Vísir - 09.05.1967, Síða 1
Landspróf hófst / morgun
44% nemenda faka próf í nýja
nómsefninu „Tölur og mengi/#
Landspróf hófst f morgun, eri
prófið þreyta að þessu sinni
1029 nemendur á öllu landinu í
37 skólum. Af þessum nemend-
um eru 496 í Reykjavík. Aukn-
ino heirra nemenda. sem eane-
ast undir landspróf, nemur 12%
frá f fyrra.
Fyrsta prófverkefnið er f stærð
fræði, en 455 nemendur þreyta
nú f fyrsta sinn próf í nýja
námsefninu í „Tölur og mengi“,
eða 44% nemenda. Er reiknað
með því að þeim nemendum
muni f jölga á næstu árum, sem
taka próf 1 nýju stærðfræðinni,
þar sem menntaskölamir eru
famir að miða við hana í náms-
efni sfnu.
Næstu prófverkefni lands-
prófsins verða náttúrufræði, ís-
lenzka, saga o. s. frv., en próf-
unum lýkur 29. þ. m.
Nótabátar með
upp í 40 tonn
— jbr/r netabátar eftir i Eyjum — vibast
hvar farib ab
Netabátar eru nú víða farnir að
taka upp net sfn. Frá Vestmanna-
eyjum róa nú aðeins brfr netabát-
ar ennþá, hinir hafa allir tekið upp.
Nokkrir línubátar róa frá Eyjum
og hafa verið að reyta, komizt upp
í 11—12 tonn. TroIIbátar hafa kom
izt upp í 20 tonn eftir 2—3 nætur.
Nokkrir stærri bátanna halda enn-
þá úti þorskanót og hafa verið „að
reka í hann“ öðru hverju, smáveg-
is suður með landinu. Einn Eyja-
báta fékk að sögn um 40 tonn f
taka upp netin
nótina. Engey og ísleifur IV. komu
til Eyja í gær með um 20 tonn hvor,
og fleiri voru með sæmilegan afla.
Reykjavíkurbátar eru sem óðast
að hætta á netum, en enginn hefur
farið þaðan með nót í hálfan mán-
uð eöa svo. Fáir netabátar munu
ennþá hættir á Suðumesjum, en
netabátar vestra em margir hættir
og um það bil að hætta. Búast má
við að mikill hluti vertíðarflotans
verði hættur veiðum á lokadaginr.
fimmtudaginn kemur.
Landsprófsnemendur i Hagaskóla gengu undir stærðf ræðipróf í morgun, m. a. í nýju kennslubókinni „Tölur
og mengi“. j
Þjóðviljinn rekur Hnnni-
hni úr Alþýðubandalaginu
Listi Hannibalsmanna væntanlegur á morgun
Almennt er nú búizt við því að tveir listar Al-
þýðubandalagsmanna komi fram í Reykjavík og
muni Hannibal Valdimarsson skipa efsta sætið á
öðrum þeirra, en Magnús Kjartansson efsta sætið
á hinum listanum. Ágreiningur er um það, hvort
báðir listarnir geti boðið fram undir nafni Alþýðu-
bandalagsins. Þetta er lagalegt atriði, sem erfitt
virðist að fá botn í að svo stöddu. Báðir aðilar hafa
leitað til þekktra lögfræðinga og ber þeim ekki sam-
an í athugasemdum sínum.
jÞjóðviljinn segir í morgun aö
Hannibal hafi sagt skilið við Al-
þýðubandalagið en svo mikið er
vitað að hann hefur ekki sagt
sig formlega úr því. Stjórn Al-
þýðubandalags Reykjavíkur hef
ur gefiö yfirlýsingu um að fé-
laginu séu óviðkomandi aðrir
listar í Reykjavík en sá sem sam
þykktur var 10. apríl og valdiö
hefur öllum ósköpunum, sem
dynja nú yfir þetta bandalag.
Hins vegar er engin opinber af-
staða tekin til félagsaðildar
Hannibals.
Þjóöviljinn segir ástæð-
una fyrir afstöðu Hannibals
Valdimarssonar í framboðsmál-
um vera þessa: „Ástæðan til
þess, að Hannibai Valdimarsson
hefur sagt skilið við Alþýöu-
bandalagið er ekki ágreiningur
um málefni, hann hefur ekki tal-
ið sig þurfa að marka sérstööu
sína um eitt einasta atriði stjórn
mála. Tilefnið er það eitt aö
sonur Hannibals, Jön Baldvin,
reyndist ekki hafa fylgi til þess
á almennum fundi Alþýðubanda
lagsins í Reykjavík, að fá sæti
á framboöslistanum. Þetta er
eina tilefnið."
í sambandi við framboðsfund-
inn 10. apríl kom fram að deil-
an stóð um skipun annars sætis
á lista Alþýöubandalagsins í
Reykjavík. Magnús Kjartansson
hafði verið ákveöinn í efsta sæt-
ið í stað Einars Olgeirssonar og
Hannibal taldi sig eiga rétt á
því að ráða manninum í 2. sæt-
ið í stað Alfreðs Gíslasonar, sem
gaf ekki kost á sér aftur og
sagði sig úr Alþýöubandalaginu.
Var í tillögum meirihluta upp-
stillingarnefndar stungiö upp á
Einari Hannessyni en í tillögum
minnihlutans, sem samþykktar
voru var stungið upp á Eövarð
Sigurðssyni.
Þjóðviljinn fer ekki dult með
persónulega óvild sína í garð
Hannibals Valdimarssonar í
morgun. Blaðið segir m. a.;
....verkefni hans í íslenzkum
þjóðmálum eru ekki lengur
Framhald á bls. 10
Kona stungin með hnífí
Lögreglan var kvödd inn að
Höfðaborg aðfaranótt laugardags-
ins, vegna átaka, sem þar áttu sér
stað á einu heimillnu. Manni og
konu, sem þarna bjuggu, hafði lent
]>arna saman í ölæði og hann stung
ið konuna með hnífi. Ekki voru sár
konunnar þó talin hættuleg. Rann-
sóknarlögreglan yfirheyrði mann-
inn, en hann kvaðst muna óskýrt
eftir atburðinum, en þó kom fram
að hnífurinn var ekki barna fyn:
hendi af neinni „eðlilegri tilviljun*'
Eftir var að heyra framburð kon-
unnar, þegar blaðið fór í prentun
í morgun og er máliö í rannsókn.
Brands-mál:
tr
Islenzka utanríkisróðu-
neytið svarar næstu daga
Ambassador íslands í Lundún-*
v.m Guðmundur í. Guðmundsson
var sl. miðvikudag boðaður til fund
ar í brezka utanríkisráðuneytinu.
Þar voru honum afhent mót-
mæli brezku stjórnarinnar vegna
töku togarans Brands út af Snæ-
fellsnesi eftir að hann flúði úr
Reykjavíkurhöfn. Telur brezka
stjórnin töku togarans ólögmæta
þar sem hann var tekinn utan land-
helgi, en slik taka sé því aðeins
heimil að eftirför hafi hafizt inn-
. an landhelgi. Utanrikisráðuneytið
hefur málið til athugunar. Svars
fri ráðuneytinu er að vænta næstu
daga.
Midlunartillagan
felld af bóðum
deíluaðilunum
í gær
Eins og getið var hér í blaðinu
i gær, fór fram atkvæðagreiðsla um
miðlunartillögu sem sáttasemjari
; ríkisins lagði fram, í deilu lyfjafræö
inga og lyfsala. Atkvæðagreiðsl-
; unni lauk kl. 16 i gærdag og voru
I atkvæðin síðan talin hjá sáttasemj
ara í Alþingishúsinu í gær kl. 18.
Miðlunartillagan var felld hjá
iiáðum aðilum með flestöllum
greiddum atkvæðum.
Fyrrgreind miðlunartillaga var
lögð fram á sáttafundi sem sátta-
. semjari hélt meö deiluaðilum s.l.
laugardag.
I gærmorgun voru fjórar vikur
liðnar frá því að verkfall lyfja-
fræöinga hófst
Sjóstangaveiðimaðurinn á mynd-
inni r-oð „þann stóra“, vænan
þorsk.
70 á alþjóða
sjóstangaveiðímóti
>■» Alþjóða sjóstangaveiðimót verð-
ur haldið í Vestmannaeyjum 13.—
15. maí. Það er Sjóstangavelðifélag
Reykjavíkur, sem efnir til mótsins
og nú þegar hafa um 70 manns
tilkynnt þátttöku í mótinu. Reyk-
víkingar senda sjö sveitir til
keppninnar, Akurnesingar karla-
og kvennasveit, Keflvíkingar senda
sveit og fjölmargir Akureyringar
taka einnig þátt í keppninnl. Verð
ur keppt um marga verölauna-
gripi.
Aðalkeppni mótsins fer fram á
hvítasunnudag en þá verður fiskað
lrá kl. 9^6 og á annan í hvíta-
sunnu, en þá verður fiskað frá
9—5. Lýkur keppninni með hófi í
„Akoges“ veitingahúsinu 1 Eyjum
en þar verða úrslit tilkynnt og verð
laun afhent.
I
/