Vísir - 31.03.1967, Síða 7

Vísir - 31.03.1967, Síða 7
V í SIR . Föstudagur 31. marz 1967. 7 ;un útlönd í-mor r’ '••*/'* -' • ■'.H'lj' v'' li gun id í raorgun útlönd j [ raorgun útlönd ALÞJODARADSTEFNA VEGNA TORREY CANYON STRANDSINS Brezka stjórnin hefur ákveðið að boða til alþjóðaráðstefnu um sigl- ingamál út af sjóslysinu mikla, er TORREY CANYON strandaði á klettum við suðvesturströnd Eng- lands. Gert er ráð fyrir, að á' ráöstefn- unni verði alþjóöa siglingalög tekin til endurskoðunar, einkum að því er tekur til skaðabóta fyrir tjón, er skip strandar og afleiðingarnar þær að rfki, bæir fyrirtæki og ein- staklingar verða fyrir tjóni, eins og t. d. vegna þess aö olíuna úr Torrey Canyon hefur rekiö að landi og þegar valdiö miklu tjóni. Jenkins innanríkisráöherra Bret- lands sagði í gær, aö tjóniö næmi ef til vill þegar fyrir brezka ríkið 1 milljón sterlingspunda, en tjónið fyrir alla er vitanlega margfalt meira. Jenkins sagði, að eftir þriggja daga sprengjuárásir virtist öll olía í flakinu eða í grennd við það brunnin, en oiíubrákin heldur áfram að færast nær suðurströnd Eng- iands og Norður-Frakklands. í Cornwall kvað þegar horfa öllu betur. Wiison hefur skorað á menn að hætta ekki viö sumarferðalög til Comwall, en þangaö koma árlega 6 milljónir manna á sumrin, og kveðst Wilson munu verða á Scilly- eyjum í sumar að vanda, en þar á hann sumarhús. Noröan Comwall á vesturströnd- inni og allt til Skotlands er fjöldi baðstaða og sækja þangað árlega 8 milljónir manna. Hungursneyð ú Indlundi Frétt frá Nýju Dehli hermir, að 150 menn hafi oröið hungurmorða í Bihar-ríki undangengna tvo mán- uði. Fjöldi manna hefur ekkert að leggja sér til munns nema ber og jurtarætur. Og því er viö bætt, að það versta sé ókomið. Á háflæði slokknuðu eldamir. Myndin er af Torrey Canyon á öðrum degi sprengjuárásanna... Nú er olían í flakinu sögð öl) brunnin. Kýjpur-nfósn- urum sleppf Þremur grískumælandi mönnum á Kýpur, sem grunaðir voru um njósnir,.hefur verið sleppt, og verða ; engar kærur lagðar fram á þá. ' Þaö varðar nefnilega ekki við lög að njósna á Kýpur, ef öryggi sjálfr- ar Kýpur er ekki teflt í hættu með njósnum, en ekkert hefur sannazt í því efni. Yfir 70 bóðu um laitdvisfurleyli í Áusfurríki Yfir 70 menn hafa beðið um land vistarleyfi í 'Austurríki sem póli- tískir flóttamenn — allir frá Aust- ur-Evrópulöndum. Af þeim eru 56 frá Tékkósló- vakíu, 9 frá Ungverjalandi og 2 frá Póllandi. Til Vínarborgar komu nefnilega óvanalega margir ferða- mannahópar á dögunum til þess aö horfa á alþjóðakeppni í ís-hockey, sem þar fór fram, og enn eru marg- ir ferðamannahópar í landinu ófarn ir, svo aö tala flóttafólksins get- ur hækkað enn. Aldrei meira manntjón en Vietnamstyríöldinni nu i Stórar bandarískar sprengjuflug- vélar . fóru í morgun til árásar á stáliðjuver um 65 km. fyrir norðan; Hanoi. Margar sprengjuárásir hafa þeg- j ar verið geröar á stáliðjuver þetta! og hefur verið gefið í skyn, að j það eigi að jafna það við jörðu. ! MANNTJÓN HRAÐVAXANDI KÍNA ANDVÍGT Manntjón í styrjöldinni er hraö- rilXÖGUM U THANTS vaxandi. í s.I. viku féllu um 200, Kfna hefur lýst sig andvígt sein- Suður-Vietnam hermenn og 2741 ustu friðartillögum U Thants og seg ! Bandaríkjahermenn, en í herstjóm j ;r f tilkynningu frá Peking, aö I artilkynningu frá Saigon segir, að j greinilega kenni þar áhrifa frá j manntjón Vietcong og N.-Vietnam i Bandaríkjunum og SovétríkjunUm. j í vikunni hafi veriö um 2700. i © Freetown: Hinn nýi hernaðar- leiðtogi í Sierra Leone Juxon- Smith skýrði frá því í gær, að hann væri aö skipa borgaralega ráðgjafarnefnd, sem á að vera hinni hernaðarlegu stjórn til aðstoðar við stjórn landsins. Nefndarskipuninni á aö vera lokið innan þriggja daga. Jafnframt skýrði hann frá því, að hernaöar- lega stjómin hefði skipt með sér störfum, en í henni eiga sex menn sæti. Juxon-Smith fer sjálfur meö fjármál og innanríkismál og verður æðsti yfirmaður hersins, og ber æðstu ábyrgö á réttarfari, land- vömum, iögreglumálum og innan- lands öryggismálum. Varaformaður ráðsins William Leigh fer með ut- anríkismál o.s.frv. © Johnson Bandaríkjaforseti hefu' bannaö CIA að halda áfram leyni legum fjárstuðningi við stofnanir heima og erlendis. Hefur rannsókn amefnd er Johnson skipaði skilað áliti og tillögum, sem Johnson hef ur hér með gert að sínum. © Bandaríska tímaritið 'Ramparts segir, að CIA hafi haft 6 menn starfandi að staðaldri við að fá er lenda stúdenta í Bandaríkjunum til þess að gerast njósnara gegn sínum eigin föðurlöndum. © í NTB-frétt frá Rómaborg segir. aö bandaríski kvikmyndaleikarinn William Holden verði leiddur fyrir rétt 20. maí vegna bifreiðarslyss • júlí í fyrra, er maður varð fyrir bif- reið hans og hlaut af bana, en Holden er sagður hafa ekið áfram í Ferraribíl sínum. #NTB-frétt frá Detroit hermir, að Chevrolet-verksmiðjurnar hafi látið endursenda sér 12.602 bíla af gerö- inni Corvair 1967 vegna smíðagalla á stýrisútbúnaði. © Landv.arnaráöherrar Norður- landa halda fund í Hels- ingfors 26.—28. apríl til við- ræðna um atriöi varðandi friðar- gæzlusveitir Sameinuðu þjóðanna. © Josef Klaus kanslari Austurríkis fer í opinbera heimsókn til Búda- pest í maí. © Flokkur bandarískra kvekara og friðarsinna er kominn á seglskipi til Hanois og haföi með sér lyf og hjúkrunarvörur. © Franski rithöfundurinn Jean Paul Sartre segir, að stríðsglæpa- dómstóll Bertrands Russels taki til starfa í næsta mánuði eins og á- formað hafi verið. Sartre á sæti í „kviðdóminum“, sem á að fjalla um stríðsglæpaákærur á hendur John- son forseta og öðrum bandarískum leiðtogum. Sartre kvað dómstólinn koma saman utan Frakklands. Fyr- ir nokkru var lagt bann viö aö hann starfaði þar. ískyggilegar horfur í Grikklandi vegna ófryggs stjórnmálaástands FréttSr í fyrradag hermdu, að stjórnarkreppa virtist yfirvofandi í Grikklandi, en þar eiga kosningar að fara fram í maímánuði. Var sagt að ágreiningur væri upp kom- inn varðandi friðhelgi frambjóð- enda í kosningunum, en Pappand- reu vngri er meðal þeirra, sem voru viðriðnir samsærismál liðsforingja. K'táttir í gær hermdu, að for- sætisráðherrann Ioannis Paraske- voupoulos hefði rætt horfumar við Kcnstantin konung. Eftir aö hann kom af konungsfundi ræddi for- sætisráðherra við fréttamenn og fullvissaöi þá um, að hann hefði ekki beðizt lausnar. Hann var tvær - klukkustundir á fundi konungs. Það er Ijóst, að stjómin nýtur ekki | þess stuðnings stjórnmálaflokka, j | sem hún hefur notið, en forsætis- ; ráðherrann gerir sér vonir um að ! leysa vandann með samkomulags- umleitunum við aðra leiðtoga. Tveir j stærstu flokkar landsins, þjóðemis- radikalar og Miöflokkasambandið, hafa stutt stjórnina. Þaö er Miöflokkasambandið, sem hefur stungið upp á, að friöhelgi þingmanna, sem verða aftur í kjöri, haldist þar til daginn eftir kosn- ingadag 28. maí og halda þjóðem- isradikalar því fram, að þetta sé gert til verndar Andreas Pappand- reu, syni leiðtoga Miðflokkasam-. bandsins og fyrrverandi forsætisráð herra Georges Pappandreu. Gariga raunar ásakanimar á víxl milli flokkanna um hver sök eigi á stjórn arkreppunni. Heimfararleyfi hermanna hafa verið afturkölluð. Að loknum fundi í þingflokki Miðflokkasambandsins sagði Georges Pappandreu, að það myndi eklp styðja neina aðra þing- ræðisstjóm en núverandi og krefð- ist þingrofs, og aö mynduð yrði bráðabirgðastjórn, sem hefði það hlutverk aö sjá um kosningarnar. Komið hefur til átaka í Saloniki milli hægri og vinstri stúdenta við háskólann. Læknar landsins, tann- læknar og lyfsalar, 20.000 talsins hafa veriö í verkfalli síðan s.l. sunnudag. Fréttir seint í gærkvöldi hermdu, að stjómin hefði beðizt lausnar. Georges Pappandreu.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.