann var í 8 ár er Fríkirkjumenn kölluðu hann til Reykjavíkur árið 1950. — Kona sr. Þorsteins er Sigurrós Torfadóttir frá Norðurfirði á Ströndum. Sr. Þorsteinn skrifar hugvekju klrkjusíðunnar í dag. Efni hennar er umburðarlyndið. Blæja kærleikans Þrisvar hafði ég hlustað á ræðu hjá honum (sr. Matthíási), í fyrsta sinni, er hanr. talaði í „sjómannaklúbbnum", sem kallaður var í Glasgow. Þá mun ég hafa verið ellefu ára eða þar um bil. Það var á gamlárskvöld. Mér þótti ræðan skemmtileg og syfjaði ekkert meðan hann flutti hana, en ekkert man ég úr henni nema inngangsorðið, sem var: „Þaö er framorðiö". I annað sinni hlust- aði ég á hann páskadagsmorgun snemma. Hefur það líklega verið þegar verið var að gera við dómkirkjuna, því hann talaði upp í iíkhúsinu, gluggarnir stóöu opnir eða voru teknir úr, inni var troöfullt og úti stóð fólkið eða sat á næstu leiðunum. Ekkert man ég úr þessari ræðu heldur, nema orðin, sem hann prédikaði yfir og endurtök við hvern kafla: „Hver mun velta fyrir oss stein- inum frá grafarmunnanum?" En allt hreif þetta mig eins og skýin, sem sigla eftir loftinu, fjölbreytt að lit og lögun. Þriðja sinni heyrði ég hann halda líkræðu eftir drykkjumann á heimili móður hans, gamallar og mæddrar. Úr þeirri ræðu festu þessi orð sig í huga mínum: „Og nú kveöur hann þig, ástríka móðir, í hinzta sinni og biður þig að breiða blæju kærleikans yfir bresti sína“. Þetta eru þær einu ræður, sem ég heyröi hér heima í æsku, sem ég minnist að nokkru, enda fór ég sama se m aldrei í kirkju, eftir aö ég fór að ráða mér sjálf, nema á jólakvöld og fyrsta páskadag, þá var eins og hjarnið og heiðríkjan, vorbjarminn og eilífðarþráin kölluðu á mig, þegar klukkurnar hringdu til tíða. Ólafía Jóhannsdóttir. Ekki er Dottinn seinn á sér með fyrirheitið, þótt sumir áiíti það seinlæti heldur er hann langlyndur við yður, þar eð hann vill ekki að neinn glatist heldur að allir komist til iðrunar. 2. Pét, 3.9. í frumkristni héldu menn, aö skammt væri að bíða heimsslita. En þau drógust. Svo er enn. Ástæðan er ekki seinlæti Drott- ins heldur langlvndi. Um þetta segir Páll: Hér er um að ræða ríkdóm gæzku Guðs og um- burðarlyndis og langlyndis (Róm. 2.4). Hér er átt við, aö umburða- lyndið leiði mennina fyrr eða síðar til iörunar. Kristnir menn hafa ekki fengiö orö fyrir að vera umburðarlyndir gagnvart öðrum trúarbrögðum eða sín á milli ef þá greinir á um trúaratriði. En kirkja og kristindómur er ekki það sgma, enda eru kirkjudeildirnar maígar og ólíkar, t. d. er taliö að í Bandaríkjunum einum skiptist mótmælendakirkjan ein í 140 deildir. Ekki geta ágreiningsat- riðin öll verig stórvægileg. Samt taka menn það óstinnt upp, þeg- ar $agt er að þessi eöa hinn á- greiningurinn skipti ekki máli og því gætu menn verið í einni og sömu kirkjunni. En þótt þessi klofningur veiki áhrif kirkjunnar, kemur ekki til mála að beita hér þvingun eða valdboði. — — Sama gildi um skoðanafrelsið. Frjáls skoðanamyndun er undir- staða menningar. Við íslendingar búum við bæði trú- og skoðana- frelsi í eins ríkum mæli og hægt er að tryggja stjprnarfarslega. Hér ríkir líka umburöarlyndi i trúmálum — en öllu síöur í stjórnmálum. í þeim efnum virð- ast margir „trúmenn miklir" haldnir heitri, jafnvel ofsafeng- inni sannfæringu. — En hver sem ágreiningurinn er, þá er það illt verk að fá aðra til að játast undir vissar reglur með meirihlutavaldi eða öðrum þvingunarráðstöfun- um. Ef ekki er unnt að sannfæra menn með rökum, verður við það að sitja. Því er það sannfær- ing kristinna manná, að naumast sé unnt að lifa þolanlega saman í þjóðfélagi án umburöarlyndis. Eins og maöur verður að sætta sig við að útlit manna er ólíkt, þannig verður maður einnig að þola ólíkar hugmyndir þeirra, trú og skoðanir, þótt þaö sé ó- neitanlega talsvert erfiðara. Merkur forsvarsmaður frjálsrar hugsunar og umburðarlyndis sagði einhverju sinni á þessa leið: Við verðum að koma okkur saman um að vera ósammála með fullri virðingu hver fyrir öðrum og kurteisi. Annar kvað hafa sagt viö andstæðing sinn: Þótt skoðanir þínar séu mér einkar ógeðfelldar, mun ég berj- ast fyrir því af öllum mætti að þú megir hafa þær. Umburðarlyndi er viss tegund hugarfars, skilgreint á þann hátt, að það sé jafnvægi hugsunar og skapsmuna. Umburðarlyndur maður hefur til að bera bæði sjálfstjórn og heilshugar trú, sjálfstæða skoöun. Umburðar- lyndi er hvorki tómlæti um sannindi né undansláttur. Hirðu- laus maður um trú og skoðun þarf ekki aö vera umburðalynd- ur. Hér er ekki um að ræða hlut- leysi gagnvart réttu og röngu, illu og góðu. Slíkt heitir kærir leysi en ekki umburðarlvndi Umburðarlyndur maður hefur gert sér grein fyrri hlutunum, myndaö sér skoðun. öölast per- sónulega' trú. En gegn öðrum mönnum vill hann ekki beita þvingun heldur þeim rökum sem í málstaðnum sjálfum felast. Þetta byggist á þeirri vissu, að ef hann sjálfur reynist staðfast- ur þá muni gildi og kraftur þess sanna hrósa sigri. Sálfræðilega séð mun það rétt vera, að hinn kreddufasti sé öryggislaus og vantrevsti sínum málstað. Hann er hræddur um aö hann fái ekki staðizt nema hann sé sýknt og héilagt að berja það inn í aöra, fá þá til að fallast á sitt mál, veröa sínir samherjar. Vitur maður hefur sagt: Umburðarlyndi er samruni mannkærleika og elsku á sannleikanum. — Að elska sannleikann einan getur leitt til grimmdarverka og þeirra ægilegra eins og sagan ber vitni um. Og mannkærleikur einn saman getur á stundum endað i tómri tilfinningasemi, ef £ hann vantar þá dáð, sem sann- leiksástin krefst, Því aö þar læt- ur réttlætið til sín heyra. Aftur á móti — þar sem þetta kemur saman í eitt, þar höfum við hið sanna umburöarlyndi. „Talið sannleikann í kærleika". Þessi orð postulans hafa að geyma hinn rétta anda — já heilaga anda. Því aö ef okkur á að auðnast að vinna menn til fylgis við þann málstað, sem viö trúum að sé hinn rétti og sanni verður það að gerast með vinar- þeli ekik síöur en vísdómsorð- um, meg góðum vilja ekki síöur en réttum rökum. En þetta getur því aðeins orðið aö við látum ekki skoðanamun og trúar- ágreining leiða til óvináttu og fjandskapar, en virðum rétt og persónu mancsins, leiðréttum hann ef oss burfa þykir og boð- um honum það sem við trúum að sé til sáluhjálpar af vinar- þeli ekk: síður en vísdómsorð- um mönnurn sæmir — fylgjendum kærleiks- og friöarhöfðingjans Jesú Krists. Það er nóg Það er nóg — segir Páll postuli í 18. v. í 1. kap. Filippibréfsins. Hvað var honum nóg, þessum eldheita áhugamanni, sem Iagöi sig allan fram og lét einskis ó- freistað til að breiða kristindóm- inn út meðal mannanna, ná til sem allra flestra meö það fagn- aðarerindi, sem er kraftur Guðs til hjálpræöis hverjum þeim, sem trúir? „Það er nóg“, segir Páll, „aö Kristur er boðaöur á allan hátt“. Allt annað eru aukaatriði. Ekkert má skyggja á eða vera tekið fram yfir þetta eina, sem skiptir öllu máli fyrir mennina: að komast til þekkingar á þeim sannleika, að Jesús Kristur, guðssonurinn, er í heiminn kominn til að frelsa mennina frá syndum þeirra, opna þeim leiðina inn á hjálp- ræðisveginn. Að þessu þurfum við, kristnir menn, að gefa góða gát. Okkur hættir svo til að ganga framhjá hinu stóra, því sem mest á ríður, þyj sem er lífsbrýn nauðsyn og lafa glepjast af smámunum, sem í raun og veru enga þýðingu hafa þegar allt kemur til alls og hlut- imir verða gerðir upp. Þannig hefur mönnum sjálfsagt alltaf verið fariö og ekki sizt kemur þétta í hug nú þegar deilur standa um ýmiss konar og ó- líkan boðunarmáta innan kirkj- unnar. Minnumst þá þess, að bókstaf- urinn deyðir en það er andinn, sem lífgar eins og segir í orði Guös. Og höfum þetta ofangreinda í huga, sem Páll lagði .á svo ríka áherzlu: Það er nóg að Kristur er boðaður. Látum hitt kyrrt um liggja, sem kann að vera „sér- vizka“ einhverra einstaklinga. Þeim kann að henta sá kenning- arháttur. Það er sjálfsagt að um- bera þá, treystandi því að Guð lítur á hjartaö og sé þeirra trú heil og ef hugur fylgir máli, þá gefur Guð því líf og kraft. Fríkirkjan.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.