Vísir


Vísir - 31.03.1967, Qupperneq 9

Vísir - 31.03.1967, Qupperneq 9
V í S I R . Föstudagur 31. marz 1967. 9 Lífið er hvorki hlátur né grátur - Heldur aívarlegt hlutverk, sem inna þarf af hendi. - Sama er með leiklistina. - Rætt við Val Gíslason ieikara í tilefni 40 ára leikafmæiis — ÞAÐ MÁ SEGJA, að það hafi verið tílviljun að ég skyldi leggja fyrir mig leiklist. Tveir samstarfsmenn mínir í Islandsbanka, Brynj- ólfur Jóhannesson og Indriði Waage, sem þá voru báðir starfandi í Leikfélagi Reykjavíkur, komu að máli við m!g einn dag síðla veturs 1926 og báðu mig að taka við hlutverki Sebastians í Þrett- ánda kvöldinu eftir Shakespeare, sem þá átti að frumsýna innan skamms. Ég lék þarna tvíburabróður Soffíu Guðlaugsdóttur og mun ástæðan fyrir því að ég var beðinn um að taka hlutverkiö að mér vera sú, að þeir álitu að hægt væri að gera mig nægjanlega Iíkan Soffíu til að geta Ieikið tvíburabróðurinn. Sebastian er ósköp ómerkilegur ungur maður og að engu leyti áhugaverður, en ég hef aldrei séð eftir að hafa tekið að mér þetta hlutverk. Það varð upphaf leikferils míns. Ég fékk heldur lélega dóma fyrir þessa frumraun mína, en -ég er ekki' frá því að það hafi verið mér hollt sem öðrum ungum leikurum að fá lélega dóma í upphafi, — Það kemur í veg fyrir rangar hugmyndir um sjálfa sig. — Þessi sýning Leikfélags Reykjavíkur í apríl 1926 var þó ekki merkileg fyrir þá sök, að ég skyldi leika þarna mitt fyrsta hlutverk, heldur að því leyti, að hún var fyrsta Shake spearesýning á íslandi. Sýn- ingin reyndist þó afdrifarík- ari fyrir mig en frægð Shake- speares. Þannig hefst viðtal við Val Gíslason leikara í tilefni 40 ára leikafmælis hans, eins og vera ber, — á upphafinu. — Með frumsýningu á Loftsteininum eftir Diirrenmatt í Þjóðleikhús- inu í kvöld, þar sem Valur leik- ur aðalhlutverkið, verður afmæl isins minnzt, — þó að ég hafi í raun og veru átt 40 ára leik- afmæli í fyrravor, strangt til tekið, segir Valur. — Þjóöleik- hússtjóri bauð mér aö afmælis- sýningin yrði haldin þá, en af ýmsum ástæðum gat ekki orð- ið af því. — Um svipað leyti var ákveðið aö taka Loftstein- inn til sýningar nú á yfirstand- höfðum svo marga góða hjá Leikfélaginu ... andi leikári og að ég léki aðal- hlutverkið, nóbelskáldið Wolf- gang Schwitter, og því ákveðið að fresta heiðurssýningunni þar til nú. Cíöan ég lék Sebastian hef ég leikið baki brotnu, misjafn- lega mik:5 rrá ári til árs, og oft í fleiíi leikritum í einu. — Ég hef ekki nákvæma tölu vfir fjölcla leikritanna, en láta mun nærri, að leikritin séu allt að 180 frá upphafi til þessa dags. Fyrstu 10 árin hiá Leikfélagi Reykjavíkur iék ég að jafnaöi smærri hlutverkin. en oft ágæt hlutverk eins og minni hlutverk in geta oft verið. — Ég var þá á þeim aldri þegar leikarar leika gjarnan hin svokölluðu elskara- hlutverk, en þaö gerði ég eigin- lega aldrei. — Viö höfðum svo marga góða .elskara þá, hjá Leikfélaginu eins og t. d. Gést Pálsson og Indriða Waage, að það reyndist ekki nauðsynlegt að nota mig í það. — Er ég því að mörgu leyti feginn, þar sem ég var fyrir vikið því meir settur í „karakter“-hlutverk, sem hefur haldizt alia tíð síð- an. , , ;. Upp úr 1936 er farið að setje mig í stærri hlutverk og hef ég síðan mest verið í þeim. Ekki svo aö skilja, að mörg smáhlut- verkin geta oft verið eftirsókn- arverð, eins og ég nefndi áðan. Þegar Þjóðleikhúsiö hóf starf semi sína um áramót 1949 — 50 réðist ég þangaö og um leið varð leiklist mitt aðalstarf, en hafði áður verið nánast tóm- stundaiðja. Franji að þeim tíma Jjað er erfitt aö gera upp á milli hlutverka og ómögu- legt að gera öllum þeim hlut- verkum skil hér, sem hafa ver- ið mér hugstæð. — Til að nefna nokkur af handahófi mætti nefna þrjú hlutverk hjá Leikfélaginu: Nat Miller í „Ég man þá tíð“ eftir O’Neil 1946, létt hlutverk og skemmtilegt og skemmtilegir mótleikarar, þar sem voru Brynjólfur Jóhannes- son og Arndís Björnsdóttir. — Mikael Borge eldri i Orðinu eftir Kaj Munk 1943, sem var mjög alvarlegt hlutverk og mik- il andstæða við Nat Miller. — Bryngeir formaður í Brimhljóði eftir Loft Guðmundsson áriö 1939, var einnig eftirminnilegt hlutverk. — Bryngeir formaður var raunar að nokkru leyti elskarahlutverk (eitt af þeim fáu, sem ég hef leikið) þó aö hið dramatíska mikilvægi hlut- verksins væri ef til vill þyngra á metaskálunum. — Það er reyndar hálfgerð skömm aö því, að Brimhljóð skuli ekki hafa verið tekið til sýningar aftur. |7ftir að ég kom til Þjóðleik- hússins lék ég mjög mikið af góðum hlutverkum. Jón Ara- son í samnefndu leikriti eftir Tryggva Sveinbjörnsson varö mér eftirminnilegur. Það var gaman að leika þessa sögu- legu persónu, þó að það hafi verið erfitt. Fólk hefur sínar skoðanir á þvi, hvernig svona persónur voru og því ekki hægt aö gera öllum til hæfis. — Sömu sögu er aö segja um Brynjólf biskup í leikriti Kamb- ans, Skálholti. — Kaptein Boyle í Juno og páfuglinn eftir Sean O’Caesy get ég nefnt sem ... þao er þroskandi að fást við leiklist... var skrifstofuvinna mitt lifi- brauð, aðallega í íslandsbanka og seinna hjá Sjúkrasamlagi Reykjavíkur. Allir íslenzkir leikarar höfðu leiklist að aukastarfi, þar til Þjóðleikhúsið var stofnað nema Lárus Pálsson, sem var fast- ráðinn hjá Leikfélagi Reykja- víkur frá 1941 — 1950 hluta árs- ins. — Var það fyrsti vísirinn að hreinni atvinnumennsku i leiklist hér á landi. — Hvaða leikrit eru þér sér- staklega hugstæð á leikferli þín um ? var einnig mjög áhugavert, — í önnu Frank, sem var að mörgu leyti Iærdómsríkt. Þá var mjög gaman að leika í einþáttungunum hans Mattí- asar Jóhannesen og þá sérstak lega í Jóni gamla. — Finnst þér leiklistin hafa haft áhrtf á þitt eigið sjálf eftir þessa áratuga innlifun í mörg misjöfn hlutverk. Tá tvímælalaust. Leiklistin hef- " ur haft geysimikil áhrif á mig. ir-ao er þroskandi aó fást við leiklist. — Leikarinn kemst ekki hjá því að komast í kynni við ýmis vandamál mannlífs- ins og viðhorf höfunda til þeirra og verður að geta skilið forsendur aó baki viðhorfa höf- unda. Leikari ætti að geta skil- ið lífið örlítiö betur en margir aðrir, því hann verður að setja sig inn i mörg mismunandi vandamál og viðhorf. — Hefur það gerzt, að þú hafir neitao ao leika hlutverk vegna þess að þú hafir ekki verið dús við persónuna, sem þú áttir aö túlka? Tjað er ekki hægt, enda ganga hlutverkin ekki svo nærri manni, að það hafi áhrif á manns eigið sálariíf;. -Hitt .er. svo annað mál að viðhorfin til híutverkanna geta verið misjafn lega vinsamleg. — Það eru til leikarar, ekki kannski hér, en erlendis, sem neita að leika hina svonefndu vondu menn, en ég held að það sé) frekar fyrirsláttur. — Það verður að skilja persónuna eins og höf- undurinn ætlast til og túlka hana síðan eftir beztu getu. ... stundum viröist vinnan þó ekki nægja... dæmi um persónu, sem var mjög skemmtileg og ég held að mér hafi tekizt sæmilega að ná tökum á . Ég hef alltaf haldið mikið upp á írsku leikritaskáldin og eru leikritin Anna Chrisie og Húmar hægt að kvöldi eftir O’Neil mér mjög minnisstæð Faðirinn eftir Strindberg er magnað og stórbrotið leikrit og hlutverk mitt þar þannig, að ef maðiu: hefur fengizt við það, gleymir maður þvf aldrei aft- ur. — Annað föðurhlutverk ... lífið er hvorki hlátur né grát ur... — Og baráttan við persónumar? Tiað er aldrei hægt að fara troönar leiðir varðandi skilning á persónum, — þær eru alltaf nýjar og það er það, sem heill- ar mest í starfi leikara. — Þó að áhorfendur sjái mann ef til vill á sama hátt á sviðinu skipti eftir skipti, um það þori ég ekki að fullyrða, þá er mitt per- sónulega viðhorf til hverrar persónu alltaf síbreytilegt. — Lestur leikritanna og skiln- ingur á persónum er kannski veigamesta starf leikara? ... það reyndist þó afdrifaríkara fyrir mig en Shakespeare ... I »aö er auðvitað ekki nóg aó skilja leikritin og hlutverkin, — það verður einnig að túlka þau, en á heimalestrinum bygg- ist öll frekari vinna. Það tekur langan tíma að koma túlkun- inm i eðlilegt mót, sem gerist á æfingum smám saman, því það er ekki hægt aö byrja að leika fyrr en maður veit hvað maður á aö leika. Fyrst sér mað ur Kannski skýrar aðallínurnar. en síðan koma fram smádrættir. sem gefa persónunum lif og lit. Á æfingum eru hin ýmsu sjón- armið samræmd milli leikara og leikstjóra og verði einhver skilningsmunur, sem alltaf get ur orðiö, aöallega í smáatriðum, er ágreiningurinn ræddur og komizt að samkomulagi. — Ég fer yfirleitt rólega að framan af æfingum, reyni yfirleitt að fá grunntóninn fyrst fram, til þess að festa mig ekki of fljótt i ákveðnum vióhortum til hlut- verkanna. Það reynist affara- sælast því mörg hlutverk liggja ekki opin fyrir, fyrr en eftir mikla vinnu og ígrundun. — Leiklist byggist þá fyrst og fremst á mikilli vinnu? Já, að mjög verulegu leyti, en stundum virðist vinnan þó ekki nægja, — þrátt fyrir margra vikna æfingar og hugsun mis- takast bæöi einstök hlutverk og heilu sýningamar gjörsam- lega án þess að hægt sé að benda á, hvað. hafi misheppn- azt í raun og veru. — Sýning- ar fá slæma dóma hiá almenn- ingi eða leikdómurum, án þess að leikarar og leikstjóri geti gert sér grein fyrir í hverju það liggur. — Stundum eru áhorfendur og leikdómarar sam mála í dómum sínum en alls ekki alltaf. — Og þið sættið ykkur við þessa dóma? Ekki alltaf. — Leikarar 'eru fagmenn og hljóta þess vegna að hafa fagmannasjónarmið gagnvart sýningunum. — Al- gengt er að það sem leikur- um finnst góðar sýningar, falli almenmngi alls ekki i geð. — Hvernig stendur á því að leik rit, sem virðast ganga vel er- lendis, fá oft hina hörðustu dóma hér? Tjegar talað er um að leikrit 1 gangi vel erlendis, er oftast miðað vlð New York, London og áðrar slíkar stórborgir, stundum kannski Kaupmanna- höfn. - Gangi leikrit þar, segj Framh. á bls. 13.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.