Vísir


Vísir - 31.03.1967, Qupperneq 13

Vísir - 31.03.1967, Qupperneq 13
V1 S IR . Föstudagur 31. marz 1967. 73 Vnflur Gísluson — Framh. af bls. 9 um 100—200 sinnum, þá ættu sömu leikrit aö ganga héma einu sinni, tvisvar, miðaö við íjClda leikhúsgesta þar og hér. Svo er fjöldi leikrita, sem verða ekki vinsæl í öðru umhverfi en þau skapast í. — Er þá hægt að velja erlend leikrit til sýningar hérlendis eftir ákveðinni formúiu? Nei, það er ekki hægt, en leikrit sem lýsa hinu mann- lega, sem er ails staðar eins, geta alls staðar gengiö. Leikrit, sem gætu alls staöar gerzt, þó þau séu lituð af ákveðnu um hverfi, eru leikrit, sem allir skiija. — Hafa íslenzkir áhorfendur breytzt á þessum 40 árum, síö- an þú byrjaöir að leíka? Almenningur hefur nú meiri skilning, áhuga og kannski betri smekk en áður, þó að erfitt sé að fuliyrða um smekk- inn, því hver tími hefur sinn smekk. — Fólk hefur nú meiri fjárráð og stærri hópur hefur nú leikhúsáhuga en áður og kann betur að meta það, sem vel er gert. — Þá hefur leikhússtarfsemi aukizt geysi- lega mikið og er nú meira á- berandi en áður var. — Stofn- un Þjóðleikhússins kom af stað leiklistaráhugaskriðu um land allt, sem endurspeglaðist í auk- inni aðsókn. — Annað, sem án efa hefur mikiö iyft undir leik- listaráhuga, er aö eftir stríð hafa svo ótrúlega margir fs- lendingar siglt út fyrir pollinn og margir notað tækifærið til að fara í leikhús erlendis, sem hefur haft víötæk áhrif á leik- húslíf hér. — Að lokum Valur. Hefur þú nokkurn tima séð eftir þvi aö tilviljunin Jeiddi þig upp á leik- sviðið þama um áriö? Ég væri auðvitað ekki aö þessu, ef mér félli ekki við það. — Leiklist er ekki alltaf gaman eitt. — Lífið er hvorki hlátur né grátur, heldur alvarlegt hlutverk, sem maður veröur að inna af hendi. — Sama er að segja um leiklistina. Ef maður vill helga sig henni, verður mað ur að leysa starf sitt af hendi eftir beztu getu á hverjum tíma. — V. J. Föstudagsgrein — Framh. af bls. 5 einnig blekkingum, þegar þeir héldu því fram að örugglega væri séð fyrir þyl, að almennir borgarar yrðu ekki fyrir tjóni af loftárásum. Virtist sem John- son forseti hefði slíka trú á ströngum fyrirmælum sínum um að ráðast aðeins á hernaðar mannvirki, að hann þættist þar af geta dregið þá ályktun að almenningi hlyti að vera hlíft við öllum óförum. Auðvitað gat þetta ekki staðizt og skapaðist úr því vantraust á forsetann. Hann var harðlega gagnrýndur fyrir tilraunir til blekkingar og yfirleitt varð þetta hið mesta á- fall fyrir hann. Menn spurðu hvort hann væri svo langt leidd ur, að ekki væri hægt að trúa neinu orði sem hann mælti. — Þannig verkaði þetta atvik á hugi manna, sem vilja treysta og byggja á staöreyndum. Og víkjum stuttlega að þeim sögnum sem upp hafa komið um það, að Bandaríkjamenn hafi miskunnarlaust kastað svo- kölluðum Napalm-sprengjum á friðsæl þ».rp og brennt konur og börn með benzínhlauDi. Fvrir nokkru birti bandaríska blaðið New York Times grein um þetta sem læknisfræðilegur ráðunaut- ur blaðsins hafði skrifað. Nú er það alkunna að New York Tim- es hefur verið andsnúið stefnu Bandaríkjanna í Vietnam og hvatt til þess að draga úr eða hætta hemaðaraðgerðum. Fyrir það ætti að mega taka meira mark á orðum blaðsins, sem óhlutdrægs aðila, er gleypi ekki ómelt við hverri áróðursflugu stjómarvaldanna. Nú haföi þessi læHnisfræðil. ráðunautur blaðs- ins ferðazt um Vietnam endi- langt og heimsótt sjúkrahúsin í landinu í leit að þessum „Nap- alm-bömum“. En hann fann þau ekki. Hann heyrði að visu fáein ar sögur um að böm hefðu orð- ið fyrir brunasárum af Napalm, en fékk þær ekki staðfestar og á sjúkrahúsunum lá ekki eitt einasta bam, sem hafði fengið brunasár með þessum hætti. Jafnframt þessu kannaði hann það nokkuð hvaða orsakir lægju að baki sjúkrahúsvist manna á sjúkrahúsum Vietnam. — Hann komst ag þeirri óvæntu niður- stöðu, að 85% sjúklinganna voru á sjúkrabeði vegna sjúk- dóma og slysa, aðeins um 15% af völdum hemaðaraðgerða. Algengustu brunaslysin stöf- uðu af því, aö í eldsneytisleys- inu hafði fólk ætlað að notfæra sér benzín til upphitunar í stað steinolíu. Nú er ég ekki aö segja með þessu, að það komi aldrei fyrir að konur og börn verði fyrir árásum, Slíkt er auðvitaö ekki hægt að koma 1 veg fyrir. En skýrsla hins bandaríska læknis sem mér virðist mega taka trú- anlega gefur okkur þó talsvert aðra mynd af heildarástandinu en þeir ímynda sér, sem vilja aðeins trúa blekkingum. "Orezka tímaritið Economist hef ur um svipað leyti tekið til meðferðar aðrar ásakanir í garð bandaríska flughersins, að hann geri af handahófi loftárás- ir á almenna byggð, hvar sem er í Suður-Vietnam. Fréttamaður blaðsins hefur kannað þetta mál og komizt að því, aö farið er eftir mjög ströngum reglum í þessu efni, einmitt til þess að forðast handahófskenndar árás- ir. í bækistöðvum flugsveitanna er nákvæmlega fylgzt með hem- aðaraðgerðum og áður en árásir eru gerðar eru skotmörkin í hverri aðgerð mörkuð fyrirfram. Það er ennfremur föst regla, að áður en sprengjum er kastað er leitað eftir samþykki viðkom- andi héraðsstjómar. Á þeim svæðum, þar sem byggð er þétt- ust er bandarískum flugvélum og herflokkum meira að segja bannað að svara með skothríð, þó þeir verði fyrir árás. Áður en þeir mega svara fvrir sig verður vegna þéttbýlisins að hindra handahófskenndar gagnráðstaf- anir og forðast eftir beztu getu- að valda almenningi tjóni. Hér gildir að vísu eins og í fyrra dæminu, að mistök verða aldrei útilokuð og fréttir hafa borið með sér, að flugmenn hafi ráðizt á aðra staði en fyrirhugað var og valdið tjóni hjá almennum borgurum og jafnvel tjóni á bandarískum hersveitum, af því að þeir héldu að það væru stöðv ar óvinanna. jyj'ú er enn verið að gera til- raun til að koma á vopna- hléi og friði í Vietnam. Það er vonandi að takast megi með þol- inmæði að yfirvinna tortryggni beggja aðila og koma á heiðar- legum samningum, sem trygg- ing verði fyrir að báðir hlíti. Talið var síðast í byrjun febr- úar, aö líkumar fyrir friði færu vaxandi og sumir vonuðu jafn- vel, að þá þegar upp af fjögurra daga vopnahléi áramótahátíðar í Búddhasið tækist að skapa samkomulagsgrundvöll. í fjóra daga stöðvuðu Bandaríkjamenn þá loftárásir á Norður-Vietnam, en því hefur verið haldið fram að það væri frumskilyrði fyrir að friður kæmist á, að þessar loftárásir væru stöðvaöar. En í stað þess notfærðu kommúnistar í Norður-Vietnam sér þetta vopnahlé til stórfelldra herflutninga suður á bóginn til þess að byggja upp nýjan sókn- arkraft herja sinna. í fjóra daga höfðu þeir alla vegi og sam- gönguleiðir frjálsar til þessara hemaðaraðgerða, og hefur verið áætlað að þeir hafi þessa daga notað tækifærið til að flytja inn í Suður-Vietnam um 23 þúsund tonn af vopnum skotfærum og vistum. Eftir það hafa kommún istaherimir í Suður-Vietnam tek ið í notkun ný og hættulegri vopn en áður, eldflaugabyssur, nýja framleiðslu frá Rússlandi. Fyrir þennan atburð var mik- ið um það rætt, að Bandaríkja- menn ættu nú að taka það upp hjá sjálfum sér til að stuðla að friði, með því að stöðva loftá- rásir á Noröur-Vietnam. Frægir forustumenn í þeirra hópi eins og Robert Kennedy tóku það kall upp. En reynslan af þessu fjögurra daga vopnahléi var ekki góð, hún fyllti menn tortryggni, svo að nú eru minni líkur en nokkru sinni áður á að Banda- ríkjamenn fáist til þess einhliða að stööva loftárásirnar. Þorsteinn Thorarensen. Smiirtor Heilbrigðir fætur em undirstaða vellíðunar Látið hin heims- þekktu vestur-þýzku „Birken- stocks“ skóinnlegg lækna fætur yðar. SKÓINNLEGGSTOFAN Kaplaskjóli 5. Opin fimmtudaga og laugar- daga frá kl. 1—6 e.h. aðra daga eftir samkomulagi. Sími 20158. Auglýsing um skoðun bifreifta f lögsagnarumdæmi Reykjavfkur. Mánudaginn 3. apríl R-1 til R-150 Þriðjudaginn 4. — R-151 — R-300 Miðvikudaginn 5. — R-301 — R-450 Fimmtudaginn 6. — R-451 — R-600 Föstudaginn 7. — R-601 — R-750 Mánudáginn 10. — R-751 — R-900 Þriðjudaginn 11. — R-901 — R-1050 Miðvikudaginn 12. — R-1051 — R-1200 Fimmtudaginn 13. — R-1201 — R-1350 Föstudaginn 14. — R-1351 — R-1500 Mánudaginn 17. — R-1501 — R-1650 Þriðjudaginn 18. — R-1651 — R-1800 Miðvikudaginn 19. — R-1801 — R-1950 Föstudaginn 21. — R-1951 — R-2100 Mánudaginn 24. — R-2101 — R-2250 Þriðjudaginn 25. — R-2251 — R-2400 Miðvikudaginn 26. — R-2401 — R-2550 Fimmtudaginn 27. — R-2551 — R-2700 Föstudaginn 28. — R-2701 — R-2850 Þriðjudaginn 2. maí R-2851 — R-3000 Miðvikudaginn 3. — R-3001 — R-3150 Föstudaginn 5. — R-3151 — R-3300 Mánudaginn 8. — R-3301 — R-3450 Þriðjudaginn 9. — R-3451 — R-3600 Miðvikudaginn 10. — R-3601 — R-3750 Fimmtudaginn 11. — R-3751 — R-3900 Föstud.aginn 12. — R-3901 — R-4050 Þriðjudaginn 16. — R-4051 — R-4200 Miðvikudaginn 17. ; R-4201 — R-4350 Fimmtudaginn 18. — R-4351 — R-4500 Föstudaginn 19. — R-4501 — R-4650 Mánudaginn 22. — R-4651 — R-4800 Þriðjudaginn 23. — R-4801 — R-4950 Miðvikudaginn 24. — R-4951 — R-5100 Fimmtudaginn 25. — R-5101 — R-5250 Föstudaginn 26. — R-5251 — R-5400 Mánudaginn 29. — R-5401 — R-5550 Þriðjudaginn 30. — R-5551 — R-5700 Miðvikudaginn 31. — R-5701 — R-5850 Fimmtudaginn 1. júní R-5851 — R-6000 Föstudaginn 2. — R-6001 — R-6150 Mánudaginn 5. — R-6151 — R-6300 Þriöjudaginn 6. — R-6301 — R-6450 Miðvikudaginn 7. — R-6451 — R-6600 Fimmtudaginn 8. — R-6601 — R-6750 Föstudaginn 9. — R-6751 — R-6900 Mánudaginn 12. — R-6901 — R-7050 Þriðjudaginn 13. — R-7051 — R-7200 Miðvikudaginn 14. — R-7201 — R-7350 Fimmtudaginn -i T5. — R-7351 — R-7500 Föstudaginn 16. — R-7501 — R-76S0 Mánudaginn 19. — R-7651 — R-7800 Þriðjudaginn 20. — R-7801 — R-7950 Miðvikudaginn 21. — R-7951 — R-8100 Fimmtudaginn 22. — R-8101 — R-8250 Föstudaginn 23. — R-8251 — R-8400 Mánudaginn 26. — R-8401 — R-8550 Þriðjudaginn 27. — R-8551 — R-8700 Miðvikudaginn 28. — R-8701 — R-8850 Fimmtudaginn 29. — R-8851 — R-9000 Föstudaginn 30. — R-9001 — R-9150 Mánudaginn 3. júlí R-9151 — R-9300 Þriðjudaginn 4. — R-9301 — R-9450 Miðvikudaginn 5. — R-9451 — R-9600 Fimmtudaginn 6. — R-9601 — R-9750 Föstudaginn 7. — R-9751 — R-9900 Mánudaginn 10. — R-9901 — R-10050 Þriðjudaginn 11. — R-10051 — R-10200 Miðvikudaginn 12. — R-10201 — R-10350 Fimmtudaginn 13. — R-10351 — R-10500 Föstudaginn 14. — R-10501 — R-10650 Mánudaginn 17. — R-10651 — R-10800 Þriðjudaginn 18. — R-10801 — R-10950 Miðvikudaginn 19. — R-10951 — R-11100 Fimmtudaginn 20. — R-11101 — R-11250 "östudaginn 21. — R-11251 — R-11400 Auglýsing um skoðunardaga bifreiða frá R-11401 til R- 21750 verður birt sfðar. Bifreiðaeigendum ber að koma með bifreiðir sfnar til Bifreiðaeftirlitsins, Borgartúni 7 og verður skoðun fram- kvæmd þar daglega kl. 9-12 og 13-16.30, nema fimmtu- daga til kl. 18.30. Aftalskoðun verftur ekki framkvaemd 4 laugardögum. Festivagnar, tengivagnar og farþegabyrgi skulu fylgja bifreiðunum til skoðunar. Við skoðun skulu ökumenn bifreiðanna leggja fram full- gild ökuskirteini. Sýna ber skilriki fyrir þvf, að bifreiðaskatt ur og vátryggingariðgjald ökumanns fyrir árið 1967 séu greidd og lögboðin vátrygging fyrir hverja bifreið sé f gildi. Þeir bifreiðaeigendur, sem hafa vifttæki f bifreiðum sínum, skulu sýna kvittun fyrir greiðslu afnotagjalda til Ríkisútvarpsins fyrir árið 1967. Hafi gjöld þessi ekki verið greidd verður skoðun ekki framkvæmd og bifreiðin stöðv- uð, þar til gjöldin eru greidd. Ennfremur bér að framvfsa vottorði frá viðurkenndu viðgerðarverkstæði um að Ijós bifreiðarinnar hafi verið stillt. Vanræki einhver að koma bifreið sinnf tfl skoðunar á réttum degi, verður hann látínn sæta sektum samkvæmt um- ferðarlögum og lögum um bifreiðaskatt og bifrelftin tekin úr umferð, hvar sem tfl hennar næst. Þetta tilkynnist öllum, sem hiut eiga aft máH Lögreglustjórinn 1 Reykjavfk 30. mtrz 1967 Sigurjón Sigurftsson i

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.